Morgunblaðið - 11.08.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.08.1989, Blaðsíða 19
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1989 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1989' 19 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Gjaldmiðillinn og ríkisstjórnin Istefnuyfirlýsingu ríkisstjóm- ar Steingríms Hermannsson- ar er stöðugleiki í gengi hins íslenzka gjaldmiðils talinn grundvöllur stjómarstefnunnar í efnahagsmálum, ásamt halla- lausum ríkisbúskap. Ráðherrar hafa margsett fram staðhæfing- ar í þessa vem, bæði í ræðu og riti. I stefnuyfirlýsingunni segir m.a.: „Samræmd stjóm ríkisfjár- mála, peningamála og gengis- mála verður gmndvöllur efn- hagsstefnu stjómarinnar. Stefnt verður að stöðugleika í gengis- málum. Aðhaldi verður beitt í ríkisfjármálum og peningamál- um til að koma á jafnvægi í þjóð- arbúinu á næstu ámm. Ríkisfjármál og lánsfjármál fyrir næstu ár munu miðast við að draga úr þenslu . . . Fjárlög fyrir árið 1989 verða samþykkt með tekjuafgangi. Til þess að ná þessu markmiði verða útgjöld ríkisins [1989] ekki hækkuð að raungildi frá því sem var á þessu ári [1988].“ Fjölmiðlar hafa fjallað ítar- lega undanfarið um vöxt ríkisút- gjalda og skattheimtu síðustu misseri, m.a. af þeirri ástæðu, að það stefnir í 5.000-6.000 milljóna króna Qárlagahalla á líðandi ári, að öllu óbreyttu, þrátt fyrir sjö milljarða króna nýja skattheimtu á árinu og þrátt fyrir fjárlagafyrirmæli um 600 m.kr. tekjuafgang A-hluta ríkis- sjóðs. Minna hefur verið rætt um misvísun stefnuyfírlýsingar um stöðugleika í gengismálum og gengisþróunar í höndum ríkisstjómarinnar. Eins og fram kemur í við- skiptablaði Morgunblaðsins í gær, féll íslenzka krónan um 15,8% gagnvart erlendum gjald- miðlum á fyrstu sjö mánuðum líðandi árs, sem þýðir, að erlend- ir gjaldmiðlar hafa'að meðaltali hækkað um 18,8% mælt í íslenzkum krónum. Mest er fall krónunnar gagnvart Banda- ríkjadal. Hann hefur hækkáð um 25,8% á þessum mánuðum sem þýðir fall krónunnar um 20,5%. I árslok 1988 var gengi dalsins kr. 46,28 en í gær var gengi hans kr. 59,16. Nú er fall krónunnar gagn- vart erlendum gjaldmiðlum eng- in nýjung. Hækkun innlends til- kostnaðar í framleiðslu, umfram hækkun verðs á útflutningsvör- um, kemur gjarnan fram með þessum hætti: í smærri krónum — verðbólgu. Og verðbólgan skekkir samkeppnisstöðu íslenzkra atvinnuvega og skerðir kaupmátt krónunnar. Fall krónunnar í tíð ríkis- stjómar Steingríms Hermanns- sonar sýnir, engu að síður, mis- vísun orða og efnda hennar að þessu leyti — sem á öllum öðrum sviðum. Flest efnisatriði í stefnuyfir- lýsingu ríkisstjómar Steingríms Hermannssonar hafa orðið sér til slcammar í framkvæmdinni, „stöðugleikinn í gengismálum" sem annað. Sama gildir að þessu leyti um ríkisstjórnina og gjald- miðilinn. Gengishrap hennar blasir við allra augum í endur- teknum skoðanakönnunum. Hverju reiddist Þjóðviljinn? Iforystugrein hér í blaðinu, sem skrifuð var í tilefni af fríhelgi verzlunarfólks, var sam- dráttur í verzlun m.a. rakinn til alhliða samdráttar í þjóðarbú- skapnum: taprekstrar undir- stöðugreina, minna vinnufram- boðs, nokkurs atvinnuleysis og rýrari kaupmáttar. í. greininni er og hátt verðlag hér á landi, einkum á matvöru, rakið að hluta til hærri skattheimtu [sölu- skatts] í verði vöru og þjónustu en í grannríkjum. Þessu reiðist Þjóðviljinn, fyrir hönd ríkisstjómarinnar og for- manns Alþýðubandalagsins og telur hátt verðlag hér á landi sök verzlunarinnar sjálfrar. Gleymd eru þau orð, sem blaðið hafði nýlega eftir Þresti Olafssyni, framkvæmdastjóra KRON, þess efnis, að hér sé illt að reka al- vöru verzlun með „þeirri álagn- ingu og þeim rekstrarskilyrðum sem nú eru“! Málsvöm Þjóðviljans fyrir skattastefnu ríkisstjórnarinnar, sem m.a. speglast í háu vöru- verði, skýtur skökku við það sem í blaðhaus stendur: „málgagn verkalýðshreyfingar"! Þar er nú annað hljóð úr horni en fyrr á tíð, enda blása í það skatt- heimtumenn og kerfiskarlar fremur en launþegár og neytend- ur. Ritstjórinn mætti gjaman, svona til tilbreytingar, skrifa eins og einn matarskatts- og kaupmáttarleiðara um skatt- heimtu ríkisstjórnarinnar, [m.a. 25% söluskatt] og framkvæmd- ina á „grundvallarstefnunni: stöðugleika í gengismálum“. Snorri Ingimarsson yfírlæknir: ! „Viljum gera folk að eigin náttúrulæknum“ Unnið að skipulagsbreytingum á innra starfi Heilsuhælis NLFÍ í Hveragerði Selfossi. „VEIGAMEST af öllu er að kalla gestinn sjálfan til ábyrgðar á eig- in heilsu. Við viljum kenna fólki, að það geti hagrætt lifnaðar- háttum sínum þannig að það auki heilbrigði sitt og bæti heilsuna," segir Snorri Ingimarsson nýráð- inn yfirlæknir Heilsuhælis Nátt- úrulækningafélags Islands í Hveragerði. „Það er mikilvægt að gestir hér skilji að þeir eru af líkama og sál og koma úr ákveðnu umhverfi. Þetta þríeyki hefiir áhrif hvert á annað.“ Út frá þessum þáttum sem Snorri nefnir er undir hans stjóm unnið að ýmsum nýjungum í starfsemi Heilsuhælis NLFI í Hveragerði og endurskipulagningu. Að jafnaði eru dvalargestir á Heilsuhælinu um 180 og yfirleitt miðað við að þeir dveljist þar í mánuð. Mikil eftirspurn er eftir dvöl á hælinu sem sést best á því að biðlistinn er 1.000-1.300 manns. Og aðsóknin eykst jafnt og þétt. Nærri lætur að 1% þjóðarinnar dvelji á Heilsuhælinu á ári hverju. Starfsemi Heilsuhælisins er í takt við heilbrigðisáætlun Alþjóða heil- brigðisstofnunarinnar (WHO) sem tillaga um íslenska heilbrigðisáætl- un byggir á. - Náttúrulækningafélag Islands er sjálfseignarstofnun sem á Heilsu- hælið í Hveragerði. Aðilar að NLFÍ eru Náttúrulækningafélag Akur- eyrar, Hafnarfjarðar og Reykjavík- ur. NLF Akureyrar hefur barist fyrir byggingu heilsuhælis þar og gert er ráð fyrir að það verði tekið í notkun eftir tvö ár. Starfsemi heilsuhælisins í Hvera- gerði er skipt í fimm svið, gigtar- svið, bæklunarsvið, krabbameins- svið, megrunarsvið og almennt svið. Vegna hinnar miklu aðsóknar getur dregist að fólk komist að en gestir koma inn á beiðni frá lækni. Við mat á umsóknum er reynt að meta aðstæður hvers og eins óg sam- ræma óskir fólks við aðstæðurnar sem fyrir hendi eru á Heilsuhælinu. Við komuna á hælið fara gestir fyrst í viðtal hjá hjúkrunarfræð- ingi, fá tilvísun inn á herbergi og kynningu á húsakynnum hælisins. Skipulag hælisins er kynnt með kynningarbæklingi um þá meðferð sem í boði er ásamt möguleikum á dægradvöl. Daginn eftir fær gesturinn viðtal hjá lækni og meðferð hans hefst. Misjafnt er hveiju gestirnir þurfa á Snorri Ingimarsson yfirlæknir við að halda. I allri meðferð er það leið- andi þáttur að hjálpa fólkinu til að hjálpa sér sjálft við að ná varanleg- um árangri. Meðferðin miðast að því að skapa nýjan lífsstíl hjá gest- unum sem þeir geti tileinkað sér eftir dvölina. Sjúkdómar tengjast lifiiaðarháttum Lifnaðarhættir á hveijum tíma flytja með sér nýtt sjúkdómamynst- ur. Þannig komu velferðarsjúk- dómar fram þegar fátæktar- og vankunnáttusjúkdómar hurfu. A öldinni sem leið voru það smitsjúk- dómar og hörgulsjúkdómar sem heijuðu á fólk en nú eru það hjarta- og æðasjúkdómar sem eru aðaldán- armein fólks. Náttúrulækninga- stefnan kom fram þegar smit- og hörgulsjúkdómar hurfu. Aðalflagg stefnunnar var að kenna fólki rétt mataræði. Þessi stefna er talin hafa skilað miklum verðmætum inn í nútímann. Mataræði hefur breyst mikið undanfama áratugi og núna er fólk meðvitað um hvað er hollt og hvað beri að forðast. „Úr velferðarsjúkdómunum er Morgunblaðið/Sigurður Jónsson sundlaug Heilsuhælisins sem er vinsæl af gestum og mikið notuð. samfélagið að fara inn í félagslega sjúkdóma, streitusjúkdóma, geð- ræna sjúkdóma, eiturlyíjaneyslu, sjálfsvíg og afleiðingar slysa. Þetta er það sem vex núna, fólk á við geðræn vandamál að stríða út af stressi og það kemur fram í líkam- legum og andlegum kvillum," segir Snorri Ingimarsson yfirlæknir. „Það er svo með andlegu hliðina á nútíma þjóðfélagi með mótmæla- trú, það er að segja sálgæsluna, hún er ekki þannig að hún létti á fólkinu eins og gerist með skriftun- um í kaþólsku samfélagi. Fólk byrg- ir því með sér vandamálin og reyn- ir að bæla þau sem svo aftur kem- ur fram í áðurnefndum sjúkdómum. Ef maður reynir að skilja hvað felst á bak við trúarbrögðin þá er mikill munur á því hvort fólk rækt- ar sinn guð með sér og það góða og jákvæða eða hvort það lítur á hann sem hlutrænan aðila og leyfir neikvæðum viðhorfum að ríkja í huga sér.“ Maðurinn er það sem hann hugsar „Það er ekki nóg að segja að Séð heim að Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði. maðurinn sé það sem hann borðar eihs og oft er sagt varðandi heil- brigt líferni. Það er ekki síðra að segja að maðurinn sé það sem hahn hugsar. Líkami og sál eru eitt á okkar jarðvistardögum, við breytum því ekki. Ef við hér hjá NLFÍ getum hjálpað fólkið að staldra við og sjá hvað hefur farið úr skorðum varð- andi líkamlegt og andlegt heilsufar, þá er vel. Fólk þarf að gera sér ljost hvers vegna það er komið hér og síðan að gera sér grein fyrir starfi sínu sem miðar að því að heilsan batni. Bæði gestirnir og starfsfólkið hér verða að gera sér grein fyrir þessu. Læknirinn á ekki að vera áberandi, hann á varla að sjást, hann á að verka, veita handleiðslu. Það er nauðsynlegt að horfa heildrænt á sjúklinginn. Aðalatriðið er að hann geri sér grein fyrir því hvers vegna hann hefur þær trufl- anir sem angra hann. Það er ástæða fyrir öllum kvillum. Það læknast enginn sem vill það ekki Hraðinn í okkar þjóðfélagi er svo mikill að við gefum okkur ekki tíma til að hlú að sjálfum okkur en það er mikið atriði. Fyrir fáum áratug- um voru til þriggja kynslóða fjöl- skyldur, síðan tveggja kynslóða en núna á fjölskyldan einungis sameig- inlegan gististað og víða eru þær ekki til. Þetta eru afleiðingar breyttrar þjóðfélagsskipunar og í þeim birtast þau vandamál sem við er að glíma. Til þess að ná árangri er nauðsynlegt að skilja orsakasam- band á milli hinna ýmsu þátta. Það er því mikilvægt að menn skilji að þeir eru af líkama og sál og koma úr ákveðnu umhverfi. Þetta þríeyki hefur áhrif hvert á annað. Það getur verið erfitt fyrir fólk að skilja samhengið á milli hinna ýmsu kvilla og aðstæðna viðkom- andi, á heimili eða á vinnustað. Þegar fólk aftur skilur kjarna máls- ins og kemst að honum þá er allt annað að lækna. Þá verður það virkt. Það er einmitt þannig að það læknast enginn sem vill það ekki sjálfur, sama hvað hann fær mikið af töflum eða grænmeti. Ætlum að vinna þjóðfélaginu gágn Við sem storfum hér þurfum að gera okkur grein fyrir því hvers konar vandamálum hælið á að þjóna og hvaða tökum á að beita til að taka á þeim vandamálum. Skipu- lagsbreytingarnar hérná miðast við þetta. Við erum að skoða hvað við getum gert í dag, hvað vel, hvað á ekki að gera og hvernig við getum best mætt vanda morgundagsins. Við reynum að skilgreina náttúru- lækningarnar og tökum einnig það besta frá hefðbundnum lækningum. Þetta nýtum við okkur í starfinu hérna. Okkur langar til að bæta okkur og hér þarf ýmislegt að lag- færa. Við bætum okkur best með því að hafa að leiðarljósi hvar sér- staða okkar kemur að mestum not- um. Vandamál okkar við reksturinn héma er hversu daggjöldin eru lág, þau eru til dæmis lægri en hjá dval- arstofnunum sem veita enga með- ferð. Við emm hér með hressingar— og endurhæfingárstofnun með fag- menntuðu starfsfólki og nauðsyn- legum búnaði til að sinna þörfum dvalargesta. Við ætlum að vinna þjóðfélaginu gagn. Hér er gott starfsfólk og mikið af ungu og áhugasömu fólki og það gleður mest að allir eru mjög jákvæðir í garð þess sem á að gera. Það er staðreynd að umhverfið mótar okkur til góðs og ills. Við þurfum að skilja þetta orsakasam- band til að geta orðið okkar eigin náttúmlæknar. Það er alls staðar vaxandi skilningur fyrir líkamlegri, sálarlegri og félagslegri endur- hæfingu. Hún miðast að því að fólk geti snúiðt aftur út í þjóðfélagið og orðið að liði þar. Við viljum að fólk- ið fari héðan með eitthvað með sér og að það verði eigin náttúmlæknar að meðferð lokinni. Heilsuskóli á döfinni Það er mikilvægt að fólk kunni að bregðast við vandamálum sem steðja að. Það þarf að hafa aðra kosti en að tæma ísskápin eða drekka brennivín til að takast á við sálarflækjurnar," segir Snorri Ingi- marsson yfirlæknir. Á Heilsuhælinu er heilsuskóli í undirbúningi. Með heilsuskóla er átt við að almenn fræðsla og hand- leiðsla fyrir dvalargesti verði í föst- um skorðum. Einnig verður gert ráð fyrir sérfræðslu á sviðunum vegna gigtar, krabbameins, offitu og bæklunar. Endurhæfingin fyrir krabba- meinssjúklinga verður rekin í sam- vinnu við krabbameinsdeild Land- spítalans og heimahlynningu Krabbameinsfélags íslands. Hug- myndasmiðurinn að þessari endur- hæfingu var góðvinur Snorra, Óskar Kjartansson gullsmiður sem lést í byijun árs 1988 úr krabba- meim. Endurhæfing á öðmm sviðum verður rekin í samvinnu við aðila sem starfa á þessum vettvangi í þjóðfélaginu. Með endurhæfingu verður fólkinu boðið upp á ákveðna kjarnameðferð sem allir fara í gegn- um en einnig verða í boði valgrein- ar eða möguleikar af ýmsum toga. „Við útilokum ekki neitt í þessu sambaridi," segir Snorri yfirlæknir, „það em engir fordómar gagnvart neinu. Það er til dæmis dýpri skiln- ingur í allri okkar tjáningu og við þurfum að hjálpa fólki að tjá tilfinn- ingar og skilaboð út frá Iíkams- ástandi sínu og þessi tjáning getur verið með ýmsu móti.“ Snorri segir að valgreinar með þessa tjáningar- möguleika verði í boði til dæmis list- ræn tjáning í gegnum hljómlist og myndlist. Hann segir ennfremur að einn af þeim möguleikum ■ sem Heilsuhælið gefi í þessu efni sé að gestir geti tekið maka með í þessa meðferð og það sé mjög þýðingar- mikið vegna þess að alvarlegur heilsubrestur í fjölskyldu sé ekki einkamál einstaklings heldur þurfi handleiðslu fleiri til að takast á við sKkan vanda. _ gig Jóns VINSTRISTJÓRN- IN 1971-1974 eftir Birgi ísl. Gunnarsson Vinstri stjórnum fylgja sameigin- leg einkenni við stjórn efnahags- mála, eins og ég gerði grein fyrir hér í blaðinu fyrir skömmu. I kjöl- farið fjallaði ég síðan um vinstri stjórn Hermanns Jónassohar 1956-58 í sérstakri grein. Hér verð- ur fjallað um vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar 1971-1974. Ný vinstri stjórn Við reglulegar þingkosningar 1971 urðu úrslit þau að Sjálfstæðis- flokkur og Alþýðuflokkur, sem staðið höfðu að viðreisnarstjómun- um undanfarin 12 ár, misstu þing- meirihluta sinn. Nýr stjómmála- flokkur undir fomstu Hannibals Valdimarssonar hafði komið fram og fengið 5 þingmenn kjörna. Mán- uði eftir alþingiskosningamar myndaði Ólafur Jóhannesson nýja vinstri stjórn með þátttöku Fram- sóknarflokksins, Alþýðubandalags- ins og hins nýja flokks, Samtaka fijálslyndra og vinstri manna. ítarlegur málefiiasamningur Málefnasamningur þessarar ríkisstjómar var ítarlegur og þar m.a. fjallað um margt sem snerti efnahags-, kjara og atvinnumál. Skipulagshyggja einkenndi mjög stefnu og störf þessarar ríkisstjóm- ar. Af þeim sökum var sett upp mikið bákn, Framkvæmdastofnun ríkisins, sem skipuleggja átti fjár- festinguna í landinu undir pólitískri yfírstjóm. Enn kom fram sú trú aðstandenda þessarar ríkisstjórnar að reyna að stýra athöfnum ein- staklinga og fyrirtækja með stjórn- valdsathöfnum í stað þess að grípa til almennra hagstjórnaraðgerða. Flest fór úr böndunum Þrátt fyrir að mörgu leyti hag- stæð ytri skilyrði breyttist ástand efnahagsmála fljótt til hins verra og lítið varð um efndir á þeim lof- orðum sem glaðbeittir vinstri ráð- herrar gáfu í upphafí starfsferils síns. Nefna má nokkur dæmi um það sem úr böndum fór. Á tímum viðreisnar hafði verð- bólga verið hófleg, en nú æddi hún áfram með miklu meiri hraða en áður. Á árinu 1974 stefndi verð- bólgan í yfir 50% og ríkisstjómin réð ekki við neitt. Viðskiptahalli jókst mjög ört. Síðustu ár viðreisnarstjórnarinnar hafði viðskiptajöfnuður verið hag- stæður, en nú snérist dæmið við. Öll ár þessarar vinstri stjómar var halli á viðskiptum við útlönd. Þetta leiddi til mjög versnandi gjaldeyris- stöðu. Erlendar skuldir jukust stór- Birgir ísl. Gunnarsson „Stjórnmálaástand nú minnir um margt á það sem gerðist veturinn 1973-74. Að völdum sit- ur úrræðalaus og óvin- sæl ríkisstjórn. Sveitar- stjórnarkosningar verða í maí á næsta vori og á það vafalaust eftir að auka á óróleika innan stjórnarflokk- anna. Við skyldum þó aldrei fá tvennar kosn- ingar næsta vor eins og 1974?“ lega, en þær tvöfölduðust á þremur árum. Aukin skattheimta Ríkisútgjöldin stóijukust og mik- ill greiðsluhalli var fyrirsjáanlegur á ríkissjóði þegar stjórnin fór frá 1974. Eins og tíðkast hjá vinstri' stjórnum var skattbyrði þyngd mjög. Hlutur hins opinbera, þ.e. ríkis og sveitarfélaga, óx úr 30% af þjóðarframleiðslu 1970 í 35,5% 1973. Viðskiptabankarnir áttu við mikla fjárhagserfiðleika að etja. Lausaijárstaða þeirra versnaði jafnt og þétt. Spariinnlán drógust saman. Fólk sá að sparnaður þess brann upp á báli verðbólgunnar og leitaði því annarra leiða til að varðveita sparnað sinn. Stjórnin hélt og vöxt- um niðri með handafli. Fjölmargir opinberir sjóðir voru komnir í þrot og á árinu 1974 stefndi í stórkost- legan greiðsluhalla hjá mörgum opinberum sjóðum og fyrirtækjum. Öll þessi ringulreið í efnahags- málum leiddi til þess að hallarekst- ur blasti við í sjávarútvegi, bæði í veiðum og vinnslu. Ljóst var þvi að grípa yrði til róttækra aðgerða í efnahagsmálum þegar kom fram á árið 1974. Ríkisstjórnin lagði þá fram frumvarp til laga um viðnám gegn verðbólgu. Frumvarpinu fylgdi ítarleg greinargerð „hag- rannsóknarstjóra“ um efnahags- horfur 1974. Flestar fullyrðingar um ástandið sem fram koma hér að framan eru teknar úr þeirri greinargerð. Stjórnin fellur Frumvarpið var um margt ófull- komið. Ósamkomulag var um efni þess innan ríkisstjórnarinnar og fram tekið að stjórnarflokkamir hefðu óbundnar hendur um einstök atriði frumvarpsins. Samtök fijáls- lyndra og vinstri manna klofnuðu og þinglið flokksins hætti að styðja ríkisstjórnina nema Magnús Torfi Ólafsson menntamálaráðherra. Þar með hafði ríkisstjórnin misst meiri- hluta sinn á Alþingi. Fram kom til- laga um vantraust, en Ólafur Jó- hannesson forsætisráðherra rauf þing og boðaði til kosninga áður en vantraustið komst á dagskrá. Þetta var 8. maí og kosningar boð- aðar 30. júní 1974. Þótt ekki hefði verið boðað til þingkosninga var ijóst að þetta vor yrði tíðindasamt í stjórnmálum. Sveitarstjórnarkosningar stóðu fyr- ir dyrum þann 26. maí 1974 og var undirbúningur þeirra hafinn þegar hér var komið sögu. Einhveiju kann það að hafa ráðið um endalok þess- arar stjómar. Ríkisstjórnarflokk- amir fundu andbyrinn og hafa því vafalaust sumir grátið það þurrum támm að losna úr prísundinni. Tvennar kosningar Kosningaúrslit í sveitarstjórnar- kosningunum vom nokkur vísbend- ing um það sem koma skyldi í al- þingiskosningunum. Helsti stjórn- arandstöðuflokkurinn, Sjálfstæðis- flokkurinn, vann einn sinn stærsta sigur og fékk í Reykjavík t.d. hærra hlutfall en hann hafði áður fengið. Alþingiskosningar staðfestu síðan fall vinstri stjórnarinnar, en mestan sigur vann Sjálfstæðisflokkurinn. Geir Hallgrímsson myndaði síðan ríkisstjórn sem sat út kjörtímabilið. Stjórnmálaástand nú minnir um margt á það sem gerðist veturinn 1973-74. Að völdum situr úrræða- laus og óvinsæl ríkisstjórn. Sveitar- stjórnarkosningar verða í maí á næsta vori og á það vafalaust eftir að auka á óróleika innan stjórnar- flokkanna. Við skyldum þó aldrei fá tvennar kosningar næsta vor eins og 1974? Höfundur er einn af alþingismönnum Sjálfstæðisflokks fyrir Reykja víkurkjördæmi. Hólahátíð á sunnudag Prestafélag Hólastiftis, Hólanefiid og Hólafélagið standa fyrir ár- legri Hólahátíð sunnudaginn 13. ágúst nk. Hátíðin hefst kl. 14 með guðsþjónustu og mun herra Ólafiir Skúlason biskup íslands predika. Kirkjukór Ilvammstangakirkju syngur undir stjórn Helga S. Ólafs- sonar og nokkrir prestar úr Hólastifti þjóna fyrir altari. Að afiok- inni messu mun Hólanefnd bjóða kirkjugestum til kaffidrykkju í húsakynnum Bændaskólans. Hátíðarsamkoma hefst síðan í Dómkirkjunni kl. 16.30. Þar syngur þýskur ungmennakór, gospelkór, undir stjórn Wolfgangs Knut, en einnig syngur kirkjukór Hvamms- tangakirkju nokkur lög. Hátíðar- ræðuna flytur séra Hjálmar Jónsson prófastur á Sauðárkróki og mun hann ræða um „Hólabókina", sálmabók Guðbrands biskups Þor- lákssonar, sem út kom 1589 og á því 400 ára afmæli á þessu ári. Ávarp flytur síðan sr. Sigurður Guðmundsson vígslubiskup og loka- orð sr. Gísli Gunnarsson. Við Hólahátíðina á sunnudaginn verður þess minnst og fagnað þeim áfanga sem náðst hefur við upp- byggingu kirkjunnar á Hólum, en í sumar hefur verið unnið að við- gerðum kirkjunnar að utan, hún múrhúðuð að nýju og máluð hvít, nema forkirkjan sem er með hinum rauða lit sem var í upphafi. Þannig að vel er sjáanlegt hvernig kirkjan leit út er hún var vígð árið 1763. Þá hafa farið fram gagngerar end- urbætur á kirkjugarðinum, leg- steinum lyft, jarðvegur jafnaður og garðurinn þakinn. Á síðastliðnu ári var kirkjan end- urgerð að innan og þess minnst með hátíð þann 4. desember sl. Aðalfundur Hólafélagsins verður einnig haldinn sunnudaginn 13. ágúst kl. 11 árdegis en félagið var stofnað 1964. Aðalmarkmið félags- ins er að beita sér fyrir samtökum meðal þjóðarinnar um eflingu Hóla- staðar á sem víðtækustu sviði. Skal höfuðáhersla lögð á endurreisn biskupsstóls að Hólum og eflingu staðarins sem skólaseturs. Að því skal stefnt að Hólar verði í framtíð- inni andleg aflstöð og kirkjuleg miðstöð í Hólastifti. _ BB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.