Morgunblaðið - 09.09.1989, Side 1
64 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
204. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fyrstu yfirlýsingar pólsku ráðherranna:
Kommúnisminn aflagður
og komið á markaðskerfí
í gærkvöldi hafði tekist að finna
lík 32 manna í sjónum en leit
varð að hætta sökum myrkurs.
Danskar björgunarþyrlur og
skip voru þá á slysstaðnum en
það voru vestur-þýsk herskip,
sem voru á flotaæfingu Atlants-
hafsbandalagsins, sem fyrst
komu á vettvang og var mynd-
in tekin þegar komið var með
lík hinna látnu til Hirtshals.
Varsjá. Reuter.
RAÐHERRAR Samstöðu í nýrri ríkisstjórn í Póllandi hétu því í gær
að kasta strax fyrir róða efnahagskerfi kommúnismans og treysta i
sessi sjálfstæði landsins eftir áratugalanga þjónkun við Moskvuvald-
ið. Sögðu þeir, að pólsku þjóðinni hefði gefist sögulegt tækifæri til
að koma á vestrænu markaðskerfi og það yrði hún að gera hvað
sem það kostaði.
„Við höfum fengið sögulegt tæki-
færi til að koma á vestrænu mark-
aðskerfi," sagði Leszek Balc-
erowicz, fjármálaráðherra og sá
aðstoðarforsætisráðherranna, sem
fer. með efnahagsmál, og einnig að
Samstaða væri reiðubúin að grípa
til harðra aðgerða. Lagði hann
áherslu á, að kveða yrði niður verð-
bólguna með öllum ráðum en hún
er nú um 200%. „Við verðum að
draga stórlega úr peningaframboði
og það mun vafalaust hafa mikil
skammtímaáhrif á framleiðslu og
atvinnuástand," sagði Balcerowicz
og bætti því við, að lífskjör almenn-
ings myndu versna en ekki í langan
tíma. Þá sagði hann, að opinberar
verðákvarðanir yrðu lagðar af nema
í undantekningartilfellum og komið
á fót sérstakri stofnun tii fylgjast
með upprætingu hins kommúníska
kerfis.
Aðrir ráðherrar Samstöðu sögðu
óhjákvæmilegt að loka mörgum
verksmiðjum með tilheyrandi at-
vinnuleysi og Jacek Kuron, atvinnu-
málaráðherra og einn af kunnustu
baráttumönnum Samstöðu frá upp-
hafi, sagði, að best væri að viður-
kenna strax óhjákvæmilega lífs-
kjaraskerðingu — því fyrr myndi
þjóðin rétta úr kútnum. Sagði hann,
að verðbólgunni yrði að náð niður
en tryggja um leið, að enginn sylti
heilu hungri. Lagði hann til, að
komið yrði upp matargjafamið-
stöðvum á vegum einkaaðila til að
hjálpa fátæku fólki í gegnum þreng-
mgarnar.
Utanríkisráðherra nýju stjórnar-
innar, Krzysztof Skubiszewski, sem
er utan flokka en kunnur fyrir starf
sitt fyrir kaþólsku kirkjuna, sagði
í gær í sinni fyrstu opinberu yfirlýs-
ingu, að hann ætlaði að kreijast
þess af Sovétstjórninni, að hundruð-
um þúsunda Pólveija, sem Stalín
flutti nauðuga til Sovétríkjanna,
yrði leyft að snúa heim. Er litið á
þessi orð hans sem eins konar sjálf-
stæðisyfirlýsingu gagnvart Sov-
étríkjunum.
Samstaða hefur 10 ráðherra í
nýju stjórninni, Kommúnistaflokk-
urinn og Bændaflokkurinn fjóra
hvor og Demókrataflokkurinn þijá.
Tekur stjórnin formlega við nk.
þriðjudag.
Aftenposten
Fimmtíu og fímm fórust í flugslysi við Jótland;
Getgátur uppi um sprengingu
í mesta slysi norskrar flugsögu
Endi bundinn á kosningabaráttuna í Noregi í virðingarskyni við hina látnu
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
MARGT bendir til, að sprenging
hafi orðið í norsku flugvélinni, sem
hrapaði í sjóinn vestur af Jótlandi
um kl. 16.30 í gær að staðartíma.
Allir um borð, 50 farþegar og
fimm manna áhöfn, eru taldir af
en skömmu áður en slysið varð
tilkynnti flugstjórinn, að ekkert
Ungverjaland:
Þjóðfélagið er rotið
og’ við viljum frelsi
- segja austur-þýskir flóttamenn í samtali við Morgunblaðið
Búdapest. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgnnblaðsins.
GETGATUR um hvenær og
hvernig 6.200 Austur-Þjóðverj-
um, sem nú halda til í flótta-
mannabúðum í Ungverjalandi,
verður hleypt til Vestur-Þýska-
lands, voru efst á baugi í búðun-
um í Búdapest í gær. Enginn
virtist vita svarið, en Reznö Ny-
ers, umbótasinni í ungverska
kommúnistaflokknum, sagði í
stuttu samtali við Morgunblaðið,
að hann teldi víst að vandinn
yrði leystur innan fárra daga.
Ekki hafa þó allir þolinmæði til
þess að bíða eftir að komast með
löglegum hætti frá Ungveijalandi.
Rétt í því, sem ég skrifa þetta,
heyri ég símtal ungs Austur-Þjóð-
veija við skrifstofur Rauða krossins
í Austurríki. Hann segist ætla að
reyna að komast yfir hina svoköll-
uðu „grænu línu“ miili landanna í
nótt og spyr hvert hann eigi að
snúa sér ef það takist. Honum er
sagt að gefa sig fram á fyrstu
brautarstöð innan Austurríkis.
Sumir hafa nú beðið eftir farar-
leyfi í mánuð. Tveir piltar um
tvítugt frá Meissen sögðust hafa
reynt þrisvar fyrir fjórum vikum
að komast ólöglega til Austurríkis
en voru gripnir í öll skiptin.
Danskennarahjón milli þrítugs
og fertugs og sextán ára sonur
þeirra frá Erfort hafa beðið í hálf-
an mánuð. „Ég er bjartsýnismaður
og er sannfærður um að vera far-
inn héðan innan þriggja daga.“
Önnur hjón um þrítugt, sem flugu
frá Austur-Berlín tii Búdapest á
fimmtudag með fimm og tólf ára
gamlan son sinn, sögðust reiðubúin
að bíða eins lengi og þyrfti. „Við
förum aldrei aftur til Austur-
Þýskalands. Þjóðfélagið er rotið.
Við viljum frelsi og tækifæri til
þess að nýta krafta okkar,“ sagði
maðurinn. „Það var sárt að fara
en við getum skapað sonum okkar
betri framtíð í Vestur-Þýskalandi,“
sagði konan.
amaði að. Þetta er mesta flugslys,
sem orðið heftir í norskri flug-
sögu, og vegna þessara tíðinda
ákváðu formenn norsku stjórn-
málaflokkanna að binda enda á
slaginn fyrir kosninganiar á
mánudag.
Það var norska útgerðarfyrirtækið
Wilhelm Wilhelmsen, sem hafði flug-
vélina á leigu, og var ferðinni heitið
til Hamborgar þar sem átti að hleypa
af stokkunum nýju skipi. Vitað er,
.að allir um borð voru Norðmenn.
Flugvélin, sem var af gerðinni
Convair Metropolitan, var í eigu
leiguflugfélagsins Partnair og komin
til ára sinna, smíðuð í Bandaríkjun-
um árið 1953, en nýkomin úr mikilli
klössun í Kanada.
Flugumsjónarmönnum í Noregi og
Danmörku bárust engin boð um neitt
athugavert en skyndilega hvarf vélin
af ratsjárskermunum í Kastrup.
Síðar kom í ljós, að flugvélin hafði
hrapað í sjóinn 16 sjómílur norðvest-
ur af Hirtshals á Jótlandi. Á litlu
svæði flutu tík hinna látnu og brak
úr vélinni maraði enn í sjávarborð-
inu. Ekki er enn vitað hvað slysinu
olli en ljóst þykir af brakinu í sjón-
um, að flugvéiin hefur steypst niður
mjög skyndilega. Segja sumir, að
langlíklegast sé, að sprenging hafi
orðið um borð eða að dyr á vélinni
hafi svipst upp.
Slysið við Skagerrak er það mesta
í norskri flugsögu og einnig það
mesta, sem orðið hefur í danskri lög-
sögu. Vegna þessa ákváðu formenn
norsku stjórnmálaflokkanna að
hætta öllum áróðri og fundahöldum
vegna þingkosninganna á mánudag.