Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989
21
Jónsmessu-
hátíð við
Norræna
húsið
Jónsmessuhátíð verður haldin
við Norræna húsið í dag fóstu-
daginn 23. júní.
Þessi samnorræna Jónsmessu-
hátíð sem bytjar klukkan 20 hefur
verið skipulögð sameiginlega af
norrænu vinafélögunum í
Reykjavík og Norræna húsinu.
Jónsmessustöngin verður reist
um klukkan 20.30 og eldurinn
verður kveiktur um tíuleytið.
Síðan skeið sól í
tónleikaferð
Rokkhljómsveitin Síðan skein
sól ætlar í hljómleikaför um
Austur-, Norður- og Vesturland
í júni og júlí.
Nú eru að koma út á safnplötu
frá Skífunni tvö ný lög með Síðan
skein sól, lögin Leyndarmál og
Dísa, sem verða að sjálfsögðu leik-
in í hljómleikaferðinni.
Síðan skein sól heldur hljómleika
á eftirtöldum stöðum: 23. júní
Reyðarfirði. 24. júní Seyðisfirði.
25. júní Vopnafirði. 26. júní Kópa-
skeri. 27. júní Húsavík. 288. júní
Grenivík. 29. júní Uppanum, Akur-
eyri. 30. júní Uppanum, Akureyri.
2. júlí Skagaströnd. 3. júlí Hvamm-
stanga. 4. júlí Ólafsvík. 5. júlí Hell-
issandi. 6. júlí Hótel Borg,
Reykjavík.
Laugarásbíó sýn-
ir „Hörkukarla“
LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til
sýninga myndina „Hörkukarl-
ar“. Með aðalhlutverk ferð Gene
Hackman og Jeff Fahey.
Hörkukarlar er kvikmynd um
baráttu á milli hins góða og þess
illa í hnefaleikum. Hún er um þrjá
ættliði boxara, afinn komst aldrei
langt, faðirinn er góður en strang-
ur þjálfari.
Synij hans er ólíkir, annar æfír
fyrir Ólympíuleikana en hinn er
flæktur í spillingu atvinnumensk-
unnar.
Ásgeir Lárusson við eitt verka
sinna.
Ásgeir sýnir í
Ásmundarsal
ÞESSA dagana heldur Ásgeir
Lárusson sína níundu einkasýn-
ingu í Ásmundarsal við Freyju-
götu.
Ásgeir hefur m.a. sýnt í Gallerí
SÚM, Suðurgötu 7, Gallerí Gijóti
og tekið þátt í íjölda samsýninga.
Á sýningu Ásgeirs í Ásmundar-
sal eru 31 verk öll unnin í gvass,
blek og akrýl. Opið er virka daga
klukkan 13-18 og um helgar klukk-
an 13.30-20. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 25.6.
Háskólafyrirlest-
ur um störf
Sænsku akade-
míunnar
STURE Allén prófessor, ritari
Sænsku akademíunnar, flytur
opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla Is-
lands og Norræna hússins mánu-
daginn 26. júni klukan 20.30 í
Norræna húsinu. ’
Fyrirlesturinn nefnist „Svenska
Akademien och dess arbete" og
fjallar um störf akademíunnar
sænsku. Hann verður fluttur á
sænsku og er öllum heimill aðgang-
ur.
Sture Allén er prófessor í mál-
tölvun (málvísindalegri gagna-
vinnslu) við háskólann í Gautaborg.
Hann hefur oft áður flutt fyrir-
lestra á íslandi um málfræðileg
efni, helst tengd tölvuvinnslu, en
hann er brautryðjandi í máltölvun
á Norðurlöndum.
Hann var kjörinn í Sænsku aka-
demíuna 1980 og hefur verið fasta-
ritari hennar síðan 1986.
Búskapur í Ár-
bæjarsafiii
DAGANA 21.-25. júní geta borg-
arbúar komið í Árbæjarsafn og
fengið smá hugmynd um búskap-
arhætti fyrri tíma.
Á safninu verða kýr, kindur,
hestar, kettir, hundar og hænsni.
Öll verða dýrin með afkvæmi sín.
Daglega verður eitthvað um að
vera sem tengist búskapnum, má
þar nefna fyrir utan fóðrun dýr-
anna, rúning, mjaltir og smölun.
Safnið er opið daglega (ekki
mánudaga) frá klukkan 10-18.
(Úr fréttatilkynningu)
Aheitahandboð-
ganga
FIMMTÁN piltar úr meistara-
flokki fimleikadeildar Ármanns
leggja af stað frá Kringlunni I
Reykjavík á morgun Iaugardag-
inn 24. júní klukkan 11 ogganga
á höndum að veitingahúsinu
Kabarett, Austurstræti.
Ætlunin er að slá núvrandi ís-
landsmet í hanboðgöngu sem er
handaganga frá Ármannsheimilinu
við Sigtún og niður á Lækjartorg.
Tilgangurinn með göngunni er að
safna peningum til styrktar piltum
í meistaraflokki Ármanns í fimleik-
um.
Atriði úr myndinni „Með allt í
lagi“ sem Bióhöllin sýnir um
þessar mundir.
Blóhöllin sýnir
„Með allt í lagi“
BÍÓHÖLLIN hefur hafið sýning-
ar á myndinni „Með allt í lagi“.
Með aðalhlutverk fara Tom
Selleck og Paulina Porizkova.
Leikstjóri er Bruce Beresford.
Phil Blackwood (Tom Selleck)
er vinsæll höfundur metsölubóka,
þar sem einkaspæjarinn Peter
Swift er aðalsögupersónan. Hann
er manna slyngastur í sínu fagi og
kemst að sjálfsögðu oft í hann
krappan en sleppur jafnan vegna
snarræðis síns og hugrekkis.
Atriði úr myndinni „Undra-
steinninn 11“ sem Bíóborgin sýn-'
ir um þessar mundir.
Bíóborgin sýnir
„Undrasteinn II:
Endurkoman“
BÍÓBORGIN hefur tekið til sýn-
inga myndina „Undrasteinn II:
Endurkoman“. Með aðalhlut-
verk fara Don Ameche og Wil-
ford Brimley. Leikstjóri er Dani-
el Petrie.
Fyrri myndinni lauk þannig að
hópur jarðarbúa fer til Antareu í
geimfari þaðan en nú er svo kom-
ið, að nauðsynlegt þykir að efna
til leiðangurs til Jarðar frá Ant-
areu. Þeim einstaklingum, sem
höfðu orðið eftir á sínum tíma, á
að gefast kostur á að snúa aftur.
Hljómsveit Finns
Eydals í Dans-
húsinu
HLJÓMSVEIT Finns Eydals,
Helena og Alli, munu skemmta
í Danshúsinu í Glæsibæ, helgina
23. og 24. júní.
Hljómsveitina skipa Finnur Ey-
dal sem leikur m.a á saxafón og
klarinett, Helena Eyjólfs sem syng-
ur, Alfreð Almarsson sem leikur
gítar og syngur, Ámi Ketill Frið-
riksson sem sér um trommumar
og Sigurður Þórarinsson sem leikur
á hljómborð.
Leiðrétting
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær,
þar sem sagt var frá sýningu
Krisfjáns Davíðssonar í Nýhöfii,
misritaðist eitt orð úr sýningar-
skrá, sem breytti merkingu
fréttarinnar.
Sagt var að málverk Kristjáns
væm hvorki hefðbundin né óhlut-
bundin. Þar átti að standa, að
málverk hans væm hvorki hlut-
bundin né óhlutbundin. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
IBM á íslandi:
Ný tækni við
talkennslu
Talþjálfunarbúnaður frá IBM
og Isbliss tjáskiptahugbúnaður
sem auðveldar tal- og hreyfihöml-
uðum að koma hugsunum sinum
á framfæri er meðal þess sem sýnt
verður í opnu húsi IBM á Islandi
í dag, föstudaginn 23. júní.
Fjallað verður um notkun tölva
við kennslu og sýndur hugbúnaður
og vélbúnaður fyrir skólakerfið. Fjór-
ir erlendir fyrirlesarar frá háskólum
í Bandaríkjunum og Evrópu flytja
erindi um tölvur og notkun þein-a
við kennslu, auk þess sem Jón Guð-
mundsson, kennari við Hallormsstað-
arskóla, og Kristinn Jónsson, kenn-
ari við Melaskóla, greina frá reynslu
sinni og nemendanna af tölvusam-
skiptaverkefni IBM og gmnnskól-
anna við nemendur og kennara í
Danmörku. Átta íslenskir gmnnskól-
ar vítt og breytt um landið eiga nú
greiða möguleika til samskipta við
nemendur í Danmörku.
Tíu ára rannsóknarstarf skilar
góðum árangri, kynntar verða nokkr-
ar nýjungar á tölvusviðinu m.a. „Spe-
ech Viewer", sem einkum er ætlaður
talkennurum og öðmm þeim sem
þjálfa einstaklinga sem eiga við tal-
og heymarörðugleika að etja.
Holtskjör:
Vöruverð lækk-
að allt að 30%
KAUPMENNIRNIR fjórir, sem'
reka verslunina Holtskjör við
Langholtsveg, hafa ákveðið að
lækka verð á þeim matvörum, sem
þeir versla með um allt að 20 til
30% af meðalverði í kaupmanns-
búð.
Að sögn Benedikts Ólafssonar
kaupmanns, gerðu eigendur verð-
samanburð í nokkmm stórmörkuðum
og telur hann að vömverð í Holts-
kjömm komi næst á eftir stórmörk-
uðunum eftir að það var lækkað.
„Við höfum verið með um 100 manns
í reikning hjá okkur og ákváðum að
fara frekar þá leið að hætta að skrifa
hjá fólki en lækka þess í stað vöm-
verðið," sagði Benedikt. Hann sagði
að ekki yrði mikill hagnaður af versl-
uninni fyrst í stað eftir breytinguna
en hann hefði trú á að úr rættist
þegar fram í sækti.
FiskverA á uppboðsmörkuðum 22. júní.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 55,00 47,00 52,13 8,912 464.558
Ýsa 82,00 55,00 77,23 1,823 140.825
Karfi 29,00 29,00 29,00 0,213 6.189
Ufsi 21,00 15,00 20,04 0,343 6.883
Steinbítur 48,00 48,00 48,00 0,781 37.483
Langa 32,00 32,00 32,00 0,123 3.939
Lúða 110,00 70,00 100,41 0,119 11.954
Koli 62,00 58,00 58,26 0,543 31.626
Samtals 54,71 12,858 703.457
i dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 62,00 49,00 56,01 14,492 811.981
Ýsa 87,00 60,00 75,00 13,678 1.025.846
Karfi 29,00 25,00 28,54 96,058 2.741.459
Ufsi 33,50 15,00 31,44 50,377 1.583.808
Steinbítur 50,00 37,00 35,46 0,227 11.037
Lúða 190,00 120,00 155,03 0,177 27.440
Skarkoli 64,00 15,00 36,06 1,876 67.640
Samtals 35,43 177,057 6.273.481
Selt var meðal annars úr Viðey RE, Freyju RE og Þorláki ÁR. í
dag verða meðal annars seld 10 tonn af þorski, 5 tonn af ýsu,
115 tonn af karfa og 36 tonn af ufsa úr Viðey RE og bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur(2.n.) 55,00 50,50 51,46 5,199 267.560
Ýsa(2.n.) 77,00 35,00 64,47 1,870 120.563
Karfi 29,00 24,00 27,96 1,626 45.465
Ufsi(2.n.) 32,50 27,50 28,03 2,271 63.648
Steinbftur(2.n.] 21,00 15,00 19,60 0,130 2.556
Langa(2.n.) 34,50 34,50 34,50 1,251 43.160
Lúöa 215,00 110,00 145,80 263,20 38.375
Skata 112,00 112,00 112,00 0,009 1.008
Skötuselur 305,00 305,00 305,00 0,004 1.068
Samtals 46,22 12,623 583.403
Selt var úr Búrfelli KE. I dag verða meðal annars seld 20 tonn
af blönduðum afla úr Gnúpi GK og óákveðið magn af þorski,
ufsa og löngu úr Hrungni GK.
Fiskmar á Olafefirði setur
sjávarnasl á markaðinn
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurður Björnsson, framkvæmdastjóri Frostmar og Jón Rúnar Kris-
tjónsson, ein stjórnarmanna þess við vinnsluna í húsakynnum Iðn-
tæknistofiiunar.
FISKMAR hf á Ólafsfirði hefur í
samvinnu við Iðntæknistofiiun sett
á markaðinn sjávarnasl undir
nafninu Krossfiskar. Sjávarnaslið
er að stofiii til unnið úr fiski með
háþrýstisuðu, en slík vinnsla er
einsdæmi í heiminum að sögn
framleiðenda.
Iðntæknistofnunhefur unnið að
þróun naslsins síðastliðin þijú ár
ásamt Fiskmar í samvinnu við Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins og með
styrk frá Rannsóknarsjóði Rann-
sóknarráðs ríkisins. Fé hefur einnig
komið frá Iðnlánasjóði, en alls hefur
verið varið 15 til 20 milljónum króna
til vinnslunnar.
Fiskhold er meginuppistaða hrá-
efnisins, sem naslið er framleitt úr.
Það gerir vömna próteinríka og eyk-
ur hollustuna að sögn framleiðenda.
Eingöngu em notuð þorskflök í
vinnsluna og líða ekki fleiri en þrír
dagar frá því fiskurinn veiðist og þar
til hann er unninn. Að auki em notað-
ar valdar mjöltegundir og náttúruleg
litarefni. Djúpsteiking er algengasta
framleiðsluaðferðin á nasli, en með
þvf að nota háþrýstisuðu, eins og hér
er gert, er komizt hjá miklu fituinni-
haldi.
Fyrirhugað er að Sjávamasl verði
einkum framleitt til útflutnings, þó
fyrst um sinn verði það eingöngu
selt innan lands.
Vömmerkið er Sjávarnasl, en nafn
vörannar er Krossfiskar vegna lög-
unnar naslsins. Nú er hafin fram-
leiðsla með þremur bragðtegundum;
pakriku, lauk og chili og jurta-
kryddi, en brátt verður tveimur nýj-
um bragðtegundum bætt við, salami
og tortilla. Hugmyndina að Sjávam-
asli átti Sigurður Bjömsson fram-
kvæmdastjóri.