Morgunblaðið - 30.07.1989, Page 18

Morgunblaðið - 30.07.1989, Page 18
I 3 18 C MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR sunnuua. íIG ian'JD SUNNUDAGUR 30. JULI 1989 4 Oskar Orn Jóns- son — Minning Mánudagurinn 24. júlí rann upp og þáð sást loks til sólar í Reykjavík. Hugurinn var bundinn við birtu þessa fagra dags þegar helfregnin barst og allt varð dimmt og kalt. Það er oft erfitt að skilja þetta líf og maður spyr í vanmætti sínum: Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu öllu? Og það fæst ekkert svar. Lífi ungs manns er lokið og minn- ingarnar streyma fram. Ég man það eins og gerst hafi í gær þegar ég sá Óskar Örn nýfæddan í vöggnnni sinni á Sólvangi og frá þeirri stundu átti hann hluta hjarta míns. Þetta var fyrsta bamabamið og það eina í næstu átta ár. Hann varfrumburð- ur sonar okkar, Jóns Grétars Óskarssonar, og fyrri konu hans, Lilju Guðmundsdóttur. Þau vom ung og bæði í námi, svo ömmunni var trúað fyrir þessum litla snáða. Han var ljúfur og brosmildur við ömmu sína en grenjaði þeim mun hærra á nóttunni fyrstu mánuði ævinnar og það var oft ósofín móð- ir sem fór í skólann, en aldrei var skrópað. Mér fannst ég alltaf eiga meira í þessum dreng en ömmu á að fínnast og söknuðurinn varð því mikill þegar íjölskyldan fórtil nokk- ura ára dvalar í Kanada. Það bætti þó úr að það kom bréf frá Grétari í hverri viku öll þessi ár og við gátum fylgst með þroska drengsins úr fjarlægð. Svo lá leiðin til íslands á ný. Samband okkar við Óskar Öm var alltaf mikið og það breyttist ekki við skilnað þeirra Lilju og Grétars. Eftir það var drengurinn í umsjá móður sinnar og varð aðnjótandi ailrar þeirrar ástar og umhyggju sem góð móðir getur veitt. Óskar Öm las mikið á bemsku- árum sínum en hann hafði líka gaman að öllum rebbasögunum sem afí hans bjó til um leið og þær vom sagðar. Ég fylgdist oft með þessari sagnagerð og eitt sinn þegar rebbi var sérlega slæmur og átti allt illt skilið þá bað drengurinn honum vægðar og sagði: „Afí, ekki láta hann deyja“. Oskar Öm fór ungur að vinna með afa sínum og stundum að vinnudegi loknum hurfu þeir nafnar en ef ég lagði við hlustir þá heyrði ég í þeim skrafíð úti í garði, þar sem rótað var eftir orm- um og síðan var haldið til veiða í eitthvert vatnið í grenndinni. Þetta era ljúfar minningar. Árin liðu. Óskar Öm varð fall- egur ungur maður og góðum gáfum gæddur. en svo fór að draga ský fyrir sólu. Hann veiktist skyndilega þegar hann var 16 ára gamall, en náði góðri heilsu á ný. Þá kom annað áfall. Hann missti föður sinn fýrir fjórum ámm og þar missti hann jafnframt sinn besta vin. Um það leyti hafði hann kynnst góðri stúlku og þau stofnuðu heimili en það samband slitnaði. Við emm oft minnt á hve stutt er milli lífs og dauða og enginn veit hver næstur fer. Það hvarflaði síst að mér síðastliðinn sunnudag þegar sonarsonur minn kom í heim- sókn með Ósk frænku sinni að hans ferð yfír landamærin væri svo stutt undan. En enginn fær snúið stunda- glasinu við og á morgun verður hann lagður til hinstu hvfldar við hlið föður síns. Eftir sitja ættingjar og vinir og syrgja góðan dreng. Elsku Lilja, þú hefur alltaf verið okkur kær síðan þú dvaldir ung á heimilí okkar og við vitum hve sorg þín er sár. Við Óskar og böm okk- ar vottum þér og þínum okkar dýpstu samúð. Anna Jónsdóttir Andlátsfregn Óskars Amar Jóns- sonar frænda míns og mjög náins vinar er sárari en támm taki. Aldr- ei fyrr hefur maður sest jafn agn- dofa og máttlaus eftir nokkra frétt, aldrei fyrr hefur maður fundið jafn átakanlega til vanmáttar síns, aldr- ei fyrr hafa vegir almættisins verið jafn órannsakanlegir. Ungur maður í blóma lífsins er kvaddur á braut aðeins 22ja ára gamall. Óskar Öm Jónsson fæddist í Hafnarfírði 9. desember 1966, son- ur systur minnar, Lilju Á. Guð- mundsdóttur, og Jóns Grétars Óskarssonar. Hann ólst upp í Hafn- arfírði fyrstu ár sinnar stuttu en viðburðaríku ævi. Þegar hann var fjögurra ára gamall fluttist fjöl- skyldan til Kanada þar sem Jón Grétar fór til náms. Árin í Kanada vom Óskari um margt ógleymanleg enda minntist hann þeirra gjama með söknuði þegar þau bar á góma. Fljótlega eftir heimkomu íjölskyld- unnar slitu þau Lilja og Jón Grétar samvistum sínum. Á þeim ámm sem í hönd fóm bast Óskar mjög nánum bímdum við afa sína og ömmur, bæði Óskar Ágústsson og Önnu Jónsdóttur föð- urforeldra sína í Garðabæ, og Guð- mund Á. Guðmundsson og Sig- urlínu Ágústsdóttur móðurforeldra sína í Hafnarfírði enda vom heimili þeirra honum kærkominn griða- staður alla tíð. Árið 1979 hélt Óskar enn utan og nú var förinni heitið til Svíþjóðar þar sem Lilja og sambýlismaður hennar, Snæbjöm Kristjánsson, fóm í framhaldsnám. Eftir 2ja ára vem í Svíþjóð fluttist Óskar heim aftur til föður síns sem stofnað hafði heimili með Kristínu Jóns- dóttur. Á næstu ámm stundaði Óskar skólanám sitt af kappi jafnframt því að vinna og læra múraraiðn af föður sínum og Óskari afa. Gekk hann jafnan að starfi sínu af elju og vandvirkni enda harðduglegur og laginn verkmaður svo af bar. En þegar allt lék í lyndi og leiðin fram á veginn virtist björt og greið kom reiðarslagið. Faðir hans sem verið hafði fasti punkturinn í lífínu var hrifínn á brott í einu vetfangi. Hann hafði reynst Óskari sú kjöl- festa sem ávallt var hægt að treysta á þegar mótvindar blésu og and- streymi lífsins varð óbærilegt. Þeir feðgar höfðu orðið mjög samrýndir og raunvemlegir félagar og vinir bæði í leik og starfi. Jón Grétar varð öllum þeim sem kynntust hon- um ógleymanleg persóna sem | markaði djúp spor hvar sem hann fór. Ég fæ honum seint þakkað þann stuðning sem hann veitti mér á erfiðum tímum. Hvemig getur nokkur mannlegur skilningur áttað sig á þeim örlögum sem hér hafa gerst. En nú hafa þeir fundið hvor annan á ný eftir aðeins fjögurra ára viðskilnað. Óskar Öm var mjög tilfínninga- ríkur maður sem ekkert aumt mátti sjá. Hann gat haldið uppi löngum og hjartnæmum viðræðum um óréttlæti heimsins og misskiptingu gæða þessa lífs og oft gátum við talað saman fram á nætur í enda- lausum bollaleggingum um lífíð og tilvemna. Hann kom jafnan í heim- sókn með reglulegu millibili annað hvort til að tefla skák eða bara rabba saman. Stundum urðu skák- imar langar því margt þurfti að segja á milli leikja og ýmsar athuga- semdir fóm á milli sem við einir skildum og áttum fyrir okkur. Það verður aldrei frá okkur tekið sama hvað lífið verður miskunnarlaust og óvægið á stundum. Minning- amar um samvemstundirnar munu lengi ylja hjartaræturnar og sefa sorg og trega. Síðustu árin þurfti Óskar að glíma við erfiðan sjúkdóm. í þeim átökum stóð móðir hans við hlið honum og efldi og styrkti og var sá klettur sem flestir boðar brotn- uðu á. En enginn má sköpum renna. Óskar Örn er farinn frá okkur. Blíða brosið, glettnislega augnaráð- ið, stríðnislegi svipurinn, prakkara- legi hárbrúskurinn og hnarreista fasið hans stendur ekki aftur í dyra- gættinni og skorar í skák. Hnitmið- uðu athugasemdirnar og hvelli hlát- urinn heyrist þó óma í minningunni um góðan og traustan dreng sem var hvers manns hugljúfí. Blessuð sé minning hans. Megi algóður guð styrkja alla þá sem um sárt eiga að binda á þess- ari erfíðu stundu. Ársæll Guðmundsson Jólin nálguðust. í flestra hugum em þau tími gleði, ástar og friðar en hjá þeim sem hafa elskað og misst em þau oft sá tími sem minn- ingarnar sækja fast á og söknuður- inn er hvað sárastur. Ég var í miðj- um jólabakstrinum þegar útidymar opnuðust á þennan sérstaka hljóð- láta hátt. Eitt andartak hvarf ég fjögur ár aftur í tímann og mér fannst Grétar vera að koma heim úr vinnunni. I því birtist bjart og sviphreint andlit Óskars sonar hans í gættinni. Hann settist við eldhús- borðið að venju og við tókum tal saman. Rólegt en þó spyijandi and- litið gaf til kynna að hann þyrfti að segja mér eitthvað sérstakt. Það var ekki fyrr en við kvöddumst að hann rétti mér umslag. Hann hafði legið andvaka um nóttina og reynt að skrifa það sem hann var of dul- ur til að geta nokkurn tíma tjáð. Heitar tilfinningar streymdu yfir arkirnar fyrir framan mig og brenndu gómana. Sorgin og inni- byrgður söknuður eftir föðurnum fylltu síðurnar og flóðu fram í ákalli á styrk til að komast yfír það áfall að missa þann sem við elskuð- um umfram aðra menn. Engum hafði Óskar treyst jafn vel, enginn hafði verið honum slík fyrirmynd. Honum fannst það skarð sem dauð- inn hafði hoggið í líf sitt opið og óvarið og það yrði aldrei fyllt. Nú þegar þeir feðgar hafa náð saman aftur minnist ég þess hve Grétar var stoltur þegar hann kynnti Óskar son sinn fyrir mér í fyrsta skipti. Ég horfði framan í myndarlegan dreng með greindar- legan svip og skýrleg blá augu. Það brá fyrir í þeim kímniglampa sem átti eftir að þroskast og dýpka með árunum. Skugginn — sem seinna brá svo oft yfir sviphreint andlitið og varð fyrirboði þess sem koma skyldi — sást ekki. Engum duldist að hér fór efnispiltur gæddur góð- um námsgáfum. Fram undan lá lífsins vegur bjartur og breiður, varðaður góðum fyrirheitum. Á fyrsta ári hans í menntaskóla gripu örlaganornirnar í taumana. Þá blossaði upp sá sjúkdómur sem fylgdi honum þar til hans stuttu ævi lauk. Hann vakti ógn og skelf- ingu. Stundum veitti hann grið en lá í vari og beið færis að læsa klón- um aftur í allt of ungan dreng til að hljóta slík örlög. Óskar átti móður sem vafði hann ást, umhyggju og hlýju, föður sem hann virti og treysti öðrum fremur. Þó að foreldrar hans hafí slitið sam- vistum þegar hann var níu ára gam- all máttu þau hvorugt af honum sjá. Eftir skilnaðinn bjó hann þó lengst af hjá móður sinni, Lilju Guðmundsdóttur dagskrárstjóra hjá Ríkisútvarpinu. Tvö ár bjó hann á heimili mínu og föður síns Jóns Grétars Óskarssonar, lífeðlisfræð- ings. í Garðabæ biðu afí og amma með opinn faðm alltaf reiðubúin til að veita skjól og elsku. Minningarnar sækja á og kalla fram myndir af föður og syni. Það var yndislegt að sjá hvemig sam- band þeirra feðga þróaðist upp í nána vináttu þegar tímar liðu fram. Vináttu sem var þeim báðum mik- ils virði. Grétar taldi kjark í Óskar þegar á móti blés og veitti honum styrk og öryggi. Þeir áttu sameigin- legt áhugamál í íþróttum. Þrisvar í viku æfðu þeir og hlupu saman. Það vom gleðistundir. Á eftir var sest inn í eldhús og málin rædd lengi kvölds. Þá var oft í för Ragna Jónsdóttir unnusta Óskars frá þess- um tíma. Aldrei hafði samband feðganna verið nánara, vináttan meiri eða tengslin sterkari. Þá kom reiðarslagið. Jón Grétar dó úr heilablóðfalli 12. mars 1985. Óskar missti ekki aðeins föður held- ur líka sinn besta vin. Nú er Óskar farinn líka. Eftir sitjum við harmi slegin. Hann tók sína ákvörðun og hana ber að virða. Því er oss erfitt að dæma þann dóm, að dauðinn sé hryggðarefni, þó ljósin slökkni og blikni blóm. - Er ei bjartara Iand fyrir stefni? (E. Ben.) Systkini hans fyögur eiga sínar góðu minningar um stóra bróður. Móður hans sem nú hefur misst sína dýrmætustu gjöf, afa og ömmu í Garðabæ — sem hann dvaldi Iöng- um hjá og átti ómældar ánægju- stundir með — sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Einnig föður- systkinum hans Ósk og Omari sem voru honum sem systkin alla tíð. Hvorki fjarlægð né tími lækna slíkan missi. Það er einungis hægt að læra að lifa með honum. Kristín Jónsdóttir t Amma okkar, FRÚ JÓRUNN NORÐMANN, Skeggjagötu 10, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 23. júlí sl. verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 1. ágúst kl. 15.00. Sigurður Sigurðsson, Eva Geirsdóttir, Jón Geirsson, Sturla Geirsson, Þóra Geirsdóttir. Legsteinar MARGAR GERÐIR Marmorex/Gmít Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf ________um gerð og val legsteina._ ÍB S.HELGASON HF I STEINSKfllÐJA ■ :..... í SKEKWU'ÆGI 48-SÍMt 76677 LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 681960 t SIGURMUNDUR EINARSSON, Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, andaðist 19. júlí. Útförin verður gerð frá Fíladelfíukirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 1. ágúst kl. 13.30. Barnabörnin. Útför móður t minnar, tengdamóður, ömmu, tengdaömmu og langömmu, KLÖRU RÖGNVALDSDÓTTURr Furugerði 1, Reykjavík, fer fram frá nýju kapellunni í Fossvogi mánudaginn 31. júlí nk. kl. 13.30. Kristrún Skúladóttir, Hervald Eiríksson, Skúli Eggert Þórðarson, Dagmar Sigurðardóttir, Gunnar Þorsteinsson, Kiara Lísa Hervaldsdóttir, Gfsli ívarsson og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.