Morgunblaðið - 23.07.1989, Síða 30

Morgunblaðið - 23.07.1989, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1989 NORDJOBB 60 ungmenni hér á landi Brúðhjónin, Ásdís Ósk Erlingsdóttir og Helgi Rúnar Óskarsson með Evu Sif dóttur sína. A Island miðja heimsins Arve Svardal frá Noregi og Louise Buttenschan frá Dan- mörku starfa á vegum Nordjobb á íslandi í sumar. Blaðamaður vék sér að þeim og spurði hvað hefði vakið áhuga þeirra á landinu. Arve verður fyrir svörum. „Eg fékk áhuga á íslandi gegnum íslensku fomsögumar," segir hann. „Við vorum látin lesa Gunnlaugssögu Ormstungu og Njálu í skólanum. Eftir það las ég Egils sögu og Heimskringlu sjálfur. Ég hef sér- stakt dálæti á Heimskringlu. í henni er mikið flallað um sam- skipti Norðmanna og íslendinga." Louise hefur starfað á vegum Nordjobb í Svíþjóð og Finnlandi. Þar kynntist hún íslenskum Nordjobburum og fékk áhuga á að koma til Islands. Hún kom hingað í stutta heimsókn síðasta haust og í sumar hefur hún fengið starf á vegum Nordjobb á Islandi. „Þegar ég kom fyrst til íslands Louise Buttenschon og Arve Svardal. íslensku vísakortin," bætir Louise við. „Á þeim er ísland miðja heims- ins. Hin löndin liggja öll útfrá þess- ari litlu eyju.“ Þessu verður ekki neitað, blaða- maður vendir sínu kvæði í kross og innir Arve eftir því hvernig gangi að læra íslensku. „Agætlega," segir Arve á íslensku og brosir. „Ég skil flest og reyni að tala þó ég eigi oft í erfiðleikum með orðaröð og beyg- ingar.“ Það er greinilegt að Arve leggur sig fram um að læra íslensku enda hefur það skilað góð- um árangri. Arve fór með hinum Nordjobbur- unum á Islandi í Þórsmörk í vor. „Það var mjög gaman í ferðinni," segir Arve. „en ég hef sjaldan séð svona marga drukkna krakka. í Noregi er fjörugt 17. maí en þar drekka menn ekki svona mikið um venjulega helgi.“ En er ísland eins og þau ímynd- uðu sér. Louise svarar þessari spumingu. „íslendingar eru miklu nútímalegri en ég hafðiímyndaði mér,“ segir hún. Tískubylgjur eru jafnvel fyrr á ferðinni hér en í Danmörku, sama er að segja um popplög og þvíumlíkt." Nú er greinilega eitthvað að gerast frammí í sal og við drífum okkur þangað til að missa ekki af neinu. Norðmenn og Finnar taka lagið. Hér á landi dvelj- ast nú á vegum Nordjobb 60 ung- menni frá hinum Norðurlöndunum. Nordjobb er sjálf- stæð stofnun sem allar Norðurlanda-- þjóðirnar eru aðilar að. Hlutverk stofn- unarinnar er að miðla norrænum ungmennum at- ’ vinnu á öðrum Norð- urlöndum. Stofnun- in sér um að útvega ungmennunum hús- næði og skipuleggur tómstundastarf hveiju landi. Ungmennin, sem dveljast á íslandi í sumar, koma saman vikulega. Blaða- maður brá sér á fund þeirra í vikunni og ræddi við Árdísi Sigurðardóttur, tómstunda- fulltrúa Nordjobb á íslandi. „Þetta er fjórða árið sem . Nordjobb starfar hér á landi," segir Árdís. „í vor sendum við 130 manns til starfa á hinum Norðurlöndunum og tókum við 60. Flestir eru frá Svíþjóð, þá frá Noregi og Dan- mörku en fæstir frá Finnlandi. Sumir dvelja í stuttan tíma en aðr- ir allt sumarið. Krakkarnir eru í ýmsum störfum. Sumir eru í stór- mörkuðum, aðrir í bönkum og nokkrir eru á sveitabæjum á Suður- landi.Auk þess starfa margir hjá Sambandinu. Nordjobb á íslandi sér um að skipuleggja fundi og ferðalög fyrir Nordjobbana. Við höfum farið í tvær helgarferðir og nokkrar styttri ferðir það Sem af er sumri." Auk Árdísar, sem er í sumar- vinnu hjá Nordjobb, er Ásta Erl- ingsdóttir í fullu starfi hjá stofnun- inni. „Það þarf ýmsu að sinna,“ segir Árdís. „Á veturna er unnið að því að útvega vinnu og hús- næði. Svo þarf að taka á móti Ekki er hægt að sjá annað en undirtektir séu góðar. Morgunblaðið/Sverrir. og sá allt hraunið á leiðinni frá flugvellinum hélt ég að ég væri komin til tunglsins,“ segir Louise. komst ég að því að það var á íslandi en hraun.“ bætir hún við og brosir. Arve og Louise eru sammála um að íslendingar séu viðkunnalegt fólk. „Þeir eru opnir og áhugasam- ir um að kynnast manni," segir Louise. „Að vísu líta þeir svolítið stórt á sig en það er ekki til baga.“ Blaðamaður kváir við. „Líttu t.d. á umsóknum og velja úr þá sem koma til greina. A vorin tökum við á móti Nordjobburum, sem koma til íslands, og veitum þeim ýmsar hag- nýtar upplýsingar." Það var mikið um að vera hjá Nordjobburunum á miðvikudaginn. Nprðmenn og Finnar sáu um kvöld- ið, buðu upp á veitingar og voru með skemmtiatriði. Aðrir fundar- gestir létu ekki sitt eftir liggja og tóku hraustlega undir þegar boðað var til fjöldasöngs. Þama var greinilega lífsglatt fólk á ferð. Morgunblaðið/Sverrir BRÚÐHJÓN VIKUNNAR A leið til Bandaríkjanna Brúðhjón vikunnar eru að þessu sinni Helgi Rúnar Óskarsson og Ásdís Ósk Erlingsdóttir. Þau voru gefin samap í Dómkirkjunni 15. júlí af séra Áma Bergi Sigur- bjömssyni. Helgi Rúnar og Ásdís Ósk höfðu í ýmsu að snúast í vikunni því þau flytja búferlum til Bandaríkjanna í dag, rúmri viku eftir brúðkaupið. Ungu hjónin gáfu sér þó tíma til að rabba við blaðamann sem leit inn til þeirra í vikunni. Helgi Rúnar og Ásdís Ósk kynnt- ust á árshátíð hjá MS árið 1984. „Það má eiginlega segja að þá hafi ég gripið í hana og ekki sleppt síðan,“ segir Helgi Rúnar. „Við höfðum reyndar tekið hvort eftir öðru í skólanum nokkrum dögum áður,“ segir Ásdís Ósk. „En ekki talað saman fyrr en á árshátíðinni. Að vísu hafði ég komið heim til Helga því ég vann hjá mömmu hans, sem á hárgreiðslustofu, þegar ég var 14 ára og ætlaði að verða hárgreiðslukona. “ Það varð dálítill ruglingur með tímasetningu kirkjuathafnarinnar. Ákveðið hafði verið að giftingin færi fram klukkan fímm en nokkr- um dögum fyrir brúðkaupið kom í ljós að hún hafði verið bókuð klukk- an fjögur. Tímasetningunni var snarlega breytt og athöfnin fór fram klukkan sex. Það var heldur ekki svo slæmt því þoka tafði flug- vél sem systir Helga Rúnars kom með frá Flórída. Systirin kom í kirkjuna tíu mínútur yfir sex en hefði misst af athöfninni ef hún hefði verið klukkan fjögur. Við athöfnina í kirkjunni var flutt létt tónlist. Pálmi Gunnarsson söng „Þitt fyrsta bros“ og „Ó, þú“ við undirleik Magnúsar Kjartanssonar og Jón Sigurðsson spilaði á tromp- ett. „Við vorum hálfhrædd um að eldra fólkið kynni illa við að ekki væri flutt klassísk tónlist í kirkj- unni,“ segir Helgi Rúnar. „En sá ótti reyndist ástæðulaus. Margir höfðu orð á hve tónlistin hefði ver- ið skemmtileg." Fjórar litlar brúðarmeyjar fylgdu brúðhjónunum í kirkjunni. „Þær stóðu sig eins og hetjur,“ segir Ásdís Ósk. „Verst þótti þeim að þurfa að skila kjólunum aftur." Eftir athöfnina var haldin heljar- mikil veisla til heiðurs brúðhjónun- um. Meðal þess sem þar var á boð- stólum var þriggja hæða brúð- kaupsterta semlris, systir Ásdísar Óskar, bakaði og skreytti. Brúð- kaupstertan var að þvf leyti sérstök að hún var ekki hvít eins og al- gengt er heldur dökkbrún súkku- laðiterta. „Alveg frábærlega góð,“ eins og Helgir Rúnar orðar það. Með þessum orðum lauk spjallinu og blaðamaður óskaði hjónunum og Evu Sif, 8 mánaða gamalli dótt- ur þeirra, góðrar ferðar vestur um haf. Þau giftu si g Helgi Rúnar Óskarsson og Ásdís Erlingsdóttir Sólveig Þórðardóttir og Loftur Erlingsson, Reykjavík Ómar Þór Eyjólfsson og Þórey Þórðardóttir Þórður Kristjánsson og Bergdís Kjartansdóttir, Reykjvík Sjöfn Sóley Kolbeins og Sig- urður Jensson, Reykjvík Anna_ María Urbancic og Finnur Ámason, Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.