Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989
SJONVARP / SIÐDEGI
14:30 15:00 15:30 16:00 16:30 17:00 17:30 18:00 18:30 19:00
TF 17.50 ► Gosi (26). Teikni- myndaflokkur um ævintýri Gosa. 18.15 ► Litli sægarpurinn. Nýsjálenskur myndaflokkur í tólf Þáttum. 18.45 ► Táknmáls- fréttir. 18.50 ► Austurbæing- arnir. 19.20 ► Benny Hill.
STÖÐ2 16.45 ► Santa Bar- bara. 17.30 ► Maður á mann. Styrkur til fjögurra ára háskólanáms vegna af- burða árangurs í körfuknattleik breytir lífi Henrys mikið. Hann hyggst láta aðsérkveða í nýja-skólanum en verðurfyrirmiklum vonbrigðum. Aðal- hlutverk: Robby Benson, Annette O'Toole og G.D: Spradlin. Leikstjóri: Lam- ont Johnson. 19.19 ► 19:19.
SJÓNVARP / KVÖLD
Tf
19:30 20:00
19.50 ► 20.00 ►
Tommy og Fréttirog
Jenni. veður.
20:30 21:00 21:30 22:00 22:30 23:00 23:30
20.30 ► Málið og með-
ferð þess III. Þýðingar.
20/45 ► Vestmanna-
eyjar.
21.15 ► Valkyrjur. Banda-
rískursakamálaþáttur. Þýðandi
Kristrún Þórðardóttir.
22.10 ► Kona undir stýri. Bandarísk bíómynd frá árinu 1983. Leik-
stjóri Jonathan Kaplan. Ung kona, sem hefur mikinn áhuga á kapp-
akstri, læturekki deigansíga þótt móti blási. Hún tekurþátt íkeppni
þótt konur séu litnar hornauga í greininni en fordómarnir leynast
víða, ekki síst innan veggja heimilisins.
24:00
24.00 ►
Útvarpsfréttir
í dagskrárlok.
19.19 ► 19:
19. Fréttirog
fréttaumfjöll-
un.
20.00 ► Teiknimynd. 20.45 ► 21.15 ► Dauðaleitin. FrankSinatraíhlutverki lögreglu- 22.45 ► Bjartasta vonin. Breskurgamanmyndaflokkur.
20.15 ► Ljáðu mér Bernskubrek. manns í New York sem hefur í hyggju að setjast í helg- 23.10 ► Kvikasilfur. Umferðarþungi stórborgarinnar stöðvar ekki
eyra ... Umsjón Pia an stein, en er hann lætur af störfum krefst yfimnaður strákinn sem hefur það að atvinnu að sendast. Ekki við hæfi barna.
Hansson. hans þess að hann rannsaki dularfull fjöldamorð. Aðal- 00.55 ► Heiður Prizzi. Myndin fjallarum tvo mafíumeðlimi sem
hlutverk: Frank Sinatra, Barbara Delaney, Daniel Blank hittast í brúðkaupi og verða ástfangin. Alls ekki við hæfi barna.
og Monica Gilbert. 03.00 ► Dagskrárlok.
ÚTVARP
RÍKISÚTVARPIÐ
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir. Bæn, sr. Ólafur Jens
Sigurðsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið með Sólveigu Thorar-
ensen. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, frétt-
ir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir
á ensku að loknu fréttayfirliti kl. 7.30.
lesið úr forystugreinum dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Tilkynningar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn. „Hanna María" eftir
Magneu frá Kleifum. Bryndís Jónsdóttir
les (15). (Einnig útvarpað um kvöldið kl.
20.00.)
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra
Björnsdóttir.
9.30 Landpósturinn — Frá Austurlandi.
Umsjón Haraldur Bjarnason.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Sveitasæla. Umsjón: Signý Pálsdóttir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfs-
dóttir. (Einnig útvarpað að loknum fréttum
á miðnætti.)
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.05 i dagsins önn. Steinunn Björnsdóttir
ræðir við Bjargmund Jónsson.
13.35 Miðdegissagan: „Að drepa hermi-
kráku" eftir Harper Lee. Sigurlína Davíðs-
dóttir les þýðingu sína (6).
14.00 Fréttir.
14.05 Ljúflingslög. Svanhildur Jakobsdóttir
kynriir. (Einnig útvarpað aðfaranótt mið-
vikudags að loknum fréttum kl. 2.00.)
15.00 Fréttir.
15.03 Áfram island og samfélag þjóðanna.
Annar þáttur. Umsjón Einar Kristjánsson.
(Endurtekinn þáttur frá miðvikudags-
kvöldi.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Létt grín og gaman á
föstudegi. Umsjón: Sigurlaug M. Jónas-
dóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi — Mozart, Muss-
orgsky, Respigi og Debussy.
— „Leikfangasinfónían" eftir Leopold
Mozart. Saint-Martin-in-the-Fields-hljóm-
sveitin leikur; Neville Marriner stjórnar.
— „Barnaherbergið" eftir Modest
Mussorgsky. Margaret Price syngur, Ja-
mes Lockhart leikur með á píanó.
— „Leikfangabúðin ævintýralega" eftir
Ottorino Respigi. Saint-Martin-in the-
Fields-hljómsveitin leikur; Sir Neville
Marriner stjórnar.
— „Úr barnahorninu" eftir Claude
Debussy. Alexis Weissenberg leikur á
píanó.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan. Fréttaþáttur um erlend
málefni. (Einnig útvarpað að loknum frétt-
um kl. 22.07.)
18.10 Á vettvangi. Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson og Bjarni Sigtryggsson. Tónlist.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá. Umsjón: Freyr Þormóðsson
og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.
20.00 Litli barnatíminn. (Endurtekinn frá
morgni.)
20.15 Lúðraþytur. Skarphéöinn Einarsson
kynnir lúðrasveitartónlist.
21.00 Sumarvaka.
a. Menntafrömuður og skáld í Mosfelli.
Seinni hluti dagskrár í samantekt Gunn-
ars Stefánsson um séra Magnús
Grimsson, ævi hans og verk. (Áður flutt
í mars 1987.)
b. Einsöngvarakvartéttinn syngur lög eft-
ir Inga T. Lárusson. Ólafur Vignir Alberts-
son leikur undir á píanó.
c. Ólöf Kolbrún Harðardóttir syngur lög
eftir Jórunni Viðar. Anna Guðný Guð-
mundsdóttir leikur með á píanó.
d. Talnafræði. Hallfreður Örn Eiríksson
flytur samantekt sína.
Umsjón: Einar Kristjánsson.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan. Fréttaþáttur um erlend
málefni. (Endurtekinn frá sama degi.)
22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins. Dagskrá
morgundagsins.
22.30Danslög.
23.00 i kringum hlutina. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfs-
dóttir. (Endurtekinn frá morgni.)
I.OOVeðurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
RÁS2
FM 90,1
7.03 Fréttirkl. 7.00. Morgunútvarpið. Leif-
ur Hauksson og Jón Arsæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum. Fréttir kl.
7.30. Fréttir kl. 8.00, veðurfregnir kl. 8.15
og fréttir og leiðarar dagblaðanna kl.
8.30.
9.03 Fréttir kl. 9.00. Morgunsyrpa. Skúli
Helgason. Rugl dagsins kl. 9.25. Fréttir
kl. 10. Neytendahorn kl. 10.03. Afmælis-
kveðjur kl. 10.30. Fréttir kl. 11.00. Sér-
þarfaþing Jóhönnu Harðardóttur kl.
11.03. Gluggað í heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatfu. Gestur
Einar Jónasson leikur tónlist.
Fréttir kl. 14.00.
14.03 Milli mála. Árni Magnússon leikur
nýju lögin.
, Fréttir kl. 15.00 og 16.00.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Stefán
Jóri Hafstein, Guðrún Gunnarsdóttir, Sig-
urður Salvarsson og Sigurður G. Tómas-
son. Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
Arthúr Björgvin Bollason talar frá Bæjara-
landi. Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni út-
sendingu. Fréttir kl. 17.00 og 18.00.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram Island. Dægurlög með
íslenskum flytjendum.
22.07 Sfbyljan. Sjóðheitt dúndurpopp beint
. í græjurnar. (Endurtekinn frá laugardegi.)
Fréttir kl. 24.00.
00.10 Snúningur. Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
ber kveðjur milli hlustenda og leikur óska-
lög.
2.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
NÆTURÚTVARPIÐ
2.00 Fréttir.
2.05 Rokk og nýbylgja. Skúli Helgason
kynnir. (Endurtekið frá mánudagskvöldi.)
3.00 Róbótarokk. Fréttir kl. 4.00.
4.30 Veðurfregnir.
4.35 Næturnótur.
5.00 Frétir af veðri og flugsamgöngum.
5.01 Áfram Island. Dægurlög með
íslenskum flytjendum.
6.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
6.01 Á frívaktinni. Þóra Marteinsdóttir
kynnir óskalög sjómanna. (Endurtekinn
þáttur frá mánudegi á Rás 1.)
7.0 Morgunpopp.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor-
steinsson. Fréttir kl. 8.00 og fréttayfirlit
kl. 9.00. Potturinn kl. 9.00.
8.30Veiðiþáttur Þrastar Elliðasonar.
9.00 Páll Þorsteinsson.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Fréttir kl. 10,
• 12 og fréttayfirlit kl. 13.
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson. Óska-
lögin, kveðjurnar, nýjustu lögin, gömlu
góðu lögin. Fréttayfirlit kl. 15.00. Fréttir
kl. 14.00, 16.00 og 18.00.
18.10 Reykjavík sfðdegis. Amþrúður Karls-
dóttir stjórnar.
19.00 Freymóður T. Sigurðsson.
20.00 Ólafur Már Björnsson.
22.00 Haraldur Gíslason. Óskalög og kveðj-
• ur.
2.00 Næturdagskrá.
RÓT
FM 106,8
9.00 Rótartónar.
11.00 Við við viðtækið. Tónlistarþáttur. E.
12-30 Tónlist.
14.00 Tvö til fimm með Grétari Miller.
17.00 Geðsveiflan. Tónlistarþáttur í umsjá
Alfreðs Jóhannssonar.
19.00 Raunir Reynis Smára.
20.00 Fés. Unglingaþáttur í umsjá Emils
Arnar og Hlyns.
21.00 Gott bít. Tónlistarþáttur með Kidda
kanínu og Þorsteini Högna.
23.30 Rótardraugar. Lesnar draugasögur
fyrir háttinn.
2.00 Næturvakt.
STJARNAN
FM 102,2
7.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor-
steinsson með morgunþátt. Fréttir og
ýmsar upplýsingar fyrir hlustendur. Frétt-
ir kl. 8.00 og 10.00, fréttayfirlit kl. 9.00.
9.00 Jón Axel Ólafsson.
Fréttir kl. 12.00 og 14.00.
14.00 Gunnlaugur Helgason. Leikin tónlist
við vinnuna. Fréttir kl. 18.00.
18.10 íslenskir tónar. íslensk lög leikin
ókynnt i eina klukkustund.
19.00 Freymóður T. Sigurðsson.
20.00 Ólafur Már Björnsson. Kynnt undir
helgarstemmningunni í vikulokin.
22.00 HaraldurGíslason. Óskalög og kveðj-
ur.
2.00 Næturstjörnur.
ÚTVARP ALFA
FM 102,9
17.00 Orð trúarinnar. Blandaöur þáttur
með tónlist, u.þ.b. hálftíma kennslu úr
orðinu og e.t.v. spjalli eða viðtölum.
Umsjón: Halldór Lárusson og Jón Þór
Eyjólfsson. (Endurtekið á mánudags-
kvöldum.).
19.00 Blessandi boðskapur í margvíslegum
tónum.
24.00 Dagskrárlok.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.10—8.30 Svæðisútvarp Norðurlands —
FM 96,5.,
18.03—19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
- FM 96,5.
18.03—19.00 Svæðisútvarp Austurlands.
FM 95,7
7.00 Hörður Arnarson.
9.00 Sigurður Gröndal og Richard Scobie.
11.00 Steingrímur Ólafsson.
13.00 Hörður Arnarson.
15.00 Sigurður Gröndal og Richard Scobie.
17.00 Steingrímur Ólafsson.
19.00 Anna Þorláks / Steinunn Halldórs-
dóttir.
22.00 Þorsteinn Högni Gunnarsson.
1.00 Páll Sævar Guðjónsson.
Laugavegur24
Austurstræti 22
Rauðarárstígur16
Glæsibær
Strandgata 37 s
Póstkrafa:91-11620
’68 fréttir
að er víst kennt í fjölmiðlahá-
skólum að hafa ætið í heiðri
regluna um hlutlæga frásögn og í
ýmsum kennslubókum á sviði fjöl-
miðlunar er lögð þung áhersla á
hnitmiðaða og nánast gerilsneydda
frásögn nema er kemur að svoköll-
uðum „grínfréttum“ sem oft er
skotið inní fréttatíma sjónvarps-
stöðvanna gjaman undir lokin til
að létta áhorfendum róðurinn.
Það má svo sem vel vera að
Hallur Hallsson hafi numið í fjöl-
miðlaháskóla þótt undirritaður
muni bara eftir honum í gamla
Kennaraskólanum á ’68 árunum
þegar menn kepptust um að safna
síðu hári fremur en háum einkunn-
um. Dúxar voru álitnir skrýtnir og
menn fengu hærri einkunn í hópn-
um ef þeir mættu of seint í tíma
eða rifu kjaft við lærifeðurna á
opinberum fundum. Eitthvað hefur
síast inní Hall af þessum villta ’68
anda því í stað þess að standa fyr-
ir framan bergmálslausan múr
Seðabankans er kom að „ekkna-
skattinum“ illræmda þá gerði Hall-
ur sér lítið fyrir og skundaði með
hvítu húfuna vestur á Seltjarnarnes
að raðhúsi Ólafs Ragnars
Grímssonar, fjármálaráðherra
augnabliksins. Þar spekúleraði
Hallur studdur tálnarunum í eigna-
skattsauka ráðherrans og endaði í
’68 stíl: Og það er eins gott að
ráðherrann haldi í sína elsku.
Áhorfendur sáu svart á hvítu á
skerminum ástæðuna fyrir þessari
óvæntu fréttarúsínu Halls er núll-
unum fjölgaði við eignarskattsauka
þeirra sem nefnast „einstaklingar"
á ráðuneytismáli.
En ’68 kynslóðin var víðar á ferli
í fréttatímunum en fyrir framan
bústað hins skattaglaða Ijármála-
ráðherra. I ellefufréttatíma ríkisút-
varpsins hófst mikill eltingarleikur
í fyrrakveld er íslenskir lögreglu-
þjónar skoppuðu líkt og í Löggulífi
Þráins Bertelssonar um Suður-
nesjamóana að smala saman Birnu
Þórðardóttur og félögum er hugð-
ust stunda þar „heimavamar-
æfingar". Undirritaður hafði reynd-
ar lengi beðið spenntur eftir þess-
ari sennu því ávæningur hafði bor-
ist af „leynilegum aðgerðum" á
æfingasvæði bandarísku varaliðs-
sveitanna í spjallþáttum í Útvarpi
Rót sem undirritaður fylgist með
eins og öðru útvarpsefni. Nú Birna
hefur engu gleymt og máski ekkert
nýtt lært í bardagatækni en hún
barðist samt grimmefld fyrir fram-
an sjónvarpsvélarnar og afsannaði
þar með þá kenningu að öll íslenska
þjóðin sé gengin í Round-Table-,
Rotary-, Kiwanis-, Lions- eða Dale
Carnegie-hreyfingarnar þar sem
menn forðast að æsa upp yfirvöld
heldur haga sér í einu og öllu eins
og vera ber. En er ekki fremur leiði-
gjarnt að lifa í landi þar sem allir
eru með geislabaug og hugsa eins?
Fijálsir menn eiga fullan rétt á því
að mótmæla hástöfum ef þeim
mislíkar eitthvað í fari nágrannans
en lögreglan verður líka að fram-
fylgja landslögum.
Undirrituðum varð annars hugs-
að undir bardagasennunni til löngu
liðins laugardagsspjallþáttar Lísu
Páls á rás 2 er nefndist Fyrirmynd-
arfólk. Bima Þórðardóttir var gest-
ur í þessum þætti og þótti ljósvaka-
íýninum harla fróðlegt að hlýða á
lífssögu Birnu og hvernig lífssýn
hennar mótaðist. Einkum var fróð-
legt að heyra Birnu lýsa dvölinni í
N-Kóreu, þessu mesta alræðisríki
heimsbyggðarinnar er Sovétmenn
komu á fót með hernáminu í ágúst
1945. Birna virtist ekki hafa tekið
eftir alræðisokinu heldur var hún
altekin af lýsingum gesta Kims II-
Sungs frá ýmsum marxistaríkjum
á hinum vondu „heimsveldissinn-
um“. Já, er nokkuð verra en ofstæk-
ið og einsýnin? Fréttir fyrrakvelds-
ins sönnuðu nú samt að hér búum
við þrátt fyrir allt við dásamlegt
skoðanafrelsi sem verður að varð-
veita.
Ólafur M.
Jóhannesson