Morgunblaðið - 09.09.1989, Blaðsíða 22
/
t ** *
g2—, MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989
Sambandsstjórnin sam-
þykkti ekki byggingarlBram-
kvæmdirnar í Laugardal
- segir Guðfínnur Ólafsson formaður Sundsambands íslands
„ÞAÐ er ekki rétt sem haft er
eftir Sveini Björnssyni forseta
íþróttasambands ísiands að
sambandssljórnin hafi sam-
þykkt fyrirhugaða byggingu í
Laugardal,“ sagði Guðfinnur
*Ólafsson formaður Sundsam-
bands íslands en sambandið
helur gagnrýnt framkvæmdir
íþróttasambands íslands, sem
þegar eru hafnar í Laugardal í
samvinnu við íslenska getspá.
Guðfinnur sagði að samkvæmt
lögum íþróttasambandsins hefði
sambandsstjórnarfundur ekki
heimild til að taka ákvarðanir um
svo veigamikla og fjárfreka fram-
kvæmd. Það væri íþróttaþings að
ákveða enda hefði einungis verið
samþykkt á fundinum í Borgar-
nesi, að heimila byggingarnefnd
að vinna enn frekar að undirbún-
ingi og jafnframt að kanna framt-
íðar húsnæðisþörf sambandsins.
„Þegar síðan koma að íþróttaþingi
rúmu hálfu ári síðar, var ekki
getið um fyrirhugaða byggingar-
framkvæmdir í dagskrá fundarins
né kom það fram í fjárhagsáætlun
íþróttasambandsins fyrir yfir-
standandi ár að veita ætti fé til
framkvæmdanna," sagði Guðfinn-
ur. „Þar var hins vegar samþykkt
eins og sjá má í fundargerð, til-
laga frá Ftjálsíþróttasambandi ís-
lands, íþróttabandalagi
Reykjavíkur, Körfuknattleikssam-
bandi íslands, Sundsambandi ís-
lands og Borðtennissambandi ís-
lands, um að skipuð yrði fimm
manna nefnd til að endurskoða
nýtingu og væntanlega húsnæðis-
þörf íþróttasamtakanna vegna
starfseminnar í íþróttamiðstöðinni
við Sigtún í Laugardal og átti nið-
urstaða nefndarinnar að liggja
fyrir 1. apríl síðastliðinn."
Guðfinnur sagði það ljóst að
íþróttasambandið þyrfti að byggja
í Laugardalnum, en það ætti ekki
að gerast með þessum hætti.
„íþróttasambandið á að eiga allt
húsið en ekki hluta þess og leigja
síðan íslenskri getspá, sem ég get
ekki séð að þurfi að fá inni í Laug-
ardalnum,“ sagði Guðfinnur. „Þá
má ekki gleyma að stjórnvöld hafa
skorið niður fé til íþróttasam-
bandsins og því verður íþrótta-
hreyfingin að sníða sér stakk eftir
vexti og bíða með frekari fram-
kvæmdir."
Kvikmynda-
sýningar MIR
FÉLAGIÐ MÍR, Menningar-
tengsl íslands og Ráðstjórn-
arríkjanna, gengst að venju fyr-
ir reglubundnum kvikmynda-
sýningum á sunnudögum í haust
og vetur í bíósal félagsins,
Vatnsstíg 10. Sýningarnar heQ-
ast kl. 16 hvern sunnudag og
sýndar verða gamlar og nýjar
sovéskar kvikmyndir, leiknar
myndir og heimildarmyndir.
I september verða sýnd verk
eftir þrjá af kunnustu kvikmynda-
gerðarmönnum Sovétríkjanna á
síðari árum: 10. sept: Einn af okk-
ur meðal ókunnugra, ókunnugur
okkar á meðal; leikstjóri: Nikita
Mikhalkov. 17. sept: Uppgangan
(Seigla); leikstjóri Larisa Shepitko.
24. sept: Komdu og sjáðu; leik-
stjóri: Elím Klímov.
Stórmynd S. Bondartsjúks, Stríð
og friður, verður væntanlega sýnd
á „maraþonsýningu" með líkum
hætti og í fyrra.
GENGI OG GJALDMIÐLAR
GENGISSKRÁNING
Nr. 171 8. september 1989
Ein. Kl. 08.15 Kaup Sala gangi
Dollari 61,94000 62,10000 61,16000
Sterlp. 95,70000 95,94800 95,65400
Kan. dollari 52,22800 52,36300 52,05100
Dönsk kr. 8,04420 8,06490 8,01840
Norsk kr. 8,58100 8,60230 8,55150
Sœnsk kr. 9,27520 9,29920 9,22060
Fi. mark 13,86920 13,90510 13,84020
Fr. franki 9,27040 9,29430 9,24640
Belg. franki 1,49300 1,49680 1,49050
Sv. franki 36,20530 36,29880 36,11030
Holl. gyllini 27,70440 27,77590 27,62670
V þ. mark 31,23080 31,31150 31,14050
ít. líra 0,04357 0,04369 0,04343
Austurr. sch. 4,43540 4,44680 4,42440
Port. escudo 0,37440 0,37530 0,37300
Sp. peseti 0,50100 0,50220 0,49810
Jap. yen 0,42258 0,42367 0,42384
írskt pund 83,33700 83,65200 83,12300
SDR (Sérst.) 76.57150 76,76930 76,18520
EíCU.evr.m. 64,81090 64,97830 64,66140
Tollgengi fyrir september er sölugengi 28. ágúst.
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 7. september
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð(kr.)
Þorskur 61,50 53,00 59,79 26,438 1.580.687
Þorskur(smár) 30,00 30,00 30,00 0,014 420
Ýsa 93,00 40,00 81,40 9,373 763.083
Karfi 34,50 25,00 32,85 55,328 1.817.362
Ufsi 34,50 20,00 33,50 82,142 2.751.807
Steinbítur 48,00 36,00 45,92 3,450 158.471
Langa 43,00 36,00 41,43 2,242 92.893
Lúða 205,00 25,00 128,27 0,658 84.461
Koli 59,00 59,00 59,00 0,068 4.012
Skata 205,00 91,00 152,00 0,021 3.268
Skötuselur 106,00 106,00 106,00 0,049 5.247
Blandað Samtals 59,00 59,00 59,00 40,39 0,031 179,817 1.829 7.263.540
Á mánudag verður boðinn upp bátafiskur. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur
Þorskur 70,00 27,00 59,32 19,017 1.128.081
Þorskur(smár) 12,00 12,00 12,00 0,016 192
Ýsa 91,00 50,00 84,60 12,244 1.035.844
Ýsa(undirmáls) 15,00 15,00 Í5,00 0,033 495
Karfi 38,00 27,00 33,19 6,103 202.588
Ufsi 37,00 15,00 35,42 8,508 301.404
Ufsi(undir- máls) 15,00 15,00 15,00 0,172 2.580
Steinbítur 50,00 46,00 46,71 0,197 9.202
Langa 37,00 37,00 37,00 0,555 20.535
Siginn fiskur 50,00 50,00 50,00 0,027 1.350
Lúða(stór) 170,00 170,00 170,00 0,084 14.280
Lúða(smá) 245,00 195,00 200,29 0,085 17.025
Sólkoli 60,00 60,00 60,00 0,292 17.520
Skarkoli 55,00 35,00 40,29 0,354 114.262
Hnísa 5,00 5,00 5,00 0,067 335
Skötuselur 80,00 80,00 80,00 0,023 1.840
Blandað Samtals 20,00 20,00 20,00 57,91 0,014 47,792 280 2.767.813
Selt var úr Skagaröst KE, Freyju RE og verður selt úr neta- og færabátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. bátum. Á mánudag
Þorskur 61,00 46,50 58,13 14,929 867.811
Ýsa 101,00 20,00 72,70 3,375 245.370
Karfi 31,50 15,00 24,96 3,001 74.893
Ufsi 37,50 25,00 32,65 5,043 164.668
Steinbítur 49,50 15,00 46,73 0,653 30.513
Langa 34,50 22,00 26,48 0,706 18.693
Lúða 265,00 105,00 180,95 0,231 41.800
Sólkoli 38,00 38,00 38,00 0,008 304
Skarkoli 35,00 24,00 24,41 0,293 7.153
Keila 17,00 5,00 13,24 0,851 11.267
Skata 160,00 40,00 82,46 0,109 8.988
Skötuselur 225,00 52,00 181,75 0,008 1.454
Öfugkjafta 15,00 15,00 15,00 0,015 225
Lax 190,00 190,00 190,00 0,035 6.650
Hlýri 15,00 15,00 15,00 0,029 435
Blandað Samtals 15,00 15,00 15,00 50,32 0,180 29,466 2.700 1.482.924
Á mánudag verður seldur karfi 8 tonn úr Ágústi Guðmunds-
syni. Einnig verður seldur bátafiskur. Eldeyjarboði selur 20 t
af blönduðum afla.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 4. til 8. september.
Þorskur 94,93 681,538 64.696.859
Ýsa 110,44 25,185 2.781.525
Ufsi 39,07 9,950 388.737
Karfi 66,60 0,765 50.952
Koli . 126,36 0,765 50.952
Blandað 132,72 2,495 331.134
Samtals 91,07 182,870 Súlan EA seldi í Hull, og Hjörleifur RE í Grimsby. 16.653.572
GÁMASÖLUR í Bretlandi 4. til 8. september.
Þorskur 94,93 681,538 64.696.859
Ýsa 102,07 298,335 30.451.768
Ufsi 38,51 21,965 845.890
Karfi 55,60 27,580 1.533.385
Koli 89,24 91,810 8.192.743
Blandað 110,50 104,297 11.524.414
Samtals 95,67 1,225 117.245.109
SKIPASÖLUR i Vestur-Þýskalandi 4. til 8. september.
Þorskur 87,39 74,774 6.534.639
Ýsa 99,99 6,230 622.916
Ufsi 60,68 102,438 6.215.911
Karfi 87,58 362,073 31.711.138
Grálúða 100,28 1,845 185.023
Blandað 29,08 30,550 888.492
Samtals 79,87 577,910 46.158.122
Selt var úr Guðmundi Kristni SU, Ögra RE, Framnesi ÍS og
Skafta SK í Bremerhaven.
Morgunblaðið/Hrafnkell A. Jónsson
Aðalsteinn Jónsson, forstjóri Hraðfrystihúss EskiQarðar hf. af-
henti Hrefhu Teitsdóttur forstöðumanni Leikskólans Melbæ á
Eskifirði, leiktæki að gjöf frá Hraðfrystihúsinu.
Eskigörður;
Leikskólanum Mel-
bæ afhent leiktæki
Eskifírði.
AÐALSTEINN Jónsson for-
stjóri Hraðfrystihúss Eskifjarð-
ar hf. afhenti Hrefinu Teits-
dóttur, forstöðumanni Leik-
skólans Melbæ á Eskifírði, leik-
tæki að gjöf frá Hraðfrystihús-
inu.
Hér er um að ræða leiktæki
framleidd af Barnasmiðjunni í
Kópavogi, hin vandaðasta smíð.
Börnin í Melbæ kunna vel að
meta þessa viðbót við leiktækin
og starfsfólkið iýsti ánægju sinni
með gjöfina.
Það kom fram 1 viðtali við
Hrefnu Teitsdóttur, forstöðumann
Melbæjar, að staðið hefur yfir
endurnýjun á leikskólanum und-
anfarin ár. Lokið er að endurnýja
þann hluta húss leikskólans sem
ætlaður er fyrir börnin, eftir er
hins vegar að endurnýja starfs-
mannaaðstöðu og að mestu ióð
hússins.
í Melbæ geta verið mest 70
börn og er starfseminni skipt í
deildir, 3 fyrir hádegi og 3 eftir
hádegi, en börnin eru á leikskólan-
um 4 klst. á dag. Leikskólinn er
ekki fullskipaður I dag, enda
venjulega lægð í aðsókn eftir sum-
arleyfi.
- HAJ
Flugfax;
Hömlum ekki viðræðum um
hleðslutæki fyrir breiðþotur
GUÐMUNDUR Þór þormóðsson,
framkvæmdastjóri Flugfax, um-
boðsaðila flugfélagsins Federal
Express á Islandi, segir það
rangt, sem skilja hefði mátt af
ummælum stöðvarstjóra Flug-
leiða í Keflavík, í Morgunblaðinu
á þriðjudag, að staðið hefði á
Flugfaxmönnum, að ræða um
kaup á tæki til hieðslu inn á efra
þilfar breiðþotna á Keflavíkur-
flugvelli. Hefðu þeir komið boð-
um til Flugleiða um að þessi mis-
skilningur yrði leiðréttur en það
hefði því miður ekki verið gert.
„Við höfum margsinnis óskað
eftir þessari þjónustu við Flugleið-
ir,“ sagði Guðmundur Þór Þormóðs-
son. „Við höfum haft þörf fyrir
Leiðrétting
Fyrir nokkru birtist í blaðinu
ályktun, þar sem mótmælt var 4%
niðurskurði á rekstrargjöldum
stofnana fyrir fatlaða. Ranghermt
var í fréttinni að Svæðastjórn um
málefni fatlaðra á Reykjanesi hafi
staðið að þessari ályktun. Það voru
þroskaþjálfar er starfa á vegum
Svæðasíjórnarinnar, sem að henni
stóðu. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
hana og þurft að neita flutningum
þar sem við höfum ekki getað notað
efra dekk fiugvélanna. Til dæmis
höfum við ekki getað komið hross-
um til Evrópu né heldur tekið á
inóti vörum, s.s. móðurtölvum, sem
eru hærri en 1,60 metrar. Þá má
nefna að til að útflutningur á fiski
með flugi til Bandaríkjanna sé arð-
-bær verður að taka minnst 35-40
tonn í hverri ferð. Þetta höfum við
ekki getað gert þar sem magnið sem
kemst á neðra dekk í Boeing 747
og DC-10 vélum nægir ekki til.“
Þörfin er því til staðar, sagði
Guðmundur, og taldi hann Flugfax
ekki eiga að þurfa að leggja fram
neina frekari réttlætingu á henni.
„Að okkar mati verður aðili sem
hefur einkarétt á afgreiðslu að upp-
fylla allar afgreiðslubeiðnir.“
Guðmundur sagði Flugfaxmenn
hafa haldið ágætan fund með forr-
áðamönnum Flugleiða 24. ágúst sl.
en hefði sá fundur verið haldinn
að þeirra eigin frumkvæði í gegnum
þriðja aðila. Sagði hann Flugfax
hvorki hafa borist ósk um fund
hvað þá bréf né skeyti frá Flugleið-
um um þetta mál. Flugleiðir hefðu
í júlí sent bréf beint til Flying Ti-
gers en það fyrirtæki hefði ekki
haft trú á að niðurstaða næðist í
viðræðum við Flugleiðir og snúið
sér beint til utanríkisráðuneytisins
með ósk um frekari viðræður.