Morgunblaðið - 28.09.1989, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1989
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Síldarsöltun nálgast
Hefðbundin síldarvertíð hefst 8. október næstkomandi og er undir-
búningur söltunar vel á veg kominn. Allir saltendur hafa fengið
nægar tunnur til að geta hafið söltun, þegar þar að kemur og
tunnuflutningar til landsins standa yfir. Færeyska flutningaskipið
Saga Land losaði tunnur á Fáskrúðsfirði á þriðjudag og Haukur
á Akranesi á miðvikudag, en þá var þessi mynd tekin. Þessa sömu
daga var svo verið að skipa notuðum plasttunnum um borð í
Grundarfoss í Svþjóð. Síldin er nú nær eingöngu söltuð í platstunn-
ur, en lítils háttar af síldinni á Finnland fer þó í trétunnur.
Kaup Stálskipa á Sigurey frá Patreksfírði:
Fjörutíu milljóna króna lán
Byggðastoftiunar gjaldfellt
BYGGÐASTOFNUN hafnaði því á firndi sínum á þriðjudag, að Stálskip
hf. í Hafnarfirði fengi að yfirtaka um 40 milljóna króna lán Byggða-
sjóðs, sem gjaldfellt var þegar fyrirtækið keypti togarann Sigurey frá
Patreksfirði. Fimm stjórnarmanna tóku þessa ákvörðun, einn var fjar-
verandi og einn sat hjá við atkvæðagreiðslu.
Þingkjörna stjóm Byggðastofnun-
ar skipa þingmennirnir Matthías
Bjarnason, formaður, Halldór Blönd-
al, Ólafur Þ. Þórðarson, Ragnar Arn-
alds, Stefán Guðmundsson og Stefán
Valgeirsson og Elín Alma Arthúrs-
dóttir, viðskiptafræðingur. Ragnar
var fjarverandi þegar ákvörðunin var
tekin og Halldór Blöndal sat hjá.
Staðið við fyrri samþykkt
Matthías Bjamason, formaður
stjórnar Byggðastofnunar, sagði í
samtali við Morgunblaðið að Byggða-
stofnun hefði samþykkt, áður en
uppboð á Sigurey fór fram, að færi
skipið út fyrir Patreksfjörð yrði lánið
gjaldfellt. „Þessari samþykkt var
ekki stefnt gegn neinum sérstökum,
því þá var ekki vitað hver myndi
hreppa hnossið," sagði Matthías.
„Menn spurðu fyrir uppboðið hvort
við þetta yrði staðið og buðu ekki í
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00:' '
'j '
^ ^ Heimild: Veðurstofa islands
/ / / (Byggt á veðurspé kl. 16.15 i gaer)
VEÐURHORFURIDAG, 28. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Vestan og suð-vestan gola eða kaldi víðast hvar
á landinu. Smáskúrir eða slydduél voru á annesjum norðanlands
en lóttskýjað á Suður- og Austurlandi. Hiti var‘4-10 stig.
SPÁ: Ailhvöss sunnan- og suðvestanátt og rigning sunnan- og
vestanlands, en ennþá þurrt um austanvert landið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG:Stíf sunnanátt og hlýtt um allt land. Súld
eða rigning um sunnan- og vestanvert landið en þurrt norð-austan-
lands.
HORFUR Á LAUGARDAG:Hvöss suð-vestanátt með skúrum eða
slydduóljum um allt vestanvert landið en þurrt austan til. Kólnandi
veður.
Heiðskírt
TÁKN:
G
0 Léttskýjað
& Hálfskýjað
m, Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil flöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
# * *
■j Q Hitastig:
10 gráður á Celsius
\J Skúrir
* i
V EI
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j. Skafrenningur
Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 6 skýjað Reykjavík 8 mistur
Bergen 12 skýjað
Helsinki 15 þokumóða
Kaupmannah. 14 léttskýjað
Narssarssuaq 2 rigning
Nuuk 0 skýjað
Osló 12 skýjað
Stokkholmur 16 þokumóða
Þórshöfn 10 þokumóða
Algarve 25 þokumóða
Amsterdam 16 skýjað
Barcelona 25 skýjað
BerKn 15 skýjað
Chicago 3 helðsklrt
Feneyjar vantar
Frankfurt 15 skýjað
Glasgow 12 skýjað
Hamborg 14 skýjað
Las Palmas 26 skýjað
London 18 skýjað
Los Angeles 18 skýjað
Lúxemborg 14 hálfskýjað
Madríd 27 skýjað
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal vantar
New York 9 léttskýjað
Orlando 25 skýjað
París 19 skýjað
Róm 23 skýjað
Vín 18 mistur
Washington 11 helðsklrt
Winnipeg vantar
skipið þegar þeim var svarað að svo
yrði. Það væri því verið að koma í
bakið á þeim ef samþykkt Byggða-
stofnunar væri felld úr gildi. Stofn-
unin hefur úr afskaplega takmörk-
uðu fé að spila og hlutverk hennar
lögum samkvæmt er að stuðla að
því að byggðir, sem verða fyrir áföll-
um, haldi í horfinu. Þess vegna þurf-
um við að fara vel með þá fjármuni
sem við höfum yfir að ráða. Þeir sem
eignuðust skipið tóku fram í blöðum,
að því er ég held, að þeir gætu vel
borgað þetta. Ég fæ ekki séð að for-
sendur haft breyst, enda get ég ekki
litið svo á að Patreksfirðingum hafi
í raun verið gefinn kostur á að eign-
ast skipið. Það var byijað á að spenna
verð þess upp á uppboðinu, langt upp
fyrir það sem að mínum dómi var
skynsamlegt, bæði af Patreksfirðing-
um og þeim sem skipið hrepptu."
Matthías var spurður hvort ein-
hver fordæmi væru fyrir því að lán
Byggðastofnunar væru gjaldfelld
með þessum hætti. „Nei, ég held að
svona samþykkt hafi ekki verið gerð
fyrirfram áður,“ svaraði hann.
Eðlilegt að hluti láns
fylgdi skipinu
„Ég sat hjá vegna þess, að mér
hefði þótt eðlilegt að aðeins hluti af
láninu hefði verið gjaldfelldur, en
ekki lánið allt,“ sagði Halldór Blönd-
al. „Það kom fram að útgerðarfyrir-
tækið Stálskip, sem keypti Sigurey,
var reiðubúið til að sleppa skipinu
til Patreksfirðinga, en um það náð-
ust ekki samningar. Þá höfðu stjórn-
völd tilefni og aðstöðu til að grípa
inn í, eins og búið var að lofa íbúum
Patreksfjarðar. Hluti af láninu, sem
hvílir á togaranum, var til komið
vegna aðstæðna á Patreksfirði og
Byggðastofnun hafði veitt það til að
hjálpa Patreksfirðingum til að halda
skipinu. Mér hefði hins vegar þótt
eðlilegt að einhver hluti lánsins hefði
fylgt skipinu, en ekki lánið allt. Það
var hins vegar aldrei til umræðu að
skipta láninu upp með þessum
hætti,“ sagði Halldór.
Vegið að fijálsu
fi’amtaki í landinu
- segir Guðrún Lárusdóttir,
útgerðarmaður
„ÉG tel það megnasta óréttlæti að opinber stofhun, sem á að þjóna
landinu öllu, skuli mismuna svona eftir Iandshlutum. Þetta hefur hins
vegar engin áhrif fyrir fyrirtæki okkar og við munum standa í skilum
hér eftir sem hingað til. Það er verið að vega að frjálsu framtaki í
landinu með þessu og það er miður,“ sagði Guðrún Lárusdóttir, fram-
kvæmdastjóri Stálskipa í Hafnarfirði.
Guðrún sagði að það hefði vakið en sýndarmennska. Það átti að úti-
athygli í þessu máli að þingmenn
Reykjaneskjördæmis hefðu ekki ver-
ið betur vakandi og gætt hagsmuna
sinna umbjóðenda. „Þeir hafa fremur
unnið gegn mér, eins og til dæmis
Steingrímur Hermannsson, forsætis-
ráðherra, með skítkasti og aðdrótt-
unum, sem eiga sér enga stoð. Það
liggur við að hann hafi lagt mann í
einelti og ég held að hann ætti að
fara að hypja sig í að segja af sér.
Þá er framkoma Byggðastofnunar í
þessu máli fyrir neðan allar hellur."
Guðrún sagði að það væri ljóst,
að Patreksfirðingar höfðu engan
áhuga á að eignast skipið. „Upp-
boðið á Patreksfirði var ekkert annað
loka alla aðra frá því að bjóða í skip-
ið. Ég veit ekki betur en Patreks-
firðingar séu dauðfegnir að vera
lausir við Sigurey, fyrst Byggða-
stofnun gat ekki keypt skipið og
afhent þeim aftur, eins og Þrym.
Byggðastofnun er sjóður sem allir
landsmenn leggja í og Patreksfirð-
ingar eiga þar ekki meiri rétt en
aðrir."
Guðrún kvaðst vilja taka það fram,
að af áhöfn Sigureyjar nú væru flest-
ir- Patreksfirðingar. „Ég stend við
orð mín og í áhöfninni eru sex Pat-
reksfirðingar, þar á meðal yfirvél-
stjórinn, því ég ræð þá á meðan þeir
biðja um pláss,“ sagði hún.
Ákvörðun Byggðasjóðs
er óþolandi mismunun
- segir í ályktun hafnarstjórnar
HaftiarQarðar
HAFNARSTJÓRN HafnarQarðar samþykkti í gær ályktun, þar sem
sagt er að sú ákvörðun Byggðasjóðs að gjaldfella öll áhvílandi lán sjóðs-
ins á togaranum Sigurey sé óþolandi mismunum. Þá segir, að sú áleitna
spurning vakni hvort forsætisráðherra hafi ýtt undir þessa óeðlilegu
afgreiðslu með óvönduðum yfirlýsingum sínum um þetta mál. Ályktun-
in hefúr verið send Byggðasjóði, umboðsmanni Alþingis, Bankaeftirlit-
inu, Ríkisendurskoðun, forsætisráðuneytinu og þingmönnum Reykja-
neskjördæmis.
Hrafnkell Ásgeirsson, formaður
hafnarstjórnar, sagði að það væri að
sjálfsögðu hagsmunamál fyrir Hafn-
arfjarðarhöfn að útgerðarfyrirtækj-
um þar í bæ væri gert kleift að reka
skip. „Hafnfirðingar skilja ekki hvers
vegna þeir hafa ekki sama rétt í
þessum málum og aðrir. Byggða-
stofnun er þarna að móta nýja verk-
lagsreglu, en við teljum að allar for-
sendur hafi brostið fyrir því að krefj-
ast greiðslu lánsins þegar Stapar á
Patreksfirði gengu ekki inn í kaupin
á Sigurey," sagði Hrafnkell.
í ályktun hafnarstjórnar segir að
enginn 'efíst umað nýreigandi Sigur-
eyjar, Stálskip ,hf., sé Byggðasjóði
síst óhagstæðari skuldari en fyrri
eigandi. Hér sé því um óþoiandi mis-
munum að ræða. Þá segir að ákvörð-
un stjómar -Byggðasjóðs hljóti að
byggjast á því sjónarmiði, að útgerð-
arfyrirtæki í Hafnarfirði séu annars
flokks fyrirtæki og að þau megi ekki
skulda Byggðasjóði neitt, og því sjón-
armiði andmæli hafnarstjóm.
Loks segir: „Hafnarstjórn væntir
þess að þingmenn kjördæmisins og
aðrir rétti hlut Hafnfirðinga í við-
skiptum við Byggðastofnun 'og að
fyrirtæki hér í bæ njóti jafnréttis á
við fyrirtæki í öðmm byggðarlög-
ttm.“