Morgunblaðið - 09.09.1989, Qupperneq 21
ram!
Þorsteinn Pálsson
Stefán rifjar upp, að í byijun apríl
á þessu ári hafi Steingrímur Her-
mannsson sagt á stjórnmálafundi í
Kópavogi að ríkisstjómin hefði í
mesta lagi þrjá mánuði til umráða
til að leysa vanda útflutningsfyrir-
tækjanna. Hann bætir við: „Ég hygg
að þegar þessi orð voru töluð hafi
tíminn til aðgerða raunar verið lið-
’ inn.“
Og Stefán klykkir út með þessum
orðum: „Ef ríkisstjórnin tekur á efna-
i hags- og atvinnumálum í þessum
mánuði [júní], samkvæmt þeirri
stefnu sem mörkuð var þegar hún
var mynduð, mun hún hafa meiri-
; hlutafylgi fyrir þeim aðgerðum á
Alþingi. En hver vill bera ábyrgð á
gim-
^ang
Idsins
; veturinn 1988/89, sem dyggðu til
; að blása nýju lífi í atvinnuvegína. í
stað þess juku þeir á erfiðleikana
með aukinni skattheimtu, ómerkileg-
um pólitískum leikfléttum og aðgerð-
■ um sem hafa svo til enga jákvæða
i þýðingu fyrir atvinnulífið. Of langt
f mál væri að tíunda öll þau atriði í
neikvæðum athöfnum og/eða að-
gerðarleysi núverandi ríkisstjórnar
gagnvart einkarekstri sérstaklega
sjálfstæðri viðleitni einstaklinga til
; að bjarga sér af eigin rammleik.
Einkarekstur knésettur
Eitt er víst. Sitji ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar lengi að
völdum, sem er óskadraumur núver-
andi formanna Alþýðuflokksins, Al-
þýðubandalagsins og Framsóknar-
flokksins, samanber yfirlýsingar
þeirra þess efnis sl. vetur, munu
vinstri flokkarnir leggja atvinnulífið
í rúst og gera út af við einkarekstur
í landinu.
Stöðva verður vinstri
stefnuna
Hvar sem maður kemur í landinu
ræðir fólk um þessa hættulegu
stjórnarstefnu, en það spyr jafnframt
hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi
kjark og þor til að grípa til þeirra
aðgerða, sem duga til að koma efna-
hag þjóðarinnar á réttan kjöl. Fólk
efast ekki um ágæti stefnu flokks-
ins. Stefnu einkaframtaks. Stefnu,
sem felur í sér vernd sjálfstæðs eign-
arréttar og athafnafrelsis, Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur margsinnis sýnt í
verki að þegar hann hefur haft völd
og aðstöðu til hefur hann skapað
þjóðinni þá pólitísku umgjörð, er leitt
hefur til framfara og velmegunar.
6861 HaatAHTHaS .6 HUOAQHAOUAJ QIQ/>Ua/rJOHOM
"THORGUNBLAÐIÐ -EAUGARDAGUR-9.- -SEPTEMBER 1989 -
a
it
Svartnr
sunnudagur
eftir EyjólfKonráð
Jónsson
Sunnudaginn 10. september
1989 á að halda tvo fundi sem
örlagaríkir geta orðið, annan á
Bessastöðum, hinn í Landsbank-
anum. Sá fyrrnefndi á að verða
innsigli þeirra verka sem fyrir-
hugað er að fremja á hinum
síðarnefnda. En hvað er nú það,
þá mynd er erfitt að fá birta á
þess'ari stundu en þeim mun
óhugnanlegri verður hún þegar
öll kurl eru komin til grafar sem
þó verður reynt með öllum ráðum
að koma i veg fyrir, enda á ferð-
inni sambland siðlausra og lög-
lausra athafna.
Það rifjast upp að Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra gerði því skóna í nóvemb-
ermánuði í fyrra að Samband
íslenskra samvinnufélaga yrði
gjaldþrota innan 10-14 mánaða.
Sá tími er að renna út. Ekkert
gleðiefni er það þegar mikilvæg
atvinnufyrirtæki fara á hausinn
en hitt er hálfu verra þegar svik-
um og prettum er beitt, valda-
svikum. En valdasvindlið er allt-
af versta svindlið. Það á að
fremja á morgun.
Á almannavitorði er, þótt
reynt sé með öllum ráðum að
„Ekkert gleðiefiii er
það þegar mikilvæg
atvinnufyrirtæki fara
á hausinn en hitt er
hálfu verra þegar
svikum og prettum er
beitt, valdasvikum. En
vaidasvindlið er alltaf
versta svindlið. Það á
að fremja á morgun.“
dylja það, að samvinnufélögin
setja yfirleitt engin veð fyrir
skuldum sínum í bankakerfinu,
hvorki hérlendis né erlendis.
Sjálfir lýsa SÍS-herrarnir því að
allt sé upp í loft í fjármálum og
bankasukki. Þar er raunar um
milljarða á milljarða ofan að
ræða þannig að í mínum huga
er ekki vafamál að það sem nú
er reynt að knýja fram er þann-
ig vaxið að Hafskips- og Útvegs-
bankamál er barnaleikur við
samanburð.
Nauðsynlegt er að almenning-
ur fylgist vel með framvindu
mála og treysti fjölmiðlum mátu-
lega þegar miklur fjármunir og
fjármálalegt vald er annars veg-
ar. Þá er öllum ráðum beitt, eink-
4i
Eyjólfiir Konráð Jónsson
um þögn —- að „greiðvikninni“
ógleymdri. Ég tala af reynslunni
frá haustinu 1976 þegar mafían
gat ekki unnt skagfirskum
bændum þess að slátra sínu eig-
in fé. Segði ég þá sögu alla
mundi enginn trua.
Gangi það fram sem nú er
bruggað verða ekki aðeins millj-
arðar heldur milljarðatugir hand-
langaðir á næstunni frá fólki og
heiðarlegum fyrirtækjum yfir í
hítina. Engin vörn er gegn því
önnur en öflug barátta frjáls-
lynds fólks, sjálfstæðisfólks.
Höfundur er einn af
alþingismönnum
SjiIfstæðisOokks fyrir
Reykjavík.
óbreyttu ástandi, gjaldþroti margra
útflutningsfyrirtækja og auknu at-
vinnuleysi? Gefi þeir sig fram sem
vilja bera ábyrgð á slíku ástandi."
Marklausar hótanir
í þessum orðum Stefáns Valgeirs-
sonar frá því í sumar er fólgin aug-
ljós hótun. En sú hótun er jafn
marklaus og aðrar hótanir sem frá
þessum þingmanni hafa komið.
Steingrímur Hermannsson veit að
hann þarf ekki að taka meira mark
á eindögum og frestum Stefáns Val-
geirssonar en sínum eigin. Orð Stef-
áns eru aðeins ætluð trúgjörnum
fylgismönnum hans á Norðurlandi
eystra.
Og hver man nú og rifjar upp
þriggja mánaða frestinn sem
Steingrímur Hermannsson gaf sjálf-
um sér fyrir rúmum fimm mánuðum?
Tæpast dettur nokkrum manni í hug
að búið sé að leysa vanda útflutnings-
atvinnuveganna? Af þeim vettvangi
heyrum við þessa dagana aðaliega
fréttir um gjaldþrot og greiðsluvanda
fyrirtækja, uppsagnir starfsfólks og
fyrirsjáanlegt atvinnuleysi. Og síðan
á enn að draga sparnaðinn frá at-
vinnuvegunum yfir í ríkissjóð.
Nú er tækifærið!
„Gefi þeir sig fram sem vilja bera
ábyrgð á slíku ástandi“, skrifaði
Stefán Valgeirsson fyrir þremur
mánuðum. Þeir fá tækifæri til þess
í atkvæðagreiðslu um vantraust á
ríkisstjórnina. Þjóðin mun taka eftir
því hveijir gefa sig fram þar til þess
að veija orð í stað athafna.
Ríkisstjórn sem lætur sér svo mik-
ið sem detta í hug að skattleggja
lífeyrissjóðina á þegar af þeirri
ástæðu að fara frá. Og gefi þeir sig
nú fram í liði ríkissijórnarinnar sem
ætla að bera ábyrgð á lífeyrissjóða-
skattinum!
IJöfundur er formaður
SjálfstaeðisOokksins.
Guðmundur H. Garðarsson
„Eitt er víst. Sitji ríkis-
stjórn Steingríms Her-
mannssonar lengi að
völdum, sem er óska-
draumur núverandi
formanna Alþýðu-
flokksins, Alþýðu-
bandalagsins og Fram-
sóknarflokksins, sam-
anber yfirlýsingar
þeirraþess efiiis sl. vet-
ur, munu vinstri-flokk-
arnir leggja atvinnulíf-
ið í rúst og gera út af
við einkarekstur í
Iandinu.“
Viðreisn og framfarir
Nægir að minna á það framfara-
skeið er hófst um og eftir 1960 við
myndun viðreisnarstjórnarinnar.
Viðreisnin tryggði langþráð við-
skiptafrelsi. Aralangri áþján hafta
og skömmtunar var aflétt. Frelsinu
fylgdi bjartsýni og það.leysti úr læð-
ingi þrótt og kraft. Lífskjör bötnuðu
á grundvelli mikillar sóknar í at-
vinnulífi þjóðarinnar til sjávar og
sveita. Viðreisnaráratugurinn 1960-
1970 efldi með Islendingum trúna á
eigin getu á sama tíma og þeir tóku
upp náið samstarf við erlenda aðila
um uppbyggingu stóriðju. Framsókn-
arflokkurinn og Alþýðubandalagið
börðust á móti viðreisnarstefnunni.
Þeir börðust gegn stefnu aukins
frelsis í viðskipta- og atvinnumálum.
Þeir börðust gegn stóriðju. í stuttu
máli sagt, framsóknarmenn og al-
þýðubandalagsmenn (kommúnistar)
voru á móti nútíma framförum og
raúnhæfum leiðum til bættra
lfskjara.
Nú hafa þessir flokkar öll pólitísk
völd á íslandi. Stefna þeirra einkenn-
ist enn af þröngsýni og afturhalds-
semi.
Atvinnuvegirnir
hafi forgang
Sjálfstæðisflokkurinn hefur sem
fyrr efst á stefnuskrá sinni að tryggja
athafnafrelsi og vernda eignarrétt
manna. I því felst sú skuldbinding,
að flokkurinn leggur megin áherslu
á uppbyggingu atvinnuveganna. At-
vinnuvegirnir skulu og verða að hafa
forgang. Annað hlýtur að vera
vikjandi. Skapa verður atvinnuveg-
unum heilbrigð rekstrarskilyrði. Al-
menn orð. En hvað felst í þeim?
Skuldbinding um að Sjálfstæðis-
flokkurinn muni tryggja hag og stöðu
útflutningsatvinnuveganna með
gengisskráningu, sem byggist á
rekstrar- og efnahagslegum forsend-
um viðkomandi greina. Vöruútflutn-
ingur og gjaldeyrisskapandi þjónusta
eru grundvallaratriði fyrir íslenskan
þjóðarbúskap. Framhjá þeirri stað-
,_reynd verður ekki gengið, hvað sem
líður skoðunum núverandi fjármáia-
ráðherra að ríkið, ríkisútgjöldin og
eyðslan, skuli hafa forgang.
Skipting þjóðartekna
Fyrirtæki atvinnulífsins, fólkið
sjálft, sjómenn, verkafólk, verslunar-
fólk, iðjufólk, iðnaðarmenn o.s.frv.,
o.s.frv., hlýtur og verður að hafa
forgang í skiptingu þjóðartekna.
Þessir aðilar ásamt iðnrekendum,
útgerðarmönnum, kaupsýslumönn-
um, bændum og öðrum forsvars-
mönnum atvinnuveganna, eru fyrstu
hlekkirnir í hinni raunverulegu verð-
mætasköpun þjóðarbúsins. Þeir, sem
viðurkenna ekki þessi einföldu sann-
indi, skilja ekki í hveiju raunveruleik-
inn er fólginn. Stjórnmálamenn, sem
virða ekki þessa grundvallarreglu um
forgangsaðild þegnanna á skiptingu
þjóðartekna og þjóðarverðmæta eru
hættulegir stjórnendur. Þeir bijóta
niður og eyðileggja forsendur al-
mennrar velmegunar fyrir fólkið,
þjóðina í heild. Það er þetta, sem er
að gerast á íslandi í dag. Núverandi
valdhafar í ríkisstjórn og á Alþingi
hafa fótum troðið hagsmuni atvinnu-
veganna og þar með hagsmuni fólks-
ins.
Versnandi afkoma fólksins
Stærri og stærri hluti þjóðarfram-
leiðslunnar er tekinn í auknum skött-
um til ríkisvaldsins til að þjóna milli-
færslum og sameiginlegum þörfum.
Staða atvinnuveganna, fyrirtækj-
anna og fólksins, skerðist að sama
skapi. Minna verður til skiptanna.
Hlutur launafólksins minnkar og
verður enn minni og afkoman lakari
eftir því sem þessi stefna varir leng-
ur. Én þessi stefna hnignunar og
lífskjaraskerðingar er grundvallar-
stefna núverandi fjármálaráðherra
Ólafs Ragnars Grímssonar. Efling
ríkisvaldsins, auknir skattar, meira
til ríkisins, minna til fólksins. Þetta
er stefna Alþýðubandalagsins í dag.
Gegn þessari stefnu berst Sjálf-
stæðisflokkurinn. HanS' hlutverk er
að snúa þessari þróun við. Skattarn-
ir verða að lækka, fullnægingu sam-
eiginlegra þarfa í gegnum hið opin-
bera verður að stilla í hóf, stærri
hluti verðmætasköpunarinnar verður
að vera eftir úti í atvinnulífínu. Það
verður að auka við og bæta nettó-
hlutdeild fyrirtækja atvinnulífsins.
Tilræði við eignarréttinn
Það er tilræði við sjálfstæðan eign-
arrétt að skattleggja eigur fólks með
þeim hætti, sem ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar gerir.
Eignarskattar einstaklinga hafa í tíð
þessarar ríkisstjórnar hækkað á bil-
inu 26% til 108%. Á sama tíma hefur
almenn tekjuskerðing orðið um 15%.
Þessi skattheimta felur í sér hreina
eignaupptöku hjá fjölda fólks, sér-
staklega einstæðu fólki, sem hefur í
góðri trú tekið þátt í því að byggja
yfir sig og sína. Sú aðferð sem Al-
þýðubandalagsmenn nota í skatt-
heimtu á íslandi í dag í skjóli Al-
þýðuflokks og Framsóknarflokks er
ekki ósvipuð því, sem tíðkaðist í
kommúnistaríkjum Austur-Evrópu,
þegar unnið var að því í þessum
ríkjum eftir valdatöku kommúnista,
að gera millitekju- og millieignafólk
eignalaust. Það tókst. Þessar þjóðir
búa nú við mikla fátækt og eru skuld-
um vafnar. Pólland er gott dæmi
þessa. En valdastéttin, kommúnistar,
skoðanabræður alþýðubandalags-
manna, héldu velli. Þá skortir ekk-
ert. Ríkið, kerfið, sér um þá.
Þetta er sú þjóðfélagsmynd, sem
Olafur Ragnar er að framkalla á ís-
landi. Hans markmið er að bijóta
niður og eyðileggja íslenska eigim,-
stétt, hvort sem það eru stóreigna-
menn eða fólk með litlar eignir. Völd-
in í hendur fárra. Það er og verður
markmið kommúnista. í þeim efnum
eru forystumenn Alþýðubandalags-
ins engir eftirbátar fyrirrennara
sinna.
Hlutverk
Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðissflokkurinn er eini
stjórnmálaflokkurinn á íslandi, sem
hefur í reynd barist fyrir sjálfstæðum
eignarrétti einstaklinga. Hann hefur
staðið gegn hækkun eignaskatta og
skattlagningu á sparifé í hvaða mynd
sem er. Tvísköttun er svívirðileg að-
gerð, sem kemur í bakið á þeim sem
af ráðdeildarsemi hafa sparað.
Tvísköttun kemur sérstaklega illa við
eldra fólk. Nú ætlar ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar að taka
upp tvísköttun í ríkum mæli. Gegn
þessum áformum verða allir lands-
menn að sameinast og Sjálfstæðis-
flokkurinn verður að beita öllu sínu
afli til að koma í veg fyrir þessi vondu
áform. íslendingar vilja ekki búa við
ríkissósíalisma, sem gerir fólk eigna-
laust og vansælt.
Sjálstæðismenn hafa mikið verk
að vinna. Þeir verða að sýna enn
betur í verki þegar þeir komast ffi
valda á ný að Sjálfstæðisflokkurinn
mun vernda og efla sjálfstæða eigna-
stöðu fólksins. í því felst ein veiga-
mesta tryggingin fyrir viðhaldi ein-
staklingsfrelsis og lýðræðis.
Höfundur er einn af
alþingismönnum
SjálfstæðisOokksins fyrir
Reykjavíkurkjördæmi.