Morgunblaðið - 23.06.1989, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 23.06.1989, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐŒ)'- SÞROTTIR FÖSTGDAGUR 23.' JÚNÍ 1989 SKOTFIMI Samstarfs- örðugleikar milli stjómar SR og STl Er uppbyggingin í leirdúfuskotfimi á kostnað annarra skotgreina? MIKLIR samstarfsörðug- leikar hafa verið milli stjórnar Skotfélags Reykjavíkur og Skotsam- bands íslands undanfarin ár. Skotfélagsmenn gagn- rýna formann Skotsam- bandsins fyrir að snið- ganga riffil- og skamm- byssugreinarnar. Þeir sem stunda leirdúfuskotfimi „Skeet" eru hins vegar mjög ánægðir með störf formannsins. Skotþing hefur ekki verið haldið í tæp tvö ár, eða síðan í desember 1987. Osætti stjórnar Skotfélags Reykjavíkur (SR) og Skot- sambands íslands (STÍ) á líklega rætur sínar að rekja til ársins AF 1986 er Carl J. INNLENDUM Eiríksson var rek- VETTVANGl inn úr SR ásamt .jðt Birni Birgissyni. Sættir tókust ^^Hr síðan í máli þeirra eftir að ÍBR hafði fjallað um málið og hafnað kæru SR og bæði Carl og Björn teknir í sátt í félaginu. Skömmu síðar var skipt um stjóm í Skotfélagi Reykjavíkur og hiuti gömlu stjórnarinnar fór inn í stjórn Skot- sambandsins. Síðan hafa blásið sterkir vindar milli stjómar SR og STÍ og menn varla talast við. Markviss uppbygging Á síðasta skotþingi var sam- þykkt tillaga um að STÍ myndi halda áfram markvissri uppbygg- ingu á haglabyssugreinum og að- stoðaði aðildarfélögin eftir megni í því starfí. Þetta hefur STÍ gert.. SR-menn telja að aðrar skotgrein- ValurB. Jónatansson skrífar ar hafí verið hlunnfarnar á sama tíma og ekkert gaum gefið. Þor- steinn Ásgeirsson, formaður STÍ, segir um þessa gagnrýni: „Það var ákveðið á skotþingi að leggja áherslu á haglabyssuna og það hefur verið gert. Til marks um þessa miklu uppbyggingu voru aðeins þrír til fjjórir keppendur á íslandsmóti í leirdúfuskotfimi fyr- ir þremur árum. Nú er aðstaða öll betri og keppendur komnir yfir 30 og fer þeim stöðugt fram.“ Skotfélagsmenn segjast ekki hafa fengið krónu frá STÍ á síðasta starfsári og vilja meina að fjárreiða sambandsins sé í óiestri og þess vegna vilji formað- ur ekki halda skotþing. Þorsteinn Ásgeirsson sagði að Skotfélag Reykjavíkur hefur ekki farið fram á styrk frá STÍ og geta þeir sjálf- um sér um kennt. „Félög sem hafa sýnt dug og dugnað tii að byggja upp aðstöðu hjá sér hafa fengið styrk. Varðandi fjárhag sambandsins get ég fullyrt að hann er í góðu lagi.“ Landsliðsmál Skotfélagsmenn segja val á landsliðsmönnum á vegum Skot- sambandsins undanfarin ár hafi verið mjög tilviljunarkennt í riffil- og skammbyssugreinunum. Til marks um það gekkst STÍ fyrir úrtökumóti í leirdúfuskotfimi fyrir Smáþjóðaleikana á Kýpur, en ekki í skammbyssunni. STI valdi síðan tvo keppendur i skammbyssu- greinina, án þess að fara eftir árangri í mótum hér heima. SR- menn deildu ekki um val Carls J. Eiríkssonar, heldur val Tryggva Sigmannssonar sem æft hefur og keppt í Noregi. Tryggvi var með þeim síðustu á Smáþjóðaleikun- um, en Carl hafnaði í 4. sæti. „Tryggvi virðist vera undir sér- stökum vendarvæng formanns STÍ,“ sagði einn viðmælenda. Síðasta skotþing 1987 Skotsambandsþing hefur ekki verið haldið síðan í desember 1987, en í samtali við Morgun- blaðið sagðist Þorsteinn Ásgeirs- son vera búinn að boða til skot- þings 30. september 1989. En hver er ástæðan fyrir því að ekki var haldið skotþing 1988? „Það er meðal annars vegna mikils undirbúnings í tiiefni tíu ára af- mælisþings sambandsins sem verður í haust,“ sagði Þorsteinn. Sama má segja um Skotfélag Reykjavíkur þar hefur ekki verið haldinn löglegur aðalfundur í nokkur ár. Þannig að það virðist víða pottor brotinn. Sérsamböndum ber að halda ársþing Sérsamböndum innan ÍSÍ ber að halda ársþing og senda ÍSÍ árlega starfskýrslu. Það verður að teljast furðuleg stjórnun á pen- ingaútstreymi ÍSI ef einstök sérs- ambönd geta komist upp með að skila ekki inn ársskýrsium og halda ekki ársþing, en fá þó út- breiðslustyrki og Lottó-peninga eftir sem áður. ISÍ á að grípa í taumana í slíkum tilfellum og stöðva peningaútlát til viðkom- andi sérsambands og þrýsta þann- ig á að ársþing sé haldið eins og lög gera ráð fyrir. „Skctíþróttin á uppleið" Um stöðu skotíþróttarinnar á íslandi í dag segir Þorsteinn: „Skotíþróttin er nú loksins að komast á það stig að vera til jafns við aðrar íþróttir. Þetta hefur kostað mikla baráttu og harðfylgi duglegra manna. Það hefur þurft að ryðja þeim úr vegi sem hafa staðið í vegi fyrir uppgangi skotí- þróttarinnar og það hefur tekist. Ég er viss um að næstu tíu árin verða góð fyrir skotíþróttina.“ Það skal tekið fram að það voru ekki allir stjórnamenn Skot- félags Reykjavíkur sem báru stjóm STÍ söguna illa. Þeir sem stunda leirdúfuskotfimi hjá félag- inu voru yfirleitt mjög ánægðir með framgang mála hjá STÍ. Eins hafði borist bréf til ÍSÍ undirritað af formönnum Skotfélags Hafnar- fjarðar og Skotfélag Kópavogs þar sem farið er þess á leit við sljórn ÍSÍ að hún veiti Þorsteini Ásgeirssyni, formanni STÍ, viður- kenningu fyrir mikil og vel unnin störf í þágu skotíþróttarinnar á íslandi. Mm FOLX ■ ÍSLENSKI fáninn var dreginn að húni í Ungverjalandi á dögun- um, er þar fór fram þriggja landa keppni í fijálsíþróttum. Islending- ar voru þó ekki að keppa þar, held- ur Svíar og Norðmenn auk heima- manna — en vegna mistaka móts- haldara var íslenski fáninn dreginn upp þegar norski þjóðsöngurinn var leikinn! ■ SOVÉSKIR landsliðsmenn í körfuknattleik hefja innreið sína í NBA-deildina í Bandaríkjunum á næstunni. Þetta er haft eftir so- véska landsliðsþjálfaranum, Vald- as Garastas. Árvídas Sabonís, sem er talinn einn besti framheiji utan NBA-deildarinnar, mun ganga til liðs við Portland Trail Blazers. En Sabonís hafði áður verið orðað- ur við spánska liðið Forum Valla- dolid. Garastas sagði að tveir aðr- ir sovéskir leikmenn myndu leika í NBA-deildinn. „Sharunas Marc- hulínoís fer til Golden State Warriors og Alexander Volkov til Atlanta Hawks,“ sagði Garast- as. URSU^^^ Úrslit leikjanna í heimsmeistarakeppni unglinga í Skotlandi - hafa orðið: A-riðilI: Skotland - Ghana.....................0:0 Kúpa- Bahrain........................0:3 Skotland - Kúba......................3:0 Ghana - Bahrain......................0:1 Skotland - Bahrain...................1:1 Ghana- Kúba..........................2:2 B-riðilI: A-Þýskaland - Ástralía...............1:0 Bandaríkin - Brasilía................1:0 A-Þýskaland - Bandaríkin.............5:2 Ástralía - Brasilía..................1:3 A-Þýskaland - Brasilía...............1:2 Ástralia - Bandaríkin................2:2 C-riðilI: Argentína - Kína.....................0:0 Nígería - Kanada.....................4:0 Argentína - Nígería..................0:0 Kína - Kanada........................1:0 Argentína - Kanada...................4:1 Kína - Nígería.......................0:3 D-riðiII: Gínea - Kolumbía.................:...1:1 Saudi-Arabía - Portúgal..............2:2 Gínea- Saudi-Arabia..................2:2 Kolumbía - Portúgal..................2:3 Gínea - Portúgal.....................1:1 Kolumbía - Saudi-Arabía..............0:1 Átta liða úrslit: Portúgal - Argentína.................2:1 Nígería - Saudi-Arabía...............0:2 (Saudi-Arabía vann í vítaspymukeppni.) Á-Þýskaland - Skotland...............0:1 Bahrain - Brasilía...................4:1 (Bahrin vann í vítaspyrnukeppni). Undanúrslit: Skotland - Portúgal..................1:0 Bahrain - Saudi-Arabía...............0:1 KNATTSPYRNA / HM U-16 Knatttæknin og leik- gleðin ræður ríkjum ÞRIÐJA heimsmeistarakeppni drengja (14.-15. ára) stendur nú yfir i Skotlandi. Undirritaður varð þeirrar ánægju aðnjótandi að berja augum þessa snillinga framtíðarinnar. Og það er ekki of sterkt til orða tekið þó þess- ir piltar séu kallaðir snillingar því svo mikil er knatttækni þeirra og skilningur á leiknum að tekur fram mörgum atvinnu- mönnum. Sérstaka athygli hafa lið Nígeríu, Bahrain, Kína, Ghana, Gíneu og Kolumbíu vakið, þó aðeins tvö þau fyrstnefndu hafi HMMh komist í átta liða Helgi úrslitin og verið tal- Þorvaldsson in sigurstranglegust skrífar a[jra [jðanna. Öll þessi lið leika frá- bæra knattspymu svo unun er á að horfa. Það sem varð Ghana, Gíneu og Kolumbíu að falli öðru fremur var.að í liðunum vqru marg- ir mun yngri leikmenn, t.d. voru sex leikmanna Kolumbíuliðsins aðeins fjórtán ára gamlir. Leikmenn undir smásjá stóru félaganna Nokkrir piltanna hafa verið undir smásjá stóru félaganna í Evrópu og hefurt.d. Manchester Utd. fylgst með hverri hreyfingu Kínveijans Jiang Feng sem stjórnað hefur liði sínu, sem leikið hefur frábæra knattspyrnu, en átt erfitt með að skora mörk, eins og herforingi. Eins ættu menn að leggja á minnið nöfn eins og Ali Hassan Ali, hins frá- bæra markvarðar úr liði Bahrain, Yusuf Hassan miðvallarspilara úr sama liði, Nii Odartey Lamtey, hins fjórtán ára snillings frá Ghana, Sumy Umoru frá Nígeríu og Castro og Serginho frá Brasilíu, en svona mætti lengi telja. Eins og kemur fram hér á undan var knatttækni og Ieikgleði piltanna slík að maður vonaði að leikirnir tækju ekki enda. Það spillti ekki ánægju piltanna að sjálfur Pele var viðstaddur og hvatti þá til dáða. Ég náði tali af honum stutta stund og bað hann mig að skila kveðju til íslenskra knattspyrnumanna. Sagðist hann hafa tekið eftir ár- angri landsliðs okkar undanfarin ár og nefndi sérstaklega leikina gegn Sovétmönnum. Þegar ég ber saman þá knatt- spyrnu sem leikin er af liðunum í þessari keppni og þá_ knattspymu sem leikin er hér á Islandi er ég hræddur um að sá samanburður verði okkur mjög í óhag. Hraðinn í leikjunum hefur verið slíkur að okkar piltar myndu aldrei endast út heilan leik gegn þessum liðum hvað þá 3-4 leiki á innan við viku. Orð Lárusar Loftssonar, ungl- ingalandsliðsþjálfara, sem undan- farin ár hefur bent á þá þróun að við séum að dragast aftur úr hvað varðar þrek og snerpu, en kölluð Leikmenn Skotlands sjást hér fagna. hafa verið afsakanir, virðast því miður hárrétt. Við verðum að leggja miklu meiri áherslu á þessi atriði og hreyfingu án knattarins. Eitt sló mig illilega, en það var að rekast ekki á einn einasta ungl- ingaþjálfara frá íslandi þessa viku sem ég dvaldi í Skotlandi. Þetta er stórkostlegasta tækifæri sem þjálf- urum okkar hefur boðist, heims- meistarakeppni í aðeins tveggja klukkustunda fjarlægð og í sl. mán- uði var Evrópumeistarakeppni fyrir sama aldur í Danmörku. íslensk unglingalið streyma úr landi þessa dagana og næsta mánuðinn, en engum hefur dottið i hug að fara til Skotlands og slá tvær flugur í einu höggi, þ.e. að fara í ódýrustu knattspyrnuferð sem okkur býðst og fylgjast með skemmtilegi keppni bestu drengjalandsliða heims. Slíkt tækifæri gefst ekki aftur næstu árin. Þess má geta að áhorfendur á leik Skotlands og Portúgals í und- anúrslitum voru 30 þúsund og þús- undir komust ekki inn. Úrslitaleikur Skota og Saudi-Araba fer fram á Hampden Park og er búist við fullu húsi, en völlurinn tekur um 67 þús- und áhorfendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.