Morgunblaðið - 30.08.1989, Side 14

Morgunblaðið - 30.08.1989, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGjUR 30j ÁGÚST 1989 Fiskveiðistefiia og fiármálasteftia eftir Önund Asgeirsson 1. Afleiðing rangrar Qármálastefnu í sjónvarpinu er skýrt frá því, að hjón á bezta aldri með 7 böm, og bæði í fullri atvinnu hefðu haft 72.000 krónur á mánuði, eða aðeins fyrir mat, en ekkert til kiæða eða húsnæðis. Þau eru nú orðin land- flótta úr sæluríkinu íslandi og eru á förum til Svíþjóðar. Það sér á, að vinur litla mannsins situr nú að búum sínum í París og Nís, en hvorki Gunna Galsi eða Stebbi Stoð mega vera að því að sinna svona smámunum, vegna aukinna anna við kröfugerð á hendur ríkissjóði og almenningi í þessu landi. Þetta er afleiðing fyrirhyggjulausrar fjár- málastefnu á íslandi, og þá sérstak- lega í sjávarútvegi. Þetta er dapur- leg mynd, og þetta hefði ekki þurft að henda okkar samfélag ef við hefðum alvöm stjórnun á okkar málum eða rétta fjármálastefnu. Offjárfestingin hefnir sín. 2. Skuldastaða sjávar- útvegsins Upplýst er að skuldastaða sjávar- útvegs jókst úr 25 b. (bilijón = 1000 milljónir eða milljarður) í lok 1986 í 50 b. í lok ársins 1988. Mest af þessari skuld var í dollur- um. Á þessu ári hefir dollar hækkað úr 46 kr. í lok desember í 58 kr. nú, eða 26%. Skuldastaðan hefir þannig hækkað úr 50 b. í 63 b. eða um 13 billjónir króna. Allt er þetta vegna gengisfellingar krónunnar, sem framkvæmd er samkvæmt pöntun frá fiskvinnslunni. Þetta er gert, þrátt fyrir að Þjóðhagsstofnun hafi upplýst, að gengisfelling krón- unnar hafi ekki áhrif á rekstrar- reikninga fiskvinnslunnar, aðeins í efnahagsreikninginn, og það til aukningar skuldahalans. Bjarg- vætturinn frá Flateyri hafði rétt fyrir sér, staða sjávarútvegsins verður ekki lagfærð með gengis- fellingu krónunnar. Sá leikur er aðeins afleikur. Öðm nafni nefnt, að hengja sjálfan sig. Ríkissjómin, sem á að gæta rétt- lætis borgaranna, hefir nú allra náðarsamlegast heimilað Seðla- bankanum að fella gengi krónunnar um 2,25%. Af 63 b. skuld nemur hækkun skulda sjávarútvegsins vegna þessarar ráðstöfunar 1.400 milljónum króna. Þetta bætist við skuldahalann, sem þannig fer úr 63 b. upp í 64.400 milljónir. Það hefír láðst að greina almenningi frá þessum þætti gengisfellingarinnar, en þetta er gert samkvæmt tillögum fiskvinnslunnar, sem reyndar vildi fá í þetta skiptið aðeins 9% hækkun tekna. Það hefði numið 5.670 millj- ónum, og skuldahali sjávarútvegs- ins í heild hækkað í 68.670 milljón- ir. Til samanburðar er, að heildar- innistæður allra landsmanna í bönk- um og sparisjóðum em nú um 100.000 milljónir, og heildarinni- stæður í sjóðakerfið aðila vinnu- markaðarins milli 80 og 90 milljón- ir. 3. IJver borgar brúsann afbrjálæðinu? Heildarinnflutningur lands- manna nam árið 1988 68.971 millj- ón. Meðal dollaragengi þess árs var kr. 43,10 pr. dollar eða 1.600 millj- óna dollara. Ef gengið væri sett fast nú í 58 kr. pr. dollara myndi sami innflutningur kosta lands- menn 92.800 milljónir. Hækkun 35% eða 23.800 milljónir. Þetta er að vísu einfölduð mynd, því að gengisfelling krónunnar hefir dreifst á 7 mánuði. En ef sama gengisþróun héldi áfram til ára- móta, myndi meðalgengi ársins væntanlega verða um 64 kr. pr. dollar, og heildarinnflutningur sama magns nema 102.400 millj. eða hækkun um 33.400 milljónir, sem samsvarar 48%. Þetta kemur fram á sama tíma og laun hækka um 12-15%, og auðvitað kemur þessi hækkun fram í vöruverðinu til almennings. Samningamenn ríkisins áskildu sér þennan rétt til valdbeitingar gagnvart launþega- samtökunum, og honum hefír verið fylgt eftir. Sé þessari hækkun á innflutningi til landsins deilt á 100.000 heimili landsins, nemur hækkun milli ára 334.000 kr. eða 28.000 krónum á heimilið á mánuði. Þetta er þó að- eins reiknað til yfirsýnar, því að innifaldar eru í þessum tölum bæði fjárfestingar- og rekstarvörur til atvinnulífsins. 4. Eiga fiskvinnslan og fiskveiðarnar samleið? Sigurður Stefánsson, endurskoð- andi, hefir áratugum saman reiknað út afkomu fiskvinnslunnar. Nú reiknaði hann úr rekstrarafkomu 32 fiskvinnslustöðva, sem sýndi meðaltap um 9%. En það var ekki greint frá áhrifum gengisfellingar á skuldastöðu þessara fýrirtækja, eða fiskvinnslunnar í heild. Mikill meirihluti skuldahala sjávarútvegs- ins er hins vegar hjá fiskveiðiflotan- um, og gengisfelling til að auka tekjur fískvinnslunnar verður þann- ig til þess að auka skuldahala fisk- veiðiflotans, svo sem þegar hefir komið fram hér að ofan. 5. Rekstrargrundvöllur nýrra veiðiskipa Eftir áramótin kom til landsins nýtt veiðiskip, Snæfell, eign Út- gerðarfélags KEA á Akureyri. Hlut- verk þess félags var að sjá frysti- húsum KEA á Dalvík og Hrísey fyrir afla til vinnslu. En nú fékkst leyfi hjá stjómendum fiskveiðanna fyrir 30% stækkun skipsins, og var þá ákveðið að breyta skipinu í frystitogara. Þar með féll niður þessi grundvöllur fyrir atvinnuauk- andi starfsemi á Dalvík og í Hrísey. Snæfellið kostaði 500 milljónir. Sé reiknað með 30% nafnvöxtum og 10% afskrift skipsins, alls 40%, nemur lágmarksfjármagnskostnað- ur 200 milljónum á _ári. Mestu af- köst frystitogara á íslandi eru hjá Akureyrinni, sem hafði skiptaverð- mæti fyrstu 3 mánuði ársins ein milljón á dag, samsvarandi 1.315 milljónum á dag, eða ca. 420 millj- ónir á ári. Sé gert ráð fyrir að Snæfellið nái þessum bezta árangri og nái beztu framlegð, sem þekkst hefír 19,1%, getur það komist upp í 80 milljóna kr. tekjur til greiðslu fj ármagnskostnaðar, og tapar þá aðeins um 120 milljónum kr. á fyrsta rekstrarári. Sennilega verður Önundur Ásgeirsson „Nú leyfa menn sér að reka með tapi að vild sinni, og- heimta gengis- fellingar til að bjarga málum, eða velta tapinu með öðrum hætti yfir á samfélagið. Þetta verð- ur að stöðva.“ þetta miklu meira. Hver ætlar að borga tapið? KEA tapaði sjálft 230 milljónum kr. sl. ár. Þetta skip verð- ur ekki gert út án styrks annars staðar frá. 6. Úrelt fiskveiðistefna? Fiskmarkaðir hafa nú aðeins starfað stutta stund, en þeir hafa gjörbreytt verðlagi á fiski upp úr sjó, og afstöðu manna til verðlagn- ingar á fiskafurðum. Hingað til hefir jafnan verið litið á allt landið sem einn markað, þ.e. sama verð gilt um allt land við kaup á fiski upp úr veiðiskipum. Erfíðleikar fiskvinnslunnar virðist mér gefa ástæðu til að athuga verðið, hvort ekki sé rétt, að tilteknar veiðheim- ildir séu fastbundnar ákveðnum byggðarlögum til tryggingar at- vinnu fyrir fólkið á staðnum. Jafn- framt verði bæði veiðum og vinnslu á þessum sjávarafla hagað þannig, að það skili hagnaði innan byggðar- innar. Þetta þýðir, að hvert byggð- arlag er sjálfstæð eining, og bæði veiðar og vinnsla geta aðeins feng- ið tekjur innan þessara marka. Það væri þess virði, að þetta yrði nánar skoðað. En það þýðir að verðlag á öllum stöðum verður ekki jafnt, hvorki á fiski né launum. Hver rekstrareining verður að standa fyrir sínu. Nú leyfa menn sér að reka með tapi að vild sinni, og heimta gengisfellingar til að bjarga málum, eða velta tapinu með öðrum hætti yfír á samfélagið. Þetta verð- ur að stöðva. Nýlega lýsti forsætisráðherra því yfír í fréttum, að nauðsynlegt yrði að „afskrifa með gjaldþroti" skuldir vegna frystihúsanna á Patreksfirði (660 milljónir), Suðureyri, og ein- hverjum þriðja stað. Allt frystihús merkt SÍS. Og morguninn eftir birt- ist úthlutun Hlutafjársjóðs, sem merkist þannig hagsmunaaðilum: Meitillinn, Þorlákshöfn 119 mkr. SÍS Fáfnir, Þingeyri 52 mkr. SÍS Stokkseyri 96 mkr. SH Hfh. Ólafsfjarðar 95 mkr. SH Fiskv. Bíldudal 65 mkr. SÍS Búlandstindur, Djúpavogi 60 mkr.SÍS Hfh. Grundarfjarðar 52 mkr. SÍS Hfh. Stöðvarfjarðar 36mkr.SÍS Alls (SÍS 383 m., SH192 m.) 575 mkr. Þetta er aðeins úthlutun til óveð- hæfra fyrirtækja. Áður hefir á þessu vori verið veitt lan úr Byggða- sjóði yfír 3.000 millj., en allt er þetta greitt úr sameiginlegum sjóði Iandsmanna, og til viðbótar því, sem tekið er með gengisfellingum og eftir öðrum leiðum. Menn geta ver- ið skælbrosandi yfir ágæti þessara ráðstafana, en það er vegna skiln- ingsleysis eða misskilnings. En það eru SÍS-menn, sem sleikja út um. Höfundur er viðskiptafræðingur. Réttur sjávarjarða- bænda fyrir borð borinn eftirÞorvarð Júlíusson Formaður Veiðifélags Miðíjarð- arár var að auglýsa ána í sjónvarpi nýlega. Lét hann að því liggja jið net sjávatjarðabænda væru mikill VIH 14. septeinber Ferðaskrífstofan Farandi stendur fyrír hópferð til Vínarborgar 14.-21. september. nk. Boðið uppá gistingu í tveggja eða fjögurra manna íbúðum í miðborginni, sem eru nýuppgerðarogmeðöllum þægindum. Veröerfrá kr. 48.000,-sem innifelur flug, gistingu. skoðunarferð um borgina, fárarstjórn ogaðstoö við útvegun aðgöngumiða í óperuna ogá aðra listviðburði. Boðið uppá dagsferðir frá Vín svosem til Búdapest og víðar. Pantið tímanlega því sætafjöldi er takmarkaður. Ferðaskrifstofan liavandi VESTURGÖTU 5 SÍMI 622420 bölvaldur, veiddu lax. Sýndi hann lax líklega bitinn eftir sel, gat líka verið eftir mink eða mann. Góð auglýsing það. Formaðurinn hefði getað sýnt fleiri myndir, eins og t.d. þegar hann er að draga á til þess að ná í klakfisk á þeim tíma, sem fískur- inn er að búa um sig til þess að hrygna ogmáske búinn að hrygna. Svo hefði hann getað sýnt mynd- ir af því þegar möl er mokað úr ánni með jarðýtum. Verður hún þá eins og moldardrulluskólp. Gæti þá ekki drepist mikið af seiðum? Eg hefi e.t.v. ekki gert minna fyrir ána en formaðurinn þar sem ég hefi eytt þúsundum af svartbak við ós- inn. Þó formaðurinn hafi fengið að eyða milljónum í sitt seiðaeldi skila seiðin sér illa. Árið 1987 var umsetning 14 millj. kr. en 7 millj. greiddar veiði- réttareigendum. Formaður veiðifélagsins sem sér um rekstur Miðfjarðarár sendir veiðiverði til þess að flakka á bátum um ósinn. Selurinn eltir þá síðan inn í ósinn og þegar veiðist selbitinn lax er silungsnetunum kennt um. Svo mikið er víst að búið er með silungs- veiðina þann daginn. Þá hefur hann staðið fyrir hverri árásinni á fætur annarri á æðarvörp og sellátur og fengið til liðs varðskip, þyrlur og hraðbáta. Hefur tjón bænda þar numið milljónum, en ekkert er á það minnst. Svo er spurningin, hver á laxinn? Sjórinn er honum jafn nauðsynlegur og vatnið. Réttur sjávaijarðabænda Þorvarður Júlíusson „Svo er spurningin, hver á laxinn? Sjórinn er honum jafn nauðsyn- legur og vatnið. Réttur sjávarjarðabænda er algerlega fyrir borð borinn.“ er algerlega fyrir borð borinn. Veiðilöggjöfin er hrein eignaupp- taka, ekkert annað. Höfundur er bóndi nð Söndum í Miðfirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.