Morgunblaðið - 30.08.1989, Qupperneq 34
íÞRfam
FOLX
■ BIRGIR Björnsson hefur ver-
ið ráðinn umsjónarmaður hins nýja
íþróttahúss FH í Hafnarfirði, sem
nú er í byggingu. Birgir hefur
búið á Akureyri undanfarin ár, en
lék á árum áður með FH í hand-
knattleik. Á fundi bæjarráðs nýlega
var tillaga íþróttaráðs um ráðningu
Birgis samþykkt einróma. Hann
tekur við starfinu fljótlega og mun
fyrst um sinn fylgjast með frágangi
hússins.
i SKAGAMÓTIÐ var haldið um
helgina og áttust við A og B lið í
6. flokki. ÍA bar sigur úr býtum í
keppni A-liða utanhúss, en sigur-
vegari B-liða var Fylkir. Innanhúss
sigruðu Víkingar í keppni A-liða,
en IR sigraði í keppni B-liða
H PRUÐASTA liðið í Skagamót-
inu var Týr frá Vestmannaeyjum.
Markhæstu menn voru Eyþór
Borgþórsson, ÍR, og Hjalti Gylfa-
son, Fylki.
■ LÖGMANNAFÉLAG íslands
stendur fyrir golfmóti að Hólsvelli
Leiru á föstudaginn 1. september
kl. 13.30. Öllum löglærðum mönn-
um er heimil þátttaka.
Víkingar „heimsbikarmeistarar"
- sigruðu á sterku alþjóðlegu móti í Danmörku
Cheeks tíl San Antonio
Þriðji flokkur handknattleiksdeildar
Víkings gerði góða ferð til Dan-
merkur fyrir skömmu. Liðið tók þátt í
mjög stóru og sterku móti, „Heimsbikar-
móti félagsliða" og.sigraði. Alls voru 400
lið frá 20 löndum sem tóku þátt í þessu
móti en keppt var í mörgum flokkum.
Víkingar sendu fjögur lið til keppni. Þriðja
flokks lið þeirra tók einnig þátt í keppni
í næsta fiokki fyrir ofan og einnig voru
lið úr 3. og 4. flokki kvenna á mótinu.
Þessum liðum gekk vel þrátt fyrir að þau
hafi ekki náð jafn langt og 3. flokkurinn.
Leikið var á 16 grasvöllum og aðstaða
mjög góð fyrir keppendur og áhorfendur.
Að sögn Ásgeirs Sveinssonar, þjálfara liðs-
ins, var skipulagning til fyrirmyndar og
keppendur almennt mjög ánægðir með
framkvæmd mótsins.
Víkingar byijuðu á því að sigra franska
iiðið HBC La Famille 15:13. Næst mættu
Víkingar tveimur vestur-þýskum liðum,
TUS Weden og TSV Wolfsschlungen.
Víkingar sigruðu í fyrri leiknum 10:7 en
gerðu jafntefli í þeim síðari, 10:10. Næst
sigruðu Víkingar danska liðið Gilleleje
17:6 og gerðu jafntefli gegn norska liðinu
Haslum IL, 11:11. í síðasta leik riðla-
keppninnar sigruðu Víkingar svo heimalið-
ið Freja, 13:6.
í milliriðlum mættu Víkingar þremur
v-þýskum liðum og sigruðu þau öll, US
Aldtkruch 13:10, TSV Lesnen 14:11 og
Ovenju stór sala fór fram f NBA
deildinni bandarísku í fyrra-
dag, en þá skiptu fimm leikmenn
um félag. Hinn bráðefnilegi Johnny
Dawkins, sem lék
Frá Gunnari með San Antonio
Valgeirssyni Spurs, var seldur til
lOhio. Philadelfia 76ers í
skiptum fyrir einn
besta og reyndasta leikmann deild-
arinnar; Maurice Cheeks. Með í
kaupunum fylgdu Chris Welp og
David Wingate, sem yfirgáfu 76ers
til að leika með Spurs, en Jay Win-
cent, leikmaður Spurs, gekk í raðir
Philadelfiu-liðsins.
Cheeks, sem er einn reyndasti
maður Philadelfia 76ers og hefur
leikið með liðinu undanfarin 11 ár,
vissi ekki hvaðan á hann stóð veðr-
ið þegar hann kom heim til sín á
mánudagsmorguninn, eftir að hafa
litist á að vera kominn til San An-
tonio Spurs, og kom þá á daginn
að hann hafði ekki hugmynd um
að hann hefði verið seldur frá
Philadelfiu. Var honum greinilega
brugðið og var hann hálfmiður sín
allt sjónvarpsviðtalið.
Með þessum leikmannaskiptum
er San Ántonio Spurs að sanka að
sér leikreyndum mönnum, en fyrr
í sumar keypti liðið Terry Cumm-
ings frá Milwaukee. Er liðið orðið
alveg geysilega sterkt á pappírun-
um, og aldrei að vita nema þetta
fyrrverandi lið Péturs Guðmunds-
sonar verði ofarlega í deildinni.
Philadelfia 76ers er hins vegar
að yngja upp, en forráðamenn liðs-
ins sögðu að með kaupunum á
Dawkins væri búið að finna fram-
tíðarbakvörð fyrir liðið sem kæmi
til með að spila næstu 10 ár.
TV Plochingen 16:12. Þar með höfðu
Víkingar tryggt sér rétt til að leika til
úrslita.
í úrslitaleiknum mættu Víkingar vest-
ur-þýska liðinu Heininken og sigruðu ör-
ugglega, 16:6. Rúmlega 1.500 áhorfendur
sáu leikinn. Víkingar byijuðu af miklum
krafti og voru komnir með örugga for-
ystu, 6:0, þegar fjórar mínútur voru liðnar
af leiknum. Eftir það var ekki spurning
hvorum megin sigurinn hafnaði.
„Það var ótrúleg stemmning í höllinni
og við fengum áhorfendur í lið með okkur
með því að dreifa súkkulaði fyrir leikinn.
Það sem þó gerði gæfumuninn var barátt-
an í liðinu og andstæðingar okkar höfðu
greinilega aldrei kynnst slíku,“ sagði Ás-
geir Sveinsson, þjálfari.
Maurice Cheeks leikur með San
Antonio Spurs næsta vetur.
verið á fundi með þjálfara sínum.
Þegar hann steig út úr bílnum var
hann spurður að því hvernig honum
Lið Víkings sem sigraði á „Heimsbikarmótinu" í Danmörkn
HVALEYRARHOLTSVÖLLUR
Undanúrslit í 4. deild:
Haukar - Skotfélagið
í kvöld, miðvikudagskvöld 30. ágúst, kl. 19.00.
Fyrstu 50 gestirnir fá RC Cola og Stjörnupopp.
Nú mæta allir Haukar á völlinn!
TmiaHaiikarsérsælií3. úeilú?
A
IsnIbyggðaverk hf.
ÁFRAM H/VUKAR
Evrópukeppni meistaraliða
VSC Koice (Tékkóslóvakíu)—CSKA Sofia (Búlgaríu)
Zagreb Cromos (Júgóslavíu)—Pogon Zabrze (Póllandi)
BK 46 Karis (Finnlandi)—Savanger IF (Noregi)
Kyndill (Færeyjum)—Valur (íslandi)
Helsingör (Danmörku)—Eschols (Fola (Luxemburg)
TUSEM Essen (V-Þýskalandi)—Haka Emmen (Hollandi)
Ortiga Stracusa (Ítalíu)—Arselik SC (Tyrklandi)
FC Barcelona (Spáni)—Lisboa Benfica (Portúgal)
Maccabi Rishon le Zion (ísrael)—US Créteil (Frakklandi)
Sporting Meerpelt (Belgíu)—Volksbank Vín (Austurríki)
Raba ETO Györ (Ungveijal.)—Filippos Verias (Grikklandi)
Amicitia Zúrich (Sviss)—Manchester United (Bretlandi)
SKA Minsk (Sovétríkjunum), Steua Búkarest (Rúm-
eníu), Vorwárts Frankfurt (A-Þýskalandi) og'Redbergslid
Gautaborg (Sviþjóð) sitja hjá í fyrstu umferð.
Evrópukeppni bikarhafa
HC Herstal (Belgíu)—HV Alsmeer (Hollandi)
VFL Gummersebach (V-Þýskal.)—Differdange (Luxemb.)
Grasshoppers Zúrich (Sviss)—Biskuileri Sport (Tyrklandi)
Stjarnan (Islandi)—Drott Halmstad (Svíþjóð)
Ionikos Aþenu (Grikklandi)—AEL Limassol (Kýpur)
Cocks Riihimáki (Finnlandi)—Myrbrzeze Gdansk (Póllandi)
Virum Sorgenfri (Danmörku)—Viking Stavanger (Noregi)
Forst Brimen (Ítalíu)—Waagner Biro Graz (Austurríki)
Medvescak Zagreb (Júgósl.)—Empor Rostock (A-Þýskal.)
Dinamo Astracham (Sovétr.)—Dimitrov Sofía (Búlgaríu)
Bramac Veszprew (Ungveijal.)—CH Bratislava (Tékkósl.)
TV Grosswallstadt (V-Þýskalandi), USAM Mimes
(Frakklandi), Minaur Baia Mare (Rúmeníu) og Teka Sant-
ander (Spáni) sitja hjá í fyrstu umferð.
IHF-bikarinn
USM Gagny (Frakklandi)—Initia Hassel (Belgíu)
THW Kiel (V-Þýskalandi)—Kvantum Blau Mit (Hollandi)
CHEV Diekirch (Luxemburg)—IK Sávehof (Svíþjóð)
Halkbank Ankara (Tyrkl.)—Prowerb Bruck (Austurr.)
BSV Bern (Sviss)—FC Portó (Portúgal)
Balkan Lowetsch (Búlgaríu)—Proleter Zrenjanin (Júgósl.)
Dukla Prag (Tékkósl.)—Banyasz Tatabanya (Ungveijal.)
Elvetia Aþena (Philips College (Kýpur)
Kamratema Helsingfors (Finnl.)—GOG Gudme (Danm.)
Urædd Porsgrunn (Noregi)—KR (íslandi)
Hapoel Ramat Gan (ísrael)—Cividin Triest (Ítalíu)
TURU Dússelforf (V-Þýskal.), SC Magdeburg (A-
Þýskal.), Caja Madrid (Spáni), SKIF Krasnodar (Sovétr.)
og Dinamo Búkarest (Rúmeníu) sitja hjá í fyrstu umferð.
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI I !R MlBWIKUp^UR
30. AGUST 1989
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI FELAGSLIÐA
íslensku liðin drógust öll
gegn Norðuriandaþjóðum
Valsmenn í þriðja sinn til Færeyja
í GÆR var dregið í Evrópu-
keppni félagsliða í handknatt-
leik. Fjögur íslensk lið taka
þátt í Evrópumótunum í vetur
T* og mæta öll liðum frá Norður-
löndunum í fyrstu umferð.
JW
Islandsmeistarar Vals mæta
Kyndli frá Færeyjum og leika
fyrri leikinn á útivelli. Þetta er í
þriðja sinn sem Valur mætir Kyndii.
Liðin léku fyrst 1979 og síðan aftur
í fyrra. Valsmenn hafa sigrað í öll-
um viðureignum liðanna.
Bikarmeistarar Stjömunnar
fengu sænska liðið Drott og byija
á heimavelli. Drott er mjög sterkt
lið og komst t.a.m. í undanúrslit í
Evrópukeppni meistaraliða í fyrra
en tapaði þar fyrir' Steua Búkarest.
Þess má geta að Valur sló Drott út
í Evrópukeppninni 1979.
KR-ingar, sem taka' þátt í IHF-
bikarnum, mæta norska liðinu
Urædd sem hefur bæði slegið Val
og Stjörnuna úr keppni. KR-ingar
leika fyrri leikinn á útivelli.
í Evrópukeppni kvenna er eitt
íslenskt lið. Það er Fram sem tekur
þátt í Evrópukeppni meistaraliða.
Liðið fékk norska liðið IF Vestar.
Það verður án efa mjög þungur
róður því Norðmenn standa mjög
framarlega í handknattleik kvenna.
Fyrri Ieikurinn fer fram í Noregi.
Leikirnir fara fram á tímabilinu
25. september til 8. október.
Valsmenn náðu lengst íslenskra
liða í Evrópukeppninni í fyrra, kom-
ust í 8-liða úrslit. Þar töpuðu þeir
fyrir austur-þýska liðinu Magde-
burg í sögulegum leikjum. Vals-
menn ættu að teljast nokkuð örugg-
ir í 2. umferð en hin liðin eiga flest
á brattann að sækja.
Gylfi Birgisson og félagar í Stjörnunni mæta sænska liðinu Drott.
HANDKNATTLEIKUR / UNGLINGAR
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN