Morgunblaðið - 23.06.1989, Síða 14

Morgunblaðið - 23.06.1989, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989 NÝR LAX Topp netofiskur á aðeins kr. kg í heilu SVÍNASNITCHEL Það besta á pönnuna kr. Ow5|” kg DANSKUR KJÖTBÖÐINGUR KYNNING í DAG. Ótrúlegt verð kr. 495,- kg KJÚKLINGAR öllum gerðum kr. kg Steiktur aðeins kr. 600 stk. NAUTAHRYGGUR Besta kiötið kr. 755jm kg NAUTAROASTBEEF Aðeins kr. 970,- kg Opió i lcvöld til kl. 19.30 Laugardag kl. frá 9-16 0» 68 5168. Brýnt að leggja æfíngabraut - segir Sigurbjörn Einarsson KLÚBBUR 17, samtök ungra ökumanna á Islandi, var stofiiaður fyrir nokkru í Reykjavík. Að stofiiun samtakanna standa hópur ungra ökumanna, Umferðarráð og Ungmennahreyfing Rauða Kross Is- lands. Helsta verkefhi samtakanna er að vinna gegn umferðarslys- um, sérstaklega á ungu fólki. Það á meðal annars að gera með útg-1 áfu fræðslubæklinga handa ungum ökumönnum. Morgunblaðið/Sverrir Geir Guðmundsson flytur ávarp á stofhfundi Klúbbs 17, samtaka ungra ökumanna, í Bíóborginni. Morgunblaðið/Sverrir Hljómsveitimar Síðan skein sól, Fjörkallar og Sexmenn komu fram á stofnfúndi Klúbbs 17. Hér sjást Sexmenn leika fyrir áheyrendur. Stofiifundur samtaka ungra ökumanna: Á stofnfundinum fluttu þrír ung- ir ökumenn ávörp. Þau voru Geir Guðmundsson, Sigurbjörn Einars- son og Unnur Helga Óttarsdóttir. Að sögn Sigurbjörns Einarssonar er mjög brýnt að lögð verði æfinga- braut fyrir ökunema, þar sem hægt yrði að æfa akstur við alls kyns skilyrði allan ársins hring. Markmið samtakanna er að fækka slysum í umferðinni, sérstak- lega á ungu fólki. Það á að gera með útgáfu fræðslubæklinga handa ungum ökumönnum og með því að þrýsta á að lögð verði æfingabraut fyrir ökunema. Útbúa áfræðsluefni í samstarfi við skólafélög fram- haldsskóla um allt land. Allt ungt fólk sem náð hefur 16 ára aldri getur tekið þátt í starfi Klúbbs 17. Raufarhafíiarkírkja 60 ára Raufarhöfn. HÁTÍÐARMESSA var haldin í Raufarhafiiarkirkju 11. júní í til- efni af 60 ára afinæli Raufar- haíharkirkju. Hún var byggð 1928 og vígð 1. janúar 1929. Guðjón Samúelsson teiknaði kirkjuna en yfirsmiður var Ingvar Jónsson. Einar Benediktsson frá Garði í Núpasveit vann að múr- verki, en hann var viðstaddur mess- una á sunnudaginn. Kirkjan var mikið endurbyggð fyrir nokkrum árum og endurvígð 3. júní 1979. Við hátíðarmessuna voru við- staddir prestar sem áður höfðu þjónað við Raufarhafnarkirkju. Þeir sem mættir voru eru eftirtaldir: Sr. Guðmundur Örn Ragnarsson, sr. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir nú- verandi sóknarprestur við Raufar- hafnarkirkju, sr. Sigurvin Elíasson, sr. Kristján Valur Ingólfsson, sr. Ingimar Ingimarsson, sr. Örn Frið- riksson prófastur Þingeyjarpróf- astsdæmis og sr. Kristján Róberts- son. Kór Raufarhafnarkirkju söng undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðsson- ar frá Akranesi. Margrét Bóas- dóttir sópran söng og snart með söng sínum hjörtu margra Raufar- hafnarbúa. Margrét er hér af góðu kunn frá því hún bjó hér með manni sínum Kristjáni Val Ingólfssyni og stofnaði þá Tónlistarskóla Raufar- hafnar og stjórnaði honum um.ára- bil og kenndi söng og hljóðfæraleik. Um 130 manns sóttu messuna og eftir messu bauð Raufarhafnar- kirkja öllum staðarbúum og gestum í kaffi og meðlæti á hótel Norður- ljós, þar mættu um 150 manns. Raufarhafnarhreppúr færði kirkj- unni að gjöf 50.000 kr. í tilefni dagsins. - Helgi Við hátíðarmessuna voru viðstaddir prestar sem áður höfðu þjónað við Raufarhaftiarkirkju; Sr. Guðmundur Örn Ragnarsson, sr. Ragn- heiður Erla Bjarnadóttir núverandi sóknarprestur við Raufarhafiiar- kirkju, sr. Sigurvin Elíasson, sr. Kristján Valur Ingólfsson, sr. Ingi- mar Ingimarsson, sr. Örn Friðriksson prófastur Þingeyjarprófasts- dæmis og sr. Krislján Róbertsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.