Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 32
32 C
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1989
TILBOÐ ÓSKAST
Sala varnarliðseigna.
í Chevrolet Blazer S-10 4x4 árgerð '86 (ekinn 43 þús. mílur),
Mazda E2200 diesel Van árgerð '87 (ekinnn 47 þús. km.),
Ford Escort L árgerð '84, J.l. Case hjólaskófla 1 cu.yd. model W7DN (ógangfær),
Pettibone gafallyftari 6000 Ibs. árgerð '77 (ógangfær), ásamt öðrum bifreiðum
er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 5. september kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
V
Vió bjóóum uppó
donsnámskeiö fyrir börn
5 ára og eldri.
I boöi er jazz-funk og
jazz-ballet, þoö ollra
nýjasto frá New York, meö
áherslu á leikræno tjáningu
m.o. viö donso úr þekktum
söngleikjum.
Einnig sértímor þor sem
fariö er í Michoel Jockson
donso ásamt öörum góöum
dönsum.
Innritun hefst 4. sept. í síma 687701 — 687801 # Dansstúdíó Sóleyjar:
Bhðió sem þú vaknar við!
Kveðjuorö:
Ingveldur Ástgeirs-
dóttir, Brúnastöðum
Ingveldur Ástgeirsdóttir, áður
húsfreyja á Brúnastöðum, lést 6.
ágúst sl. tæplega sjötug að aldri.
Hér lauk ævi sinni kona er lokið
hafði óvenju miklu ævistarfi. Ung
gekk hún að eiga Ágúst Þorvalds-
son á Brúnastöðum, síðar alþingis-
mann, og tók þá þegar við hús-
stjórn þar o"g bjuggu þau á Brúna-
stöðum meðan bæði lifðu.
Frá því um aldamót og fram yfir
1930 bjuggu á Brúnastöðum hjónin
Guðlaug Sæfúsdóttir, vinnusöm
kona og hógvær og Ketill Arnodds-
son. Ketill var ákaflega sérstæður
maður, hinn mesti þrekmaður,
hraustur, stálminnugur með af-
brigðum og svo fróður að ótrúlegt
var. Naut Ágúst þekkingar Ketils
um menn og málefni síðar á ævinni
er hann hafði valist til trúnaðar-
starfa.
Ketill og Guðlaug voru barnlaus
en ólu upp systkinin Ágúst og Jó-
hönnu og arfleiddu þau að öllum
eignum sínum.
Hvergi sem ég þekkti til voru
búhættir felldir betur að sjálfs-
þurftarbúskap en hjá Katli og Guð-
laugu. Búið var lítið en gagnsamt
á þess tíma vísu. Ekkert var keypt
sem gat verið heima fengið og lítið
selt, aðeins til að. mæta óhjá-
kvæmilegum útgjöldum. Þar sem
búið var skuldlaust gat þetta geng-
ið en lausafé varð ekki til og því
erfitt um allar framkvæmdir. Agúst
og Jóhanna tóku svo við búsforráð-
um á Brúnastöðum 1932 en heims-
kreppan var í algleymingi og hélt
öllu í viðjum og tók fyrir allar fram-
kvæmdir. Jóhanna gegndi húsmóð-
urstörfum fyrstu búskaparár þeirra
systkina á Brúnastöðum en hún var
heilsuveil og þoldi lítt vinnu.
Árið 1942 kom Ingveldur að
Brúnastöðum og stofnuðu Ágúst
og hún þá fljótt til hjúskapar og tók
Ingveldur þegar við hússtjórn.
Gömlu hjónin og Jóhanna dvöldu
áfram á Brúnastöðum til dauða-
dags.
Þegar á fyrstu búskaparárum
þeirra hjóna urðu þær breytingar
að sem erfiðar reyndust mörgum
en óhjákvæmilegar voru, breyting
frá sjálfsþurftarbúskap yfir í við-
skiptabúskap. Þetta var óvenju erf-
itt á Brúnastöðum, því frá náttúr-
unnar hendi var varla nokkur blett-
ur til, söm vélum var hægt að beita
á. Börn fæddust þeim hjónum svo
heimilið varð fljótt stórt eins og
fyrr var sagt var bú lítið. Því mun
oft hafa verið erfitt að skipta
knöppum tekjum milli daglegra
þarfa fjölskyldunnar og knýjandi
umbóta í ræktun og auknum
áhaldakosti. Þennan vanda varð
húsfreyjan á Brúnastöðum að leysa.
Ekki hefur annað heyrst en henni
hafi tekist það vel. Þegar ko'm fram
á sjötta tug aldarinnar þyngdist
hagur þeirra Brúnastaðahjóna að
mun. Hafði Ingveldur af því miklar
áhyggjur. Heimilið hélt áfram að
stækka. Þau urðu fyrir því tjóni á
óþurrkasumri að heybruni varð i
hlöðu. Sveitungar þeirra reyndu þó
að bæta þeim skaðann. Það var þó
alls ófullngæjandi, fæstir höfðu þær
heybirgðir að aflögufærir væru svo
nokkru'næmi. Ágúst, sem fyrr hafði
átt við nokkra vanheilsu að stríða,
fór nú að finna til sama sjúkdóms
aftur. Við það bættist þreyta vegna
mikils vinnuálags. Þá kom einnig
að því að reisa varð nýtt íbúðar-
hús. Húsakynni sem fyrir voru voru
afar léleg og lítil • fyrir þetta stóra
heimili. Nýtt íbúðarhús var reist á
árunum 1955-56. Að sjálfsögðu
rýrði þessi framkvæmd ráðstöfun-
artekjur fjölskyldunnar.
Árið 1956 varð breyting á högum
Brúnastaðafjölskyldunnar. Þetta
vor lágu fyrir kosningar til Al-
þingis. Aldraður maður sem lengi
hafði skipað efsta sæti á framboðs-
lista Framsóknarflokksins í Árnes-
sýslu hætti þingstörfum og nú
blossaði upp gamall flokkadráttur
um efsta sæti listans. Fannst fieir-
um en einum þeir sjálfkjörnir til að
skipa það. Forystu flokksins mun
ekki hafa þótt ráðlegt að bjóða fram
mann í fyrsta sæti listans sem mjög
hafði stutt að sundrungu innan
flokksins fyrr á árum. Hún lagði
því til að hafa prófkjör í kjördæm-
inu. Ágúst hafði alltaf fylgt Fram-
sóknarflokknum í þjóðmálum. Nú
var hann beðinn að gefa kost á sér
í prófkjörið. Vafasamt er hvort hon-
um hafi þótt það vænlegt en lagt
undir álit Ingveldar hvort hann
ætti að verða við tilmælum. Ég hef
heyrt að hún hafi verið hvetjandi
þess. Ágúst fór í prófkjörið og sigr-
að glæsilega. Var hann svo valinn
til þingstarfa. Á örskömmum tíma
gat hann jafnan allan ágreining
innan flokksins. Allan þann tíma
sem hann var þingmaður var flokk-
urinn órofa heild. Þetta mun hafa
orðið Ingveldi til óblandinnar
ánægju.
Enn varð Ingveldur að bæta við
störf sín þó næg væru fyrir, að
fylgjast með bústörfum utanbæjar
sem synir.hennar ungir leystu af
hendi. Þeir voru að visu skynugir
t
Við þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát,
SIGURÐAR JÓNSSONAR,
Sólbakka,
Borgarfirði eystra.
Nanna Þorsteinsdóttir,
börn og barnabörn.
Útför,
BJÖRNS ÓLAFS
lögfræðings,
fer fram frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 4. september kl. 13.30.
Guðfinna Bjarnadóttir,
Skúli Ólafs, Guðbjörg R. Jónsdóttir,
Bjarni Björnsson, Sigrún Jónsdóttir
og barnabörn.
Frænka okkar,
MARGRÉT LÁRUSDÓTTIR,
Eskihlið 33,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju mánudaginn 4. sept. kl. 3.
þeim, sem vildu minnast hennar, eru vinsamlega beðnir að láta
Langholtskirkju njóta þess.
Fyrir hönd vandamanna.
Sigríður Jóhannsdóttir og fjölskylda.