Morgunblaðið - 27.08.1989, Page 36

Morgunblaðið - 27.08.1989, Page 36
MORGUNBLADID, AÐALSTRÆTl 6. 101 REYKJAVÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, POSTIIÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆT! 85 SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 1989 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. ísafjörður; Glæfraakst- ur í Óshlíð ^TVEIR menn voru teknir fyrir glæfra- legan akstur í Oshlíð, ein- um hættuleg- asta vegar- kafla lands- ins, aðfara- nótt laugardagsins. Mennirnir voru báðir færðir á lögreglustöðina á ísafirði og sviptir ökuleyfi til bráðabirgða. Annar þeirra hafði ekið á 138 kíló- metra hraða, hinn á 114 kílómetra hraða. Bílaborgar- húsið tíl sölu HÚS Bíla- borgar við Fossháls hef- ur verið aug- Iýst til sölu. Að sögn Kristins BreiðQörð stjórnarformanns fé- lagsins er ætlunin að selja allt húsið, sem er 7.340 fermetrar að flatarmáli, eða hluta þess eftir atvikum. Brunabótamat hússins er um 600 milljónir króna en brunabótamatið gefúr ekki endilega vísbendingu um söluverð, að sögn Sverris Krist,- inssonar hjá Eignamiðlun, sem annast sölu húss Bílaborgar. Hann taldi ekki unnt að svo stöddu að áætla hvert yrði 'Tíiklegt söluverð hússins. Að sögn Kristins Breiðfjörð er húsið sett á söluskrá til að létta fjármagns- kostnaði af fyrirtækinu. Bílaborg flutti starfsemi sína í nýbyggt húsið í maímánuði 1987, skömmu áður en verulegur samdráttur varð í bílasölu. Er húsið of stórt fyrir umsvif Bílaborgar nú auk þess sem mikill fjármagnskostnaður hefur verið byrði á rekstrinum. Stunginn hnífi á veit- ingahúsi RÚMLEGA tvítug stúlka veitti manni um þrítugt hættulegan áverka með hnífi á veitingahúsi við Austurstræti á þriðja tíman- um aðfaranótt laugardagsins. nnHir aðurinn var fluttur á sjúkra- hús þar sem hann gekkst undir bráðaaðgerð. Ekki hafði frést af líðan hans um hádegi á laugardag. Stúlkan var handtekin og færð til yfirheyrslu hjá Rannsóknarlög- reglu. Óljóst var um málsatvik á laugardag en þá var rannsókn að heíjast. Akvörðun hafði ekki verið -^ekin um hvort gæsluvarðhalds yrði krafist. Morgunblaðið/M og M Tugmilljóna ijón á Eskifírði Slökkviliðsmenn að störfiim við fiskvinnsluhús Þórs hf. á Eski- íirði skömmu eftir að eldsins varð vart á föstudagskvöld. Slökkvi- starfi lauk um klukkan hálftvö um nóttina. Húsið skemmdist mik- ið ásamt tækjum sem í því voru og nemur tjónið tugum milljóna kr. Húsið er steinsteypt og standa útveggir þess en þakið er fall- ið að hluta. Óvíst er um eldsupptök. í gær komu menn frá Rann- sóknarlögreglu ríkisins og Brunamálastofnun til Eskifiarðar og munu þeir rannsaka málið í samvinnu við lögregluyfirvöld staðar- ins. Einn maður bjó í húsinu en hann var ekki í herbergi sínu þegar eldurinn kom upp. Tíu skip í smíðiun erlendis að verðmæti tveir milljarðar kr. FYRIR íslenska aðila eru í smíðum 10 skip erlendis að verðmæti um 1.950 milljónir króna, þar af 4 skip í Póllandi, 4 í Portúgal, 1 í Noregi og 1 í Svíþjóð. Skipin eru samtals um 3.400 brúttótonn, sam- kvæmt upplýsingum Siglingamálastofhunar ríkisins. I smíðum innan- lands eru að minnsta kosti 16 smábátar undir 10 tonnum. Skipa- smíðastöð Marsellíusar hf. á ísafirði afhendir Nirði hf. 143ja tonna skip um helgina. Skipið kostar 130-135 milljónir kr., að sögn Sæv- ars Birgissonar framkvæmdastjóra stöðvarinnar. Tvö óseld og ókláruð Skip eru í slippstöðinni á Akureyri og Skipa- smíðastöð Njarðvíkur. Skipið á Akureyri er um 250 tonn en í Skipasmíðastöð Njarðvíkur er 140 tonna skipsskrokkur sem metinn er á um 25 milljónir króna, að sögn Jóns I. Pálssonar framkvæmda- stjóra. I Póllandi eru í smíðum 195 tonna frystitogari fyrir Hópsríes hf. í Grindavík, 300 tonna skip fyrir Gletting hf. í Þorlákshöfn, 65-70 tonna skip fyrir Jökul hf. á Sauðár- króki og 800 tonna skip fyrir Gunn- vör hf. á ísafirði. Jökulskipið kemur í lok september nk. ; stað Týs SK, 40 tonna eikarbáts. Hann er 44 ára gamall og verður úreltur. Gunn- vararskipið kemur trúlega til lands- ins í október nk. Það kostar um 450 milljónir króna. Verið er að reyna að selja Júlíus Geirmundsson ÍS, bæði innanlands og erlendis, og hugsanlega fást um 150 milljónir kr. fyrir skipið, að sögn Vignis Jóns- sonar sem situr í stjórn Gunnvarar. Glettingsskipið kostar tæplega 200 milljónir kr. Það kemur í stað Jóhanns Gíslasonar ÁR og verður afhent í byijun næsta árs. Hugsan- Iegt er að Jóhann Gíslason ÁR verði seldur en ekki úreltur og eitt eða tvö „lélegri“ skip keypt í stað hans, að sögn Þorleifs Björgvinssonar framkvæmdastjóra Glettings. Hópsnesskipið á að kosta tæpar 200 milljónir króna, að sögn Jens V. Óskarssonar skipstjóra. Skipið kemur í fyrsta lagi um mánaðamót nóvember / desember nk. Það kem- ur í stað Hópsness GK, sem verður úrelt. í Portúgal verða smiðuð íjögur 200 tonna skip fyrir Borg hf. í Hrísey og Haukafell hf., Þinganes hf. og Auðun hf. á Höfn í Horna- firði. Fjögur skip þessara fyrir- tækja, Eyborg EÁ, Haukafell SF, Þinganes SF og -Æskan SF, verða úrelt. Fyrsta skipið á að afhenda um næstu áramót og hin á tveggja mánaða fresti. Skipin eiga að kosta 120 milljónir króna en þau eru keypt í portúgalskri mynt, að sögn Birjgis Siguijónssonar hjá Borg hf. I Svíþjóð er verið að smiða 160 tonna skip fyrir Ófeig sf. Skipið kemur i stað Ófeigs III VE, sem fórst. Þegar skrifað var undir smíðasamning átti skipið að kosta 86 milljónir íslenskra króna en kaupverð þess er komið upp í 115 Við erum nýkomnir af stað og erum að leita að dýrum, vel úthvíldir eftir nóttina í Snæfells- skála“, sagði Hákon. Hann sagði að veðrið væri eins og best væri á kosið, svolítið skýjað og aðeins gola. Útlitið væri enn bjartara þegar á milljónir króna, vegna hækkunar á sænsku krónunni, að sögn Viktors Hejgasonar hjá Ófeigi sf. í Noregi er í smíðum um 900 tonna togari fyrir Álftfirðing hf. Togarinn verður afhentur um miðj- an október nk. Togarinn Bessi fer upp í kaupin á nýja togaranum. Einnig verður Nonni ÍS, sem er 80 tonna trébátur, úreltur, að sögn Ingimars Halldórssonar fram- kvæmdastjóra útgerðarinnar. daginn liði. „Við gætum ekki feng- ið betra veiðiveður," sagði Hákon. Konungur hefur leyfi til að fella tíu dýr og sagði Hákon að þeim þyrfti að ná á einum degi enda mun konungur hafa ætlað að halda af landi brott í dag, sunnudag. Greinilega miklir veiðimenn á ferð „Það er greinilegt að hér eru á ferðinni miklir veiðimenn,“ sagði Hákon Aðalsteinsson í samtali við Morgunblaðið skömmu fyrir há- degi í gær, en þá var Hákon staddur með Karli Gústafi Svíakonungi og hans fylgdarliði á hreindýraslóðum austan við Snæfell. Þeir voru þá að gefa hreindýrum auga, eins og Hákon orðaði það, en höfðu ekki fellt neitt dýr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.