Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 7

Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989 C 7 sannleikans en virði hann ekki. Sannleikurinn sé ekki sagna bestur; hann sé of leiðinlegur. Gilliam er í nöp við skynsemis- og reynslu- hyggju og vill gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og sögur Miinchhausens þjóna vel því markmiði. Leikstjórinn notar ekki neinn staðaltexta sem forskrift en það má segja að „andi Miinchhausen s“ birtist á hvíta tjald- inu. Myndin er lygileg. Það er e.t.v. í samræmi við skemmtanas- mekk leikstjórans, að í myndinni er sterklega gefið í skyn að hefðarfólk á tunglinu stundi sínu og skemmti þar stéttarbræðrum sínum með frásögnum af afrekum sínum. í kunn- ingjahópi var hann nefndur „Iygabaróninn". — Og nú fóru sögurnar á kreik, nokkrar þeirra birtust í bók Cristophers Friedrichs Nicolais (1733-1811), Ferðabók handa gam- ansömu fólki 1781-83. Nú verður að nefna til sögunnar Rudolf Erich nokkur Raspe (1737-1794) prófessor og bókavörð landgreifans í Kassel. Auk bóka- gæslunnar varðveitti Raspe gimsteinasafn greifans. Raspe varð uppvís af því árið 1775 að selja þessa eðalsteina sjálfum sér til ábata. Hann varð að leita hælis í Englandi. Flóttamaðurinn átti í fjárhagsörðugleikum og sér til framfæris gaf hann út árið 1785 nokkrar af sögum Múnchhausens. Raspe mun hafa stuðst við bók Nicolais að nokkru leyti en auk þess mun hann hafa verið málkunnug- ur Múnchhausen meðan báðir dvöldu í borg- inni Göttingen. — Sumar enskar heimildir telja Raspe vera upprunalegan höfund að ævintýrum Múnchhausen s og enska útgáfu frá 1793 vera nokkurs konar „staðaltexta“. Raspe varð síðar að yfirgefa Bretland þar eð afskipti hans af námagreftri þóttu ekki fullkomlega trúverðug. Hann sannfærði hús- bónda sinn og verndara, Sir Sinclair frá Ulst- er, um að verðmætar námaæðar væni á landi hans, en það reyndist eitthvað málum bland- ið. Raspe lést í Muckross á írlandi árið 1794. Það varð þó ekki einungis útgáfa Raspes sem vann Múnchhausen þann orðstír sem af honum fer. Gottfried August Búrger (1747- 1794) þýddi enska textann á þýsku og bætti nokkrum sögum við árið 1787. Útgáfa Búr- gers varð sérlega vinsæl. Næstu ártugi var bókin margsinnis endurprentuð — og umsam- in uns Eduard Grisebach bjó frumtexta Búr- gers til prentunar og gaf út árið 1890. Eftir því sem næst verður komist er sá texti oft- ast viðurkenndur sem „réttur“ um Norður- álfu. — Annars má segja að Múnchhausen hafi hlotið þau örlög að menn hafa ekki lagt sig sérlega eftir því að hafa frásögur hans trúlega eftir. Miinchhausen á íslandi Ævintýri barónsins komu fyrst út á ís- landi árið 1913 í þýðingu Þorsteins Erlings- sonar. Þorsteinn þýddi sögurnar úr ensku en ekki er vitað hvað texta hann notaði. Þýðing Þorsteins var endurútgefin árið 1921. Árið 1951 birtist á íslensku texti Gott- frieds Augusts Búrgers í þýðingu Ingvars Brynjólfssonar. Sú útgáfa var prýtt myndum sem franski listamaðurinn Gustave Doré (1830-1883) gerði árið 1862. En að útgáfu Ingvars Biynjólfssonar óla- staðri hafa sennilega fleiri Islendingar kom- ist í kynni við frásagnir Múnchhausens í barnablaðinu Æskunni sem stórstúka íslands gefur út. Múnchhausen var fastur liður í blað- inu frá febrúar 1964 fram til mars 1971. Ævintýri barónsins voru þar myndasaga með teikningum eftir Mogens Juhi en textinn var stuttaralegur útdráttur. Lygasögurnar nutu mikillar hylli meðal lesenda blaðsins og eru þær ýmsum minnisstæðari en mörg varnaðar- orðin um skaðsemi áfengis og tóbaks. Logið á hvítu tjaldi Hver kynslóð segir og túlkar sögur Múnch- hausens með sínum hætti. Kvikmyndir eru frásagnarmáti nútímans. Múnchhausen hefur nú að minnsta kosti komist þrisvar sinnum á hvíta tjaldið. 1942-43 í Þýskalandi hjá þýska kvikmyndafyrirtækinu UFA og 1961 gerði Tékkinn Karin Zeman mynd um barón- inn. — Og nú síðast en ekki síst árið 1989 kemur mynd sem Bandaríkjamaðurinn Terry Gilliam leikstýrir. Gilliam lýgur með sínum hætti. Maðurinn hefur látið svo ummælt í viðtali að hann leiti LYGILEGUR SJUKDOMUR Milndihausen -spdrom í uppsláttarbókum læknisfræðinn- ar er getið um ákveðna geðveilu sem nefnd hefur verið eftir fríher- ranum söguglaða. Múnchhausen-syndróm. Sjúkleg uppgerð, stöðug uppgerðarsýki, spítalaflakk. Sjúklingur gerir sér endur- tekið upp einkenni sjúkdóma, yfirleitt bráð og áhrifamikil og sannfærandi. Viðkomandi einstaklingur flakkar milli spítala í leit að meðferð. Oft sýnir sjúkl- ingurinn — eða líkir mjög nákvæmlega eftir ýmsum kvillum og sjúkdómsein- kennum, s.s. kransæðastíflu, blóðug- um uppköstum og blóðspýtingi, bráð- um kviðverkjum og hitaeinkennum af illgreinanlegum uppruna. Einnig er þekkt óhugnanlegt afbrigði af sjúkdómnum; að barn sé notað sem staðgengill. Það er að kölluð eru fram sjúkdómseinkenni hjá barninu, t.d. með lyfjum, eða þvagsýni eru blönduð blóði eða bakteríum. Sjúklingur bregst yfirleitt reiður við ef sjúkrasaga hans er dreginn í efa og flytur sig um set á annað sjúkrahús. Oftast er sálfræðimeðferð afþökkuð eða sneitt framhjá henni...“ Morgunblaðið spurðist fyrir hjá nokkrum heilbrigðisstofnunum hvort vart hefði orðið við Múnchhausens- syndrómið á íslandi. Enginn viðmæ- lenda Morgunblaðsins kannaðist við að þessi sjúkdómur hefði verið greind- ur hér á landi, enda væri hann tiltölu- lega óalgengur. Fríherrann segir frá. fslenskir lygaiai Fljótur á skautum íslendingar telja sjálfa sig ekki vera eftirbát^ ar annarra í bókmenntum og frásagnarlist. Það er engin ástæða til að ætla að þeir geti ekki „krítað liðugt“ síður en aðrir. Guðmundur Magnússon hét maður er var uppi á fyrri hluta nítjándu aldar. Hann var hrepp- stjóri á Bessastöðum eða Bessastaðagerði í Fljóts- dal og síðar bóndi í Fannardal í Norðfirði. Heimild- ir geta hans sem Sögu-Guðmundar eða jafnvel sem Lyga-Gvendar. Eftirfarandi saga er eftir honum höfð: „Ég var svo fljótur á skautum á yngri árum mínum, að enginn hesturfylgdi mér. Einu sinni kom ég utan af sveitum og fór á skautum yfir Lagar- fljót. Átti ég heim að sækja og var að flýta mér. Þegar ég fór fram hjá Vallanesi, lenti ég ofan í bölvaða vök, sem ég átti enga von á, og út undir ísinn á fleygiferð; en skömmu síðar skaut mér upp um aðra vök. Ekki vissi ég, hvað ég var lengi á leiðinni, en víst hefur það ekki verið lengi, því að mér leið ekkert illa. Ég fór svo að horfa í kringum mig og sá þá, að mér hafði skotið upp um brynning- arvök undan Hallormsstað." (Þessi leið er um 15 kílómetrar og mót straumi að fara, þótt lítill sé.) Miinchhausen Æskunnar og Mogens Juhl. fjörugt kynlíf á meðan höfuð þeirra sinni andlegum málum annars staðar. Múnch- hausen segir einfaldlega: „Unaður ástarinnar þekkist ekki á tunglinu.“ Flestum sem séð hafa myndina þykir hún augnakonfekt en á hinn bóginn hafa erlendir gagnrýnendur haft á orði að vanda hefði mátt handritið betur; það sé full laust í reip- unum. Handritahöfundar eru Gilliam sjálfur og Charles McKeown, sem einnig leikur eitt aðalhlutverkanna í myndinni. Ótrúlegi en satt Það lygilegasta við þessa mynd er víst satt; nefnilega kostnaðurinn; 43 milljónir bandaríkjadala (2.465,62 milljónir íslenskra króna miðað við tollgengi júnímánaðar 1989, innskot blm.). Upphafleg kostnaðaráætlun var 23 milljónir bandaríkjadala (1.318,82 milljónir íslenskra króna) og þótti ýmsum nóg um. Talsmaður fjármögnunarfyrirtækis- ins Film Finances telur þessa mynd vera víti til varnaðar. Ástæðurnar fyrir þessum hrika- lega inismun munu vera þær að ímyndunar- afl Múnchhausens og leikstjórans Gilliams reyndist þurftarfrekt varðandi sviðsmynd og tæknibrögð. Einnig voru gerðar breytingar á handriti og hlutverkaskipun á meðan á tökum stóð. Samskiptaörðugleikar voru einn- ig meðal starfsmanna og milli þeirra stjórn- enda. Líka hafa breytingar á gengi dollarans og háum fjármagnskostnaði verið kennt um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.