Morgunblaðið - 30.07.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.07.1989, Blaðsíða 25
'i táOÍ&GlMBljÁÐfé>' VELVAKANDI ^MmjDAÍGirR i3fp JJÚLÍ'1989 C 25 Félagarnir Magnús Jónsson, Gunnar Sigurgeirsson og Steinþór Þorvalds- son eftir flórar hol- ur. Sigrún Sigurðar- dóttír, Sigrún Jóns- dóttir og Bylgja Guðmundsdóttír. Gamla Tóftahúsið. Morgunblaðið/Frimann Ólafsson Ferðaþjón- usta eða ferðamanna- þjónusta - ábending til fréttamanna Tcmnlœknastofa Höfum opnað tannlæknastofu á HELLU, Suður- landsvegi 3. Viðtals- og tímapantanir þriðjudaga og fimmtu- daga frá kl. 09-17 í síma 98-75311. Jóhann Guðmundsson tannlæknir, Jónas B. Birgisson tannlæknir. Til Velvakanda. Yfir sumarmánuðina eru oft birt- ar/sagðar fréttir úr ferðaþjón- ustunni, nú nýlega t.d. um nýja farþegafeiju á Breiðafirði og ísa- fjarðardjúpi, um góða aðsókn á tjaldstæðum norðanlands og um lélega nýtingu á hótelum sunnan- lands. Stundum birtast í svokölluð- um ferðamáladálkum fréttir af er- lendri ferðaþjónustu og er þar ber- sýnilega oftast um að ræða pistla sem þýddir eru úr erlendum ferða- málablöðum. í þýðingunni verður þýðandanum stundum á að þýða ensku orðin „tourist industry" sem ferðamannaiðnaður og þegar íslenskir blaðamenn/fréttamenn ætla svo að skrifa um þessa at- vinnugrein á íslensku apa þeir þetta orðskrípi eftir. Það er misskilningur að hægt sé að þýða ensku orðin „tourist ind- ustry“ sem ferðamannaiðnaður. Enska orðið „industry" þýðir raunar iðnaður, en vel að merkja einnig atvinnugrein. íslenska orðið iðnaður þýðir hins vegar það að breyta hrá- efni í fullunna vöru, t.d. að breyta mjólk í mat eða ull í fat. Mjólkuriðn- aður þýðir að breyta hráefninu mjólk í fullunna vöru t.d. skyr eða ost og ullariðnaður þýðir að breyta ull í flík. Þegar talað er um ferða- mannaiðnað þýðir það strangt til tekið að ferðamenn séu skornir nið- ur eða hakkaðir og búið til úr þeim buff eða pylsur! Þið sem skrifið/segið fréttir úr ferðaþjónustunni eða þýðið/skrifið pistla um innlenda eða erlenda ferðamannastaði vinsamlegast haf- ið í huga það orð um atvinnugrein- ina sem íslenskufræðingar hafa lagt blessun sína yfir og það fólk sem sjálft vinnur við þessa atvinnugrein hefur lagt til að notað verði = ferða- (manna)þjónusta. Kona í ferðaþjónustu Draumavagninn: Áfast Fortjald Stórir Hjólbarðar Tvö Svefntjöld Stór og Rúmgóður Fjölgun fæðinga og lok- un Fæðingarheimilisins Til Velvakanda. Sá atburður sem skiptir sköpum í lífí allra hjóna eða sambúðarfólks er fæðing barns þeirra. Flestir for- eldrar undirbúa sig gaumgæfilega fyrir fæðinguna, fara á foreldra- námskeið, huga að mataræði móður og velja hvort sé hentugra, Landspítalinn eða Fæðingarheimil- ið. Ég og sambýlismaður minn tók- um þá ákvörðun að velja Fæðingar- heimilið á þeirri forsendu að það sé heimilislegur og óstressaður staður sem hentaði afskaplega vel fyrir langþráða atburðinn. Nú er það svo að flestar konur kjósa að skipuleggja fæðingu barns síns að sumri til. Við urðum því fyrir mikl- um vonbrigðum og vægast sagt undrandi þegar okkur var tjáð að á mesta annatíihanum væri Fæð- ingarheimilnu lokað, þ.e. frá 24. júlí til 4. september. Fæðingarheiihilið er lítil stofnun sem sífellt hefur verið að minnka eftir því sem fæðingatíðni eykst. Hvers vegna er það svo? Það sker sig úr því það er svo laust við þetta leiðinlega, færibandalega stofnunarumhverfi og það er ein- mitt mesti kostur þess. Foreldrar töldu sig hafa val en í sumar stend- ur Fæðingarheimilið autt og van- færum komum er beint inn á hina „einu réttu braut“. Með aukinni fæðingatíðni íslenskra barna er það sérkennileg ákvörðun að loka annari fæðingar- stofnuninni á mesta annatímanum. Ákvörðunin hefði verið skiljanlegri ef um hrun á fæðingatíðni íslenskra barna hefði verið að ræða, en í dag er þessu þveröfugt farið. Það hefur ekki góð áhrif á móður að fæða á yfirfullri stofnun og vera send heim fyrr en góðu hófi gegn- ir. Allir vita að fæðingunni fylgir mikil breyting á lífsmunstri móður, oft eru erfiðleikar varðandi bijósta- gjöf og flestar konur ganga í gegn- um geðlægðartímabil á þriðja til fjórða degi eftir fæðingu, en Lands- Til Velvakanda. Ég vil ljá máls á einu sem mér finnst óréttlæti í sambandi við skatta. Hjón fá sérsköttun, en ef konan er heima þá getur makinn nýtt hennar skattkort. Ég er ein með dreng sem er í framhaldsskóla og ég get ekki nýtt hans skattkort meðan hann er í skóla og vinnur ekki úti. Þá er eng- in notkun á hans skattkorti í níu spítalinn sendir sængurkonur heim á fimmta degi eftir fæðingu og hefur jafnvel komið til tals að senda þær fyrr heim sökum álags á deild- inni. Álagið á deildinni hefur verið það mikið að aðstandendur hafa verið beðnir um að takmarka blómasend- ingar og símhringingar til nýbak- aðra mæðra. Augljóst er því að á mestu álagstímum er starfsemi deildarinnar ábótavant. Að lokum vil ég hvetja konur jafnt sem karla til að tjá sig um þessi mál. Hrafhhildur H. Jóhannsdóttir mánuði á ári. Við þurfum fram- færslu alveg eins og aðrar fjölskyld- ur í þjóðfélaginu. Eg vil beina máli mínu „sérstaklega“ til þingmanna og annarra sem geta tekið þetta mál upp á þingi. Fleirum en mér er þetta kappsmál og oftast nær erum við enginn hálaunáhópur, sér- staklega eins og matur er dýr og önnur framfærsla í dag. 3632-9548 Óréttlát skattalöggjöf Áföst Eldhúseining Auðveld Tjöldun Sterkur en Léttur Ákaflega Meðfærilegur Lúxus á aðeins kr. 245.000 Það má öruggt telja að Camp-let tjaldvagninn sé sá heppilegasti fyrir íslenskar aðstæður, — það sannar ánægjuleg reynsla fjölda Camp-let eigenda. Talaðu fyrst við þá áður en þú heyrir í sölumönnunum. Þá sérðu best hversu góður Camp-let er. Camp-let, sá besti fyrir íslenskar aðstæður. Sundaborg ll Sími 91-686644

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.