Morgunblaðið - 23.06.1989, Side 13

Morgunblaðið - 23.06.1989, Side 13
13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989 'v :" , 1® Morgunblaðið/Þorkell HópslysaæGng á Keflavíkurflugvelli í gær fór fram hópslysaæfmg á Keflavíkurflugvelli í tengslum við heræfinguna Norðurvíking ’89, sem hófst á miðvikudag og stendur til hins 28. júní. í hópslysaæfíngunni léku nokkrir tugir bandarískra hermanna slasað fólk, sem dreift var um nokkurt svæði. Tilgangur æfíngarinnar var helst sá, að æfa greiningu slösunar og var starfsfólk frá Borgarspíta- lanum og bandaríska herspítalanum á Keflavíkur- flugvelli þar í aðalhlutverki. Að sögn Amar Egilsson- ar, fulltrúa hjá Almannavömum ríkisins, þótti æfíng- in í heild takast vel, þrátt fyrir að vissulega hefðu vissir vankantar fundist, sem betur mætti fínpússa. Á myndinni að ofan sést læknir gera að sámm „slað- aðs“ manns. Ungir sjálfstæðismeiin í samstarfí íhaldsflokka: Viljum hafa áhrif víð- ar en heima á Islandi Farandsýmng í Þjóðmiqjasafinnu í TILEFNI af 10 ára aftnæli heimastjórnar á Grænlandi nú í júní verður í dag opnuð í Þjóðminjasafiii Islands farandsýningin „Fjaðr- askúfar og fiskiklær". Sýningin er komin hingað á vegum Norrænu stofhunarinnar í Nuuk á Grænlandi í samvinnu við Þjóðminjasafnið, Norræna húsið og Grænlandssjóðinn. Þessi sýning, sem á eftir að fara um öll Norðurlöndin, fjallar um menningu inúíta og indíána og er sett upp hér f tengslum við nám- skeið í „shamanisma" á vegum Norrænu leiklistamefndarinnar (NTK), og munu fjölmargir merkir gestir koma til landsins í tilefni þess. Meðal þeirra má nefna indí- ánasöngkonuna Buffy Sainte- Marie, sem mun syngja við opnun- ina í Þjóðminjasafninu. Hún er Cree-indíáni, en einnig verða við opnunina Dineh-indíáninn Ramona Blackgoat, Sioux-indíáninn Iron Shell, Hau de no sau nee — indíán- inn Norman Charles, auk samans Ása Charles, inúítans Elise Reimer og fleiri góðra gesta. Þá verða hér stödd prófessor Louise Báckmann frá Stokkhólmsháskóla, Rolf Gil- berg þjóðfræðingur frá Þjóðminja- safninu í Kaupmannahöfn og einnig Stig Thomsohn cand. mag., sem hefur skipulagt námskeiðið og haft veg og vanda af sýningunni ásamt Bo Egelund. Þá mun Niels Vogesen frá Norrænu stofnuninni í Nuuk vera við opnunina. Áður en sýningin opnar á föstu- daginn verður kvikmjmdin Koyaan- isqatsi eftir Godfrey Reggio sýnd í Háskólabíói kl. 15.30. Þetta er heimildamynd um Hopi-indíánana og þeirra heimssýn, en þeir álíta að með hinu háþróaða tæknisam- félagi sé heimurinn að fara úr bönd- unum. Meðal Hopi-indíána lifir gamall spádómur, Koyaanisqatsi, sem segir fyrir um eyðingu jarðar- innar í kjamorkusprengmgu, og varar jafnframt við því kerfí, sem gerir mönnum kleift að beita slíkum vopnum. Kvikmyndasýningin er opin al- menningi og er aðgangur ókeypis. Myndin verður aðeins sýnd einu sinni hér á landi. Sýningin í Þjóðminjasafninu verður opin út ágúst og aðgangur er ókeypis. Myndbanda- leigur og útgef- endur semja SAMBAND myndbandaútgef- enda á Islandi og Samtök íslenskra myndbandaleiga hafa gert með sér samkomulag um viðtækt samstarf til að efla hlut- deild og ímynd myndbandsins meðal almennings á íslandi. Samningurinn, er um markaðs- mál, gæðaeftirlit, viðskiptahætti og leggur grunn að sameiginlegri starfsemi samtakanna, einkum varðandi ýmsa markaðs- og eftir- litsstarfsemi, segir í fréttatilkynn- ingu. Þar segir ennfremur: „Að mati stjóma beggja félaganna er hér um mjög merkan áfanga að ræða, þar 'sem verulegt ósamkomulag hefur verið varðandi heppilegustu aðferð- irnar til vaxtar og viðgangs hins íslenska myndbandamarkaðs." - segir Ólafur Þ. Stephensen, nýkjörinn varaforseti NUU „UNGIR sjálfstæðismenn vilja hafa áhrif á pólitiskar umræður víðar en bara hér heima á íslandi. Samskipti þjóða verða æ meiri og það er eðlilegt að stjórnmálaflokkar hafi samstarf sín á milli og reyni sameiginlega að hafa áhrif ef þeir telja sig geta náð samstöðu um mikilvæg mál,“ sagði Ólafur Þ. Stephensen, formaður Heimdallar, er hann var spurður hvers vegna ungir sjálfstæðismenn tækju þátt í norrænum samtökum ungra íhaldsmanna, NUU. Ólafiir var um síðustu helgi kosinn varaforseti samtakanna. Ólafur sagði er hann var spurður hvað ungir sjálfstæðismenn teldu sig eiga sameiginlegt með norræn- um íhaldsflokkum að þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn kenndi sig ekki við íhaldsstefnu færi uppruni flokksins ekki á milli mála. Hann hefði verið stofnaður við samein- ingu Fijálslynda flokksins og íhaldsflokksins. Þess mætti til dæmis geta að Heimdallur, stærsta og elzta félagið innan Sambands ungra sjálfstæðismanna, væri tveimur árum eldra en Sjálfstæðis- flokkurinn, stofnað sem félag ungra íhaldsmanna. „Jón Þorláksson, for- maður íhaldsflokksins og fyrsti for- maður Sjálfstæðisflokksins, sagði í ritgerð um íhaldsstefnu á íslandi að íhaldsflokkurinn hefði valið sér nafn sitt vegna þess að hann vildi leggja meiri áherzlu á varðveizlu þeirra verðmæta, sem fyrir væru í íslenzku þjóðlífí, en aðrir flokkar. Hann tók einnig fram að íhalds- stefnan verði þau verðmæti, sem fijálslynd stefna hefði skilað, ein- staklingsfrelsi, fijálsa verzlun, um- bætur í mannréttindamálum, sam- vinnu stéttanna og fleira. Hann kallaði þetta fijálslynda íhalds- stefnu. Eg held að sú nafngift eigi við stefnu allra hreyfinganna, sem aðild eiga að NUU,“ sagði Ólafur. „Sjálfur hef ég ekki verið feiminn við að kalla mig íhaldsmann í anda stefnu Jóns Þorlákssonar, og það gera margir félagar mínir meðal ungra sjálfstæðismanna einnig.“ Olafur sagði að þótt íhaldsflokk- arnir á Norðurlöndum væru úr ólík- um jarðvegi sprottnir og Sjálfstæð- isflokkurinn, hefðu þeir færzt nær stefnu hans á undanförnum áratug- um. „Það er ekki lengur um það að ræða að þessir flokkar séu stéttaflokkar atvinnurekenda, eins og til dæmis danski íhaldsflokkur- inn kann að hafa verið. Öllum bræðrasamtökum okkar í NUU er jafnannt um varðveizlu þeirra verð- mæta, sem Jón Þorláksson taldi upg, og okkur hefur verið.“ Ólafur sagði að Sjálfstæðisflokk- urinn væri að að mörgu leyti ein- stakur flokkur og ólíkur nokkrum útlendum flokki, enda sprottinn úr íslenzkum jarðvegi. „Sjálfstæðis- flokknum hefur tekizt að verða borgaraleg breiðfylking, og hefur haft svipað fylgi og flokkar sósíal- demókrata á hinum Norðurlöndun- um, sem íhaldsflokkum þar hefur ekki tekizt. Þeir geta eflaust Iært af okkur, og því meiri ástæða er til að við störfum með þeirn," sagði hann. „Mig rekur minni til þess að þeg- ar sjálfstæðiskonur funduðu með hægrikonum á Norðurlöndum í fyrrasumar, sagði Þorsteinn Páls- son í Morgunblaðinu að Sjálfstæðis- flokkurinn væri fyrst og fremst íslenzkur flokkur, sprottinn úr miðri íslenzkri þjóðfélagsgerð og kenndi sig ekki við útlend hugtök. Hann sagði hins vegar að það væri eðli- legt í heimi aukinna alþjóðlegra samskipta að taka þátt í alþjóðlegri stjórnmálaumræðu og eiga fundi með erlendum stjórnmálasamtök- um, sem næst stæðu Sjálfstæðis- flokknum. Það hefur Iíka sýnt sig á þingi Norðurlandaráðs að Sjálf- stæðisflokkurinn hefur náð sam- stöðu með íhaldsflokkunum, móður- flokkum ungliðahreyfinganna í NUU, og gengið til liðs við þing- mannahóp þeirra. - Þetta er auðvitað kjarni málsins; að við eigum að leita samstöðu með þeim, sem næst okkur standa til Ólafiir Þ. Stephensen, formaður Heimdallar og nýkjörinn vara- forseti NUU. þess að styrkja rödd íslands á al- þjóðavettvangi og hafa áhrif á mál, sem skipta okkur miklu, til dæmis á vettvangi Norðurlanda- ráðs. Þar ræðum við ekki sértæk innanríkismál eða þjóðlega pólitík, sem auðvitað er mismunandi hjá hreyfíngunum, heldur mál sem skipta máli fyrir Norðurlöndin sem heild. NUU hefur haft mikil áhrif á Norðurlandaráðsþingi æskunnar, sem þjónar ráðgjafarhlutverki á hinu eiginlega Norðurlandaráðs- þingi. Þar hafa íslendingar ekki látið sitt eftir liggja. Það að ungir sjálfstæðismenn skuli taka að sér forystuhlutverk í samtökunum sýn- ir að við höfum eitt og annað fram að færa. Þótt við séum í flokki, sem er'fyrst og fremst íslenzkur, viljum við hvorki vera útúrborur né horn- kerlingar í alþjóðasamstarfí,“ sagði Ólafur Stephensen. 24 dansarar í storglæsilegri og lUríkri sumarsyningu Hótel Islands undir stjórn Auðar Haralds FRUMSYNING I KVOLP| og írítt verður á sýninguna og dansleik fyrir matargesti Miðii i>g Kuðiipnntnnir diiglcga i sima 687III HÖTETi tgJAND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.