Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 26
26 -....-............-......................föstudagur
Bjarni Rögnvaldsson,
Haöiarfírði - Minning
Fæddur 16. september 1904
Dáinn 15. júní 1989
Bjarni Rögnvaldsson, móður-
bróðir minn, er látinn. Hann hefði
orðið 85 ára í haust og ævin því
orðin löng. Síðustu árin dvaldist
Bjami á Sólvangi í Hafnarfírði, þar
sem hann naut góðrar aðhlynningar
í heimabæ sínum í nágrenni við sína
nánustu.
Þegar ég var að alast upp í Hafn-
arfirði smádrengur var alltaf
ánægjulegt að líta við hjá Bjama
„bróður" og Sigurbjörgu eiginkonu
hans, enda þau hjón einstaklega
elskuleg og bamgóð með afbrigð-
um. Ég man enn í dag, eftir nán-
ast hálfa öld, hversu góðar flatkök-
umar hennar Sigurbjargar voru,
sem hún gaf mér þegar ég var að
laumast í heimsókn til þeirra, smá-
hnokki, og hún hafði smurt með
íslensku smjöri og það svo ríflega,
að þykkt smjörsins var að minnsta
kosti jöfn og flatkökunnar.
Bjarni Rögnvaldsson fæddist á
Bjargi í Miðfirði, V-Húnavatns-
sýslu, þann 16. september 1904,
sonur hjónanna Rögnvaldar H.
Líndal, bónda í Hnausakoti, og
Guðrúnar Bjarnadóttur, ljósmóður
frá Bessastöðum við Hrútafjörð.
Alsystir Bjarna og tveimur ámm
yngri var Sólrún Elín, sem lést i
Reykjavík árið 1973.
Guðrún, móðir Bjama og Elínar,
lést árið 1911, en Rögnvaldur, fað-
ir þeirra, bjó áfram í Hnausakoti
og átti fyrst tvö börn utan hjóna-
bands, Rögnvald Rögnvaldsson,
sem bjó á Akureyri og er nýlátinn,
og Jón Björgvin Rögnvaldsson, sem
býr á Akureyri. Með seinni konu
sinni, Þorbjörgu Guðmundsdóttur
frá Snæfellsnesi, átti Rögnvaldur
Líndal 4 böm, Guðrúnu Ragnheiði
Rögnvaldsdóttur í Reylqavík,
Pálínu Ragnhildi Rögnvaldsdóttur
í Keflavík, Björgu Rögnvaldsdóttur
á ísafirði og Rögnvald Rögnvalds-
son í Kópavogi. Hálfsystkini Bjarna
urðu því alls 6.
Rögnvaldur H. Líndal, faðir
Bjama, lést 27. desember 1920.
Tvístraðist þá systkinahópurinn og
fór Bjami fyrst að Haugi í Mið-
firði, en síðar til afa síns, Hjartar
Líndal að Efra-Núpi. Stundaði
Bjarni Rögnvaldsson öll almenn
sveitastörf, en veturinn 1926-27 fór
hann síðan í Bændaskólann á
Hvanneyri, en veiktist mjög illa af
bijósthimnubólgu þann vetur. Þeg-
ar Bjami svo varð ferðafær, fór
hann aftur norður að Efra-Núpi í
Miðfirði til föðurbróður síns, Bene-
dikts og konu hans, Ingibjargar.
Að norðan lá síðan leiðin til
Reykjavíkur og síðar Hafnarfjarðar
og starfaði Bjarni eftir það m.a. við
sandgræðslu, ýmis konar verka-
mannavinnu og afgreiðslustörf í
fiskbúðum. Hann var í stjórn
Verkamannafélagsins Hlífar í
Hafnarfirði 1955-58. Þegar Bjami
Rögnvaldsson ólst upp og óx úr
grasi voru tækifæri til menntunar
og frama ekki slík sem þau em í
dag. Fátækt var mikil um allt land
og varð hver og einn að vinna hörð-
um höndum fyrir lifíbrauði sínu.
Ætíð vill það nú samt verða svo,
að þeim sem Guð gaf gáfur í vöggu-
gjöf, nýtast þær alltaf til góðra
hluta. Bjarni var ekki langskóla-
genginn frekar en margir af hans
kynslóð, en því meiri fróðleiks og
þekkingar aflaði hann sér með lestri
góðra bóka og í skóla lífsins. Bjami
var fróður mjög og glöggur á menn
og málefni, kátur, skemmtilegur og
stríðinn nokkuð, en alltaf í gamni
þó.
Bjarni fluttist til Hafnarfjarðar í
október 1945 frá Kolbeinsstöðum á
Seltjarnamesi og þann 27. október
þ.á., kvæntist Bjami eftirlifandi
eiginkonu sinni, Sigurbjörgu Guð-
jónsdóttur, kennara frá Stóm-Mörk
undir Eyjafjöllum, f. 24. júní 1906,
dóttur Guðjóns Olafssonar og Jó-
hönnu Kristínar Ketilsdóttur.
Bjuggu Bjami og Sigurbjörg í
Hafnarfirði allan sinn búskap og
sköpuðu elskulegt og vinalegt heim-
ili. Einkadóttir þeirra er Guðrún
Bjarnadóttir talkennari, sem býr í
Hafnarfirði og augsteinn afa og
ömmu er dóttursonurinn Bjami
Þór, sem fæddist árið 1979 og er
því 9 ára gamall.
Bjarni Rögnvaldsson verður nú í
dag lagður til hinstu hvílu sinnar
hér á jarðríki, en minning hans lifir
um ókomin ár, minningin uni
íslenskan sjómann sem ekki mátti
vamm sitt vita, sannfæringu sinni
trúr, vinfastur, traustur og trygg-
ur. Blessuð sé minning hans.
Grétar H. Oskarsson
Minning:
Guðbjörg Jónsdótt-
ir, Eyvindarholti
Minning:
* *
Asdís Agústsdóttir
frá Birtingaholti
Fædd 2. október 1903
Dáin 15. júní 1989
Hún amma Ásdís í Keflavík,
Ásdís Ágústsdóttir frá Birtinga-
holti, er dáin. Jarðarförin hennar
verður í dag frá Keflavíkurkirkju.
Okkur systkinin langaði að
kveðja hana með nokkmm orðum.
Minningamar frá Aðalgötu 24 í
Keflavík em margar og allar góð-
ar. Öll höfum við systkinin dvalið
hjá ömmu og afa Skúla, á meðan
hann lifði, í lengri eða skemmri tíma
í senn og jafnvel urðu stuttar heim-
sóknir að nokkurra missera dvöl,
því ekki var gott að slíta sig frá
þeirri væntumþykju sem amma Ása
hellti hreinlega yfír mann þegar
maður kom.
Ef maður lætur hugann reika
aftur til þeirra ára er við dvöldumst
hjá henni er svo margs að minnast.
Þó ber hæst þrautseigjan við að
kenna okkur að draga til stafs, og
notaði hún oft óprúttnar aðferðir
við að ná okkur úr leik til lestrar
svo sem með loforði um jólaköku,
pabbatertu eða þess háttar góðgæti
í lok hvers lestrar. Þessu bjuggum
við lengi að. Einnig var mikið grip-
ið í spil og höfðum við á orði að
hún ætti frekar að vera stödd í Las
Vegas eða öðrum álíka stað, svo
lunkin var hún í spilum.
Þegar við sitjum og riíjum upp
samverustundimar með ömmu flýg-
ur margt um hugann sem aldrei
gleymist, og við munum varðveita
með okkur um ókomna framtíð.
Síðustu æviárin dvaldi hún fyrst
að Ási í Hveragerði og síðan á Elli-
og hjúkrunarheimilinu Grund þar
sem hún lést aðfaranótt 15. júní sl.
Við barnabömin kveðjum hana með
söknuði.
Hvíli elsku amma í friði.
Ása Móa, Skúli og Venný
Fædd 10. janúar 1900
Dáin ll.júní 1989
í dag er til moldar borin elsku
amma okkar, Guðbjörg Jónsdóttir.
Amma fæddist í Hvammi undir
Eyjaíjöllum þann 10. janúar árið
1900. Hún var dóttir hjónanna Jóns
Auðunssonar og Sigríðar Ólafs-
dóttur. Árið 1908 fluttu þau hjónin
ásamt börnum sínum að Ysta-Skála
í sömu sveit. Amma var 10 ára
gömul þegar faðir hennar féll frá.
Eftir stóð ekkja hans með 10 böm.
Af þeim er eitt á lífí, Guðrún.
Þann 21. júlí árið 1923 giftist
amma afa okkar Kjartani Ólafssyni
frá Eyvindarholti. Hann fæddist 17.
febrúar 1898 á Dalseli undir Eyja-
^’öllum. Ungu hjónin hófu búskap
í Mið-Skála í sömu sveit. Þar fædd-
ust synir þeirra, Jón og Ólafur.
Árið 1928 fluttust þau að Eyvindar-
holti, þar sem þau bjuggu alla sina
tíð. Þar fæddist móðir okkar,
Sigríður. í Eyvindarholti var tvíbýli
og bjuggu þar einnig Oddgeir Ólafs-
son, bróðir afa, og kona hans Þór-
unn Einarsdóttir ásamt þremur son-
um sínum. Mikill samgangur var á
milli heimilanna og vinskapur góð-
Árið 1954 flutti Oddgeir og fjöl-
skylda að Dalseli. Sama ár giftist
móðir okkar Garðari Sveinbjamar-
syni frá Ysta-Skála og eiga þau
fímm börn. Eftir voru í Eyvindar-
holti afi og amma ásamt sonum
sínum. Þann 31. október 1982 lést
afi okkar en amma hélt áfram bú-
skapnum. Hún var húsfreyja í Ey-
vindarholti fram á sinn síðasta dag.
Amma okkar var lítil fíngerð
kona, hæglát og góðleg. Hún hugs-
aði alltaf meira um aðra en sjálfa
sig. Hún var mjög gestrisin og var
hún ætíð góð heim að sækja. Alla
tíð geislaði af henni ömmu okkar
góðmennskan og gaman var að
gera henni einhvem greiða. Hún las
mikið og fylgdist vel með. Hann-
yrðakona var hún mikil og allt sem
hún tók sér fyrir hendur var gert
af miklum mjmdarskap. Amma
hafði yndi af garðrækt og hafði
sérstakt lag á að koma öllum gróðri
til. Seinni ár gat hún lítið hugsað
um blómagarðinn, eins og hún kall-
aði garðinn fyrir neðan bæinn, en
stofan hennar var alltaf full af
blómum. Það var sama á hvaða
árstíma við komum í heimsókn, allt-
af var eitthvað blómstrandi, jafnvel
kaktusar í norðurglugga.
Við systkinin, sem ólumst upp í
Jteykjavík, erum afar lánsöm að
hafa átt afa og ömmu í sveitinni;
Við dvöldumst hjá þeim á sumrin
og kynntumst þar sveitastörfum og
náttúrunni.
Við munum ætíð minnast elsku
ömmu okkar og sakna hennar. Við
erum þakklát fyrir að hún hafði
góða heilsu fram á síðasta dag og
fékk að fara án neinna veikinda.
Við kveðjum hana ömmu okkar
og þökkum henni fyrir allt, sem hún
hefur gert fyrir okkur.
Guð blessi minningu hennar.
Barnabörnin
t
Hjartkær eiginkona mín og fósturmóðir,
MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR,
Hvassaleiti 155,
andaðist 19. júní á öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10b.
Ragnar Jónsson,
Bára Brynjólfsdóttir.
t Faðir okkar,
INGJALDUR JÓNSSON
húsasmíðameistari,
Hrafnistu,
lést á Borgarspítalanum aðfaranótt 21. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Börnin.
t
Faðir okkar og afi,
ÓLI SIGURÐUR ÞÓRARINSSON,
Hoffelli, Vestmannaeyjum,
sem iést á heimili sínu mánudaginn 19. júní, verður jarðsunginn
frá Landakirkju laugardaginn 24. júnf kl. 11. árdegis.
Kristjana Óladóttir, Þráinn G. Þorbjörnsson,
Þráinn Ólason,
og barnabörn.
ur.
t
HÖRÐUR MAGNÚSSON,
Keflavfk,
er lést þann 17. júní, verður jarðsunginn laugardaginn 24. júní
frá Keflavíkurkirkju kl. 13.30.
Börn, barnabörn, systkini og tengdabörn.
t
Móðir mín,
SIGRÍÐUR ÞORBJARNARDÓTTIR,
Efstasundi 84,
Reykjavfk,
sem lést 16. júní, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudag-
inn 23. júní kl. 10.30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Kristín Þorgrfmsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MARINÓ JAKOBSSON
fyrrverandi bóndi,
Skáney,
Reykholtsdal,
sem andaðist 20. júní í Sjúkrahúsi Akraness, verður jarðsunginn
frá Reykholtskirkju þriðjudaginn 27. júní kl. 14.00.
Vilborg Bjarnadóttir,
Bjarni Marinósson, Birna Hauksdóttir,
Jakob Marinósson, Anna Sigurðardóttir,
Þorsteinn Marinósson, Berglind Ingvarsdóttir
og sonarbörn.