Morgunblaðið - 23.07.1989, Síða 31

Morgunblaðið - 23.07.1989, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÓLK 1 FRETTlin/l l%l^jDA<&!uK^'áý'jöí3íi¥89 Í3F UTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS Spænskum blaðamönnum boðið í saltfisk og skyr Ameðan spænsku konungshjónin héldu gestum sínum veislu í hinni opinberu heimsókn á dögunum, bauð Utflutningsráð íslands þeim blaðamönnum sem hingað komu í tilefni heimsóknarinnar til kynning- arkvölds á Hótel Sögu. Þar mættu einnig fulltrúar ýmissa íslenskra fyrirtækja sem kynntu framleiðslu sína og lögðu m.a. fram matföng til veislunnar. Var til dæm- is boðið upp á íslenskt vodka, fisk- snakk, blandaða sjávarrétti, saltfisk og skyr og mæltust veisluföngin vel fyrir hjá hinum erlendu gestum. Magnús Gunnarsson, stjómarform- aður Úí, flutti tölu um viðskipti ís- lendinga og Spánveija í gegnum tíðina og greindi frá þeim atriðum sem íslendingar leggja aðaláherslu á í útflutningsverslun. Sigrún Hjálm- týsdóttir söngkona tók lagið fyrir viðstadda við undirleik Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur og Pétur Jónas- son lék á gítar íslensk alþýðulög og ýmis verk spænskra tónskálda. Meðal gesta á kynningarkvöldinu voru 30 saltfiskkaupmenn, svonefnd- ir útvatnarar, frá Barcelona sem verslað hafa með íslenskan saltfisk um árabil. Þeir voru hingað komnir til að kynnast landi og þjóð og gerðu víðreist um ísland meðan á dvöl þeirra stóð. Frá kynningarkvöldinu á Hótel Sögu. AFKOST ENDING GÆÐI Feitar konur Það hringdi ungur maður i meinhornið á Rás 2 um dag- inn og kvartaði yfir því sem angraði hann mest í lífinu. „Feitar konur," sagði hann. wmmmmm^m Þetta var reynd- ar ekki ýkja frumlegt, mig minnir að það hafi verið í fyrra sem einhveijir næturgalamir sungu um feitar eftir Siguró G. konur sem of- Tómasson sóttu ungan mann og ásjálegan, sem vita- skuld persónugerðist í söngvar- anum. Meinhornsstjórinn, sem þótti kannski að sér vegið, þagg- aði niður i unga manninum, og lét eins og hann heyrði ekki að þessi ótti var kynbundinn. Pilt- urinn var ekkert að tala um feitt fólk. Ekki um spikhlunka. Hann var að tala um konur. Og nú á tímum þykir afskaplega ljótt að vera feit kona. Konur eiga að vera grannar og spengilegar. Og svo eiga þær vitanlega að vera ungar, alla sína jarðvistardaga. En umfram allt mjóar. Ekki hefur þetta alltaf verið svo. Ef litið er á myndlist fyrri alda sést greinilega að kven- ímyndin er allt önnur en nú. Ekki er að sjá að þær konur sem hafðar voru í hávegum hafi liðið skort. Það hefur að sjálfsögðu þótt fínt hjá konum og bera’vott um allsnægtir og áhyggjuleysi að vera í góðum holdum. Það tengist beinlínis munúð pg nautnum, þvi horrenglur sem urðu að verja öllum tima sinum til þess að hafa i sig höfðu lítinn tíma aflögu til ástarleikja og líkamlegra dægrastyttinga. Einna frægust steinaldar- kvenna er Venus frá Willendorf, litil stytta sem talin er vera frjó- semistákn. Venus frá Willen- dorf er áberandi sverust um mitti og mjaðmir. Brjóstin eru stór og lafa fram- á geysilega holdmikinn kviðinn. Væri hún uppi nú mundi einhver góðvilj- aður ættingi koma henni á grænmetiskúr í Hveragerði. Lengst af síðan á dögum Venus- ar frá Willendorf hafa holdugar konur notið eftirlætis myndlist- armanna, þótt einn og einn s€f- vitringur hafi slæðst inn i lista- söguna fyrir slysni, sem ekki kunni að meta kvenhold nema sparlega. Konur Rembrandts eru mjúkar, þrýstnar og þétt- holda. Ekki horast konur þegar fram kemur á 19. öld. Konur Degas eru engar horrenglur að ekki sé nú talað um konurnar hans Renoir. En tískan hefur einatt reynt að afmynda konur. Ekki voru krínólínin konum holl, en þegar þau lögðust af tók bara eitthvað annað við. Nú á tímum eiga konur að vera mjóar og hefur svo verið lengi. Konur trúa þessú af alhug og leggja margt á sig til þess að uppfylla krfif- urnar. Á tímabili fengu konur gjarnan dágóðan kúr af eiturlyfj- um til þess að losria við spikið. Nú á tímum kaupa konur dýrum dómum ýmsar skottulækningar i þessu skyni og þegar konur hittast fara þær ævinlega að tala um megrunarkúra áður en við verður litið. Þessu fylgir eng- in munúð, líkamlegar nautnir verða að þoka fyrir visindaleg- um aðferðum til þess að losna við spik. Æ, æ, má égþá heldur biðja um konurnar hans Renoir. Eða jafnvel hana Venus frá Will- endorf. Cterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.