Morgunblaðið - 27.08.1989, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 27.08.1989, Qupperneq 24
C.L 24 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMÁ SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 1989 ATVINNIIA UGL YSINGA R Vantar þig vinnu? Okkur vantar duglegan og hressan starfs- mann til vinnu allan daginn. Starfið er al- menn skrifstofuvinna, innheimta og umsjón með banka- og tollviðskiptum. Umsækjandi þarf að hafa bílpróf, kunna ensku og vera á aldrinum 25-35 ára. Laun eru samkvæmt samkomulagi og reynslu viðkomandi. Vinsamlegast sendið skriflega umsókn til auglýsingadeildar Mbl. merkta: „W - 6386“ eða á skrifstofu okkar í Faxafeni 9. Hrbtján^on hF UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN Sími 678800. FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Húsvörður Húsvörður óskast í fullt starf fyrir sambýlis- hús. Aðeins umgengnisgott og reglusamt fólk kemur til greina. Húsvörður annast minni háttar viðhald og hefur umsjón með fram- fylgni húsreglna. Góð íbúð fylgir starfinu. Nánari upplýsingar gefur Birgir Ottósson, húsnæðisfulltrúi, í síma 680980. Umsóknarfrestur er til 3. september. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, á sér- stökum eyðublöðum sem þar fást. Rafmagns- verkfræðingur 27 ára nýútskrifaður rafmagnsverkfræðingur með mastergráðu á stýringasviði, er einnig rafvirki, óskar eftir fjölbreyttu framtíðarstarfi. Tilboð sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 6. september rnerkt: „Framtíðarstarf-6382“. Atvinna óskast Þrítugur fjölskyldumaður óskar eftir traustri framtíðarvinnu. Upplýsingar í síma 621504 eftir kl. 20.00. 26 ára maður stúdent af viðskiptasviði, tölvufræðibraut, vanur skrifstofustörfum og afgreiðslu, óskar eftir starfi. Upplýsingar í síma 626640. Rennismiður vanur verkstjórn, viðgerðum og fleiru óskar eftir vellaunuðu starfi. Margt kemur til greina. Upplýsingar í síma 667102 eftir kl. 19.00. Athugið! 21 árs gamall maður frá Danmörku óskar eftir starfi í V2 ár á íslandi. Hvað sem er kem- ur til greina og öll tilboð tekin til athugunar. Vinsamlegast hafið samband við: Asbj0rn Andreasen, Agervej 7, 8464 Galten, Danmörk. Sími 9045-86943458. Ritari Sérhæft þjónustufyrirtæki vill ráða ritara með stúdentspróf af viðskiptasviði til al- mennra skrifstofustarfa. Einhver bókhalds- og enskukunnátta kæmi sér vel. Umsóknir og upplýsingar fást á skrifstofu okkar. Crt IÐNT lÚNSSON RÁÐCJÓF & RÁÐN l NCARhjÓN LISTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Leirmunagerð Óskum að ráða starfsfólk til leirmunagerðar. Stundvísi og reglusemi nauðsynleg. Engar upplýsingar veittar fyrirfam en umsækjendur sendi nafn, heimilisfang og símanúmer ásamt stuttri lýsingu á fyrri störfum. - Glithf., Höfðabakka 9, 112 Reykjavík. Sölumaður Óskum að ráða sölumann/konu 25-35 ára í tímabundið verkefni gegn prósentum. Verður að hafa bíl til umráða og geta farið út á land. Um framtíðarstarf gæti verið að ræða. Upplýsingar á milli kl. 14.00-17.00 á mánu- dag. 52 HF., Hafnarstæti 15. Thermotane - glerframleiðsla vantar nú þegar starfsfólk til starfa í verk- smiðju okkar í Mosfellsbæ. Upplýsingar á skrifstofu okkar milli kl. 8 -16. Glerverksmiðjan Esja hf., Völuteig 1-3, sími 666160. Sölumenn Tölvufræðslan leitar að reyndum og góðum sölumönnum. Viðkomandi verður að vera hress, skemmtilegur og tilbúinn að leggja sig fram við að ná settum markmiðum. Tölvufræðslan er ungt og lifandi fyrirtæki á stöðugri uppleið. Ef þú hefur hæfilegt sjálfs- traust og langar til að slást í hópinn, þá hafðu samband við Einar Mathiesen í síma 626655 á skrifstofutíma. |T ÖLVUFRÆÐSLAN Borgartúni 28. Læknafulltrúi Læknafulltrúi óskast til starfa í 100% vinnu frá 15. september nk. Nauðsynlegt er að læknafulltrúi hafi réttindi til starfa sem læknaritari. Starfið felur í sér ritun, skýrslugerð og umsjón með gögnum er varða vistmenn á Hrafnistu auk annarrar ritaravinnu. Æskilegt er að læknafulltrúi hafi vald á tölvuvinnslu. Upplýsingar um starfið veitir Ýta Atladóttir, hjúkrunarforstjóri, í símum 35262 og 689500. Verkstjóri á réttingaverkstæði Óskum eftir að ráða verkstjóra á réttinga- verkstæði okkar á Nýbýlavegi 8, Kópavogi. Starfið er fólgið í eftirfarandi: 1. Almenn verkstjórn og eftirlit. Skilyrði fyrir ráðningu er: 1. Sveinsréttindi í bifreiðasmíði. 2. Reynsla. 3. Þjónustulund. 4. Góð og örugg framkoma. 5. Samstarfsvilji. 6. Reglusemi og góð umgengni. 7. Meðmæli. Skriflegar umsóknir ásamt meðmælum sendist til okkar fyrir 1. sept. nk. merktar: „Starfsumsókn - verkstjóri". Upplýsingar um ofangreint starf eru ekki gefnar í síma. Öllum umsóknum verður svarað. TOYOTA Nýbýlavegi 8, 200 Kópavogur. QUUl 62 33 88 Símsvörun hjá Gulu línunni Gula línan er upplýsingabanki um vörur, þjón- ustu og umboð. Þú hringir bara í síma 62 62 62 og við gefum þér án tafar traustar upplýsingar um hverjir geti veitt þér þá þjón- ustu sem þú þarft á að halda, hvar þú fáir þær vörur sem þig vanhagar um og hverjir hafi umboð fyrir tiltekna vöru, vöruflokk eða vörumerki. Gula línan gefur þér rétt svar, ókeypis og án tafar. Getur þú svarað vel í síma? Hefurðu þolin- mæði og áhuga á þjónustustarfi? Laukstu stúdentsprófi? Ertu að leita að framtíðar- starfi? Geturðu hafið vinnu strax? Svarirðu þessum spurningum játandi þá vilj- um við hjá Gulu línunni fá umsókn frá þér fyrir 29. ágúst, annað hvort senda til auglýs- ingadeildar Mbl. merkta: „G - 9009“ eða til Gulu línunnar, pósthólf 155, 121 Reykjavík. Forstöðumaður leikskóla Við leitum nú að áhugasömum forstöðu- manni að leikskóla okkar, Bakkaskjóli í Hnífsdal. Skilyrði er að viðkomandi hafi að baki fóstrumenntun. í boði er ódýrt leiguhús- næði ásamt flutningsstyrk fyrir starfsmann utan héraðs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar gefur félagsmálastjóri í síma 94-3722. „Au pair“ íslensk hjón í Brússel með 3ja ára dóttur óska eftir „au pair“, sem fyrst. Helst ekki yngri en 20 ára. Verður að hafa bílpróf. Uppl. í síma 673808, milli kl. 10-12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.