Morgunblaðið - 09.09.1989, Blaðsíða 40
Á ÞJÓÐVEGI1
SUMARÞÁnURKL. 13.30
RÁS I Q~<
ÚTVARPIÐ
Æ7Æ7ÆFÆAÍÆZ
Efstir á blaði
FLUGLEIÐIR H
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Byggðastoftiun og
Fiskveiðasj óður:
Samþykkja til-
J)oð Gullbergs
B Y GGÐ ASTOFNUN og Fisk-
veiðasjóður samþykktu í gær til-
boð útgerðarfyrirtækisins Gull-
bergs um leigu til áramóta á
eignum þrotabús fiskvinnslunnar
Norðursíldar hf. á Seyðisfirði.
Landsbankinn, sem er einn
stærsti kröfúhafinn, tekur af-
stöðu til tilboðsins á mánudag.
Bæjarfógetinn á Seyðisfirði úr-
skurðaði fiskvinnsluna Norðursíld
gjaldþrota á þriðjudaginn og skip-
aði Arna Halldórsson, lögmann á
Egilsstöðum, bústjóra. Barst bú-
stjóra bréf frá forráðarnönnum
Gullbergs á fimmtudag, þar sem
þeir óskuðu eftir að taka eignir
~ þrotabúsins á leigu til áramóta. Er
þar um að ræða tvö vinnsluhús,
geymsluhúsnæði, hluta af skrifstof-
um fyrirtækisins og allan tækjabún-
að þess. Leigan verður 3% af
greiðsluvirði afurða, samkvæmt til-
boði Gullbergs.
f
Fjarðarkaup;
Verðlækk-
un á mjólk
VERSLUNIN Fjarðarkaup í
Haínarfirði hefúr undanfarið
selt ýmsar mjólkurvörur á
lægra verði en almennt geng-
ur og gerist. Kostar litrinn
af nýmjólk 67 krónur í Fjarð-
arkaupum en 70,20 krónur
annars staðar. Einnig eru
skyr, rjómi og súrmjólk seld
á lægra verði í Fjarðarkaup-
um en annars staðar.
„Við eigum marga ágætis við-
skiptavini og til að létta undir
með þeim í sívaxandi dýrtíð og
,á tímum rýrnandi kaupmáttar
tókum við þá ákvörðun að lækka
tímabundið verð á þessum
neysluvörum sem vega hvað
þyngst í bókhaldi heimilanna,“
sagði Sigurbergur Sveinsson,
einn eiganda Fjarðarkaupa.
Sagði hann kerfið greinilega
ekki vera þess megnugt að
lækka verð á helstu lífsnauð-
synjum og hefðu Fjarðarkaups-
menn því ákveðið að grípa til
sinna eigin ráða til að létta und-
ir með viðskiptavinum verslun-
arinnar.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
AFTUR AÐ FARAIGONGUR
„Eins mig fýsir alltaf þó/aftur að fara í göngur,“ sungu
Hreppamenn, eins og skáldið, þegar þeir héldu í göngur í
gær. Fjallkóngurinn, Stefán Jónsson í Hrepphólum, reið
fremstur þegar fréttaritari Morgunblaðsins hitti þá rétt aust-
an við Hruna í gær. Göngur eru víða að hefjast um þessar
mundir og fyrstu réttir nálgast.
Niðurfelling vörugjalds
lækkar ekki vöruverðið
- Hækkanir gætu þó orðið minni en eila
LITLAR líkur eru á að niðurfelling vörugjalds þann 1. september
síðastliðinn verði til þess að lækka vöruverð. Hins vegar getur niður-
felling gjaldsins orðið til að vörurnar hækki minna í verði en ella
hefði orðið. Ein helsta ástæða þess að vöruverðið lækkar ekki er
sögð sú, að vörugjaldið hafi að litlu, jaíúvel engu, leyti verið bætt
við vöruverð á sínum tíma þegar gjaldið var sett á, um síðustu
áramót.
Þá hækkaði jöfnunargjald úr 3%
í 5% þann 1. júlí og kemur fram í
nýjum innflutningi um leið og nið-
urfelling vörugjaldsins. Þá hefur
vöruverð hækkað vegna gengis-
breytinga.
Forsvarsmenn fyrirtækja á hús-
gagna- og innréttingamarkaði sem
leitað var til, sögðu áð samkeppni
hefði verið svo hörð í þessum grein-
um, ekki síst vegna minnkandi
kaupmáttar almennings, að þeir
Miðstjórn Alþýðubandalagsins:
Innganga Borgaraflokks-
ins í stjórnina samþykkt
MIÐSTJÓRN Alþýðubandalagsins samþykkti á fúndi sínum í gærkvöldi
inngöngu Borgaraflokksins í ríkisstjórnina með öllum greiddum at-
kvæðum gegn fjórum. Hjörleifúr Guttormsson alþingismaður og Ragn-
ar Stefánsson miðsljórnarmaður mótmæltu samstarfí við Borgaraflokk-
inn. í dag mun flokksstjóm Alþýðuflokksins taka afstöðu til stjórnarsam-
starfs við Borgaraflokkinn, en framsóknarmenn hafa þegar samþykkt
'það.
Síðdegis í dag verður á miðstjóm-
arfundinum rætt um aðild Birtingar
að Alþýðubandalaginu. Ólafur Ólafs-
son, formaður laganefndar flokksins,
hefur komizt að þeirri niðurstöðu að
félagið sé löglegt og eigi að fá öll
réttindi í flokkskerfinu, á grundvelli
lagagreinar sem heimilar að stofnað-
ar séu grunneiningar innan flokksins
til að sinna sérstökum verkefnum eða
málefnum. Félög hafa þegar verið
stofnuð innan Alþýðubandalagsins á
grundvelli þessarar greinar, til dæm-
is Kvennafylkingin í Reykjavík og á
Suðvesturlandi og félag áhuga-
manna um landbúnað.
Álfheiður Ingadóttir, miðstjórnar-
maður, hefur gagnrýnt álit Ólafs.
Hún sagði í samtali við Morgun-
blaðið að Birting væri ekkert annað
en klofningsfélag úr Alþýðubanda-
laginu í Reykjavík. Félag, sem hefði
almenna stjómmálastarfsemi að
markmiði, gæti ekki talizt málefnafé-
lag í skiíningi flokkslaganna. Álf-
heiður hyggst leggjast gegn því að
miðstjórn heimili Birtingu að gefa
út flokksskírteini og safna þannig
félögum í Alþýðubandalagið í gegn
um félagið. Svanfríður Jónasdóttir,
formaður miðstjórnarinnar, telur að
lög flokksins séu það afdráttarlaus
að ekki sé hægt að banna félagið,
en segir að á fundinum geti komið
til atkvæðagreiðslu um það, hvort
það fær að gefa út flokksskírteini
eða ekki.
hefðu ekki nema að litlu leyti treyst
sér til að hækka vöruverðið í sam-
ræmi við álagningu vömgjaldsins
í ársbyijun.
„Það hafa samtals orðið um 30%
kostnaðarhækkanir á innfluttum
húsgögnum á árinu, þar af eru um
18% vegna gengisbreytinga og
11,25% vörugjald," segir Erlingur
Hallsson hjá Heimilisprýði. „Þessi
hækkun er óframkvæmanleg á
þessum markaði og næstum enginn
hefur reynt það. Þar af leiðandi
hefur verið nær óbreytt verð hjá
okkur á árinu. Við kaupum mikið
beint af framleiðendum á lager sem
endist okkur fjóra til fimm mánuði
í senn. Húsgagnasala hefur minnk-
að um 40% síðan 1987 og það er
gríðarleg samkeppni á þessum
markaði, sem þýðir að verð press-
ast niður.“ Hann segir ennfremur
að til lengri tíma litið muni niður-
felling gjaldsins skila sér í lægra
vöruverði. „Allar beinar skatta-
lækkanir hljóta að lækka vöruvei'ð,
á sama hátt og skattahækkanir
hljóta að hækka verð.“
Verðlagsstofnun hefur verið fa-
lið að fylgjast með að niðurfelling
vörugjaldsins skili sér í lækkun
verðs. Þar fengust þær upplýsingar
í gær, að ekki væri nema að litlu
leyti hafin vinna við það, enda verk-
efnið nýkomið til stofnunarinnar.
Eitt af því sem gert verður er að
kanna hvort fyrrnefndar fullyrð-
ingar kaupmanna eigi við rök að
styðjast, það er að vörugjaldið hafi
að litlu eða engu leyti komið fram
í verðinu.
Sjálfsbjörg
fékk á tólftu
milljón
SAFNAST hafði á tólftu milljón
króna á miðnætti í gær í lands-
söfnun Sjálfsbjargar. „Söfnunin
hefur farið fram úr okkar björt-
ustu vonum. I upphafi vorum
við me_ð sex til sjö milljónir í
huga. Ég er geysilega ánægður
með þessar viðtökur. Við hjá
Sjálfsbjörg kunnum öllum þeim,
sem lögðu hönd á plóginn, bestu
þakkir fyrir og landsmönnum
öllum þökkum við sérstaklega
fyrir frábærar móttökur í söfn-
uninni,“ sagði Jóhann Pétur
Sveinsson, formaður Sjálfs-
bjargar. Þýsk-íslenska lagði
fram eina milljón til söfnunar-
innar og er það hæsta framlagið
frá einum aðila. Reykjavíkur-
borg lagði fram hálfa milljón og
nokkuð mörg fyrirtæki létu 100
þúsund krónur af hendi rakna.
Sjá frétt á bls. 16.