Morgunblaðið - 09.09.1989, Side 26
26 ---------------------------------------------MÓKGtjNÉLA-ÐIÐ LAUGAEDÁGUE- 9: SEFTEÉBER .1989 .
„Nauðsynlegra
en að borða“
Spjallað við Sólveigu Eggerz listmál-
ara, sem opnar sýningu í Gamla
Lundi á Akureyri nú um helgina
„Hvernig byijaði þetta hjá þér?“
„Þegar ég var tveggja ára gömul
og fjölskylda mín átti heima úti í
Skotlandi og pabbi minn gaf mér
liti og blað og sagði mér að búa til
myndir, þá fór ég að byija að teikna
og mála alla daga meira og minna.
Ég var alltaf að fara upp á loft til
að sýna þetta hjá vinafólki, skozk-
um eldri hjónum — svo einn daginn
var ég að fara tii þeirra — en freist-
ingin að fara út á götu, þó það
væri bannað, var yfirsterkari. Ég
fór með teikniblaðið mitt út á götu
og týndist. Það næsta, sem ég veit
af, það er lögregluþjónn, bobbýinn
með svarta hattinn, sem grípur mig
í fangið og fer með mig heim og
ég þurfti að sýna honum myndina
á leiðinni. Þetta var fyrsta sýningin
mín, fyrsta opinbera sýningin mín
— úti á götu í Glasgow. Eftir það
held ég að ég hafi aldrei verið öðru
vísi en teiknandi og litandi og segj-
andi sögur — ég var alltaf að segja
sögur í myndunum — og ég man,
að eftir að við fluttum heim í Svarf-
aðardal, sem er uppspretta svo
margs — mín tilvera þar, þá var
það dásamlegasta sem ég vissi, að
sitja úti í hlöðu í rigningu eða regn-
ið byljandi á blikkinu og búa til
myndir eða reyna að segja sögu,
framhaldssögu jafnvel...“
Það er hádegi í miðri viku á veit-
ingastaðnum Gullna hananum að
Laugavegi 178. Það er kyrrð í saln-
um, sem Sólveig Pétursdóttir Egg-
erz listmálari segir að minni sig
alltaf á París eða eitthvað álíka
glæsilegt. Vertinn er ættaður að
vestan (frá Hnífsdai) og í ofanálag
frá Akureyri. Hann kom að borðinu
og heilsaði. Það hafði áhrif. Og
örskömmu síðar tróðu tvær prúð-
búnar konur inn í salinn. Ónnur
þeirra var auðþekkjanleg, Sigrún
Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur og
doktor, ættuð úr Svarfaðardal eins
og Sólveig. Þær heilsuðust eins og
heimsins beztu vinkonur.
„Þegar manneskjur eins og þú
og ég stundum málaraiist jafnt og
þétt — hvernig áhrif fínnst þér slíkt
hafa á sálarlífið og lífshvötina?"
„Ég held það sé bara nauðsyn-
legra en að borða — næst því að
sofa.“
Veitingarnar höfðu þegar verið
pantaðar á borðið. Safaríkt schnitzl
framreitt með óvenjulegum hætti
„pour moi“ og hins vegar fiskréttur
á heimsmælikvarða handa Madame
Eggerz. Og nú kom þjónninn með
þetta hvort tveggja og manni varð
hugsað til svarsins hennar Sólveig-
ar: „Að mála — ég held það sé
bara nauðsynlegra en að borða —
næst því að sofa.“ Því var ekki að
neita — hins vegar — að málsverð-
urinn var fallegur á að líta og freist-
andi og bauð upp á, að á hann
væri ráðizt.
I miðjum klíðum máltíðar var
spurt:
„Sólveig — er það eitthvað sér-
stakt í lífi þínu, sem hefur mótað
þig sem málara, eitthvað sem er
framar öðru — eitthvað sérstakt,
sem er kannski lykillinn að þessari
þörf þinni?“
„Ég held, að það hafi mótað mig
mikið, ekki bara íslenzk náttúra —
heldur hvar sem ég fer — það er
landslagið, veðrið og hinn almenni
borgari í kringum mig, börnin,
gamla fólkið og þessi snerting við
lífið, synd og sælu ...“
Þetta síðastgreinda varð tilefni
að þessari spurningu:
„Heldurðu, að synd og sæla fari
kannski oftast saman?“
„Ég veit ekki. Það er einhver sem
segir: Allt sem er gott og skemmti-
legt og áhugavert — það er bann-
að.“
„Telurðu þig vera fijálsa mann-
eskju?“
„Einhvem tímann sagði danskur
gagnrýnir við mig: „Vi er jo ikke
frigjorte her i det her værelse (við
vorum fimm saman) men jeg tror
den islandske kunstnerinde er den
mest frigjorte — det er máske fordi
de aldrig har haft lov til að sige
nej tak eller ja tak for de islandske
bare gor hvad de har lyst til.““
„Segðu mér eitt — hvernig ferðu
að því að halda þér á vissri lífshreyf-
ingu í málaralistinni — þannig að
þú sért ekki alltaf í sama farinu?
Reynirðu að leita einhvers, reynirðu
að búa þér til ævintýri?“
„Ég reyni ekkert — að ég held
— það kemur allt sjálfkrafa. Það
er mikið, sem mig langar til að
gera — ég vona, að ég verði að
mála fram yfir hundrað ára aldur-
Sólveig Eggerz listmálari (mynd-
in tekin á málverkasýningu henn-
ar í Mosfellssveit í vor).
inn, svo að mér fari eitthvað fram.“
Nú var gætt sér á matnum og
skálað í vatni og pepsíkóla með
sítrónu og klaka. Svo var farið að
tala um listáhugann á Islandi. „Þeg-
ar Sigurður heitinn Benediktsson
kom hingað með fullt af góðum
Constable, Turner, brezkum súper-
klassamálurum, þá varð að senda
þær myndir út. Það var ekki litið
við þeim. Það er eins og ekkert sé
talið list nema það sé íslenzkt."
Sólveig hefur sýnt víða erlendis.
Ofan á myndlistamám hjá Kurt
Zier í gamla handíða- og myndlist-
arskólanum hér hlaut hún list-
menntun í Englandi (í London). Hún
er hrifin af Englandi og kvaðst
hafa notið þess að sýna þar. Og
eins og faðir hennar, Pétur heitinn
Eggerz Stefánsson frá Völlum, er
hún heimsborgari í hugsun og at-
höfn — gædd andlegu hugrekki og
ekki í orðabók hennar að gefast
upp. Hún hefur orðið fyrir miklum
áföllum. Þegar hún var spurð að
því, hvaðan og hvemig hún hefði
styrkieikann, kvað hún trúna hafa
gefið sér hann. „Ég trúi á almættið
og guð og ljósið í tilverunni. Móðir
mín og Sólveig amma kenndu mér
að trúa á guð.“
„Hvemig leggst í þig að fara
norður til Akureyrar og sýna í
Gamla Lundi?“
„Ég pantaði Gamla Lund fyrir
tveim árum. Ég vinn alltaf eftir
prógrami. Ég hef haft fyrir þessari
sýningu."
Að Hæðardragi.
TEXTI: Steingrímur St.Th. Sig-
urðsson
Kristniboðs-
kaffiá
sunnudag
Kristniboðsfélag karla í
Reykjavík heldur hina árlegu
kaffisölu sína í félagsheimili
kristniboðsins, Háaleitisbraut
58—60, sunnudaginn 10. sept-
ember. Allur ágóði af kaffisöl-
unni rennur til starfs Kristni-
boðssambandsins.
Mörg undanfarin ár hafa karl-
arnir í kristniboðsfélaginu selt
kaffið sitt í „Betaníu" við Laufás-
veg en það hús var selt fyrir
nokkm. Fyrir rúmri viku vom hin
nýju húsakynni kristniboðsins á
Háaleitisbraut vígð við hátíðlega
athöfn. Hefur Kristniboðssam-
bandið nýlega haldið þar aðalfund
sinn, svo og fjölmennar samkomur
í tengslum við þingið.
Nú er verið að hefja kristniboð
og hjúkmnarstarf á nýjum stað í
S-Eþíópíu, í Voitó, um 100 km
vestur af Konsó. Þangað era kom-
in ung íslensk hjón og norsk
hjúkrunarkona. Kristniboðssam-
bandið hefur gefið út bækling
með fróðlegri frásögn um fólkið
í Voitó, „Voitó kallar“. Hann fæst
á Aðalskrifstofunni, Amt-
mannsstíg 2 B, og kostar 200
krónur.
Kaffísalan stendur yfir frá
klukkan tvö til sex síðdegis og
em allir velkomnir.
(F réttatilkynningf)
Gönguferð um
Öskjuhlíð
Frístundahópurinn Hana-nú í
Kópavogj stendur fyrir göngu-
ferð um Öskjuhlíð í dag, 9. sept-
ember, og lýkur göngunni í
Kjarvalsgarði. Hafliði Jónsson
fyrrum garðyrkjustjóri verður
leiðsögumaður.
Frístundahópurinn Hana-nú hef-
ur staðið fyrir ýmsum ferðum í
sumar, meðal annars út í Viðey í
fylgd Þorleifs Guðmundssonar leið-
sögumanns. Þá var opnaður á veg-
um hópsins og Tómstundaráðs
Kópavogs púttvöllur á Rútstúninu
í Kópavogi.
Lokaferð sumarsins verður farin
þann 23. september til Stokkseyrar
og Eyrarbakka undir leiðsögn Þor-
leifs Guðmundssonar. Alla laugar-
dagsmorgna stendur Gönguklúbb-
ur Hana-nú fyrir gönguferðum og
er lagt upp frá Digranesvegi 12. I
frétt frá frístundahópnum segir,
að allir Kópavogsbúar séu vel-
komnir í þær heilsubótargöngur,
sem gengnar em undir kjörorðinu
samvera, súrefni, hreyfing.
Setning Stóru-
Vogaskóla
Stóru-Vogaskóli í Vogum
verður settur klukkan 14 sunnu-
daginn 10. september nk.
Nemendur eiga að mæta í
skólann þriðjudaginn 12. septem-
ber. 7. 8. og 9. bekkur eiga að
mæta klukkan 9 þann dag. 4. 5.
og 6. bekkur klukkan 10 og for-
skóli, 1. 2. og 3. bekkur klukkan 11.
Taiji í Kram-
húsinu
NÁMSKEIÐ í taiji fer fram í
Kramhúsinu við Skólavörðustíg
dagana 11.-18. september.
Leiðbeinandi verður Khain Titsa.
Hún fæddist í Rangoön árið 1952,
stundaði nám í austurlenskum list-
um og heimspeki í London og var
jafnframt um tíu ára skeið læri-
sveinn Gerdu Geddes, frumkvöðuls
taiji-kennslu í Evrópu.
Khain Thitsa hefur kennt taiji í
rösk tíu ár. Síðan 1982 hefur hún
einnig starfað með dönsurum við
London Contemporary Dance-
School.
Frá örófi alda hafa Kínveijar
lagt stund á hefðbundnar listrænar
lækningaaðferðir og taiji quan er
ein þeirra.
(Úr frcttatilkynningu)
• •
Pétur Ostlund
heldur námskeið
PÉTUR Östlund, hinn víðfrægi
trommuleikari, heldur námskeið
fyrir slagverksleikara í tónlist-
arskóla FÍH við Brautarholt
næstkomandi mánudag og
þriðjudag.
Námskeiðið er einkum ætlað
nemendum slagverksdeildar tón-
listarskóla FÍH en er þó öllum op-
ið. Kennt verðurí hóptímum frá
klukkan 10-12 báða daga en eftir
hádegi verða einkatímar frá 14-18.
Gjald er 1000 krónur fyrir hóptíma,
2000 krónur fyrir hóp- og eink-
atíma.
KENNSLA
Frá Listdansskóla
Þjóðleikhússins
Nemendur frá fyrra skólaári komi mánudag-
inn 11. september kl. 17.00 í hús Jóns Þor-
steinssonar, og hafi með sér stundatöflu.
Því miður verða engin inntökupróf nú í haust,
þar sem ekki verða teknir neinir nýir nemend-
ur að svo stöddu.
Skólastjóri.
Enskunámskeið
fyrir byrjendur
Enskunámskeið fyrir börn á aldrinum 8-12
ára. Námskeiðið stendur yfir í 7 vikur (14
klst.) og er lögð áhersla á að tala ensku.
Kennarinn er frá Englandi og hefur mikla
reynslu í að kenna börnum. Verð kr. 4.900,-
Upplýsingar veitir Priscilla Bjarnason í síma
78207.
Ásta Ólafsdóttir,
Ármúla 32
Hef opnað skóla í eigin nafni í Ármúla 32.
Barnajazz: Frá 2 ára aldri, fjölbreytt kennsla.
Jazzballett: Listdans sem skilar gleði og ár-
angri eftir hörkuþjálfun.
Almenn þjálfun fyrir konur á öllum aldri.
Vönduð kennsla - markviss þjáifun.
Hef 12 ára reynslu í kennslu.
Innritun í síma 31355.
Ásta Ólafsdóttir,
jazzballettkennari, F.Í.D.
Stýrimannaskólinn
í Reykjavík
30 rúmlesta réttindanám
Innritun
Innritun á haustnámskeið stendur yfir á skrif-
stofu Stýrimannaskólansfrá kl. 08.30-14.00,
sími 13194. Öllum er heimil þátttaka.
Stýrimannaskólinn
í Reykjavík.
Tilsölu
10 bráðefnilegir tamningafolar,
mjög góð rúllubaggabindivél og
mörg önnur landbúnaðartaeki.
10 folöld (faðir: Háfeti 804).
Upplýsingar í sima 98-78551.
Krossinn
Auöbrekku 2, 200 Kópavogur
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SIMAR11798 Ofl 19533.
Dagsferðir
sunnudaginn 10 sept.
Kl. 10.30 Harðarsaga - Hólm-
verja
Ekiö um Hvalfjörð og Borgar-
fjörð um söguslóðir þessarar
kunnu ísl.sögu undir leiðsögn
kunnugs fararstjóra. Verð kr.
1500 gr. v/bílinn.
Kl. 13.00 Meðalfell í Kjós
Meðalfellið liggur miðsvæðis í
Kjósinni. Tiltölulega létt ganga.
Verð kr. 1000 gr. v/bilinn.
I dagsferðir er frítt fyrir börn og
unglinga 15 ára og yngri. Farið
frá Umferðarmiðstöðinni að
austanverðu.
Ferðafélag (slands.
Kaffisala
Kristnisboðsfélags karla verður
á morgun, sunnudag, kl. 14-18,
í kristniboðssalnum, Háaleitis-
braut 58-60. Tekið á móti kök-
um frá kl. 10 á sunnudag.
Stjórnin.
Hvítasunnukirkjan
Ffladeifía
Almenn bænasamkoma i kvöld
kl. 20.30.
Allir velkomnir.
iyjj útivist
Dagsferðir sunnudaginn
10. sept.
Kl. 08.00 Þórsmörk - Goða-
land. Stansað 3-4 klst. i Mörk-
inni. Verð 1.500,- kr.
Kl. 10.30 Álftavatn - Þóru-
staðir. Létt láglendisganga
meðfram Álftavatni og hliðum
Ingólfsfjalls. 19. ferð í land-
námsgöngunni. Verð 1.000,- kr.
Kl. 13.00 Tannastaðir - Þóru-
staðir. Sameinast morgun-
gönguferðinni undir hlíðum Ing-
ólfsfjalls. Verið með í síðustu
landnámsgönguferðunum.
Verð 1.000,- kr.
Miðvikudagur 14. sept. kl. 20.
Tunglskinsganga íViðey. Brott-
för frá Viðeyjarbryggju, Sunda-
höfn. Verð 400,- kr. Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.