Morgunblaðið - 23.06.1989, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.06.1989, Qupperneq 10
10 .......TMÓR&rtdBAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÖNf'ÍÍ9%9 Hvað má spara í grunnskólunum? Athugasemd við leiðara Mbl eftirElínu Stephensen í leiðara Morgunblaðsins í gær, 15. júní.gefur líta merkilega fullyrð- ingu. Þar segir orðrétt: „Auðvitað er hægt að spara 126 milljónir króna í grunnskólum landsins, ef vilji er fyrir hendi. Auðvitað er það hægt án þess, að það hafi örlagaríkar af- leiðingar fyrir nemendur." Þama veit leiðarahöfundur Morgunblaðsins meira en skólamenn. Þeir síðar- nefndu eiga nefnilega í vandræðum með að finna leiðir til að spara meira en orðið er í skólum landsins. Við skulum aðeins riija upp söguna: — Árið 1974 voru gefin út lög um grunnskóla (nr. 63/1974). í 44. grein þeirra er kveðið á um vikulegan kennslutíma í hverjum árgangi. í sérstökum auglýsingum hafa svo verið birtar viðmiðanir um skiptingu þessara stunda milli greina. Ekki hefur það heyrst að þarna hafi verið ríflega áætlað, þvert á móti hefur ýmsum þótt skorið við nögl. Hér verður gengið út frá því að þetta hafí verið það lágmark sem talið hafi verið hægt að komast af með til að undirbúa æsku landsins á sómasamlegan hátt undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi, eins og það heit- ir á hátíðlegum stundum. — Árið 1980 þurfti að skera niður ríkisútgjöld. Þá voru teknar kennslu- stundir af nemendum grunnskólanna í landinu, sú skerðing hefur ekki verið afnumin. — Árið 1984 þurfti aftur að spara og aftur voru grunnskólanemendur auðveld bráð. Sú skerðing hefur ekki heldur gengið til baka þótt tilskipun- in sé fallin úr gildi. — Árið 1989 á enn að spara. Þeg- ar er búið að ákveða að sundkennsla skuli tekin af viðmiðunartímum í stað þess að vera úthlutað sérstaklega, einni kennslustund á hverja 15 nem- endur. Þetta þýðir ekki aðeins skerð- ingu á tímum til annarrar kennslu heldur einnig skerðingu á sund- kennslu því nú fær hver bekkjar- deild, 24 nemendur að meðaltali, aðeins eina stund á viku til sund- náms. En — „auðvitað er hægt að spara í • grunnskólunum". Spurningin er bara — hvernig? Þar sem leiðarahöf- undur Morgunblaðsins virðist vita meira um þetta mál en við sem í skólunum störfum óska ég eftir að hann upplýsi okkur um hvar er hægt að skera niður. Rennum aðeins yfir kennslugreinar grunnskólans: íslenska — er hægt að fækka kennslustundum þar á tímum mál- vemdarátaks sem allir eru sammála um að sé brýnt? Það er meira að segja enn í gildi bréf frá Birgi ísieifi Gunnarssyni fyrrverandi mennta- málaráðherra um að nota skuli hám- arkstímaflölda í íslensku. Stærðfræði/eðlisfræði — vill ein- hver skera niður slíka tíma þegar stöðugt er verið að hamra á verri stöðu íslenskra ungmenna í raun- Elín Stephensen „Þar sem leiðarahöf- undur Morgunblaðsins virðist vita meira um þetta mál en við sem í skólunum störfum óska ég eftir að hann upplýsi okkur um hvar er hægt að skera niður.“ greinum en jafnaldra þeirra í ná- grannalöndunum? Svo ekki sé minnst á alla fjármunina sem eiga að vera fólgnir í íslensku hugviti. Islandssaga — er okkur óhætt að skerða þá tíma frekar en orðið er? Landafræði — viljum við að börnin okkar verði álíka fróð um umheiminn eins og böm víða um hinn vestræna heim eru um ísland? Kristinfræði — Islendingar eru auðvitað mjög trúuð þjóð þannig að kannske er þetta fag óþarft? Líffræði — er einhver sem vill að við hættum að fræða börnin um nátt- úru landsins, líkama mannsins og hættumar af gálausu kynlífi? íþróttir — er kannski orðið úrelt að reyna að fá böm til að temja sér heilbrigða lífshætti strax á unga aldri? Eru mer.n hættir að tala um að fyrirbyggjandi aðgerðir í heil- brigðismálum geti sparað peninga? Handavinna — er ef til vill óþarfi að geta bjargað sér sjálfur þegar flík rifnar eða við miriniháttar smíðar á heimilinu? Það sparar sjálfsagt eng- um neitt — eða hvað? Heimilisfræði — æ, það svarar sennilega ekki kostnaði að vera að kenna fólki að borða hollan mat — hvað þá að vera eitthvað að tauta um hagkvæman heimilisrekstur — eða hvað? Mynd- og tónmennt — við höfum líklega ekki efni á að þroska sköpun- argáfu og listasmekk á þrenging- artímum? Enska og danska — þeir fara áreiðanlega bráðum að tala íslensku í útlöndum svo ef til vill má spara þar? Sérkennsluna skulum við ekkert vera að tala um, ég ætla engum að óreyndu að vilja skera hana niður. Svo er það allt hitt sem „á að kenna í grunnskólunum" en engir sérstakir tímar fásttil, s.s. umferðar- fræðsla, siðfræði og almennir mannasiðir. Eigum við kannske að hætta einhveiju af því, skera niður það sem kallað hefur verið uppeldis- hlutverk skólanna? Vissulega fer tími í það, tími sem hvergi er merktur á stundarskrám barnanna. Hvar á að taka þessar 126 milljón- ir króna sem á að vera hægt að spara? Svari hver fyrir sig, kannski fáum við líka uppskriftina frá Mogg- anum! Höfundur eryBrkennarí í Barnaskóla Akureyrar. 911 CA 9Í07A LÁRUSÞ.VALDIMARSSONframkvæmdastjori L I I UU " L I 0 / U KRISTIIMN SIGURJÓNSSON, HRL. logg. fasteignas. Til sýnis og sölu auk annarra eigna: Tilboð óskast í litla 2ja herb. íb. - einstaklíb. - kj. í gamla bænum. Samþykkt. Stór og góð eignarlóð. Góð lán kr. 1,4 millj. Sandgerði Bjóðum til sölu fasteignirnar Vallargötu 9 og Vallargötu 1 i Sand- gerði. Tilboð óskast í eignirnar. Ytri-Njarðvík eða Keflavík Þurfum að útvega 3ja herb. íb. í Ytri-Njarðvík. Stór 2ja herb. kemur til greina. íb. má vera í Keflavik í næsta nágr. Njarövíkur. Rétt eign verður borguð út. í Lauganeshverfi eða nágrenni óskast góð 3ja herb. íb. Skipti mögul. á 6 herb. rúmg. sér efri hæð í hverfinu. Stefán Briem, eðlisfræðingur: í lyftuhúsi með bílageymslu Góð 3ja herb. íb. óskast í lyftuhúsi. Bílag. þarf að fylgja. Útsýni æski- legt. Skipti mögul. á góðu raðh. miðsv. í Kóp. Bílsk. fylgi. Landsþekktur athafnamaður sem hyggst flytja til borgarinnar öskar eftir nýl. og góðri eign með 4-5 rúmg. svefnherb. Mikil og góð útborgun. Nánari uppl. trúnaðarmál. Opið á morgun laugardag Kynnið ykkur auglýsinguna LAUGAVEGI18 SÍMAR 21150-21370 ... á við bestu galdraþulu! Ef þér finnst eitthvað vanta upp á bragðið af súpunni, pottréttinum, heitu sósunni, salatsósunni eða ídýfunni skaltu einfaldlega bæta við MS sýrðum rjóma, 18%. Það er allur galdurinn. Hitaeiningar MS sýrður rjómi Majónsósa 18% (Mayonnaise) 1 tsk (5 g) 9.7 37 1 msk (15 g) 29 112 100 g 193 753 ALMENNA FASTEIGHASAt AH Er að koma íslensku inn í alþjóðlegt þýðingakerfi STEFÁN Briem, eðlisfræðingur, vinnur nú að verkefiii í vélrænum tungumálaþýðingum, sem felst í því, að koma íslensku inn í alþjóðlegt þýðingakeríí, sem hollenskt fyrirtæki er með í smíðum. Er þar esper- antó notað sem millimál og á til dæmis að vera hægt að þýða úr ensku yfir á esperantó og úr esperantó yfir á íslensku. Stefán hefur nú nýve- rið fengið styrk úr Vísindasjóði til að vinna að undirbúningi þess að íslenskan komist inn í þetta hollenska kerfi. Enn fremur hefiir mennta- málaráðuneytið sýnt þessu verkefni mikinn áhuga og veitt styrk til þess. Stefán mun kynna verkefiiið á ráðstefiiu, sem haldin verður á vegum Háskóla íslands í næstu viku. „Það sem ég hef verið að fást við, er að þýða af esperantó yfir á íslensku," sagði Stefán Briem í sam- tali við Morgunblaðið. „En það er bara helmingurinn af þeim hluta verksins, sem snýr að íslenskunni. Það á eftir að þýða af íslensku yfir á esperantó, en þetta er svo stórt verkefni, að ég hef ekki getað gefið mér tíma til fara út í það líka. Ég hef verið að vinna að þessum þýðing- um í frístundum frá 1981, en hef nú fengið styrk úr Vísindasjóði til vinna að undirbúningi þess að koma íslenskunni inn í kerfið, sem Hollend- ingarnir eru að hanna. „Hugmyndin með þessu þýðinga- kerfi er sú,“ bætir Stefán við, „að til að byija með verði með því hægt að þýða upplýsingatexta af ýmsu tagi, til dæmis stuttar fréttir, út- drætti úr fræðiritgerðum og vörulýs- ingar á umbúðum. Þetta er hugsað þannig, að þýðingin eigi sér stað í tölvuneti og því þurfi notendurnir ekki að kunna annað tungumál en sitt eigið. Þeir eiga að geta slegið textann inn á sínu eigin tungumáli, í tölvukerfinu er hann þýddur á esp- erantó og berst viðtakandanum á því máli. Viðtakandinn mun svo hafa hjá sér forrit og orðasafn á esperantó til þess að fá hann þýddan yfir á sitt eigið mál.“ Stefán segir nokkur munur sé á þessum tveimur skrefum í þýðing- unni. „Fyrra skrefið verður ekki al- veg sjálfvirkt, heldur á sér stað í samvinnu manns og vélar. Ef upp koma einhver vafaatriði þegar text- inn er sleginn inn, til dæmis vegna tvíræðni orða, þá spyr tölvan hvemig hún eigi að skilja þau. Hins vegar verður síðari þýðingin alveg sjálfvirk. Hollendingamir gera nú ráð fyrir að fyrra skrefíð geti orðið sjálfvirkt eft- ir 50 ár.“ Hann segir, að von sé á fyrstu 1 \ Matur og bjór Til sölu eða leigu nýendurbættur matsölustaður með vínveitingaleyfi. Öll tæki og aðstaða. Vinsæll af kátum Skagfirðingum og svöngum ferðamönnum. Staðsetning auðvitað sjálfur Krókurinn. Fyrirtækjasalan, Suðurveri, símar 82040 og 84755, Reynir Þorgrímsson. Morgunblaðið/Emilía Stefán Briem, eðlisfræðingur markaðsvöm hollenska fyrirtækisins eftir fjögur til fimm ár, en þá muni að öllum líkindum enn líða nokkur ár þar til hægt verði að taka íslensk- una inn í. Að sögn Stefáns var esperantó valið til þess að gegna hlutverki milli- máls vegna þess að það er mjög rök- lega uppbyggt. „Málfræðin er alger- lega án undantekninga, sem auðveld- ar mjög alla tölvuvinnslu og einnig er miklu minna um tvíræðni eða margræðni orða þar heldur en í þjóð- tungunum. Hollensku aðilamir, sem vinna að þessu verkefni hafa líka valið þá leið, að laga esperantó að- eins til, svo að öll margræðni hverfí. Þannig er hægt að hafa síðara skref þýðingarinnar alveg sjálfvirkt. Sá möguleiki var líka fyrir hendi, að nota einhvers konar vélatáknmál í stað mannamáls, en það fylgja því hins vegar ýmsir kostir að hafa milli- málið mannamál; menn fá til dæmis meiri tilfinningu fyrir því,“ sagði Stefán Briem að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.