Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.09.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER ,1$89 , C 31 heldur tón- leika á Norð- urlöndunum Morgunblaðið/Albert Kemp Frönsku krakkarnir sem komu hingað til lands í tengslum við vinarbæjarmót Gravelines og Fáskrúðsflarðar. HLJOMSVEITIN Islandica heldur í þriggja vikna tónleika- ferðalag um Noreg, Svíþjóð, Finnland og Alandseyjar 3. september. Ferðin er skipulögð af Menningar- og fræðslusam- bandi alþýðu og hliðstæðum félögum þess á Norðurlöndum. Hljómsveitin heldur tónleika á ýmsum stöðum í þessum löndum, heimsækir vinnustaði og stofnanir og kemur fram á samkomum og fundum. Á efniskránni eru aðal- lega íslensk þjóðlög og lög eftir meðlimi hljómsveitarinnar. Með í farteskinu verður hljóm- plata sem hljómsveitin hefur ný- lokið upptökum á. Ber hún heitið „Folks Songs and Fantasies/Þjóð- lög fyrr og nú“ og inniheldur blöndu af islenskum þjóðlögum og lagasmiðum hljómsveitarmeð- lima. Tónleikaferðalag Islandica er liður í samvinnu MFA-samtak- anna á Norðurlöndum.Áður hafa íslenskir tónlistarmenn heimsótt Noreg og Svíþjóð og Svíar og Danir hafa heimsótt Island. Ann- að samstarf MFA-samtakanna á Norðurlöndum felst í Norrænu MFA-skólunum sem er árlegt tveggja vikna námskeið, sameig- inlegri útgáfu fræðslurita og ráð- stefnum um fræðslu- og menning- armál launafólks. Hljómsveitina Islandiea skipa Gísli Helgasson, Guðmundur Benediktsson, Herdís Hallvarðs- dóttir og Ingi Gunnar Jóhannes- son. Fáskrúðsfi örður: Franskir krakkar í heimsókn Fáskrúðsfirði. KRAKKAR frá Gravelines ásamt fylgdarliði hafa verið í heimsókn á Fáskrúðsfirði undanfarna daga, en heimsóknin byrjaði sl. ftístudag og lýkur í dag, laugar- daginn 2. september. Þau halda áleiðis til Frakklands á sunnu- dagsmorgun. Þau hafa farið til Þingvalla og síðan að Gullfossi og Geysi, þau fóru suðurleiðina austur til Fá- skrúðsfjarðar með viðkomu í Skaftafelli og sigldu á bátum á Jökulsárlóni, síðan skoðuðu þau Austurland. M.a. var farið með þau á Snæfell þar sem þau gistu eina nótt. Þau láta mjög vel af veru sinni hér á íslandi og finnst margt mjög merkilegt að sjá. Höfðu þau orð á því að þeim fyndist að sjá teppi á gólfunum í Flugstöðinni í Keflavík og að hægt sé að borða berin beint af lynginu. Með í ferðinni er einn úr bæjar- stjórn Gravelines, Christian Marq- vis, ásamt eiginkonu sinni. Túlkur kom með hópnum og er það Lilja Skaftadóttir, sem búsett er í París. Unnið er að vinarbæjartengslum milli Gravelines og Fáskrúðsfjarðar og var fundað um það hér við komu þeirra hingað. Sveitarstjórnarmenn og krakkar héðan fóru til Graveli- nes í maí sl. vor. - Albert sem hann hefur starfað sem félags- málafulltrúi í samtökum blindra í Vestur-Noregi og hún á endur- hæfingarheimili fyrir áfengissjúkl- inga sem Hjálpræðisherinn rekur þar. Þau hjónin munu veita forstöðu Vistheimilinu Bjargi á Seltjarnar- nesi, en það heimili rekur Hjálp- ræðisherinn í samvinnu við Ríkisspítalana. Majór Lív Krötö sem undanfarin tólf ár hefur stjórn- að heimilinu af miklum myndar- skap mun nú láta af stjórn og síðar meir taka við öðrum verkefnum innan Hjálpræðishersins. Erlingur og Ann Merete munu einnig taka þátt í safnaðarstarfi Hjálpræðishersins í Reykjavík. Þeim til heiðurs verður samsæti fyrir alla herflölskylduna sunnu- daginn 3. september eftir hádegi og um kvöldið. verður fagnaðar- samkoma fyrir þau. Deildarstjóra- hjónin, kapteinarnir Anne og Dan- íel Oskarsson, munu stjórna þess- um samkomum. Morgunblaðið/BAR Hljómsveitin Islandica, Guð- mundur Benediktsson, Gísli Helgason, Jón Gunnar Jóhanns- son og Herdís Hallvarðsdóttir. Islandica Nýir foringjar til starfa Hingað til lands eru komin til starfa hjá Hjálpræðishernum hjónin Ann Merete Jakobsen og Erlingur Níelsson, lautinantar, ásamt börnum sínum, Jan Her- mann, fjögurra ára, og Rebekku, tveggja ára. Erlingur er Akureyringur, sonur hjónanna Hermínu Jónsdóttur og Níelsar Jakobs Erlingssonar, 27 ára gamall. Að loknu skólanámi starfaði Erlingur við Vistheimilið Sólborg á Akureyri. Samanlagður starfstími hans þar er þijú ár. Árið 1981 fór hann utan til Noregs til að nema við foringjaskóla Hjálp- ræðishersins. Þar kynntist hann einnig konu sinni, Ann Merete, og að námi loknu giftust þau á gaml- árskvöld 1983. Ann Merete er norsk, frá Bodö í Norður-Noregi. Saman hafa þau starfað sem flokksforingjar í Lille- hammer og á ísafirði. Þar starfaði Erlingur einnig við þjálfunar- og þjónustumiðstöðina Bræðratungu, m.a. í tvö ár sem forstöðumaður. Frá ísafirði fluttust þau fyrir rúmu ári til Björgvinjar (Bergen), þar Hjónin Ann Merete og Erlingur Níelsson, lautinantar. Hjálpræðisherinn: Einingar fyrir: 1. Kæli- og ‘frystiklefa. 2. Iðnaðar- bg geymsluhúsnæði. 3. Milliveggi 4. Stjórnklefa. Ásamt hurðum og hurðabúnaði. (Meðmæli: Fakafrost, Hafnarfirði.) / Tfet. OFFICE 354-1-670057 354-1-670720 TELEFAX 354-1-670056 Cestokennori vetrorins Happy Miller kemur aö þessu sinni frá Bandoríkjunum. Honn hefur kennnt víöo og á sér oö boki litríkan donsferil. Aörir kennoror eru: Sóley, Emelío, Jón Egill og Bjorgey ÓLEYJAR 1 vetur bjóöum viö uppá 12 vikno námskeiö í jazz - modern - ballet fyrir byrjendur og fram- holdshópa á öllum oldri. Houstönn hefst I 7. sept. og lýkur meö nem- endosýningu. Innritun hefst 4. sept. / símum 687701 - 687801 í Dansstúdíói Sóleyjar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.