Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 36
SJOVAairrALMENNAR
■■■IIBH
FÉLAG FÓLKSINS
EINKAREIKNINGUR ÞINN
/ LANDSBANKANUM m
_________________#1
FOSTUDAGUR 23. JUNI 1989
VERÐ I LAUSASOLU 80 KR.
Skiptikjara-
reikning--
jim breytt
SAMKOMULAG náðist á fundi
fulltrúa Seðlabanka, banka og
sparisjóða í gær um að skipti-
kjarareikningum verði breytt um
næstu mánaðamót þannig, að ein-
ungis sá hluti innstæðu, sem er
óhreyfður í að minnsta kosti 6
mánuði geti notið verðtrygging-
ar, en hinn hlutinn beri auglýsta
nafnvexti. Sérstök nefnd mun
skoða möguleika á frekari breyt-
ingum.
Stefán Pálsson formaður Sam-
bands íslenskra viðskiptabanka
sagði að þessi breyting væri í sam-
ræmi við lagabreytingu sem tak-
—rliarkar verðtryggingu inn- og út-
lána.
„Við erum sáttir við að skoða
þessa hluti mjög vel og treystum
þeim mönnum, sem eru í þessu fyr-
ir okkur, mjög vel til að finna lausn-
ir sem allir sætta sig við,“ sagði
Stefán Pálsson.
Bæði ríkisstjórnin og Seðlabank-
inn telja að leggja eigi niður skipti-
kjarareikningana. Bankarnir hafa
hins vegar talið það ógerlegt, þar
sem meirihluti innlána sé á slíkum
Bjteikningum.
Þriggja manna undimefnd, skip-
uð Eiríki Guðnasyni, Ólafi Erni Ing-
ólfssyni og Sveini Jónssyni mun
áfrani leita leiða til að samræma
sjónarmið banka og stjórnvalda um
skiptikjarareikninga. A hún að skila
áliti í september.
Hvalskurður íHvalfírði
Langreyður skorin í hvalstöðinni í Hvalfirði í gær, fimmtudag, langreyðar á vertíðinni og reiknað er með að þær verði veiddar á
en hvalskurður hófst þar á þriðjudag. Leyfilegt er að veiða 68 4 til 6 vikum.
Morgunblaðið/Rax
Miklatorg lagt niður
Umferð hefur verið beint fram hjá Miklatorgi og hringakstur um
torgið verið lagður af. Snorrabraut er lokuð við Eiríksgötu og
Skógarhlíð við Miklatorg. Samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir
að þarna verði opnuð gatnamót með Ijósum 18. ágúst næstkom-
andi.
Borgarspitaliim og ríkisspít-
alar skiluðu hagnaði 1988
RÚMLEGA 20,2 milljóna króna hagnaður varð á rekstri Borgarspítal-
ans árið 1988 eða um 0,9% af veltu spítalans það ár, sem var um 2,1
milljarður. Að sögn Magnúsar Skúlasonar aðstoðarframkvæmdastjóra
er þetta í fyrsta sinn, sem rekstur spítalans skilar hagnaði. Telur
hann að skipulagsbreytingar í rekstri spítalans, sem gerðar voru eft-
ir að hann komst á föst fjárlög árið 1987 hafi átt stóran þátt i betri
afkomu. Að sögn Davíðs Á. Gunnarssonar forstjóra ríkisspítala, var
30 milljóna króna afgangur af fjárveitingu til spítalanna árið 1988 en
þá var heildarveltan 4,8 milljarðar eða 0,6% undir fjárlögum. Fæðingar-
heimili Reykjavíkur heyrir undir Borgarspítalann og varð rúmlega
20,5 milljóna króna halli á rekstri stofhunarinnar árið 1988. Heimilið
hefúr fram til þessa verið rekið á daggjöldum en er nú í ár komið á
föst fjárlög.
„Eftir að við fórum á föst fjárlög
höfum við reynt að fylgjast mjög
vel með rekstrinum svo að hann
fari ekki fram úr þeim áætlunum
Margföldun á útflutningi
saltfísks í neytendaumbúðum
Útflutningur á saltfiski í neytendaumbúðum á vegum SÍF hefúr vax-
ið verulega frá því hann hófst árið 1987. Þá voru flutt utan 150 tonn, 310
í fyrra og áætlaður útflutningur á þessu ári er um 800 tonn. Jafnframt
vinnur SIF að markaðsleit fyrir ýmsar afurðir unnar úr saltfiski og
má þar nefna saltfiskpönnukökur. Pönnukökurnar eru framleiddar hjá
Marska á Skagaströnd í samvinnu við þróunardeild SÍF. Útflutnings-
verðmæti fisksins eykst verulega með þessu móti og markaösstaðan
. ^stvrkist með aukinni fiölbreytni að sögn stjórnenda SÍF.
Neyzla ungs fólks á saltfiski hefur
dregizt saman á sama tíma og vægi
stórmarkaða í sölu matvæla fer vax-
andi. Vegna þessara breytinga hóf
SIF tilraun á neytendapökkun á salt-
fiski 1987 í eigin pökkunarverk-
smiðju. Var þá fyrst og fremst lögð
áherzla á pökkun á gæðafiski, eink-
flökum. Þetta ár voru flutt utan
7150 tonn, en árið á eftir kom óvænt
20% tollur á öll innflutt flök til EB.
Tollurinn dró verulega úr möguleg-
um útflutningi þar sem flökin urðu
ekkí samkeppnisfær í verði með toll-
inum. Þrátt fyrir það voru flutt utan
310 tonn af saltfiski í neytendaum-
búðum það ár, sem jafnframt var
notað til frekari vöruþróunar. Frá
árinu 1987 til loka árisns 1988 voru
sendar utan meira en 30 mismun-
andi tegundir af saltfiski í neytenda-
umbúðum. Mest áherzla hefur verið
lögð á fullsöltuð þorskflök, útvötnuð
flök og flattan og niðurskorinn þurr-
fisk. Einnig hefur fiskinum verið
sérpakkað fyrir veitingahús. Nú er
áætlað að útflutningur af þessu tagi
nemi um 800 tonnum á þessu ári.
SIF hefur gengið til samstarfs við
ýmsa aðila, innlenda og erlenda til
tilraunaframleiðslu af margvíslegu
tagi. Meðal þess má nefna saltfisk-
pönnukökur í samvinnu við Marska
á Skagaströnd. í ársskýrslu SÍF
kemur fram, að það samstarf hafi
skilað þeim árangri að sala á pönnu-
kökunum sé hafin til veitingahúsa á
Spáni og tilraunasending til Frakk-
lands er á döfinni.
sem við gerum fyrir hveija deiid og
ég held að það fari ekki á milli
mála að starfsfólkið er meðvitaðra
um hvað hlutirnir kosta,“ sagði
Magnús Skúlason. „Undanfarið hef-
ur verið sparað í innkaupum á
rekstraiyörum og með aðhaldi í
vinnu. Ég lít svo á að þetta sé að
töluverðu leyti árangur af því og svo
að einhveiju leyti vegna samdráttar
legudaga vegna lokunar deilda.“
Magnús sagði að eftir að spítalinn
komst á ijáriög búi hann við mun
raunhæfari fjárveitingu. „Daggjöld-
in voru alla tíð 10 til 20% lægri en
þau áttu að vera og því alltaf halli
og er snn hjá þeim sjúkrahúsum,
sem eru rekin á daggjöldum," sagði
Magnús.
Davíð Á. Gunnarsson sagði að
árið 1987 hefðu ríkisspítalar farið
1,8 milljónir fram úr fjárlögum eða
0,05% af heildarveltu sem var 3,8
milljarðar, en árið eftir var rekstur-
inn 30 milljónum undir fjárlögum.
„Það skiptir skattborgarana miklu
máli að spítalinn sé rekinn eftir fjár-
lögum en ekki eftir einhverri ímynd,“
sagði Davíð. „Þetta er erfitt og má
lítið út af bera. Hvert prósent hjá
okkur er um 50 milljónir.“
Við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið
1989 var fjárveiting til spítalanna
skorin niður um 4% á launalið eða
sem svarar til um 100 milljóna króna
til Borgarspítalans. Hefur spítalinn
af þeim sökum verið rekinn með
tapi það sem af er þessu ári. Sagði
Magnús að reynt yrði að halda
rekstri spítalans innan fjárlaga en
það mundi óneitanlega koma niður
á þjónustunni. Að sögn Davíðs eru
ríkisspítalarnir nú þegar komnir 10
milljónir umfram fjárveitingu þessa
árs vegna niðurskurðarins.
Framfærslu-
vísitalan á að
lækka um 0,4%
LÆKKANIR á verði mjólkur,
blýlauss bensíns og kindakjöts,
sem ríkisstjórnin ákvað í byijun
vikunnar, eiga að lækka fram-
færsluvísitöluna sem * nemur
0,4%, samkvæmt bráðabirgðaút-
reikningum Hagstofúnnar.
Mjólkurverð lækkaði um fjórar
krónur lítrinn, blýlaust 92 oktan
bensín um tvær krónur lítrinn, og
dilkakjöt verður sett á útsölu með
20% til 25% afslætti. Það er kinda-
kjötið sem veldur mestri óvissu í
þessum reikningum, að sögn Vil-
hjálms Ólafssonar hjá Hagstofunni.
Ekki er fullvíst hve mikil verðlækk-
unin verður, né hve mikið kjöt verð-
ur boðið á þessum kjörum.
Framfærsluvisitalan vegur þriðj-
ung í lánskjaravísitölu. Þessar verð-
lækkanir hafa þess vegna áhrif til
lækkunar lánskjaravísitölu sem
nemur 0,13%.