Morgunblaðið - 23.07.1989, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK SUNNUDAGUR
23. JULÍ 1989
T TT \ er sunnudagur 23. júlí 9. sd. eftir Trínitatis.
A UAu 204. dagur ársins 1989. Skálholtshátíð. Árdegis-
flóð í Reykjavík kl. 9.23 og síðdegisflóð ki. 21.55. Sólarupp-
rás í Rvík kl. 4.05 og sólarlag kl. 23.01. Sólin er í hádegisstað
í Rvík kl. 13.34 og tunglið er í suðri kl. 5.16. (Almanak
Háskóla íslands.)
Komum með lofsöng fyrir auglit hans, syngjum gleðiljóð
fyrir honum. (Sálm. 95,2.)
ÁRNAÐ HEILLA
Í7A ára aíhiæli. Á morgun,
I U mánudag, 24. júlí, er
sjötugur Jón V. Jónsson
framkvæmdastjóri, Sæ-
vangi 15, Hafnarfírði. Hann
og kona hans, Soffía Jóns-
dóttir, taka á móti gestum á
heimili sínu á morgun, af-
mælisdaginn, milli kl. 17 og
20______________
f7A ára afmæli. Á morgun,
■ V/ mánudag, 24. júlí, er
sjötugur Guðmundur Berg-
mann Magnússon bóndi á
Vindhæli á Skagaströnd.
AA ára afmæli. Á morgun,
Ovf mánudag, 24. þ.m. er
sextugur Magnús H. Sigur-
jónsson bæjarfulltrúi, Víði-
gpaind 11, Sauðárkróki.
Eiginkona hans er Kristbjörg
Guðbrandsdóttir.
A ára afinæli. Á morgun,
OU mánudag, 24. júlí, er
fímmtugur Ólafiir Þorgils
Guðmundsson málara-
meistari, Borgarvegi 30,
Njarðvíkurbæ. Kona hans
er Guðlaug F. Bárðardóttir.
Þau ætla að taka á móti gest-
um í dag, sunnudag, í safnað-
arheimilinu í Innri-Njarðvík
kl. 18-20.
ERLENDIS:
1403: Orrustan um Shrews-
bury.
1595: Spánverjar ganga á
land í Cornwall á Englandi
og brenna Penzance.
1619: Gústaf Adolf hrindir
árás keisarahersins við Werb-
en.
1759: Rússaher Saltikovs
sigrar her Prússa.
1785: Friðrik mikli stofnar
þýska furstasambandið.
1793: Bretar taka Korsíku.
1803: Robert Emmet gerir
uppreisn á Irlandi að áeggjan
Frakka
1828: William Burt frá Mieh-
igan fær einkaleyfí á fyrstu
ritvélinni.
7 H ára afmæli. í dag,
I U sunnudag, 23. júlí, er
sjötugur Friðbjörn Þórhalls-
son, Kirkjugötu 3, Hofsósi.
Kona hans er Svanhildur
Guðjónsdóttir. í dag, afmæl-
isdaginn, ætla þau að taka á
móti gestum í félagsheimili
Hofsóss eftir kl. 16.
FRETTIR
í DAG 23. júlí stendur i
Háskólaalmanakinu: Hey-
annir byija. í Stjörnu-
fræði/Rímfræði segir:
fjórði mánuður sumars að
forníslensku tímatali hefst
með miðsumri 23.-29. júlí.
Mánuðurinn sjálfur eða
nokkur hluti hans mun
einnig hafa borið nafhið
miðsumar.
HÁSPENNULINULÖGN. í
nýlegu Lögbirtingablaði tilk.
skipulagsstjóri ríkisins um
legu væntanlegrar háspennu-
línu frá Búrfellslínu að
Hamranesi við Hafnarfjörð.
Lög gera ráð fyrir að lýst
skuli eftir athugasemdum við
tillögu að legu þessarar há-
spennulínu. Fyrirhugað línu-
stæði er um 12 sveitarfélög.
Tillagan hefur verið lögð fram
almenningi til sýnis segir í
tilk. fram til 30. ágúst nk.
Hugsanlegum athugasemd-
um á að skila á eftirtöldum
sýningarstöðum fyrir 14.
sept. nk. í Gnúpverjahreppi j
félagsheimilinu Árnesi. Á
Skarði í Landmannahreppi í
Skeiðalaug, Brautarholti. í
Skeiðahr. í hreppsskrifstofu í
félagsheimilinu Borg. Hjá
oddvita Grafningshrepps, Ár-
sæli Hannessyni á Stóra-
Hálsi. í hreppsskrifstofu Ölfí
ushrepps í Þorlákshöfn. í
Hveragerði í bæjarskrifstof-
unni. I skrifstofíi Mosfells-
hrepps í Hlégarði. í bæjar-
skrifstofu Kópavogs, Fann-
borg 2. í Sveinatungu, bæjar-
skrifstofu Garðabæjar. í bæj-
arskrifstofu Hafnarfjarðar-
bæjar og hér í Reykjavík í
skrifstofu borgarskipulags-
ins.
FÉL. eldri borgara. I dag,
sunnudag, er opið hús í Goð-
heimum kl. 14, fijáls spil og
tafl og dansað verður kl. 20.
FÉLAGSSTARF aldraðra í
Reykjavík. Á þriðjudaginn
kemur 25. þ.m. verður næsta
hálfsdagsferðin farin. Hún
hefst á Hlemmi kl. 13.30.
Verður þá ekið um Þrengslin,
um Óseyrarbrúna, Stokkseyri
Þetta er eitt dönsku eftirlitsskipanna sem halda uppi gæslu á miðunum við Grænland. Koma þau þá oft við hér
í Reykjavíkurhöfti. Þetta er eftirlitsskipið Vædderen. Það er nú 26 ára gamalt skip og á því alllanga sögu að
baki. Einn kafli hennar snertir sjálfa íslandssöguna. Það var þetta danska varðskip sem flutti handritin hingað
heim frá Danmörku í aprílmánuði 1971. Undanfarna daga hefur Vædderen verið hér i höfninni. Þyrla skipsins er
um það bil að hefia sig til flugs af þyrlupalli skipsins, þegar myndin var tekin. ÖIl dönsku eftirlitsskipin sem hér
koma við eru með þyrlu og tilheyrandi þyrlupall fyrir þær að athafha sig á. Vædderen var smiðaður í skipa-
smíðastöðinni í Álaborg. Kjölurinn var lagður að skipinu haustið 1961. Skipið var tekið i þjónustu flotans árið 1963.
og Eyrarbakka til Selfoss og
heim um Hellisheiðina. Eins
er verið að undirbúa aðra
hálfsdags ferð. Það er ferð
um Reykjavík. Hún verður
farin fimmtudaginn 27. þ.m.
Hefst eins og aðrar slíkar
ferðir kl. 13.30 á Hlémmi.
Nánari uppl. og skráning í
þessar ferðir eru að fá í skrif-
stofu félagsstarfsins s.
689670/689671 á skrifstofu-
tíma.
FORNBÍLAKLÚBBUR ís-
lands er nú að undirbúa ferð
vestur á Snæfellsnes dagana
28.—30. júlí. Þetta er rúmlega
700 km ferð sé ekið fyrir
Jökul. Þetta verður lengsta
ferð klúbbfélaga á þessu
sumri. Þeir sem stjóma undir-
búningi og ferð eru þeir Krist-
inn Snæland s. 77589 og
Björn Knútsson s. 33289.
BRÚÐUBÍLLINN verður á
morgun, mánudag, í Suður-
hólum kl. 10 og á Háteigs-
velli kl. 14.
SKIPIN
REYKJAVIKURHOFN:
í gær fór togarinn Snorri
Sturluson til veiða. Þá kom
togarinn Ásbjörn inn til lönd-
unar. írafoss var væntanleg-
ur í gær að utan. í dag eru
togararnir Sigureyog Skipa-
skagi væntanlegir inn til
löndunar á Faxamarkaði. Og
í dag fer danska eftirlitsskipið
Vædderen.
HAFNARFJARÐAR-
HOFN: í gær fór togarinn
Stapavík til veiða og í dag
er væntanlegur inn til löndun-
ar togarinn Ljósfari.
ÞETTA GERÐIST
23. júlí
1867: Rússneskur landstjóri
skipaður í Turkestan.
1870: Napoleon keisari II
skipar Eugénie keisara-
drottningu rikisstjóra Frakk-
lands.
1914: Austurríkismenn selja
Serbum úrslitakosti eftir til-
ræðið við Franz Ferdinand
erkihertoga í Sarajevo.
1945: Pétain marskálkur
leiddur fyrir rétt, ákærður
fyrir landráð.
1952: Naguib hershöfðingi
tekur völdin í Egyptalandi.
1962: Fyrsta béina sjónvarps-
sending um Telstar frá
Bandaríkjunum til Evrópu.
1964: Tillaga De Gaulles um
að stórveldin hætti afskiptum
í Indókína.
1974: Gríska herforingja-
stjórnin segir af sér; Kara-
manlis kemur úr útlegð og
verður forsætisráðherra.
HÉRLENDIS:
1742: Sýslumaður Rangæ-
inga fyrirfer sér í gjá á Þing-
völlum.
1809: Konungsúrskurður um
skipan 4ra manna nefndar til
að stjóma landinu.
1823: Kötlugosi lýkur.
1929: Snarpur jarðslqálfta-
kippur í Reylqavík.
1939: Th. Stauning kemur í
opinbera heimsókn.
1950: Borgarvirki endurreist.
1978: Fyrsti djákni frá siða-
skiptum vígður.
LÁRÉTT: — 1 kvenfuglinn,
5 skjögra, 8 þrátta, 9 hrósar,
11 tréílát, 14 guð, 15 versa,
16 kjánum, 17 þrír eins, 19
sigraði, 21 skotts, 22 slær
létt högg, 25 velur, 26 auli,
27 hreyfingu.
LÓÐRÉTT: — 2 snjó, 3
keyri, 4 kroppar, 5 vitrar, 6
tíndi, 7 mánuður, 9 kaupstað-
ur, 10 danskrar eyju, 12 sval-
ari, 13 þuldi, 18 úrkoma, 20
fmmefni, 21 hvað, 23 kom-
ast, 24 rómversk tala.
LAUSN SIÐUSTU
KROSSGATU:
LÁRÉTT: - 1 óféti, 5
starf, 8 æðina, 9 sterk, 11
jurta, 14 apa, 15 kálið, 16
lómum, 17 ilí, 19 alir, 21
iðin, 22 sólinni, 25 set, 26
æða, 27 rói.
LOÐRETT: - 2 fát, 3
tær, 4 iðkaði, 5 snjall, 6 tau,
7 rit, 9 saklaus, 10 efldist,
12 rómaðir, 13 aumingi, 18
leið, 20 ró, 21 in, 23 læ, 24
Na.
ORÐABOKIN
Slagorð — vígorð
Oft má heyra menn í ræðu
og riti tala .um slagorð og
nota einnig ýmsar samsetn-
ingar af því orði, svo sem
að tala um slagorðaflaum.
Er þá átt við einhvers konar
stóryrði eða hremmiyrði um
menn eða málefni, oft án
nokkurs rökstuðnings. En
svo er það haft sem ein-
kunnarorð, sem velq'a eiga
athygli manna á ágæti ein-
hvers málefnis eða jafnvel
vöm. Mörgum hefur verið
heldur í nöp við þetta orð,
sem hefur smeygt sér
óbreytt inn í mál okkar úr
dönsku, en þangað komið
úr þýzku, Schlagwort. Elzta
dæmi um slagorð í fómm
OH er frá 17. öld, úr Ævi-
sögu Jóns Indíafara, en
hann dvaldist líka með Dön-
um og hefur trúlega numið
orðið af þeim. í ritum frá
um aldamót kemur orðið
fyrir, en á stundum setja
menn gæsalappir utan um,
vafalaust sem afsökun fyrir
notkun orðsins. í íslenzkum
orðabókum er orðið merkt
þannig, að það sé tæplega
eða ekki boðleg íslenzka.
Mætur maður bjó til no.
vígorð í staðinn. Hefur hann
þar haft í huga so. að vega
í merkingunni að ráðast á
e-n með orðum. Ýmsum
finnst þetta orð ekki henta
alls staðar, en þá má nota
í staðinn orð eins og eirt-
kurmarorð eða kjörorð, svo
sem gert er í orðabókum.
' - JAJ.
Þessar ungu dömur komu í skrifstofu Rauða Kross fs-
lands fyrir nokkru með 1.730 kr. sem þær afhentu þar,
ágóða af hlutaveltu sem þær höfðu haldið til styrktar
RKÍ. Þær heita^ Ingibjörg Tönsberg, Erna Tönsberg,
Liþ'a Steinunn Ámadóttir og Inga María Guðmunds-
dóttir.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 50 ÁRUM
Hafrannsóknarskip Dana
kom hingað í gær. Dr.
Táning stjórnar rann-
sóknarstarfínu þar um
borð. Munu þeir dr. Tán-
ing og dr. Árni Friðriks-
son bera saman bækur
sínar. Þá verður haldinn
hér fulltrúafiindur Al-
þjóða hafrannsóknar-
ráðsins. Verður rætt um
þær rannsóknir sem fram
hafa farið hér í Faxaflóa
og lagðar verða til gmnd-
.vallar ákvörðun hafrann-
sóknarráðsins um friðun
Faxaflóa, sem tekin mun
verða ákvörðun um á árs-
fundi Alþjóða hafrann-
sóknarráðsins sem verð-
ur haldinn í Gautaborg
að ári. Formaður ráðsins,
Norðmaðurinn Johan
Hjort, kom hingað til
Iands í gær með norska
skemmtiferðaskipinu
Stavanger.
Með því sama skipi
hafði komið til skrafs og
ráðagerða við ríkis-
stjómina Sveinn Björns-
son sendiherra íslands í
Kaupmannahöfti. Hann
ætlar að taka sér sum-
arfrí eftir því sem við
verður komið vegna mik-
illa anna.
AHEIT OG GJAFIR
STRANDARKIRKJA. Áheit
afhent Morgunblaðinu:
M. J. 10.400, Stína 5.000 H Þ
5.000, G.S.V. 3.000, ómerkt
3.000, ómerkt 3.000, O.E.
2.280, N.N. 2.000, A.G. 2.000,
N. N. 2.000, Á.G.B. 2.000,
Margrét 2.000, H.B. 1.600,
Sigrún 1.000, Tómas 1.000,
N.N. 1.000. V.K. 1.000,