Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 18
18 e ÖBÖÍ 81/L3THE8 .8 HUDAGUJ4MU8 ŒdÁJSPÍUOHOl ' TVIORGUNBLAÐIÐ~SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1989 -t Svifid seglumföndum ólk sækir í tóm- stundum sínum sífellt meira út fyrir hinn tækni- vædda heim og á vit náttúrunnar, sér til hressingar og uppbyggingar. Hvort sem farið er í útreiðartúr, rennt sér á skíðum, svifið um í sviffiugu eða svifdreka; allt lýs- ir þetta sífellt ríkari þörf nútímamannsins til þess að losna undan tækniv- æddum heimi augnablik og gefa sig á vald náttúmöflunum. Siglingar eru undan þessum sömu rótum runnar, enda hafa þær upp á að flest það að bjóða sem nútímamaðurinn sækist eftir í frístundum; hreint loft og útiveru, hreyfingu og glímu við náttúruna. Gerðir seglbáta En seglbátur er ekki „bara“ seglbátur. Þeir eru af ýmsum stærðum og gerðum og nútímatækni er beitt við smíði þeirra til þess að gera þá sem besta úr garði og um leið sem fjölbreytilegasta eftir þeim tilgangi sem þeim er ætlað að þjóna. Sigl- um má í grófum dráttum skipta í þijá flokka: kjölbáta, kænur og bretti. Kjölbátar eru stærstu og dýrustu bát- arnir, algengustu gerðir eru frá 5,5 metr- um og upp í 10 metra langir. Þeir draga nafn sitt af föstum, djúpum og þungum kili sem þeir eru búnir til mótvægis við áraun seglanna. Kjölbátar eru stöðugir og lítil hætta er á að velta þeim, en í þess stað ná þeir ekki miklum hraða, nema þeir sem sérstaklega eru smíðaðir til kapp- siglinga. Kjölbátar eru oft notaðir til lang- ferða. Kænur eru smærri, gjarnan flatar í botninn, grunnskreiðar og búnar svo- nefndum fellikili. Við hagstæð skilyrði lyfta þær sér upp á bógölduna og plana eins og sagt er, líkt og hraðbátar gera. Við þær aðstæður getur hraðinn orðið mjög mikill. Þessum fleytum er hætt við að hvolfa sé ekki aðgát höfð við stjórn- tök. Yfirleitt láta menn það ekki á sig fá og hjá þeim sem leggja stund á kappsigl- ingar eru veltur daglegt brauð. Bátamir em búnir lofthólfum, þannig að þeir sökkva ekki og auðvelt er að rétta þá við. Þriðja gerð sigla er svo segibrettið, en það er langminnst og á margt sameigin- legt með kænum, nema hvað brettin em léttari, plana fyrr og ná meiri hraða. Þessi grein siglinganna hefur vaxið hraðast hér á landi á síðustu ámm. Auk ofangreindra flokka eru einnig til tví- og þríbolungar, sem náð hafa mikilli útbreiðslu erlendis á síðari ámm og em afkvæmi eintijáninga Polynesíumanna. Þeir era hraðskreiðir og stöðugir, en hins vegar er erfitt að rétta þá við ef þeim hvolfir. Fljótandi sumarbústaðir Ari Bergmann Einarsson er gamalreyndur siglingamaður og formaður Siglingasambands íslands. Hann segir að margir noti seglbáta sem einskonar fljót- andi sumarbústað, sigli út fyrir borgina með fjölskyldur sínar, tjaldi í víkum og fjörðum eða sofi í bátnum. „Það þarf ekki að fara langt út fyrir borgina til þess að finna sannkallaðar paradísir þar sem skemmtilegt er að fara með fjölskylduna í smá útilegu. Til dæmis er mjög gaman að sigla upp að Mýmm eða jafnvel bara upp á Kjalarnes, þar em ákaflega fallegar siglingaleiðir þó fáa gruni það sem aka þar um í bíl.“ Að líða um hafið í seglbát er sveipað rómantískum ljóma í hugum margra. Að- eins þytur í seglum eða kvak í mávum geta tuflað fullkomna kyrrð; heilnæmt sjávarloft, hreint og ferskt, fyllir vit og lungu. En siglingar em að sama skapi tákn um ríkidæmi og auðlegð í margra huga, sport ríka mannsins. Það má til sanns vegar færa að seglbát- ar geta verið dýrir, en það er þó afar misjafnt eftir gerð og útbúnaði bátsins. Kristján Óli Hjaltason hjá heildversluninni Króla hefur flutt töluvert inn af bátum og útbúnaði til siglinga. Að sögn Kristjáns kosta svokallaðir æfingabátar, það em kænur fyrir byijendur, frá 80 til 220 þús- und krónum. Einsmanns bátur fyrir þá sem em lengra komnir kostar hins vegar á milli 150 og 400 þúsund krónur. Kjölbát- amir eru töluvert dýrari og kosta frá 650 þúsund krónum hjá Króla. Að sögn Kristj- áns em flestir kjölbátar sem í notkun em hér á landi á verðbilinu 900 þúsund til 2,4 milljónir króna, en dýrari bátar eru þó til hér. Flestir em þessir bátar í einka- eign, stundum em tveir um bát en sjald- gæft að fleiri eigi bát saman. Börn og unglingar þurfa þó ekki að leggja út í miklar fjárfestingar til þess að kynnast siglingaíþróttinni, því á vegum margra bæjarfélaga em starfrækt sigl- inganámskeið yfir sumartímann. Flestir þekkja til siglinganámskeiðanna á vegum Reykjavíkur og Kópavogs, enda hafa þau notið mikilla vinsælda hjá börnum og unglingum á undanförnum ámm. Páll Kolbeinsson hefur umsjón með siglinga- námskeiðum á vegum Reykjavíkurborgar hjá siglingaklúbbnum Siglunesi í Naut- hólsvík, en hann segir að áhugi á sigling- um fari sífellt vaxandi. Veðrátta hefur þó mikil áhrif á aðsóknina og vissulega hefur leiðinlegt veður í sumar sett mark sitt þar á. — Páll segir að flestir séu krakkarnir á aldrinum 10 til 14 ára, en aldursflokkur- inn 15 til 17 ára hafi dottið út vegna ónógrar endurnýjunar í bátaflotanum fyr- ir nokkmm ámm. Það stendur nú til bóta, enda voru nýir bátar keyptir á síðasta ári, þar á meðal nýr kjölbátur sem er sá fyrsti sem Siglunes kaupir. Að sögn Páls er siglingaklúbburinn ekki aðeins fyrir unglinga, þar er einnig bátaleiga og full- orðinskennsla fyrir þá sem vilja. Aðstaða og aðstæður Víkingarnir voru snjallir siglingamenn og svo virðist sem afkomendur þeirra búi enn yfir þeirri náðargáfu. Að minnsta kosti eru siglingar ein vinsælasta almenn- ingsíþróttin á hinum Norðurlöndunum. Þrátt fyrir veðráttu em aðstæður til siglinga á margan hátt ákjósanlegar hér á landi að sögn Ara. Þó ótrúlegt megi virðast er ís á vetmm til dæmis meira vandamál á hinum Norðurlöndunum, þar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.