Morgunblaðið - 23.06.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGU.R .23. JÚNL .1989.
17
Ný lota START-samninga-
umleitana hafín í Genf
Nýjar tillögnr Bandaríkj anna um sannreyningn sáttmálans reifaðar
Genf. Reuter.
VIÐRÆÐUR risaveldanna um niðurskurð langdrægra kjarnorkuvopna
(START) hófust af fullum krafti í Genf á miðvikudag. Enn skilur nokk-
uð á milli í mikilvægum málaflokkum, en Bandaríkjamenn munu vera
með nýjar tillögur í fórum sínum, um hvernig koma má í veg fyrir að
aðilar hugsanlegs samnings geti skotið sér undan ákvæðum hans.
Sendinefndir beggja ríkjanna taka
allar þátt í umræðulotu þessari, en
gert er ráð fyrir að hún taki um sex
til sjö vikur. Vonast er til að fyrr eða
Ólympíuleikarnir
í Barcelona:
Gist í far-
þegaskipum
Troia. Portúgal.
NIU farþegaskip verða leigð
til þess að mæta eftirspurn
eftir gistirými vegna Olympíu-
leikanna í Barcelona á Spáni
árið 1992, að sögn talsmanns
spænsku ólympíunefndarinn-
Spænska ólympíunefndin hef-
ur tekið frá 80% alls hótelrýmis
í Barcelona en á nú í samninga-
viðræðum um leigu á a.m.k. níu
skemmtiferðaskipum til þess að
geta mætt eftirspurn eftir gisti-
rými meðan á leikunum stendur.
í skipunum verður hægt að hýsa
6.000 manns. Munu þau liggja
við bryggju í Barcelona meðan á
leikunum stendur.
Á fundinum í Troia, þar sem
fulltrúar ólympíunefnda allra
Evrópulanda nema Albaníu eru
samankomnir, mætti sú hug-
mynd að íþróttamenn frá ríkjum
Evrópubandalagsins (EB) gangi
undir fána EB við setningarat-
höfn leikanna andstöðu.
síðar verði hægt að ganga frá sátt-
mála um helmingsniðurskurð á lang-
drægum kjarnorkuherafla beggja
risaveldanna.
Yfirmenn sendinefndanna, sem
eru báðir nýskipaðir, hittust á einka-
fundi á mánudag, en þá hófst samn-
ingalotan opinberlega.
Umræðunum var frestað í síðast-
liðnum nóvember til þess að gefa
hinni nýju stjórn Georges Bush
Bandaríkjaforseta kost á að endur-
skoða varnarmálastefnu Banda-
ríkjanna.
Mikilvægasta niðurstaða þeirrar
endurskoðunar var sú krafa Banda-
ríkjanna að reynsla yrði fengin á
hvers konar sannreyningarákvæði
hugsanlegs sáttmála áður en til und-
irritunar hans kæmi. Richard Burt,
aðalsamningamaður Bandaríkjanna,
sagði að slík áætlun myndi koma
báðum risaveldunum til góða og yrði
til þess að menn vissu að hveiji
væri gengið á borði en ekki bara í
orði.
Sendinefnd Sovétríkjanna undir
forsæti Júríjs Nazarkíns hefur ekki
viljað láta neitt eftir sér hafa um
þessa tillögu Bandaríkjanna fyrr en
hún hafi verið skýrð í smáatriðum.
Taiið er að Bandaríkjamenn muni
jafnframt falla frá kröfum sínum um
bann við færanlegum langdrægum
kjarnorkflaugum ef Bandaríkjaþing
samþykkir áætlun um endurnýjun
kjarnorkuheraflans. I henni felst
meðal annars að 50 MX-flaugum
yrði komið fyrir á jámbrautarvögn-
um og að minni flaugar af gerðinni
Midgetman yrði komið fyrir á vöru-
flutningabílum. Flaugar þessar yrðu
þá sambærilegar við SS-24 og SS-25
flaugar Sovétmanna.
Nazarkín hefur sagt að nefnd sín
komi ekki tómhent til Genfar, en
vill ekki greina frá því um hvaða til-
lögur er að ræða af hálfu Sovét-
manna.
START-viðræðurnar hófust árið
1985 og hefur talsvert miðað áfram.
Bæði risaveldin hafa þó ekki hvikað
frá afstöðu sinni um hvort slíkur
sáttmáli yrði tengdur samningi um
takmarkanir á geimvarnaáætlun
Bandaríkjanna. Sovétmenn segja að
áætlun Bandaríkjanna bijóti í bága
við gagnflaugasáttmála (ABM)
ríkjanna frá 1972, en Bandaríkja-
menn vilja ekki að START-samning-
arnir séu háðir hugsanlegu sam-
komulagi um geimvarnir. Afstaða
Bandaríkjanna er sú að í Gagn-
flaugasáttmálanum sé engan veginn
skýrt kveðið á um að tilraunir með
geimvarnir séu óleyfilegar.
Fréttabann er á viðræðum risa-
veldanna og er ekki talið að fregna
sé að vænta fyrr en formenn samn-
inganefndanna hafa skilað skýrslum
sínum til ríkisstjórna sinna eftir tæpa
tvo mánuði.
Reuter
Gistíhús ígeimnum
Japanska byggingarfyrirtækið Shimizu hefur uppi áform um að láta
smíða gistihús sem komið verður fyrir í um 450 km hæð á braut
umhverfis jörðu. Forráðamenn fyrirtækisins vonast til að unnt verði
að hefja rekstur hótelsins á næstu öld. Líkt og teikningin sýnir á gisti-
húsið að snúast um 240 metra langan ás en stjórnstöðin og herbergi
starfsmanna verða ofan við sjálft gistirýmið.
0RÐ VIKUNNAR ER:
©BJÖRGUNARSVEmRNAR
í safnleik á sumarmiða Lukkutríós
safnar þú bókstöfum í orð. í bverri viku
birtist vinningsorð í dagblöðum og
útvarpi. Haltu miðunum til baga því um
leið og þú átt bókstafi sein mynda
eittbvert orðanna getur þú fengið þann
vinning. Vinninga má vitja á skrifstofu
Lukkutríós að Borgartúni 18.
Orð fyrri vikna:
Hjól (Kynast 1362, kr. 19.900,-)
Bakpoki (Karrimor Jaguaróö, kr. 9.290,-)
Grill (Sunbeam gasgrill, kr. 35.000,-)
Stuttermaskyrtur í miklu úrvali.
Margir litir. Verð frá b. 2.140,-
5^ Ts
útilíFt
Sími 82922