Morgunblaðið - 23.07.1989, Síða 10

Morgunblaðið - 23.07.1989, Síða 10
asej iJfUt. .ss m'úAQ\y/M\y<. ataAjavKJ;&aoM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1989 GLASNOST MEÐ GESTSAUGUM eftir Árna Þórarinsson MOSKVA EFTIR MIÐNÆTTI. Gestir bylta sér sveittir í heitum herbergjunum á stærsta hóteli veraldar. Þungur niður berst frá andfiílli borginni inn um opna glugga og moskítóflugurnar sæta lagi. Silfurskottur og kakkalakkar, ljósfælin eins og gamlir Stalín- istar, skiptast á að vakta bað og ísskápa og njóta einu loftræsting- arinnar. Frammi á göngum hijóta hnellnar lyklakellingar við borð, drottningar í ríkjum sínum og hrökkva upp þegar gestir koma eða fara. Niðri á annarri hæð flýtur vodka, kampavín og koníak á Pressubamum. Þar ræða nátthrafiiar, fjölrniólafólk, kvikmyndagerðarmenn og kauphéðnar við opinskáa gestgjafa sína um þau undur sem eiga sér stað í Sovétríkjunum, um glasn- ost og perestrojku, um leiðtogann Gorbatsjov á ferðalagi um Evrópu á meðan verkföll loga í Síberíu og þjóðarbrotin takast á í Georgiu og Armeníu og sauðsvartur almúginn veit ekki hvað verður í matinn á morgun. Fyrir þremur eða fjórum árum hefðu slíkar umræður verið óhugsandi í Moskvu, bæði fyrir og eftir miðnætti. Það er allt í steik. Hita- bylgjan í borginni eykur á ringulreiðina á Hótel Rossiya, fimm þúsund herbergja steypuklumpi sem skellt hefur verið niður við hliðina á hinu tilkomumikla Rauða torgi. Þar búa um tvö þúsund gest- ir hátíðarinnar og þar er einnig miðstöð hennar. Upplýsingar um hvað er hvar og hver er hvar og hvenær liggja ekki á lausu. Hvar er bankinn? Pósthúsið? Hvar er aðalsýningarsalurinn? Hvar er sápan í baðið? Hvar er túlkurinn sem átti að hitta okkur á flugvellin- um? Við Mark Peploe, Óskarsverð- launaður höfundur Síðasta keisar- ans sem opna á heiðurssýningar hátíðarinnar, erum báðir að leita að þessum dularfullu fylgdarmönn- um. Þegar Peploe spyr unga, fal- lega starfsstúlku úr móttökustjóm- inni um túlkinn fær hann nákvæma lýsingu á því hvemig hann skuli bera sig að við að fá morgunmat. En allir eru fullir af góðum vilja. Gestrisni og hlýja hátíðarfólksins gera meira en að vega upp skipu- iagsleysi og tungumálaerfiðleika. Sumir eru umburðarlyndari en aðrir. „Þeir læra aldrei af reynsl- —unni," segir austur-þýskur kvik- myndafrömuður við mig. „Ég er búinn að vera hér á öllum hátíð- unum, sextán talsins, og þessi Kaupahéðnarog blaöamenn, kakka- lakkar og bíófröm- uðir, ananassafi og koníak, dollarar og rúblor, - allt betta og miklu fleira var til stað- ar á 16. kvik- myndahátíðinni í Moskvu sem lauk nú í vikunni. Morg- unblaðið var bar líka...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.