Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1989 C 33 útivinnu og varð að sjá um búrekst- ur með verkstjórn um árabil og fórst það allt vel úr hendi.- Hún bjó fyrst við þröngan efnahag sem snerist svo til ágætrar afkomu þeg- ar á ævina leið og að lokum til velmegunar. Ingveldur galt háa upphæð í sameiginlega sjóð þjóðlífs íslendinga. Hún sá hann ávaxtast í stórum hópi glæsilegra niðja. Börn þeirra Brúnastaðahjóna urðu sext- án. Fjórar dætur, þijár búsettar í Árnessýslu og ein í Fljótshlíð, glæsi- legar húsmæður og tólf synir allir búsettir í Árnessýslu þar sem þeir vinna við margháttuð störf. Allt er þetta fólk starfsamt, gjörvulegt og þroskamikið. Flest hefur stofnað heimili og eignast börn, enda barna- börn Ingveldar farin að nálgast fjörutíu. Svo mikið álit var á Brúnastaða- heimilinu þegar Finnlandsforseti bað um að fá að sjá íslenskt sveita- heimili varð það fyrst fyrir að fara að Brúnastöðum og varð það öllum sem hlut áttu að til sóma, ekki síst Ingveldi. Nokkru eftir lát Ágústs fluttist Ingveldur að Selfossi og bjó þar í rumgóðri og vandaðri íbúð. Hún felldi sig þó aldrei fullkomlega við veruna þar og lét þess getið við undirritaðan fáum dögum fyrir andlát sitt að sér fyndist hún miklu einangraðri á Seifossi heldur en á Brúnastöðum, svo fast var hún bundin þeim stað þar sem hún vann ævistarf sitt. Og þó var hún þar umkringd börnum og barnabömum sem sífellt'heimsóttu hana. Ingveldur féll með starf í hendi, stödd að Stöðulfelli hjá Hrafnhildi dóttur sinni. Fagur endi á ævi þess- arar miklu starfskonu. Ég hafði nokkur kynni af Ing- veldi og eftirminnileg og em þau hér með þökkuð. Niðjum hennar óska ég farsældar. Ólafur Árnason t Eiginkona mín og móðir okkar, MARTA BJÖRNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 5. september kl. 13.30. Magnús H. Magnússon, Sigríður Magnúsdóttir, Páll Magnússon, Björn Ingi Magnússon, Heiga Bryndís Magnúsdóttir. t Sonur minn, faðir okkar, tendafaðir og afi, ÁGÚST VALUR EINARSSON, Álfhólsveg 26, Kópavogi, sem lést í Landspítalanum 25. ágúst sl. verður jarðsettur frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 7. september kl. 15.00. Rögnvaldína Ágústsdóttir, Emil Ágústsson, Erla Ragna Ágústsdóttir, Helga Ingunn Ágústsdóttir, Einar Ágústsson, Anna María Ágústsdóttir, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, KARL JÓHANN MAGNÚSSON, sem andaðist á Sjúkrahúsi Skagfirðinga, Sauðárkróki þann 26. ágúst sl. verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, þriðju- daginn 5. september kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Sjálfsbjörg eða Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki. Björk Sveinsdóttir, Magnús Karlsson, Fjóla Aðalsteinsdóttir, Þórður Karlsson, Málmfríður Þórhallsdóttir, Ottó Karlsson, Guðríður Aðalsteinsdóttir, Karl Ómar Karlsson, Fríða Guðjónsdóttir, Rúnar Karlsson, Elísabet Ingibergsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, SAMÚELS JÓH ANNSSON AR prentara. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Lilly Alvilda Samúelsdóttir, Karl Jóhann Samúelsson, Anna María Samúelsdóttir. og bráðgjörir og vöndust ungir við öll búnaðarstörf. Eigi að síður varð Ingveldur að fylgjast daglega með bústörfum milli helga. Abætir var þetta við óvenju mikil húsmóður- störf. Þegar Ágúst varð þingmaður bættist enn einn hlutur við störf Ingveldar. Gestkoma jókst til mik- illa muna, hún var að vísu nokkur áður en nú varð stórfelld aukning á. Öllum sem komu voru veittar höfðinglegar móttökur og var þar ekki farið í manngreinarálit, enda allt slíkt afar fjarlægt Ingveldi og þeim hjónum. Reglusemi og þrifn- aður einkenndu húsmnóðurstörf Ingveldar framar öðru. Hvergi sást vanhirða eða lök umgengni þar sem hún kom að verki. Mikið líkamsþrek og meðfædd vinnusemi gerðu henni kleift, ásamt ómældri vinnugleði, að skila óvenju miklu ævistarfi. Öll óhófsmælgi var ijarri Ingveldi og ekki gerði hún sér heldur alla við- hlæjendur að vinum og ekki gekk hún að baki neinum. Auk þess að vera húsmóðir á gestkvæmu heim- ili og ala upp sextán börn vann hún Glæsileg »g vönduö Sýningarhús í Borgartúni 29 EYÞOR Á. EIRÍKSSON byggingameistari Sími 623106 og 621288 á kvöldin. Borgartúni 29, 105 Reykjavík. sumarhús til sölu Heilsárs bústaður ★ Stærð og gerð eftir óskum hvers og eins. ★ Fjöldi tilbúinna teikninga. ★ Nýja linan. ★ Flutningur hvert á land sem er. ★ Möguleikar á grillhorni, sólkrók eða garð- stofu. ★ Við ábyrgjumst okkar vinnu. ★ Flef sumarbústaðalóðir, aðgangur að veiði- vatni. ★ Afhendist á öllum byggingarstigum. Sýning um helgina frá kl. 13-18 og næstu daga. ■c. AIR PORTUGAL ap Golfklúbburinn Keilir og Evrópuferðir kynna: evrópuferðir eurotour<^ C/UUWEIA POrtugal’sBest Laugardaginn 2. Sunnudaginn 10. Sunnudaginn 17. Laugardaginn 23. Laugardaginn 31. september september september september september Keppnisfyrirkomulag: Höggleikur, meö og án forgjafar. Fyrir hvern keppnisdag verða veitt glæsileg verölaun; fyrir besta skor án forgjafar og þrenn verölaun meö forgjöf. Aöalverðlaun eru ferðir fyrir tvo til Portúg. ásamt þátttöku í opnu golfmóti áhugamanna. Feröir, gisting og keppnisgjald er innifalið. -J'ÖSSWSSS®' G0L ALGARVE89 25 Nov — 02 Dez/Dec XII opna gólfmót Tap Air Portugal fyrir áhugamenn haldið í Algarve 25. nóv.-2. des. i* Þessi verðlaun verða veitt þeim tveim kylfingum sem ná bestum samanlögðum árangri með og án forgjafar x fyrir 3 bestu hringi af 5. $ % \ Mótiö fer fram á golfvellinum á Hvaleyrarholti í Hafnarfiröi. Þátttökugjald er kr. 1.000,- fyrir hvern keppnisdag. Skráning í síma 53360. Öllum ágóða af þessum mótum verður varið til styrktar sveit golfklúbbsins Keilis sem taka mun þátt í Evrópukeppni meistaraliða á Spáni næstkomandi nóvember. AIR PORTUGAL evrópuferðir eurotour<^ CÆUWEIA PortugaTsBesl V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.