Morgunblaðið - 27.08.1989, Side 8

Morgunblaðið - 27.08.1989, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK SUNNUDAGUR 27. AGUST 1989 T tt A er sunnu(Jagur 27. ágúst, 14. sd. eftir Trínitat- L U A.VJr is. 239. dagur ársins 1989. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 3.36 og síðdegisflóð kl. 16.06. Sólarupprás í Rvík kl. 5.55 og sólarlag kl. 21.02. Myrkur kl. 21.57. Sólin er í hádegisstað kl. 13.29 og tunglið er í suðri kl. 10.34. (Alman- ak Háskóla íslands.) Og þótt hann sonur væri, lærði hann hlýðni af því, sem hann leið. (Hebr. 5,8.-9.) ARNAÐ HEILLA Q A ára afmæli. Á morgun, OU mánudaginn 28. ágúst, er áttræður Jón Stefánsson, Heiðarvegi 50, Vestmanna- ejjum. Um 20 ára skeið var hann næturvörður á Vest- mannaeyja-radíói. Kona hans er frú Elísabet Kristjánsdótt- K /\ ára afmæli. Á morgun D\J 28. ág., er fímmtug Kamma Agnethe Níelsdótt- ir fóstra, Furulundi 5, Garðabæ. Hún er forstöðu- kona leikskólans Kirkjuból þar í bænum. Hún ætlar að taka á móti gestum í dag, sunnudag, á heimili sínu eftir kl. 15. Magnús Guðjónsson bif- vélavirki sem er níræður í dag, er til heimilis að Lang- holtsvegi 71, ekki 7 eins og misritaðist hér í gær. P A ára afmæli. Á morgun ÖU 28. ágúst, er sextugur Þorgeir Þorsteinsson lög- reglustjóri á Keflavíkur- flugvelli, Grænási 3. Kona hans er frú Kristín Svein- bjömsdóttir. Þau em að heim- an. SKIPIN RE YK JA VIKURHOFN: í dag, sunnudag, er Skógar- foss væntanlegur að utan og á morgun, mánudag, kemur togarinn Ásbjörn inn til lönd- unar. Rússneska rannsóknar- skipið Akademik Ioffe fer aftur í dag. HAFNARFJARÐAR- HOFN: Nú um hejgina fer Isnes á ströndina. S víakonungur fær að veiða 10 ln’eindýr tGrtfU^lD Standið kyrr, bjánarnir ykkar. Þetta er kannski eina tækifærið sem þið hafið á ævinni til að falla fyrir konunglegri kúlu ...! FRÉTTIR/MANNAMÓT Á MORGUN hefst vinnuvik- an og er það hin 35. viðskipta- vika yfirstandandi árs. ÞJÓÐKIRKJAN. í nýju Lög- birtingablaði auglýsir biskup íslands, herra Olafur Skúla- son, laust til umsóknar hið nýja prestakall í Reykjavík: Grafarvogssókn. Einnig Stað í Súgandafírði, Staðar- sókn. Er umsóknarfrestur um þessar tvær sóknir til 10. september nk. Þá auglýsir biskup einnig lausa stöðu deildarstjóra fyrir fræðslu- og þjónustudeild Þjóðkirkj- KROSSGATAN œ 9 F3 13 ■ ■ TT ■ '21 122 23 24 unnar, sem er tilkomin vegna skipulagsbreytinga innan Þjóðkirkjunnar. Sr. Bern- harður Guðmundsson fréttafulltrúi er forstöðu- maður þessarar deildar. LÆKNINGALEYFI. I tilk. í Lögbirtingablaðinu frá heil- brigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu segir að það hafi veitt þessum læknum leyfi til að stunda almennar lækning- ar hérlendis: cand. med. et chir. Kristjáni G. Guð- mundssyni, Cand. med. et chir. Elsu Guðmundsdóttur, cand. med et chir. Grethe Have, cand. med. et chir Guðna Arinbjamar, cand. med et chir. Helgu K. Magn- úsdóttur, cand med. et chir. Þóm Steinunni Steffensen, cand. med. et chir. Þorsteini Skúlasyni. LÁRÉTT: — duftið, 5 ald- an, 8 vindhviðan, 9 lagar, 11 trufla, 14 erfiði, 15 menn, 16 ákveð, 17 horaður, 19 for- ræði, 21 vansæmd, 22 uppi- stöðunum, 25 fugl, 26 strá, 27^vesæl. LÓÐRÉTT: — 2 snjó, 3 fugl, 4 hímir, 5 lamdar, 6 aula, 7 umfram, 9 sjávardýr, 10 tveggja króna, 12 gera strítt, 13 hagnaðinum, 18 fískar, 20 lést, 21 einkennis- stafir, 23 fersk, 24 frumefni. LAUSN SIÐUSTU KROSSGÁTU LÁRÉTT: — 1 skots, 5 hátta, 8 atlot, 9 ónæði, 11 ragan, 14 net, 15 æsing, 16 urtur, 17 steg, 19 item, 21 átta, 22 gálaust, 25 urt, 26 æru, 27 ali. LÓÐRÉTT: — 2 kyn, 3 tað, 4 stings, 5 hortug, 6 áta, 7 tía, 9 ódæðinu, 10 ægilegt, 12 götótta, 13 nartaði, 18 ætar, 20 má, 21 ás, 23 læ, 24 uu. SAMTÖK um sorg og sorg- arviðbrögð hafa opið hús kl. 20. nk. þriðjudagskvöld í safnaðarheimilinu Borgum, Kastalagerði 7 í Kópavogi.- Á sama tíma eru veittar uppl. og leiðbeining í s. 46820. FRIMERKIÐ sem gefið verð- ur út í tilefni af aldarafmæli Bændaskólans á Hvanneyri kemur út 20. september næstkomandi. Að vanda, á útgáfudegi, verður í notkun í Gamla pósthúsinu hér í Mið- bænum, hinn sérstaki dag- stimpill. Hann líturþannig út. STYRKTARFÉL. lamaðra og fatlaðra, Kvennadeildin, ætlar að fara í haustferð nk. laugardag 2. september. Verður farið austur að Gull- fossi og Geysi. Lagt verður af stað frá Háaleitisbraut ll-T8-klukkan 10. — Nánari uppl. um ferðina veita þær Sigríður í s. 53904, María s. 51608 eða Edda í s. 72523. ÞETTA GERÐIST 27. ágúst ERLENDIS: 1789: Franska þingið birtir yfirlýsingu um mannréttindi. 1828: Uruguay lýst sjálfstætt ríki. 1962: Giuseppe Garibaldi, ítalskur þjóðernissinni, hand- tekinn. 1891: Frakkar og Rússar skrifa undir vinskaparsamn- ing. 1945: Bandarískar hersveitir hefla landgöngu í Japan. 1961: Ben Khedda myndar bráðabirgðastjóm í Alsír. 1966: Komið upp um sam- særi til að steypa stjóm Chad. 1975: Haile Selassie, fyrmm Eþíópíukeisari andast. 1979: Mountbatten lávarður ráðinn af dögum. Skæruliðar IRA lýsa ábyrgð á hendur sér. HÉRLENDIS: 1867: Eldgos í Skaftáijökli hefst. 1877: íslenzkur söfnuður stofnaður í Manitoba. 1896: Harður landskjálfta- kippur í Vestmannaeyjum. 1914: „Skúli fógeti" rekst á tundurdufl við England og sekkur. 1925: Grænlenzkur prestur vígður í ísafjarðarkirkju. 1951: Listasafn íslands opn- að. 1971: Friðrik Ólafsson Norð- urlandameistari í Reykjavík. 1974: Geir Hallgrímsson myndar ríkisstjóm. 1879: Sir Rowland Hill, faðir frímerkisins látinn. MORGUNBLAÐIÐ FYRIR 50 ÁRUM Kaupmannahöfn. Frá fréttaritara vorum. Á síðustu stundu hefiir vaknað veik von um að takast megi að bjarga friðnum í álfúnni, þar eð samningsgerð Þjóðveija og Sovét-Rússlands leiddi ekki af sér friðslit. Sendi- herra Breta i Berlín kom í morgun til Lundúna. Allir vissu að hann hafði meðferðis málamiðlun- artillögu til bresku stjórnarinnar, frá Hitler. Mikil fúndahöld hafa ver- ið í Lundúnum i dag. Á morgun er gert ráð fyrir að sendiherrann snúi aft- ur til Berlínar með svar bresku stjómarinnar. Sendihermm Þýskalands í Belgiu og Hollandi fengu fyrirmæli frá stjórn sinni um að tilk. Hollend- ingum og Belgum að þýski herinn muni ekki ráðast á lönd þeirra þó til styijaldar dragi með- an þau gæta strangasta hlutleysis. í Þýskalandi sjálfú er all- ur undirbúningur undir það að til ófriðar dragi í fiillum gangi. Allar flug- vélar hafa verið kallaðar heim svo og öll skip. Varaliðsmenn, allt að 50 ára að aldri, hafa verið kvaddir til herþjónustu. Frá alheims skákmót- inu í Buenos Aires bámst þær fréttir að þar hefðu Islendingamir i sinni fyrstu skák mætt Hol- lendingum og tapað fyrir þeim með 2vinning gegn l!é vinning. Ein skák hafði unnist, önnur jafn- tefli og tvær tapskákir. ORÐABÓKIN Orðabókin Stór eða lítill stafur Oft vefst fyrir mönnum, hvort eða hvenær skuli nota lítinn eða stóran staf. Aðal- reglan er sú að hafa stóran staf í upphafi málsgreinar á eftir punkti og enn fremur í fyrsta orði fyrirsagnar. í seinni tíð hefur hins vegar nokkuð borið á því í auglýs- ingum og eins á veggspjöld- um, að eingöngu séu notað- ir Iitlir stafir, vafalaust til þess að vekja meiri athygli, þar sem það stingur í stúf við almenna venju. Menn staldra þá ósjálfrátt við og taka að lesa textann. — Stór stafiir skal vera í íbúaheitum og þjóðaheit- um. Þannig á að skrifa Reykvíkingur, Eyfirðingur, íslendingur, Dani, Þjóðveiji með stórum staf. Svo hafði verið gert óslitið töluvert á aðra öld eða þar til þessu var breytt af Menntamála- ráðuneytinu 1974. Eftirþað skyldi hér vera lítill stafur. Ekki stóð sú dýrð lengi, enda komu upp ýmis vanda- mál, sum næsta hjákátleg. Þannig átti víst að skrifa Hólsfjallahangikjöt með stórum staf, en hólsfjalla- menn með litlum staf. Árið 1977 var svo horfið að mestu til fyrri reglna. Samt má enn í dag sjá íbúaheiti og þjóðaheiti skrifuð með litlum staf. Þar sem það fer gegn reglum, er á þetta bent hér. -JAJ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.