Morgunblaðið - 23.07.1989, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.07.1989, Blaðsíða 13
MOltGUM'BlAÐlÐ SUNNUBAGVR, $»>. jJýLJ .lj983 vel er að gáð. Vandinn er sá að það er svo erfitt að gá. Upplýs- ingastreymi er í lágmarki. Einn daginn tekur Kaleidoscope svo djúpt í árinni að segja að „há- tíðin sé á barmi upplýsingalöm- unar“ og kennir um „tölvuvírus- um og öðrum mannlegum sjúk- dómum". Bandarískar kvik- myndagerðarkonur sem við rek- umst stundum á segja að hér sé nánast óvinnandi; þær eru að gera heimildarmynd um hátíðina og fleiri sovésk efni og eru farn- ar að þjást af of háum blóð- þrýstingi. „Hugsaðu þér, “ segir foringi hópsins, „ég var að frétta að breski leikstjórinn Julien Temple hefði verið hér í nokkra daga með mynd sína Earth Girls Are Easy en enginn vissi af hon- um, hvar hann var eða hvenær. Aumingja maðurinn hefur kannski hírst aleinn uppí hótel- herbergi allan tímann.“ Gorbatsjov er kominn heim. Við sjáum hann í beinum útsendingum frá þinginu. Þær virðast þekja nán- ast heila dagskrá af þeim fimm sem boðið er upp á. Um kvöldið sjáum við hann aftur í beinni útsendingu; þar er hann staddur á tónleikum hjá bandaríska píanóleikaranum Van Cliburn sem sigraði sem korn- ungur maður í fyrstu Tsjækofskí- keppninni í Moskvu. Van Clibum hafði ekki komið fram opinberlega í fjölda ára en ákvað að halda uppá 54. afmæli sitt með tónleikum þetta kvöld í borginni sem gerði hann heimsfrægan. Gorbatsjov og Raisa virðast heilluð af leiknum, eins og hinir áhorfendurnir. Við skiptum yfir á aðra rás. Þar situr hinn póll- inn í sovéskum stjórnmálum fyrir svörum, — Boris Jeltsín. Hann læt- ur móðan mása, talar umbúðalaust um þörf á róttækari og hraðari breytingum. Þetta er heillangt við- tal og við íslendingarnir fáum orðin þýdd fyrir okkur jafnóðum. Við er- um í lítilli íbúð miðaldra kennslu- önnur handrit dagaði líka uppi eftir langt þóf, en svo undarlega vill til að á næstu mánuðum, áratug síðar, verða þau bæði að kvikmyndum; annars vegar kvikmyndar Berto- lucci handrit Peploes að skáldsög- unni The Sheltering Sky eftir Paul Bowles, og hins vegar stýrir Mich- elangelo Antonioni handriti sem heitir The Crew. Sjálfur sest Mark Peploe svo fyrir aftan tökuvélarnar í vetur og leikstýrir rómantískri spennumynd eftir eigin handriti sem heitir Out of the Blue. Og er þá ógetið mynda Antonioni, The Passenger og René Clement, La Babysitter, sem báðar eru eftir handritum hans. Hann játar að hann geti svo sem ekki kvartað. Og þegar hann er spurður um list- ina að skrifa kvikmyndahandrit segir hann það útbreiddan misskiln- ing að meginverkið sé að skrifa samtöl. „Ég styð Hitchcock í þeirri skoðun að helmingurinn af ritun kvikmyndahandrits sé 'skömmtun og röðun upplýsinga til áhorfenda." Hann segir það engan veginn vera sitt metnaðarmál að verða leik- stjóri eða flytja til Hollywood. Hann hafi einfaldlega áhuga á að vinna að því efni sem höfðar til hans. Hann vill ekki viðurkenna að nein skil þurfi að vera á milli afþreying- arefnis og listræns. „Kannski eru Óskarsverðlaunin til handa Síðasta keisaranum og velgengni hans síðan hvað mest hvetjandi fyrir þá sök að þetta sýnir að slíkur dilka- dráttur er óþarfur." Þegar ég spyr hann hvort aldrei steðji að honum kvíði yfir því að þurfa að fylgja þessari velgengni efir kímir hann og segir: „Ekki al- veg núna. En kannski kemur hann síðar. Því óhjákvæmilega fylgir slíkum byr einhvern tíma bakslag. Aðalatriðið er að rækta sitt fag, að vanda sína vinnu." konu; hún sefur í stofunni, en son- urinn hefur hitt herbergið. Jeltsín hefur óaðlaðandi, fremur svipljótt andlit, minnir á hvíthærðan bolabít, en þegar fréttamaðurinn spyr í lok- in hvort hann spili fótbolta við barnabörnin breytist hann í góðleg- an, brosmildan afa. Gestgjafi okkar segist trúa á þennan mann; hún segist líka trúa á Gorbatsjov. „Þeir eru báðir nauðsynlegir. Annar reyn- ir að fara með veggjum innan kerf- isins, hinn vill ráðast beint á vegg- ina. Þeir þurfa hvor á öðrum að halda. Það þurfum við líka.“ Síðar um kvöldið er okkur boðið í aðra íbúð, — ríkmannlega, prýdda er- lendum húsgögnum úr leðri, með hljómflutningssamstæðu og mynd- bandstæki. Húsráðendur höfðu búið erlendis árum saman og þeim þykir umskiptin slæm. En einnig þau eygja von í mönnunum sem við sáum í sjónvarpinu. Einn gestgjafa okkar telur málstað Jeltsíns eiga hljómgrunn meðal allt að heilmings þingfulltrúa. Annar telur hann vera óeinlægan tækifærissinna. Menn eins og Andrei Sakharov séu hinir raunverulegu umbótasinnar. Flest- um ber saman um að breytingarnar muni taka áratugi. Ef þær verða þá ekki stöðvaðar. Spilltir embætt- ismenn og gamlir harðlínumenn bíði færis. Einn bjartsýnismann hitti ég þó sem trúir á að líf Sovétmanna muni hafa tekið stakkaskiptum eft- ir tvö-þijú ár. Öllum ber saman um að glasnost muni gufa upp ef pere- stijokan nær ekki að sjá þjóðinni farborða með sómasamlegum hætti. í verslunum er stundum engu líkara en allir séu með það sama í kvöld- matinn. Réttur dagsins í Moskvu er plómur. Kvöldið eftir hittum við Van Clibum í dollarabúðinni. Ég hef lesið að hann búi með mömmu sinni 92 ára og hún sé með hon- um í Moskvu. Fylgikona hans þarna er hins vegar glæsikvendi um fertugt sem nuggar sér upp við hann með eggjandi hætti. Álengdar stendur maður sem er á svipinn eins og kokkálaður eig- inmaður. Van Cliburn ýtir á und- an sér vagni fullum af dýrindis viskíi og kóki. Við sitjum í einum þekktasta djassklúbbi Moskvu, — Bluebird Café. Fjórir sovéskir spilarar fram- leiða prýðilega eftirlíkingu af vest- rænum djassi á bassa, trommur, saxófón og píanó. Þetta er vinaleg- ur kjallari, borðin völt og sumir stólarnir brotnir. Sextán ára fylgi- stúlka okkár er spurð hvort hún trúi á guð. „Ég trúi á framtíðina,“ svarar hún að bragði. Og stjórnandi Bluebird, Vartan Tonayan kveðst ætla að endumýja borðin og stólana í haust. Laugavegi 67 Útsalan hefst á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.