Morgunblaðið - 23.06.1989, Qupperneq 2
egei ÍMUl. .88 JIUOAOUTaOT CFTQAJHK’JÐíIO'M
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 23. JUNI 1989
Landsbankinn tek-
ur upp kjörvexti
BANKARÁÐ Landsbankans ákvað á fundi í gær að taka upp svokall-
aða kjörvexti á verðtryggðum útlánum frá og með 11. júlí. Kjörvextim-
ir verða 6,25%. Vextir á almennum verðtryggðum útlánum lækka úr
7,25% í 7%.
Allir einkabankar og sparisjóðir
hafa tekið upp kjörvexti en Lands-
bankinn er fyrstur ríkisbanka til
þess. Þannig njóta viðskiptavinir
bankans vaxtakjara í samræmi við
lánstraust, þeir sem best lánstraust
hafa borga lægstu vextina.
Þijú álagsþrep eru í kjörvöxtum
Landsbankans. Lægsta þrepið er
0,75% og leggst á almenn útlán,
raunvextir á þeim lánum verða 7%.
Að auki er 1% álag, og 2% álag sem
nær eingöngu verður notað við skuld-
breytingar.
Nafnvextir bankans munu hækka
1. júlí. Þannig hækka víxilvextir í
33% og vextir á almennum skulda-
bréfum hækka úr 33,5% í 34,5%.
Bjartsýnn um fram-
tíð villtra laxastofiia
segir Árni ísaksson veiðimálastjóri
Ástæða er til bjartsýni með framtíð villtra laxastofiia að mati Ama
Isakssonar veiðimálastjóra þar eð ýmislegt hefúr verið gert til þess
að draga úr hættunni sem steðjar að vegna vaxandi fjölda eldislaxa
sem sleppa úr kvíum og blandast villtu stofnunum í laxveiðiánum.
Árni sagði í samtali við Morgunblaðið, að genabanki með laxasvil sem
stofnsettur verður á þessu ári sé mikilvægt skref í þá átt að tryggja
villta laxastofna í landinu. Nýleg reglugerð um fjarlægðir eldisstöðva
frá árósum væri mikilvæg svo ekki væri minnst á það íslenska sérkenni
í laxeidi, að í kvíum væm villtir stofnar, en erlendis em yfirleitt að-
fluttir- eða eldisstofiiar.
Ámi sagði að erfitt væri að átta
sig á því við hvemig kringumstæður
gripið yrði til djúpfrystra laxasvilja,
en ljóst væri að stíft- eftirlit yrði að
vera með- ástandi stofna á því svæði
þar sem hættan er mest. „Allt sem
verið er að gera í þessum málum er
í varúðarskyni og það hjálpar okkur
mikið að vandinn virðist ekki umtals-
verður nema á mjög þröngu svæði á
suðvesturhominu."
Hvað varðaði reglugerðina um
fjarlægðir eldisstöðva frá árósum
sagði Ámi Isaksson, að eldisstöð
mætti ekki vera nær árósi en 15
kílómetra ef viðkomandi laxveiðiá
gæfi um eða yfir 500 laxa meðal-
veiði á sumri, en miðað væri við 5
kílómetra ef viðkomandi laxveiðiár
væm með innan við 500 laxa meðal-
veiði. Ymsar eldisstöðvar væru þann-
ig staðsettar að þær samrýmdust
ekki reglugerðinni og væri það lög-
fræðileg spurning hvemig mál þeirra
fæm.
Egilsstaðir:
Atak í meng-
unarvömum
Á Egilsstöðum er nú verið
að gera átak gegn loft- og
hávaðamengun frá bílum.
Við allar verslanir og þjón-
ustustofhanir er búið að setja
upp blómum prýdd skilti með
áletruninni „vinsamlegast
dreptu á bílnum.“
Hjónin Helga Hreinsdóttir
og Philip Vogler vom hvata-
menn að gerð skiltanna, sem
em framleidd á vemdaða
vinnustaðnum Stólpa. Egils-
staðabær styrkti verkefnið.
Þegar er búið að setja upp
um 20 skilti á Egilsstöðum. Þau
hafa vakið mikla athygli að-
komumanna í bænum og er
farið að setja skiltin upp í öðr-
um byggðarlögum. - Bjöm
Búðardalur:
Verslun opn-
uð í kaupfé-
lagshúsinu
HLUTAFÉLAG ellefú einstakl-
inga og fyrirtælqa í Dalasýslu,
hefúr tekið á leigu verslunar-
húsnæði Kaupfélags Hvamms-
flarðar og keypt vörulager þess.
Verslun félagsins, Dalakjör, opn-
aði í gær.
Félagið mun einnig reka sölu-
skála kaupfélagsins í sumar. For-
svarsmenn Dalakjörs em Gisli
Gunnlaugsson, Bára Aðalsteins-
dóttir og Haraldur Ámason.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þessi Ioftmynd frá Landmælingum íslands er tekin yfir Jökulsá á Fjöllum þar sem hún kvíslast í
Bakkahlaup og Sandá. Hringur er dreginn um rennuna sem nú er verið að loka.
Jökulsá á Fjöllum hamin
Skinnastað, Oxarfirði
UM KLUKKAN sex í gærkvöldi var ekki búið að loka kvíslinni, sem
Jökulsá á Fjöllum hafði brotið sér úr Bakkahlaupi yfir í Sandá.
Hætta er á að Jökulsá falli öll í Sandá ef ekkert er að gert. Vega-
gerðarmenn unnu þá við að moka möl og gijóti í rennuna og segir
Guðmundur Svavarsson, umdæmisverkfræðingur, að ætlunin sé að
fylla alveg í rennuna og hindra þannig að áin bijóti sér leið þama
í framtíðinni. Mikið hefúr minnkað í ánni síðan flóðið var mest á
þriðjudag.
Rennan sem áin flæðir um er
venjulega á þurru þegar lítið vatn
er í ánni. I flóðunum undanfama
daga hefur Jökulsá dýpkað hana
mikið og óttast menn að hún leiti
í auknum mæli yfir í Sandá, en
Bakkahlaup hefur verið aðal far-
vegur hennar. Bakkahlaup hefur
borið mikinn sand fram og hefur
botn þess hækkað við það. Sandá
fellur um lægra land og þess vegna
er hætta á að áin leiti þangað.
Falli Jökulsá að mestu eða öllu
leyti í Sandá, er talin hætta á miklu
landbroti af hennar völdum og hún
flæðir þá yfir Austursand og þá
eru lönd þar í hættu.
í gær hafði sjatnað mikið í Jök-
ulsá og var ekki meira en venjulegt
sumarvatn í henni undir kvöldið.
Sigurvin
Vegagerðarmenn keyra möl og gijóti í rennuna sem Jökulsá hafði grafið á milli Bakkahlaups og
Sandár. Horfit er til norðvesturs frá austurbakka árinnar, Sandá er næst á myndinni og Bakka-
hlaup (jærst.
Fjármálaráðherra vill breyta yfir-
stjóm Þjóðleikhúss og Ríkisútvarps
Telur vanda stofiiananna rekstrar- og stj órnunarlegan að hluta
ÓLAFUR Ragnar Grimsson sé að hluta til rekstrar- og
fjárrnálaráðherra telur að end- stjómunarlegs eðlis og segist
urtekinn fjárhagsvandi Þjóð- munu ræða við menntamálaráð-
leikhússins og Ríkisútvarpsins herra um breytingar á yfir-
Komist hjá lokun Rafveitu Hafharfjarðar:
Söluskattsskuld greidd
RAFVEITA Hafnarfiarðar greiddi seinnipartinn í gær ætlaða sölu-
skattsskuld veitunnar fyrir árin 1983 og 1984, en áskildi sér jafnframt
allan rétt til endurkröfiú með hæstu leyfilegum dráttarvöxtum og hugs-
anlegra skaðabóta. Þar með kom ekki til lokunar rafveitunnar, eins
og bæjarfógeti hafði hótað efltir fyrirmælum frá fjármálaráðuneytinu
yrði skuldin ekki greidd.
„Rafveita Hafnarfjarðar hefur
skyldum að gegna við Hafnfirðinga,
hafnfirsk fyrirtæki og nágranna-
byggðir. Þó að kröfur ríkisvaldsins
séu í fyllsta máta ósanngjamar hefur
Rafveita Hafnarfjarðar í dag greitt
ætlaða söluskattsskuid. Sú fjárhæð
er ekki greidd til þess að þóknast
ríkisvaldinu, heldur greiðir rafveitan
hana nauðug til þess að forða notend-
um Rafveitu Hafnaríjarðar frá stór-
tjóni. Rafveitan áskilur sér hins veg-
ar allan rétt til endurkröfu með bót-
um á hendur ríkisvaldinu," sögðu
forráðamenn Hafnarfjarðarbæjar og
hitaveitunnar í gær.
í tilkynningu þeirra kemur fram
að ríkisskattstjóri hafi 21. apríl 1987
úrskurðað að leggja bæri viðbótar- <
sölugjald á rafveituna fyrir árin 1983
og 1984. Úrskurðurinn hafi verið
kærður til ríkisskattanefndar, þar
sem rafveitan telji hann ekki eiga
sér lagastoð, og þar liggi málið enn
óafgreitt. Bæjarsjóður eigi rafveit-
una og bæjarstjórn ákveði gjald-
skrána, sem ætíð hafi verið staðfest
af iðnaðarráðherra. Það sé furðulegt
að ríkisskatLstjóri skuli telja að bæj-
arstjóm selji Hafnfirðingum rafmagn
á of lágu verði. Það sé ekki hans
að ákveða gjaldskrá rafveitunnar
heldur bæjarstjómar. Rafveitan hafi
ætíð staðið í skilum og muni gera
það hér eftir sem hingað til. Hún
hafi greitt söluskatt samkvæmt verð-
skrá, sem staðfest sé af ríkisvaldinu.
stjórn þessara stofnana. „Það
er alkunna að Qárhagsvandi og
rekstur Þjóðleikhúss og
Ríkisútvarps hefiir verið með
þeim hætti að ríkið hefúr þurfit
að greiða verulega viðbótarflár-
muni og það virðist sem fjár-
hagur Þjóðleikhússins haldi
áfram að fara úr böndunum,“
sagði ráðherra í samtali við
Morgnnblaðið í gærkvöldi.
„Það er auðvitað ljóst að það
verður að taka það mál til sér-
stakrar skoðunar og breyta stjóm
stofnananna til að styrkja þær
rekstrarlega og íjárhagslega,"
sagði hann. Fjármálaráðherra
kvaðst mundu ræða þessi mál við
menntamálaráðherra þegar hann
kemur til landsins en hann er nú
í Grikklandi. Ólafur Ragnar sagð-
ist ekki á þessu stigi vilja ræða
hugmyndir sínar um breytingar á
stjómun Ríkisútvarps og Þjóðleik-
húss. „En ég tel greinilegt að
æðstu stjórnendur hafi ekki tekið
nægilega vel á þeim ijárhagslega
og rekstrarlega vanda sem við
blasir. í því felst engin ásökun af
minni hálfu, það er bara staðreynd
sem við blasir,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra.
Fyrirspumum um
g-arðyrkju svarað
Lesendaþjónusta Morgun-
blaðsins tekur við fyrirspum-
um lesenda um garðyrlqu.
Það er Hafliði Jónsson, fyrr-
verandi garðyrlqsfjóri
Reylq'avíkurborgar, sem
svarar fyrirspumunum.
Tekið verður á móti fyrir-
spumum kl. 13-14 daglega í
síma 691100. Ennfremur má
póstsenda fyrirspurnir merktar:
Lesendaþjónusta Morgunbals-
ðins - Spurt og svarað um garð-
yrkju - Aðalstræti 6, 101
Reykjavík.
Umíjöllun Hafliða birtist í
Daglegu lífi sem kemur út á
föstudögum.