Morgunblaðið - 30.08.1989, Qupperneq 5
MÖRGl/fcÍBLÁklÖ tóÐVÍKtM.tíUR'30. ÁGÖST ’l9<8Ö'
5
Vextir á ríkisvíxlum;
Höfum lækkað vextina
meira en bankarnir
- segir efnahagsráðgjafi fjármálaráðherra
Allt lýsi orðið díoxínlaust;
Stór sending á leið til Svíþjóðar
AÐFERÐIR Lýsis hf. til að hreinsa díoxín úr lýsi hafa verið viðurkennd-
ar af sænskri rannsóknarstofnun og staðfesta niðurstöður hennar að
lýsið er díoxínfrítt. Sænska lyfsölusambandið hefur þegar lagt inn stóra
pöntun sem er um það bil að fara til Svíþjóðar.
Að sögn Ágústs Einarssonar for-
stjóra Lýsis hf. er „díoxín-vandamál-
ið“ úr sögunni og líklegt að staða
lýsis á markaðnum verði sterkari
eftir en áður. Eftir að sænsk rann-
sóknarstofa vakti athygli á díoxín-
innihaldi lýsis hætti sænska lyfsö-
lusambandið að kaupa það og sala
minnkaði eitthvað hérlendis um tíma.
Nú hefur sama rannsóknarstofa
staðfest að lýsið sé díoxínfrítt,
sænska lyfsölusambandið hefur
pantað mikið magn lýsis og neysla
hérlendis hefur færst í fyrra horf.
Ágúst benti á að díoxín hefði fund-
ist í flestum matvælum sem innihalda
fitu, í miklu magni í móðurmjólk og
í ýmsum hreinlætisvörum, s.s. sal-
ernispappír og tíðabindum. Hann
sagði að mjög erfitt væri að hreinsa
það úr flestri matvöru og lýsi væri
því ein af fáum neysluvörum sem
innihéldu ekkert díoxín.
Sænska lyfsölusambandið fer af
stað með mikla kynningu á lýsi um
leið og það verður markaðssett að
nýju og Ágúst sagðist telja að í kjöl-
farið yrði staða lýsis á markaðnum
sterkari en nokkru sinni fyrr.
MÁR Guðmundsson, efiiahags-
ráðgjafi fjármálaráðherra, segir
að vextir á ríkisvíxlum haldi ekki
uppi vöxtum á óverðtryggðum
útlánum banka. Vextir á ríkis-
víxlum hafí verið lækkaðir í kjöl-
far lækkunar á vöxtum bankanna
og þann 23. þessa mánaðar hefðu
þeir verið lækkaðir án þess að
til kæmi lækkun af þeirra hálfii.
Sigurður B. Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfamarkaðar
Iðnaðarbankans sagði f samtali við
Morgunblaðið á sunnudaginn, að
forvextir ríkisvíxla hlytu að vera
grunnvextir óverðtryggðra lána þar
sem ríkið væri traustasti lántakand-
inn. Þeir hefðu verið 27% þar til
23. ágúst síðastliðinn að þeir lækk-
uðu um 2% og 27% forvextir af 90
daga víxli jafngiltu liðlega 32%
vöxtum greiddum eftirá. Það hefði
því verið í hæsta máta óeðlilegt ef
bankarnir hefðu lækkað óverð-
tryggðu vextina niður fyrir 30% á
síðasta vaxtabreytingadegi, þann
21. ágúst.
I samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Már Guðmundsson, efna-
hagsráðgjafi fjármálaráðherra, að
það væri rétt að vextir á ríkisvíxlum
væru grunnvextir óverðtryggðra
lána að því leyti að þeir ættu að
vera lægri en víxilvextir bankanna.
Þessi ríkisstjórn hefði alltaf haft
þann háttinn á, að um leið og bank-
arnir lækkuðu vexti sína þá hefðu
vextir á ríkisvíxlum verið lækkaðir.
Reyndar hefðu þeir vextir verið
lækkaðir um 2% þann 23. ágúst,
þó ekki hefði orðið breyting á vöxt-
um bankanna. Því væri, sagði Már,
ekki hægt að segja, að háir vextir
á ríkisvíxlum héldu uppi háum vöxt-
um hjá bönkunum.
Laun hækka
1. september
LAUN hækka þann 1. sept-
ember næstkomandi sam-
kvæmt þeim samningum sem
gerðir voru í vor. Enn eiga
þó nokkrir hópar innan ASÍ
ósamið um kjör sín.
Mánaðarlaun hækka um
1.500 krónur til aðildarfélaga
Alþýðusambands íslands, sem
þegar hafa samið, og Banda-
lags starfsmanna ríkis og bæja.
Félagar í BHMR fá 1,5% launa-
hækkun og kennarar við Há-
skóla íslands 1,95%.
Eftir hækkunina verða föst
mánaðarlaun sérhæfðs fisk-
vinnslufólks með fimm ára
starfsreynslu 41.919 krónur.
Grundvallarlaun bygginga-
verkamanna verða 39.255
krónur, eftir fimm ára starf
42.473 krónur. Bensínaf-
greiðslumenn fá, með 40%
vaktaálagi, 51.734 krónur í
byijunarlaun og 57.127 krónur
eftir fimm ára starf.
Sýrður rjómi frá Baulu bragðbætir sósur, salöt, bakaðar kartöflur, ídýfur
og súpur ... Og hitaeiningarnar þurfa ekki að valda neinum áhyggjum.
Sýrður rjómi frá Baulu - nýja leynivopnið
í listamatseld!
*