Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 38
$8 C MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ S.UNNUDAGUR 3? SEPTEMBER 1989 H ÆSKVMYNDIN... ERAFELLEN KRISTJÁNSDÓTTUR SÖNGKONU Söngdskur dýravinur ÞEGAR Ellen Kristjánsdóttir var fjögurra ára grét hún yfír faginu I Wanna Hold Your Hand með Bítlunum því henni þótti það svo hjartnæmt. Inger systur hennar, sem er Qórtán árum eldri, |iótti þetta sniðugt. Hún sótti vinkonu sína og V.aman tóku þær Ellen inn í herbergi, spiluðu lag- ið og horfðu á tárin trilla niður kinnarnar á henni. Ellen Kristjánsdóttir er fædd 8. maí 1959 í San Fransisco í Bandaríkjunum þar sem hún bjó fyrstu sex ár ævi sinnar. Móðir hennar er Sigríður Ágústa Söebech og faðir hennar Kristján Ingi Ein- arsson sem er látinn. Ellen á ijögur eldri systkini, Inger, Einar, Pétur og Kristján. Ellen var að verða sjö ára þegar foreldrar hennar fluttust til íslands og kunni hún þá ekki orð í íslensku. Engu að síður eignaðist hún fljót- lega vinkonu. Þær komu sér upp sínu eigin táknmáli til að gera sig H^skiljaniegar. Eftir eitt ár hér heima var Ellen búin að ná góðum tökum á íslenskunni. Frekar til baka og feimin. Þegár Ellen átti að syngja eða dansa hvarf hlédrægnin. Páfagaukurinn reytir sig „Ellen var glaðlynt barn, en til- finninganæm og það gat fokið í hana. En það var auðvelt að tala hana til,“ segir Sigríður Ágústa móðir hennar. „Hún var frekar til baka og feimin í stórum hópi. Hún lék sér því oftast með einni eða tveimur vinkonum í senn.“ Það kom ‘ fljótt í ljós að Ellen var músíkölsk og hún bytjaði snemma að syngja. „Þegar Ellen átti að syngja eða dansa hvarf hlédrægnin," segir Sigíður Ágústa. Ellen var mikill dýravinur og átti alltaf gæludýr. Þegar hamstrarnir eða .naggrísirnir dóu voru þeir grafnir með viðhöfn úti í garði. Hún átti líka skjaldbökuna Kleópötru sem hún fékk þegar hún var fjög- urra ára. Kleópatra er enn á lífí og við góða heilsu. Svo var það stóri páfagaukurinn Boggi sem dó úr elli fyrir nokkrum árum. Honum þótti ósköp vænt um Ellen. Þegar hún fór í sveit í fyrsta skipti reytti hann af sér allar fjaðrirnar, hann var svo miður sín. Hestar voru líka í miklu uppá- haldi hjá Ellen. Hún var í sveit á hveiju sumri frá því hún var átta til þrettán ára og þar gafst henni tækifæri til að stunda hesta- mennskuna. í Reykjavík á vetuma æfði hún svo sund með Sundfélag- inu Ægi. Ellen skrifaði líka kvæði þegar hún var lítil og 11 ára gömul tók hún þátt í samásagnakeppni Morg- unblaðsins fyrir börn á aidrinum 11-17 ára. Sagan sem hún sendi, Pétur og litlu mennirnir, vann til fyrstu verðlauna. Hún syngur illa Kristján var næstur Ellenu í systkinaröðinni, aðeins þremur áram eldri. Hann spilaði á gítar og gerði Ellen ýmislegt fyrir hann þeg- ar hún var 10 ára til að fá að sitja og hlusta á hann æfa sig. En hún vildi líka fá að syngja og af því var Kristján lítið hrifinn. Fannst hún syngja illa og skipaði henni að þegja. Annars voru Ellen og Kristján oftast góðir vinir. Hann var þó ekki alltaf jafn hrifinn af því að hafa litlu systur í eftirdragi. Hún lét sig til dæmis hafa það að ganga hinum megin götunnar þegar hún var níu ára og fékk að fara með honum í þijúbíó. Því hann lét ekki sjá sig úti á götu með stelpu. Ekki einu sinni systur sinni. ÚR MYNDASAFNINU ÓLAFUR K. MAGNÚSSON HATTAR Hér á áram áður gat varla nokk- ur heiðvirð kona látið sjá sig úti á götu hattlausa. Eitthvað hefur það nú breyst á síðustu áram en óneitanlega finnst manni það alltaf glæsilegt að sjá vel klædda konu með hatt í stíl við fötin. Hattur- inn var punkturinn yfir i-ið. Vart má á myndun- um sjá hveijir era glæsilegri, hattarnir eða konurnar sem bera þá, en það hefur margoft verið sagt að fallegustu konur í heimi megi finna á íslandi. Er þess skemmst að minnast að á síðasta ári var íslensk stúlka valin fegursta kona heims. Ætli hún noti hatt? STARFIÐ ODDNÝJÓNSDÓTTIR OG ÞORVALDUR JÓNSSON XX-STEINASALAR BÓKIN ÁNÁTTBORDINU PLATAN ÁFÓNINUM MYNDIN ÍTÆKINU þau höfðu sankað að sér í gegnum árin. Fyrir fimm áram hófu þau að selja marglita steinana í Austur- stræti og eru nú komin með fastan hóp steinasafnara sem kaupa reglu- lega af þeim. Oddný og Þorvaldur sögðu að reyndar hefði salan verið nokkuð dræmari í sumar en áður og kenndu um leiðinlegu veðri. Þau ætla þó ekki að láta það aftra sér frá því að halda áfram steinasöl- unni næsta sumar. ÞETTA SÖCÐU ÞAUÞÁ... Árni Johnsen, Morgunblaðið 7. april 1970. Árni er blaða- maðurog kunn- urbindíndis- maður. r Ami Johnsen fullur Það er svona með ísland, það er fullt af öllu, alls konar veðri, fjölþættu Iandslagi, fugl- alífí, mannlífí og svo mörgu öðra. Þess vegna er eina ráðið á móti að vera fullur af íslandi. Þorvaldur Jónsson og Oddný Jónsdóttir ásamt sonarsyn- inum Þorvaldi Davíð Krist- jánssyni. Steinar í safnið í SKJÓLSÆLU skoti í Austur- stræti má á góðviðrisdögum sjá mann eða konu bjóða marglita steina til sölu. Þar eru á ferð 'y'Þorvaldur Jónsson fyrrum póst- meistari á Fáskrúðsfirði og kona hans, Oddný Jónsdóttir, en þau hafa safhað steinum og selt borg- arbúum undanfarin sumur. Þau hjónin voru lengst af búsett á Austfjörðum en fluttust til Reykjavíkur fyrir átta áram. Og 'þau tóku ekki aðeins búslóðina með sér heldur feiknin öll af steinum sem Eyjólfur Sigurðs- sondeildar- stjóri Bókin sem ég er að lesa um þess- ar mundir er Ævisaga Lárusar í Grímstungu og er hún fróðleg. Ég les töluvert af ævisögum og sagnfræðibókum, hef gaman af því og afla mér um leið ýmiskonar fróð- leiks. Einnig les ég nokkuð af bók- um um ferðamál. Eg hef ég verið, að glugga í Rauða Penna, nú síðast las ég Bréf til íslensku þjóðarínmir sem Þórbergur Þórðarson skrifaði í til- efni af byggingu Hallgrímskirkju og var það góð lesning. Ekki get ég sagt að ég lesi mikið en fletti þó stundum upp á ljóðum og legg þá meira upp úr innihaldi en formi. Rúnar Bjarnason slökkviliðs- stjóri Elín G. Ól afsdóttir kennari * Eg hef ákaflega gaman af óperu- tónlist og sérstaklega er Placido Domingo í uppáhaldi hjá mér. Á ég þó nokkuð af lögum hans og hlustaði síðast á plötuna sem hann og John Denver gerðu í sameiningu. Einnig er ég hrifinn af djasstónlist t.d. lögum Fats Wall- ers. Fyrir skemmstu horfði ég á myndina Dangerous Liaisons og fannst mér hún mjög spenn- andi. Annars þykir mér gott að slappa af yfir gamanmyndum og sá síðast Big Business sem var bráðskemmtileg. Platan á fóninum hjá mér er með Bryan Ferry og heitir Beténoir. Bryan Ferry er í miklu uppáhaldi hjá mér, ég á þó nokkuð af plötum hans og hlusta á þær þegar tími gefst til. Þó ég hafi jafnframt gam- an af nýjum ferskum hljómsveitum hlusta ég alltaf reglulega á gömju- kempurnar í Roxy Music. Síðast sá ég myndina Baby Boom og hafði gaman af. Ég er mest gefin fyrir myndir sem ijalla um mannleg samskipti, ástina og fleira í þeim dúr. Starfs rníns vegna sá ég svo fyrir stuttu söngleikinn um Oliver Twist eftir samnefndri sögu Charles Dickens.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.