Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 14

Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989 SMEKKLEYSA/m'/r heitir íslenskt út- gáfufyrirtæki sem , hefúr að leiðarljósi þá einföldu stað- reynd að góður smekkur er banabiti allrar sköpunar. Fyrirtækið stofnuðu meðlimir Sykurmol- anna á sínum tíma ÉSg Á þegar þeim þótti fullreynt að ekki væri til íslenskt út- gáfúfyrirtæki sem vildi starfa með hljómsveitinni á þeim list- ræna grundvelli sem hún kaus. Starfsemi sína hóf Smekkleysa með því að senda frá sér póstkort með teiknaðri mynd af þeim Ron- ald Reagan og Mikhaíl Gorbatjof þegar þeir ræddust við í Höfða sæUa minninga og síðan hefúr hver útgáfan rekið aðra. Nú eru útgáfúgripirnir orðnir sautján, bækur og plötur og Smekkleysa hefiir hafíst handa við stuðla að útgáfú ytra. eftir Árno Matthíasson; myndir Björg Sveinsdóttir v -rnekkleysa stóð m fyrir ferð # þriggja m íslenskra v hljómsveita, Ham, Bless og Risaeðlunnar, til New York fyrir skemmstu á árlega tónlistarráð- stefnu sem ber heitið New Music Seminar (NMS) í þeim tilgangi að koma sveitunum á framfæri og var blaðamanni Morgunblaðsins boðið að slást í förina. New Music Semin- ar sækja um 9.000 manns sem all- ir eiga það sameiginlegt að lifa að nokkru eða öllu leyti á að gefa út, kynna eða leika tónlist. Ráðstefnan sjálf stendur í fjóra daga, en sam- hliða henni er haldin tónlistarhátíð í New York, sem kallast New York Nights. Að þessu sinni var meira um að vera en nokkru sinni fyrr og alls komu ,fram ríflega 260 hljómsveitir þá sex daga sem hátíð- in stóð og því í nógu að snúast. íslensku sveitirnar léku á þrenn- um tónleikum í New York og einum í Albany. í New York var leikið á stöðunum Down Town Beirut II og Pyramid, en í QE2 í Albany. Verður sagt lítillega frá tveimur fyrstu tón- leikunum. Aðai tónleikarnir voru tvímæla- laust tónleikarnir í Pyramid, sem haldnir voru á vegum NMS og bú- ast mátti við að flestir fyrirmenn kæmu á þá tónleika. (Á hátíð sem þessari skiptir ekki öllu máli að fá sem flesta á tónleika; það skiptir öllu hverjir koma.) Pyrstu tónleik- arnir, sem haldnir voru i Down Town Beirut II, voru þó lítið ómerk- ari, þvi þeir gæfu tóninn fyrir það sem á eftir kæmi; væru þeir illa heppnaðir og ómögulegir var næsta víst að það setti alla út af laginu. Down Town Beirut II Down Town Beirut I og II eru búllur í eigu eldri líbanskrar konu. Staðimir eru í suð-austur Green- wich Village, sem verður óhrjálegri eftir því sem komið er austar og sunnar. Þar ber fátt fyrir augu annað en fátæklinga, drykkjumenn og dóphausa sem hírast í hálfgerð- um húsarústum, en staðurinn hefur Sveitameðlimir utan við Down Town Beirut II. Á efri myndinni stilla Blessmenn sér upp utan við Pyramid. JBS - ,/- ■ w Pl I ws H :Hp H * p * ■* * n| i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.