Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 27
r MORGUNBLAÐIÐ MINNINGÁR /I ’AG' K'PTKMBEK 1989 C 27 þar, fyrr en nokkur ár liðu. Þetta var í karlríku árferði sem lengi stóð, enda var Hulda frá Nesi einasta stúlkan sem mætti þar til náms, meðan við mættum þar máske 30 piltar til að sprikla þar einn og hálfan mánuð. Það var Valdimar Sveinbjarnarson fimleikakennari sem kenndi og var hann lengi í minni manns. Nokkrum árum seinna voru þau bæði samtímis á Laugaskóla, Hulda frá Nesi og Jón á Víðivölium, þetta var árið 1928-’29. Hann var skamman tíma vetrar að afla sér fanga til þess kennaraprófs sem hann þreytti og tók létt nokkru seinna og hóf þar með sitt lífsstarf við kennslu og uppeldismál, þar sem mikið rúmaði víðsýni hans og þá kærleiksþelið sem hann bar innra með sér. Hulda þreytti sitt lokavorpróf og skilaði úrlausnum sínum lofsamlega sem lesa má í skólaskýrslum í árs- riti okkar Laugamanna sem þau áttu góðan þátt í að út kom um tíu ára skeið. Meira orð fór af þeirri tijáræktar- og gróðrarstöð sem breiddi sig út frá Víðivöllum og húsfreyjan átti svo mikinn hlut að, allt frá því hún var á Laugum með Jóni, heldur en hinu að hún hafi eitt sinn skrifað prófritgerð um fossaflið í bókmenntum vorum. Fór hér allt að vonum Jóns og frænda hans sem brutust í hríð og ófærð þvert um hálft hérað til liðs við baráttumenn Laugaskóla á þeim örlagafundi sem yfir stóð heima hjá Katli á Fjalli, Aðaldal. Vita nú færri um hvað þakka má að þeim burt- fluttum hveijum á eftir öðrum í nokkra flarlægð með óljósum lahda- mærum, en margt vissi Jón um þetta. Jón á Víðivöllum sem var um hálfrar aldar skeið í varðstöðu síns byggðarlags bæði um hagsæld í búsýslu og andlega úrvinnslu, hvað hollt sé eða máske hættulegt. Hon- um kynni að hafa brugðið ef hlýtt hefði á eða horft til þar sem sjón- varpsþátturinn fór fram, þar sem sátu að tali prestur þjóðkirkjunnar þeirrar sem við höfðum svo oft mætt til fundar saman, og ung væntanleg fermingarbörn og nút- ímalegur tóntískumaður-með eigin hugboð um list og trúboð. Borgar- legi fermingardrengurinn sem sagðist vilja verða, en sagðist þó ekki vera ráðinn í að verða kristinn maður. Við höfðum dvalið frændur all lengi saman á hvorri hæð hússins á Akureyri án þess að vita gjörla hvor um annan. þar sem góðverkin eru unnin: „Blindir fá sýn, haltir ganga, líkþráir hreinsast, daufir heyra og dauðir rísa upp og fátæk- um er boðað fagnaðarerindið." Kalla má virkilegt upprisutrúboð. Það var glaðasólskin um alla fannbreiðuna hinn 8. apríl þegar jarðarför Jóns á Víðivöllum fór fram frá Hálsakirkju í Fnjóskadal. Fjöldi barst að úr öllum áttum, ásamt ell- efu þjónandi prestum, sumum óra- langt að komnum. Sú blæfagra sóknarkirkja með þó einkenni stéttaskipta fyrri tíma í fegurð sinni, rúmaði víst fátt eitt af því fólki, en tæknibúnaður sá um að hver mætti vera sem hjá öðrum á þeirri stund svo sem orðið gat. Hinn fölblái og hreinbjarti fánalitur þeirr- ar aldamótaæsku sem hér var á förum eða farinn, hann drúpti á hvítu kistulokinu en greinar úr heimaskógi húsbændanna á Víði- völlum þöktu yfir brúna moldar- binginn sem maður vissi um hjá gröfinni. Hin unga séra Yrsa Þórð- ardóttir á Hálsi hafði með virðuleg- um en látlausum hætti minnst þessa ijölhæfa ræktunarmanns héraðs- búa sem Jón á Víðivöllum var, nú mælti hún fram úti í hækkandi dagsbrún þessa hvíta vors: „Af jörðu skaltu aftur upp rísa.“ Það var mjög við hæfi erfidrykkj- an sem fram fór í Stórutjarnaskól- anum þar sem Víðivallafólk hafði best staðið að baki þess málefnis og enn stráðu hér bláir og hvítir litir sínum minningum um veitinga- borðin. Sú æska sem nýtur ávaxt- anna og þeirra grænu skóga sem til er sáð, mun þó draga sinn þrílita frelsisfána að hún. Jón Jónsson Fremstafelli Legsteinar MARGAR GERÐIR Mamom/Granít Steinefnaverksmiöjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjöröur Legsleinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. 1 S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 SÍMI 76677 KOMIÐ Á TÖLVUNÁMSKEIÐ Grunnnámskeið f einkatölvum verður haldið dagana 4.-6. september í Verzlunarskóla íslands. Kennt verður á kvöldin milli kl. 19.00 og 22.00. Lítill hópur - einn á tölvu. Ýmis stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku. Skráning og frekari upplýsingar: Sfmi 91-688400. Verzlunarskóli íslands mm if Laugavegi 170 -172 Simi 695500 Hér renna bifreið og náttúra saman í eina listræna heild. Óendanleg orka sem aldrei bregst. Sígilt útlit. Verð kr. 3.295.000.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.