Morgunblaðið - 30.07.1989, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.07.1989, Blaðsíða 6
V J 6~€ C8€I IIUI M, JCJOACFJKMtK jíOV MORGUNfitftÐIÐ--SUNNUDAGUR-30,-JÍJU 1989..... Æ :w!mk effir Pól Lúðvík Einarsson Sannleikurinn er sagna bestur. En þó hafa ævintjjri Miinchhausens þótt ansi góð. í meira en tvær aldir hafa menn skemmt sér yfir sögum hans í máli og myndum. — Morgun- blaðið segir nú ft*á lyginni. Junkari frá Hanover Karl Friedrich Hieronymus fríherra af Munchhausen var fæddur hinn 11. máí 1720 á herragarðinum Bodehwerder við ána Weser í Hannover, nú í þýska sambandslýðveld- inu. Hann lést á sama stað 22. maí árið 1797. Karl Friedrich var kominn af eðlu junk- arastandi og eins og siðvenjur þeirrar stéttar gera ráð fyrir, lagði hann fyrir sig her- mennsku. Til eru heimildir um að hann var riddarasveinn í Wolfenbiittel í Brúnsvík. Árið 1738 tekur hann þátt í orustum við Tyrki austur í Rússlandi. Hann varð svo liðsforingi í lífvarðarsveit Antons Uirichs frá Brúnsvík en sá maður hafði nokkra forsjá með keisar- anum — og kornabarninu Ivani fjórða sem ríkti á árunum 1740-41. Hæfileikar Múnch- hausens virðast ekki hafa verið metnir að fullum verðleikum og frami hans í hernum ekki jafn glæsilegur og skjótur og hans eigin frásagnir gefa tilefni til að ætla; hann varð ekki höfuðsmaður fyrr en 1750. Nokkru síðar sneri hann til heimahaganna og tók við bús- forráðum á setri sínu í Bodenwerder. Sögur fara á kreik Eftir að Múnchhausen var sestur í helgan stein hélt hann sig með höfðingsbrag á setri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.