Morgunblaðið - 30.08.1989, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1989
23
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Steingeitin
í dag er röðin komin að hinni
dæmigerðu Steingeit (22.
desember - 20. janúar) í loka-
umfjöllun okkar um stjörnu-
merkin.
Raunsœ
Steingeitin er jarðarmerki og
leggur áherslu á hið jarð-
bundna í tilverunni, á það
áþreifanlega og líkamlega.
Hún vill sjá árangur gerða
sinna. Steingeitin er raunsæ
og vill byggja upp lið fyrir
lið og bæta við það sem er
fyrir. Hún þykir því oft
íhaldssöm og stundum gam-
aldags.
Ábyrg
Steingeitin hefur sterka
ábyrgðarkennd og tekur iðu-
lega vandamál heimsins á
eigin herðar. Það birtist m.a.
í sterkri ábyrgð í vinnu og
gagnvart fjölskyldu. Eitt
stærsta vandamál hennar er
einmitt það að eiga erfitt með
að slappa af og gleyma vinn-
unni eða börnunum. Hún
þarf því að læra að slaka á
og leyfa sjálfri sér að njóta
lífsins.
Hlédrœg
í skapi er Steingeitin alvöru-
gefin. Hún horfir á alvarlegri
hliðar lífsins og er frekar
þunglamaleg. Þrátt fyrir
þetta eru margir frægir
spaugsamir menn í Steingeit-
inni.
Varkár
Menn í Steingeitarmerkinu
eru varkárir, sumir feimnir
og í heild eru þetta menn sem
eru lítið fyrir að trana sér
fram. Af því fer þó tvennum
sögum. Steingeitur segja að
fólk leiti einfaldlega til þeirra
og troði á þær ábyrgðarstörf-
um. Önnur merki segja Stein-
geitur vera metnaðargjarnar
og ráðríkar.
Framkvcemda-
stjóri
Steingeitin hefur ótvíræða
skipulags- og framkvæmda-
hæfíleika. Sterku jarðsam-
bandi fylgir að hún veit
hvemig best er að fram-
kvæma ákveðin verk. í vinnu
er hún vandvirk og fastheldin
á starfsaðferðir.
Seig og öguÖ
Helsti styrkur hinnar dæmi-
gerðu Steingeitar er sjálfsagi
og seigla. Hún á frekar auð-
velt með að reka sjálfa sig
áfram og afneita sér um það
sem hindrar hana í að ná
marki sínu.
ÞvermóÖskufull
Meðal helstu galla geitarinn-
ar em stífni og þvermóðska.
Hún á til að bíta ákveðin mál
í sig og neita að gefa eftir.
Stundum verða kerfi hennar
lífinu yfirsterkara og hún
staðnar í gömlu mynstri og
rykfellur.
Bœld
Önnur neikvæð hlið er til-
hneiging til að bæla eigin
þarfir og tilfinningar niður.
Ef Steingeit ætlar að byggja
hús eða skrifa bók, þarf hún
að neita sér um mörg
iífsgæði. Ef hún gætir ekki
að sér getur slík. afneitun
komist upp í vana. Margar
af löngunum hennar og þrárrf
krauma síðan undir niðri og
útkoman verður leiðinlegur
og kaldur persónuleiki með
gikt og aðra vanlíðan.
Tryggur vinur
í ást og vináttu er Steingeit-
in trygglynd og trúföst. Hún
leitar varanleika og öryggis
og er þrátt fyrir stundum
kaldranalegt yfirborð hlý og
líkamlega næm..
r* A DDI ID
uMKrUK
I /' y/MNusroFU GQLL&óes
É& BF AU/EC> UPPZjEtuHfih S7VTT4
VI&ÞSSS/) TlL EA OU S £FASAGG£lWN6U
GAfLPuK, OG ÉG A AD\ AVG GgOK/AR AG>
VEHA KOA4/MM /' IÞESSI FLASKAAP
Stjó/znustöð/ma J, Vrmetc inhihaloi
HVAÐ WAMTAR. TÖFHA
þ/G?
W HUMM! /ZE/ND/eSH^/ AS>
7 L FSA 'Ale TtZUN/NA A)
AV&AMUM ? ÞV/Ð f/EF£>/
GETA£> SPA/SAO O/C/OJZ
AV/c/L ...
liH
2,
6
GRETTIR
BRENDA STARR
P "'li —: _ 1 T 1
oKFAEA/srF/e/eu
STAEFSFÉL.AGA E£
AOLE/TA Sé/S AE>
A/ýjU STAeF/.
nt' /TJ-r-uvv
S£L£>C/fZ
FéG eÁDUGA FJÖL/UU&LA-
/ctíNG/
6 eA&Q/TT BOTTD/UL/N£\
LJÓSKA
'EITTER IVtPSE/M N\BR
likak ekici vw 30LAK.ae.~r.
PA& ER ALLT pETTA
GLI/VUWER SEM HR.-VNUI?
VFIR /WIG ALLAN
Ebi se/vt betur FEte er
TIL LEIE> TIL AE> HI^IST<-
pAE> AF SÚR.
FERDINAND
Rt-IR. ^ — vv —rr.
SMÁFÓLK
I BOUéHT TMIS VALENTINE
CANW FORTHE LITTLE REt7
HAIREP 61RL,BUTI WA5T00
5HYTOGIVE ITTOHER ...
Ég keypti þetta sælgæti fyrir litlu Ég myndi gefa þér það, en súkku-
rauðhærðu stelpuna en ég var of laði er ekki gott fyrir hunda ...
feiminn til að gefa henni það.
Ég gæti bara tínt karamellurnar úr
þvi...
t f ****#€ « i g p t e f w-t
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
í úrspilinu skiptir tvennt meg-
inmáli: tæknileg úrvinnsla og
túlkun á upplýsingum. Banda-
ríska landsliðskonan Kerry
Shuman sýndi hér hæfni sína á
báðum sviðum:
Austurgefur; enginn á hættu.
Norður
♦ Á542
V 8754
♦ 4
+ ÁK53
Vestur Austur
♦ K8 ...... ♦103
VK962 ¥ G103
♦ K1098 ♦ D732
♦ 962 ♦ D1087
Suður
♦ DG976
¥ÁD
♦ ÁG65
♦ G4
Vestur Norður Austur Suður
— — Pass 1 spaði
Pass 4 tíglar Pass 4 grönd
Pass 5 hjörtu Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: tígull.
Með fjomm tíglum lýsti norð-
ur yfir stuttlit í tígli og slemmu-
áhuga í spaða. Fjögur grönd
spurðu um ása og fímm hjörtu
sýndu tvo.
Ymsar leiðir koma til greina
°g byggjast flestar áþví að svína
hjartadrottningunni. Ein ágæt
áætlun er að svína fyrir báða
hálitakóngana og trompa tvo
tígla. Og þá leið hefðu flestir
valið.
Shuman taldi hins vegar
næsta víst að hjartasvíningin
myndi misheppnast. Ástæðan:
austur doblaði EKKI svar norð-
urs við ásaspurningunni. Hún
veðjaði því á annan hest: drap
á tígulás og spilaði spaðadrottn-
ingu, kóngur og ás. Hún gaf sér
nú að trompið væri 2-2 og not-
aði innkomuna í borði til að spila
laufi á gosann! Austur tók á
drottninguna og spilaði hjarta.
En nú hafði Shuman spilið í
hendi sér. Hún tók einu sinni
tromp, stakk tvo tígla af og
henti hjarta og tígli niður í ÁK
í laufi.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á ólympíumótinu í Saloniki í
vetur kom þessi staða upp í skák
hins kunna júgóslavneska stór-
meistara Predrag Nikolic (2.585
stig) og Kínveijans Ve Jiangc-
huan (2.505 stig), sem hafði svart
og átti leik.
22. ■- Rxg3!, 23. hxg3 - Dh3,
24. Rfl - Hxfl+!, 25. Bxfl -
Dxg3+, 26. Bg2 (eftir 26. Khl -
Bg4, 27. He2 - Bf4! á hvítur
ekkert svar við hótuninni 28. -
Bf3+) 26. - Bg4!, 27. He2 -
Dxc3 og hvítur gafst upp.