Morgunblaðið - 09.05.1989, Side 48
, Morgunblaðið/RAX
A sjúkrastofunni: Sjúklingurinn, Kristrún Guðmundsdóttir, móðir hennar, Guðfinna Magnúsdóttir, og María Skaftadóttir, „uppáhalds-
hjúkka“ Kristrúnar.
Hlaut bata með ræktaðri húð
ÞRIGGJA ára gömul stúlka,
Kristrún Guðmundsdóttir, sem
lögð var inn á Landakotsspítala
milli heims og helju, hefur fyr-
ir tilstilli nýrrar meðferðar náð
bata á tuttugu dögum þar sem
6 til 8 vikur hefðu fram til þessa
þótt eðlilegur batatími. Krist-
rún fékk alvarlega heilahimnu-
bólgu og drep i húðblæðingar
í kjölfarið, þannig að um 40%
af líkama hennar varð eitt flak-
andi sár.
Ekki var hægt að taka húð af
heilbrigðum líkamshlutum stúlk-
unnar til að græða sárin en þess
í stað var lítið húðsýni tekið og
sent til Stokkhólms til ræktunar.
Sýnið var 6 fersentimetrar en til
baka komu 2.700 fersentimetrar
af húð sem grædd var á barnið.
Þetta er í fýrsta skipti sem slík
aðgerð er gerð hér á landi, en
aðferðin var fyrst reynd í Boston
árið 1981. Þremur árum síðar
voru höfundar he'nnar sæmdir
Nóbelsverðlaununum í læknis-
fræði.
Sjá: „Ræktun húðsýnis flýtti
bata ...“ á bls. 27.
“Slitnað upp úr viðræðum rík-
isins og BHMR í annað sinn
Sáttasemjari kannar hug- manna í dag
UPP úr samningaviðræðum Bandalags háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna og stjórnvalda slitnaði í gærkveldi, eftir samningalotu
sem stóð linnulítið alla helgina. Sljórnvöld lögðu fram hugmynd
að kjarasamningi til þriggja ára á laugardagsmorguninn, sem unn-
ið var að um helgina, en samninganefiid BHMR hafhaði í gær að
væri samningsgrundvöllur. Þetta er í annað skipti sem slitnar upp
—úr viðræðum aðila. í fyrra skiptið voru ekki haldnir fundir í níu
sólarhringa, en verkfall félaga BHMR hefur nú staðið í meira en
mánuð. Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, segir að miðað
við óbreytta afstöðu beggja aðila sé ekki nokkur ástæða að boða
til fundar, en hann muni í dag hafa samband við báða aðila. Sátta-
semjari er skyldugur til að boða til fundar innan 14 daga. Hann
segist reiðubúinn að boða til fundar verði einhver breyting á eða
annar hvor aðila óski þess. Ríkisstjórnin mun ræða stöðuna í kjara-
deilunni á fiindi sínum í dag.
síðast komu fram og engar aðrar.
Krafa þeirra væri áfram að fá á
þriggja ára samningstíma leiðrétt-
ingu á launum tii samræmis við
háskólamenn á almennum mark-
aði.
Menntamálaráðherra hefur boð-
að skólameistara framhaldsskól-
anna til fundar við sig í dag. Eftir
það munu fulltrúar Félags fram-
haldsskólanema koma á fund ráð-
herra og verða þar ákvarðanir um
færar leiðir í stöðunni tilkynntar.
Sjá fréttir og viðtöl á bls. 4
og 47.
ísleið hf.
flytur inn
smjörlíki
ÍSLEIÐ hf. hefur fengið leyfi
viðskiptaráðuneytisins til að
flytja inn 20 tonn af smjörlíki frá
Hollandi. Smjörlíkið er keypt
gegnum bresku matvörukeðjuna
Tesco en kemur hingað til lands
beint frá Hollandi.
Að sögn Péturs Júlíussonar,
framkvæmdastjóra ísleiðar eru
kaupin gerð til að gefa öllum mat-
vöruverslunum tækifæri á að selja
innflutt smjörlíki og er ætlunin að
selja það mjög ódýrt. Áður hafa
Hagkaup og KRON fengið leyfi til
að flytja inn smjörlíki. Pétur sagði
að ísleið hefði fengið hlutdeild í
innkaupasamningi Tesco frá Hol-
landi. Kvaðst hann eiga von á að
smjörlíkið yrði selt á hálfvirði miðað
við innlenda framleiðslu. Þá væri
ætlunin að flytja síðar inn smjörlíki
frá bandarísku matvörukeðjunni
Safeway.
Hægt að fá
símaskrána
innbundna
DREIFING nýrrar símaskrá hefet
eftir um það bil hálfan mánuð.
Þá verður öllum símanúmerum á
símsvæði 95, Norðurlandi vestra,
breytt í fimm stafa númer en þau
hafa verið ijögurra stafa. Þá verð-
ur nú hægt að fá símaskrána inn-
bundna.
Eftir útkomu nýju skrárinnar
verður fjögurra stafa símanúmer ein-
göngu að finna á Vestfjörðum, á
símsvæði 94. Að sögn Ágústs Geirs-
sonar, ritstjóra símaskrárinnar, er
stefnt að því að öll númer á landinu
verði fimm eða sex stafa. Tilgangur-
inn sé að íjölga mögulegum númer-
um. í fjögurra stafa númerakerfi sé
ekki hægt að hafa fleiri en 10.000
númer. Á Reykjavíkursvæðinu séu
númer nú orðin 75.000, en í fimm
stafa kerfi sé möguleiki á aðeins
100.000 númerum. Ekki nýtist öll
númer, til dæmis sé ekki hægt að
nota númer sem byiji á 9 og á höfuð-
borgarsvæðinu fari upphafsstafir
númera eftir hverfum.
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra, sem tók sjálfur þátt
í viðræðunum um helgina, segir
að hugmyndin að þriggja ára
samningi feli í sér upptöku nýs
launakerfis, sem grundvallist á
menntun og ábyrgð og tryggingar
væru fyrir því að þetta skilaði
ákveðnum áfangahækkunum.
Jafnframt hefði hann sett fram
hugmyndir um nýjan og öflugan
sjóð, sem veija ætti til þess að fjár-
magna ýmis réttinda- og aðbúnað-
armál háskólamanna og launaliði
sem meðal annars tækju mið af
samningum háskólakennara. „Ég
vonast til þess að hinir fjölmörgu
félagsmenn BHMR kynni sér hvað
fólst í þessari sameiginlegu hug-
myndasmíð, sem við vorum tilbúin
að gera að samningi," sagði Ólafur
Ragnar.
Wincie Jóhannsdóttir, formaður
Hins íslenska kennarafélags og
varaformaður BHMR, segist hafa
orðið fyrir vonbrigðum með af-
stöðu samninganefndar ríkisins.
Það hefði verið samdóma álit allra
í samninganefnd BHMR að halda
viðræðum áfram, en þau hefðu
ekki getað gengið að því að ræða
einungis þær hugmyndir sem
Dagsbrún og VR samþykktu samningana
KJARASAMNINGARNIR voru
samþykktir á félagsfundum hjá
Dagsbrún og VR í gær, með mikl-
um meirihluta hjá VR en tölu-
verðri andstöðu hjá Dagsbrún.
Verkamannafélagið Dagsbrún
samþykkti nýgerða kjarasamninga
við vinnuveitendur á almennum fé-
lagsfundi í Bíóborginni um miðjan
dag í gær. Atkvæði féllu þannig að
já sögðu 347, nei 221, auðir seðlar
voru 14 og ógildir 9. Samtals greiddu
591 atkvæði.
Verslunarmannafélag Reykjavík-
ur hélt fund um samningana í gær-
kvöldi. Atkvæðagreiðslan var leyni-
leg og greiddu 245 félagsmenn at-
kvæði. Samþykkir voru 209, 27 á
móti, en 9 atkvæðaseðlar voru auðir.
Atkvæðaseðlunum safiiað saman.