Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 24
24 C MORGUNBLAÐIÐ MENNIIUGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1989 H Ég þakka af alhug góðar gjafir og hlýjar kveðj- ur á sjötugsafmœli minu 4. ágúst sl. Hjartans þakkir til allra er glöddu mig með ncerveru sinni, sem seint gleymist. Gœfa guðs fylgi ykkur œvinlega. Kristín Guðmundsdóttir, fyrrv. húsvöröur Hallveigarstöðum, Hátúni 4, Reykjavík. V^terkurog k J hagkvæmur auglýsingamiðill! TIL FRAMKVÆMDA AÐILA Eindagi umsókna vegna bygginga eða kaupa á eftirfarandi íbúðum er 1. október nk. a) verkamannabústöðum b) leiguíbúðum c') álmennum kaupleiguíbúðum pg félagslegum íbúðum. Umsóknareyðublöð fást hjá félagsíbúðadeild Húsnæðisstofnunar. Ún HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK SÍMI 696900 MYNDLIST / Hvemig má læra ab metaþab semgott erf Myndlist er EIN ERFIÐASTA hindrunin milli myndlistar af öllii tagi og almenn- ings er einfaldlega skynjunin. Hér á landi hefiir lítið sem ekkert verið gert til að efla skynjun á myndlist. Samanburður er auðveld- ur; ef ekki væri kennt að lesa í skólakerfi þjóðarinnar, þá yrðu líklega fáir til að njóta bókmennta og skynja þær frásagnir, sem þar er boðið upp á. Ef ekki væri fjallað um likingamál og orðskýringar í skólum, yrðu fáir til að njóta ljóðlistar og skynja þann myndheim, sem skáldin leitast við að bregða upp á hnitmiðaðan hátt. En hvað um myndlist? Er ein- hvers staðar í íslensku skóla- kerfi kennt að horfa á listaverk? Er þar að finna fræðslu um mynd- mál? Um gildi litanotkunar? Um uppbyggingu myndverks? O.s.frv., o.s.frv.? Svari hver fyrir sig, í ljósi fyrrver- andi, núveranfli og tilvonandi skóla- göngu. — Hið væntanlega nei- kvæða svar flestra allrar annarrar listar, snýst í sem einföldustu máli um heiðarleika í sköpun, getu í útfærslu, og gæði í framsetningu. .eftir Eirík Þorlóksson er sársaukafull áminning um ágalla íslenskrar menntunar. En hvað.er þá til ráða? Er megin- hluti Islendinga dæmdur úr leik þegar myndlist er annars vegar? Aldeilis ekki. Fæstir íslendinga sætta sig við slíkt. Vandamálið hef- ur kallað fram tvær lausnir meðal okkar. Annars vegar er sú leið að menn lýsa yfir áhugaleysi sínu á í mynd- list og gaspra síðan kokhraustir í sjálfumgleði sinni; eru eins konar í aftursætis-ökuþórar og alvitrir gagnrýnendur. — Hins vegar leggst fólk í sjálfsnám, skoðar mikið af myndlist af öllu tagi, les það sem skrifað er um sýningar og lista- menn, bæði gott og vont, og mynd- ar sér smám saman persónulegar skoðanir. Þessi síðari hópur er kjarni íslenskra listunnenda. En hvernig á þá að skoða mynd- list og læra að meta það sem gott er? Myndlist er ekki spennuþáttur í sjónvarpi. Myndlist er heldur ekki fegurðarsamkeppni. Myndlist er hvorki landafræði, náttúrufræði né ættfræði. Gildi myndlistar, eins og Það er einungis hægt að koma auga á þessi gildi með athugun, og nánari skynjun á hveiju listaverki fyrir sig. Að hafa þolinmæði til slíks er forsenda þess að áhorfandi fari að gera sér grein fyrir eðli verks og túlkunarmöguleikum, og þá um leið hvort verkið höfðar til hans eður ei. Tímafrek athugun er ekki auðveld í hraða nútímans, en aðeins með þvi að skoða mikið af listaverk- um vandlega, er grundvöllur lagður að því að hægt sé að dæma um list- rænt gildi einstakra verka. Ef áhorfandanum líkar það sem hann sér, er hálfur sigur unninn; jákvætt viðhorf til viðfangsefnisins leggur grundvöllinn að meiri skoðun, meiri fróðleiksleit um listina. Því miður er lausleg skoðun endapunkturinn fyrir allt of marga, DÆGURTÓNUST/M eigaREM, 10.000 Maniacs ogSykurmolamir sameiginlegtf Brjálæðingar uppapoppsins egaj-hijómsveitamafnið 10.000 Man’iacs (10.000 bijálæðingar) fór að heyrast víða 1988 hefur margur líklega talið það nafn á þungarokksveit, eða speed-metal sveit. Raunin er þó önnur og eftir þvi sem sveitin varð vinsælli hefur sá misskilningur horfið, en plata sveitarinnar, In Mý Tribe, sem var reyndar Ijórða plata hennar, seld- ist í yfir milljón eintökum í Banda- ríkjunum og nærfellt tvær milljónir eintaka um heim allan árin 1987/1988. Tónlist 10.000 Maniacs er þó ekki í ætt við vinsældapopp; heldur innhverf, lagræn hálfgerð þjóðlaga- tónlist með léttu rokkívafi og ábúð- armiklum „innihaldsríkum" textum; einskonar uppapopp. Andlit hljómsveitarinnar er söng- kona hennar og textahöfundur, Natalie Merchant, sem gengur í gamaldags kjólgopum og dregur ekki dul á bókmenntaáhuga sinn og fyrirlitningu á poppímyndinni sem hefur treyst enn hlustendahóp- inn. 10.000 Maniacs rær á svipuð mið í Bandaríkjunum og rokksveitin REM og Sykurmolamir íslensku; þeirra markhópur er fólk sem lítur á tónlist sem eitthvað annað en undirleik fyrir dekkjaverkstæði, frystihús eða lyftur og sem viil gjarnan að textar fjalli um eitthvað annað en stefnumót og ástarsorg (látum tilgerðina liggja á milli hluta). Það er áberandi á plötunni In My Tribe og enn meira ber á því á nýjustu plötu sveitarinnar, Blind Man’s Zoo, sem kom út fyrir skemmstu. 10.000 Maniacs er runnin frá smáborginni Jamestown (heimabær Lucille Ball heitinnar). í fyrstu Iék sveitin lög eftir aðra og þá helst Gang of Four, Earth Wind and Fire og reggílög ýmiskonar. Frumsamin lög bættust fljótlega í lagasafnið og þegar sveitarmenn kynntust Fairport Convention varð mikil stefnubreyting í tónlistinni. Helsti lagahöfundur sveitarinnar var þá John Lombardo en Natalie samdi textana. Sveitin sendi frá sér sína fyrstu plötu 1981, tólftommuna Human Conflict No. 5, og lagðist í ferðalög. Róðurinn var þungur og tónlist sveitarinnar í raun ekki nema hálfmótuð, en 1983 kom út önnur plata sveitarinnar, Secrets of the I Ching. Sú plata náði eyrum Johns Peels og lagið My Mother the War komst inn á óháða listann í Bretlandi. Það varð til þess að hljómsveitin gerði útgáfusamning við bandaríska fyrirtækið Electra og á fyrstu plötunni sem sveitin gerði fyrir það fyrirtæki, The Wish- ing Chair, var lagið My mother the War, tekið upp aftur. Platan seldist ekki ýkja vel og Electra virtist ekki hafa mikinn áhuga á að ýta undir sölu. Þetta varð til þess að laga- smiðurinn John Lombardo sagði skilið við sveitina og aðrir sveitar- meðlimir þurftu að taka að sér lag- asmíðar með litlum fyrirvara. Ekki var að merkja annað en það gengi vel upp á næstu Electra-plötu, títtnefndri In My Tribe, og textar Natalie höfðu léttara yfirbragð sem gerði lögin aðgengilegri. Platan kom út 1987, sat á Billboard-plötu- listanum mánuðum saman og, eins og áður sagði, hefur hún nú selst hátt á aðra milljón eintaka. Ekki er gott að segja hvort nýja platan, Blind Man’s Zoo, muni auka eftir Árno Motthíasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.