Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 3

Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989 GOÐSAGMR í LIFANDAIÍFI iSIGRtÐUR PETURSDOTTIRí HUNDADAMAN þau þrjú börn. Mikil hrossaræktun er á Ólafsvöllum en kúabúskapur- inn er þó helsta lifibrauðið og hún segir mér að það sé nú skammar- legt að viðurkenna það, en hún hafi alltaf verið hrædd við kýr. Gersemi Sigríður var ein af stofnendum hundaræktarfélagsins og er al- þjóðadómari í hundaræktun. Nú er hún aðeins með þijá hunda GULUR, GAMALL hundur mókti úti á stétt á bænum Miklholtshelli í Hraungerðis- hreppi og var einn af örfáum sem eftir voru af íslensku kyni á landinu. Sennilega hefðu hans líkar dáið út með tíman- um ef dama úr Reykjavík hefði ekki orðið hugfangin af þeim gamla þar sem hann lá þarna fram á lappir sínar og bitið það í sig að slíkan hund skyldi hún eignast hvað sem tautaði. Sú reykvíska var Sigríður Pétursdóttir, nú bóndakona á Ólafsvöllum á Skeiðum í Ár- nessýslu, og er löngu orðin landsþekkt fyrir að hafa bjargað íslenska hundakyn- inu. Konan með hundana eða hundadaman var nafnið sem festist við hana og ekki var það óalgengt að erlendir menn sem hafa vildu uppá Sigríði . bæðu stúlkumar á símanum um að gefa sér samband við „The Doglady". — Hvað var það sem þú sást við þann gula? spyr ég hana einn daginn fyrir austan og hún svar— ar:„Hann var svo blíður, svo greindur, — hann geislaði af sjarma. Nú, sem kvenmaður hlýt- urðu að skilja það! Þennan dag þegar örlög íslenska hundsins vom ráðin var Sigríður að leita sér að jörð ásamt eigin- manni sínum, Kjartani Georgssyni. Þetta var árið 1959, þau nýgift og Kjartan, sem var búfræðik- andídat, hafði ákveðið að nú skyldu þau borgarbömin flytja í sveit. Og Sigríður sem alla tíð hafði verið mikill dýravinur, „aldrei hundlaus eða hestlaus verið“, var því ekki mótfallin og hófu þau búskap á Ólafsvöllum á Skeiðum. Ekki var Sigríður alveg hund- laus þegar hún hreifst af þeim gamla, því hún átti einn fox terri- er og hafði jafnvel gælt við þá hugmynd að flytja þá tegund inn og rækta. En henni var bent á, að nær væri nú að rækta íslenska hundinn, það væri mikið verkefni og verðugt því hann væri að deyja út. Sigríður fór að grafast fyrir um íslenska hundinn og komst að því að aðeins örfáir, eða um 15 íslensk- ir hundár voru til á öllu landinu, flestir gamlir mjög. Hún hafði síðan samband við Pái Agnar Páls- son, þáverandi yfirdýralækni, og hann útvegaði henni þijá hunda og tvær tíkur. Þrisvar fór hún til Bretlands til að læra hundaræktun með fáar ættir í höndum. Var það íslandsvinurinn Mark Watson sem stóð á bak við þær ferðir og kom henni í samband við fólk sem hafði þekkingu og reynslu af þeim mál- um. Hjá honum fékk hún síðar fjar- skyldan hund og tík, en Watson hafði fyrr á ferðum sínum um ís- land safnað saman nokkrum íslenskum hundum og haft með sér út. Andlegt álag Framtak Sigríðar vakti mikla at- hygli á sínum tíma og segja menn sem til hennar þekkja, að hún sé merkiskona og mikill dýravinur, en einnig „dugnaðarfantur" og hafi verið býsna ýtin meðan hún var að ná sínum málum fram. Þeir sem standi í hundaræktun þurfi líka að vera ansi harðir af sér. Sigríður skyldleikaræktaði eftir vissum reglum og prufuræktaði, þ.e. lét systkini eiga hvolpa sam- an, valdi þá bestu úr sem síðan áttu hvolpa, og þannig gekk það í þijá ættliði. Hún þurfti að lóga mörgum til að gera kynið stöðugt. „Eg þurfti að hleypa í mig hörku til að framkvæma þetta,“ segir hún, „því ekki gat ég ætlast til að aðrir gerðu það sem ég sjálf vildi ekki gera. Ég skyldleikarækt- aði bókstaflega út í það ómögulega og þeir sögðu við mig erfðafræð- ingar, að mér hefði tekist það sem ekki ætti að vera mögulegt. Ég hafði ekki nógu mörg óskyld dýr, en með þessu úrvali tókst mér að gera kynið sterkt. Eftir þijá ætt- liði eru flestir gallar komnir fram. Það sem máli skiptir hér eru eigin- leikar, útlit og bygging, en ég hef t.a.m. oft fengið gjörólíka hvolpa úr sama goti.“ Þegar mest gekk á voru hund- arnir 30 talsins heima hjá Sigríði.„Ég var með hundahús og garð hér fyrir utan, öll herbergi í kjallaranum voru yfirfull og aldrei minna en 6 eða 7 hér uppi. Þetta var að kollkeyra öllu, ekki einung- is var kostnaðurinn óheyrilegur heldur var þetta andlegt álag fyrir okkur öll. Það er alveg makalaust að mað- urinn minn skyldi halda þetta út!“ Heimskona En hver er þessi dæmalausa kona sem hafði það að hugsjón að bjarga þessum íslenska arfi? Sigríður er Reykvíkingur, einka- barn hjónanna Margrétar Guð- laugsdóttur og Péturs Jóhannsson- ar framkvæmdastjóra. Hún ferð- aðist mikið erlendis með foreldrum sínum og tólf ára gömul var hún komin í klausturskóla i Sviss með börnum heldri manna og hinna ríku. Vinkonur hennar voru ekki af verra taginu, franskar og ítalsk- ar auðmannadætur, og varð hún því fljótt nokkuð heimsvön. Segir sagan að eitt sinn hafi hún verið á ferð í lest frá Gardavatni til Bologna og sat ein í klefa á 1. farrými. Koma þá nokkrir menn inn í klefann til hennar og biðja hana um að færa sig því kommún- istaleiðtoginn ítalski Nenni eigi að fá klefann. Sú heimsvana, þá að- eins 16 ára, harðneitaði og fóru því leikar svo að leiðtoginn varð að láta sér lynda að setjast gegnt íslensku ungfrúnni, sem hann þó varla hefur harmað síðar, því vel fór víst á með þeim í ferðinni. Hún stundaði síðan nám í fé- lagsfræðum við Háskólann í Genf og átti aðeins eitt próf eftir þegar hún varð alvarlega veik. Var hún uðum síðar kom Sigríður á heimili hans í Þýskalandi og brá þá heldur en ekki brún. „Hvolpurinn var búinn að rífa niður allar gardínur, naga stóra bita úrhandgerðu pers- nesku gólfteppi, narta í nokkrar bækur úr neðstu bókahillunum og var langt kominn með antikstól- ana. En hjónin voru samt yfir sig hrifin af honum! Með þessum sjarma sínum hafði hann unnið hjörtu þeirra og var því allt fyrir- gefið.“ Ekki einungis er íslenski hund- urinn sá geðbesti af öllum, að sögn Sigríðar, hann er líka geysilega greindur, enginn annar er nám- fúsari og betri björgunarhund er vart hægt að fá. En Svisslendingar hafa þó kunnað að nýta sér þá kosti hans betur en íslendingar. „Á miðöldum þótti íslenski hundurinn gersemi og var m.a. fluttur út til Bretlands, en á millistríðsárunum hættu íslending- ar að leggja rækt við hann og gerðu hann að hálfgerðri grýlu. Sullaveiki hafði komið upp og það var um 1923 sem konungur gaf út þá tilskipun að fækka skyldi íslenska hundinum. Hann var sem sé ranglega gerður að sökudólgi og mátti ekki í hús koma. Þegar ég hóf ræktunina vildi ég þekkja eiginleika hans og kosti sem best, gróf því í gömlum bókum og ritum og ferðaðist um landið og talaði við eldra fólk sem þekkti eiginleika hans. Gamli íslenski hundurinn fékk alltaf að vera með manninum þótt hann þyrfti vitan- lega að hlýða vissum reglum og þannig hef ég alið upp mina hunda.“ Ég spyr Sigríði út í kosti hans sem fjárhunds og eiginleika hans miðað við þann skoska sem marg- ir bændur hafa nú og Sigríður Morgunblaðið/Sigurður . Konan með hundana er sögð merkiskona og mikill dýravinur en einnig „dugnaðarforkur“ Hún skyldleikaræktaði og henni tókst það sem erfðafræð- ingar sögðu að væri ekki mögu- legt. þá komin með æxli við heilann, en var heppin því skólabróðir henn- ar sem var læknanemi sótti tíma hjá hinum þekkta Alois Werner, frumkvöðli í heilaskurðlækningum og geislalækningum, og það var hann sem skar hana upp og lækn- aði. Baldur, Tinni og Katla, geð- góðir, greindir og námfúsir. Eiginmanni sínum kynntist hún í gegnum hestamennskuna og eiga heima sem ekki er nú mikið að hennar áliti. Hún kallar á Baldur, Kötlu og Tinna og segir þeim að heilsa, sem þeir og gera með mikl- um sóma og elskuverðugheitum. Baldur er hundurinn hennar og ef hún leggst veik þá verður hann enn veikari. Margir mætir menn fengu hvolpa hjá Sigríði og hún minnist þess sérstaklega þegar efnaður Þjóðveiji, sem oft hafði verið með sjefferhunda, fékk einn 2ja mán- aða hvolp hjá henni og átti ekki orð yfir það hversu skemmtileg skepna þetta væri. Tveimur mán- segir mér að stór munur sé á að- ferðum þeirra við smalamennsk- una. Sá skoski reki féð að mannin- um, sé þjálfaður til að reka fé í hópum úr einu hólfi í annað, en íslenski hundurinn reki féð frá manninum og á undan eins og best henti í íslenskri smölun. „Sá skoski geltir ekki og lætur því kindur eiga sig þar sem hann nær ekki til þeirra, eins og t.d. í gjótum og líkum stöðum, en sá íslenski geltir þar til hann hefur þær af stað. Menn hafa ásakað íslenska hundinn fyrir geltið og dæmt hann heimskan af þeim sökum, en aldr- ei nokkurn tíma hefur íslenskur hundur gelt í mínum húsakynnum. Vandamálið liggur nefnilega oftast hjá eigendunum en ekki hjá hund-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.