Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 34
m MORGUiNBLAÐIÐ, FIMMSUDAGUR. 2S.„SBKFEMBER, .. Mun flóttinn til austurs hjálpa? eftir Tissa Weerasingha Hefur austræn heimspeki hjálpað Austurlöndum? Austræn heimspeki, íhugun, jóga og annað þessu skylt hefur verið stundað í Austurlöndum öídum saman. Þó er öllum ljóst að þessi þjóðfélög eru fjötruð í óþolandi þjáningu, ranglæti og án markmiðs og tilgangs. Af hverju er þetta svona? Það er vegna þess að þessi heimspeki er byggð á lögmáli „karma“ og þeim skilningi að tilver- an öll sé „maya“ (blekking). Samkvæmt lögmáli karma er núverandi þjáning orsökuð af synd á fyrri tilverustigum. Að reyna að breyta núverandi ástandi er tilraun til að fitia við karma. Niðurstaða slíks kenningakerfis er viðhorf sem byggir á bölsýni og sinnuleysi gagn- vart vandamálum líðandi stundar. Þetta útskýrir hvers vegna þessi þjóðfélög gera ekki róttækar til- raunir til breytinga. Ef allt er maya þá er tilveran merkingarlaus. Ef austræn heimspeki hefur brugðist í Austurlöndum hvemig getur hún þá hjálpað Vesturlöndum? Því mið- ur er eina lexían sem við lærum af sögunni sú, að við lærum ekki af sögunni! Innhverf íhugnn Þegar rætt er um innhverfa íhug- un verður að taka afstöðu til mikil- vægs þáttar. Það er spurningin: er innhverf íhugun eingöngu aðferð til slökunar eða er um trúarbrögð að ræða? Öll tækni innhverfrar íhugunar kemur úr fræðum jóga í indverskri heimspeki. Samkvæmt Maharishi er innhverf íhugun „leið til æðri sanninda“. Þetta er reynsla. af trúarlegum toga. Reyndar er innhverf íhugun markaðssett i Bandaríkjunum sem „vísindi skap- andi greindar", en'tæknin er samt álitin leið til að sameinast hinu guðlega. Þar að auki er „mantra“ það sem gefið er við vígsluathöfnina ekki annað en ákall til guða hindú- ismans. Það er ekki nokkur vafi á því að innhverf íhugun er meðvituð eða ómeðvituð tenging við anda- heiminn. Innhverf íhugun er ekki eingöngu aðferð til slökunar, heldur trúarleg reynsla með aðlaðandi for- merkjum. Þegar þú tekur þátt í innhverfri íhugun ertu að taka inn á þig hindúisma. Jóga Orðið ,jóga“ merkir eining. Markmið hindúismanns er eining við Brahman (hið algjöra). Jóga er kjarni hindúismans. Iðkun jóga leið- ir að lokum til þess að einstakling- urinn horfir inn í sjálfan sig í leit að hinu sanna sjálfi sem menn trúa að sé Guð. Það er ekki hægt að aðgreina líkamlegar æfingar frá hinum andlegu, en tilgangur beggja er að koma á slíku ástandi að hug- urinn sé tómur. Þegar slíkt gerist, getur hvað sem er leitað inn stjórn- laust. Það er skýring þess að öll form jóga leiða í villu. Ef líkamleg æfing er nauðsyn verða menn að sníða hana eftir þörfum sínum, en ekki iðka jóga. Iðkun jóga er ætlað að leiða manninn inn í andaheiminn. Endurholdgun Samkvæmt austrænum skilningi er endurholdgun hræðilegt hugtak. Lífið er talið vera óþolandi tilveru- hringur og það er girnd og hið illa sem bindur sálina við hjól tilver- unnar (samsara). Endurholdgun er það gjald sem maðurinn greiðir fyr- ir illsku sína. Þessi ferill á að geta staðið yfir í milljónir ára. Þó ekki sé hægt að sjá fyrir hvenær lausnin muni eiga sér stað, mun endur- holdgun hætta að endurtaka sig þegar gjald vegna hins illa hefur verið greitt til fullnustu. Þess vegna er aðeins hægt að vona. Hinn vest- ræni skilningur endurholdgunar er þó frábrugðinn upphaflegum hind- úskum skilningi. Vegna áhrifa vest- rænnar menningar er litið á endur- holdgun með björtum augum og hugtakinu er gefinn rómantískur blær með von um endurfundi vina í framtíðarlífum! Endurholdgun er byggð á lög- máli karma. Það er fullyrt að lög- mál karma úthluti maklegum mála- gjöldum án tilvísunar til æðri mátt- arvalda. Lögmál karma starfar miskunnarlaust án þess að gera nokkurn tíma mistök og án stjórn- unar. Að sjálfsögðu þarf mikla trú til að trúa slíkum hugmyndum. En athugið það að til að vondur maður endurholdgist og geti endurgoldið illsku sína, þarf önnur persóna að Tissa Weerasingha íhugunarstöðvar, nátt- úrulækningar, jóga, trú á endurholdgun og austræna heimspeki er víða að finna í hinum vestræna heimi í dag. Því er nauðsyn að þekkja þessi fyrirbæri í sínu rétta samhengi. flækjast í hið illa. Þegar sú persóna blandast illskunni þarf hún þá ekki að gjalda þess í næsta lífi? Hvað hefur nú gerst? Lögmál karma hef- ur margfaldað illskuna í stað þess að draga úr henni. Ef lögmál karma er rétt þá er engin trygging fyrir því að hið illa karma sé ekki mikið meira en hið góða karma. Frá sjónarhóli hins kristna manns dæmir heilagur og réttlátur Guð hið illa og bindur enda á það. Bibl- ían útskýrir upphaf hins illa, en það gerir austræn heimspeki ekki, og hún greinir einnig frá því hvernig glímt verður við hið illa að lokum. Samkvæmt kristnum skilningi hef- ur sagan gildi og lífið að sjálfsögðu merkingu. Hvað hjálpar hinum vestræna heimi? Að undanförnu höfum við verið vottar stöðugrar hnignunar krist- innar menningar í hinum vestræna heimi. Ein af meginástæðunum er nýguðfræði og fijálslynd guðfræði. Afneitun guðdóms Jesú Krists, kraftaverkanna, nauðsyn endur- fæðingar til frelsis og önnur óbiblíu- leg viðhorf hafa getið af sér staðn- aða kristni sem hefur brugðist því að gefa lífinu merkingu og gildi. Mannhyggjan sem fylgdi í kjölfarið hefur einnig gersamlega brugðist. Inn í þetta tóm kemur austræn heimspeki, sem hefur verið böl Austurlanda, og býður upp á dul- ræna reynslu og ijölskyldusamfé- lag, sem skortir í hinum vestræna heimi. Guðfræðingar hafa flestir afneitað hinu yfirnáttúrulega í kristindómnum og búið til tóm í hinum vestræna manni. Þetta tóm, sem Heilagur Andi Guðs hefðir átt að fylla, er nú vettvangur fyrir dulhyggju og spíritisma. Þetta tóm er svo mikið að margir vestrænir menn hella sér út í yfirnáttúrulega vonsku án þess að spyija hinna sömu rökrænu spurninga og þeir spurðu áður um kristindóminn. Menn taka risastökk út í hið austræna tóm án þess að skoða sanna biblíulega kristni sem býður fyrirgefningu af sekt og synd, innri frið, tilgang og merkingu með lífinu og dýrðarvon í upprisu Jesú Krists! Það undarlega er að gerast að í mörgum löndum Asíu eru fleiri en nokkru sinni að koma til Drottins Jesú Krists og taka á móti hinni kristnu trú. Þar sjá menn sína ein- ustu von um frið og lausn frá merk- ingarlausri hringrás tilveru sinnar. Eina svarið fyrir austur og vestur er fagnaðarerindið um Jesúm Krist. Höfundurinn erírá SriLanka og veitirhann þarforstöðu þrjú þúsund manna kristnum söfhuði. Hann lauk námi frá Seattle Bible Training School 1973. Hann Iauk magisterspróB við Fuller Theological Seminary og vinnur nú að doktorsritgerð. Hvers á Kjalames- hreppur að gjalda eftir Pétur Pálmason í Morgunblaðinu þann 5. septem- ber er viðtal við Þórð Þorbjarnarson borgarverkfræðing. Þar verður honum tíðrætt um að urðun sorps í Álfsnesi sé langhagkvæmasta lausnin á sorpvandamálum höfuð- borgarinnar. ITÖLSK V I K A í KRINGLUNNI 28. sept. - 7. okt. ítalskar vörur##Tískusýningar Tónlist IS Kaffihús O ítalskur matur## Ferbakynningar O /JGetraun, vinningur: ferb fyrir tvo til Ítalíu O Það liggur í augum uppi að fyrir höfuðborgina er það ódýr lausn að geta fleygt sorpinu rétt út fyrir borgarmörkin, rétt eins og tíðkaðist í gamla daga í sveitinni þegar þurfti að moka flórinn, þá var skítnum stundum mokað rétt út fyrir fjósvegginn í haug. Þar við bætist svo mikið hagræði borgar- innar í framtíðinni af því að geta svona í leiðinni eyðilagt eitthvert albesta byggingarsvæði sem enn er unnt að finna óbyggt utan við borgarmörkin og losnað þannig við hvimleiðan samkeppnisaðila í framtíðinni. Þetta veit ég að engir skilja bet- ur en þeir Davíð Oddsson og Þórður Þorbjarnarson sem vanir ei'u að fást við skipulagsmál borgarinnar og hafa oft leyst þau með snilldar- brag. En ódýrasta lausnin er ekki alltaf besta lausnin. Ég held t.d. að það væri ennþá ódýrari lausn að urða sorpið á Arnarhóli eða Austurvelli, en það dettur náttúrulega engum í hug að gera að tillögu sinni, hvorki mér né öðrum. En því nefni ég þessa staði að með hinum fyrir- hugaða „Sundavegi", sem ég kalla svo gegnum Geldinganes og Gunnu- nes hefði Álfsnesið öll skilyrði til þess að verða álíka mikilvægt fyrir Kjalnesinga eins og miðborgin er fyrir Reykvíkinga. Ég vil benda á þá staðreynd, að með Sundaveginum koma borgar- landið og Kjalarneshreppur til með að tengjast með einni brú, þannig að þá geta Kjalnesingar hoppað yfir linu og verið komnir til Reykjavíkur, sem er víst það eftir- sóknarverðasta í heimi hér! Þetta myndi þýða það að fjarlægðin frá Álfsnesi til höfuðborgarinnar yrði minni heldur en t.d. frá öllum helstu byggðakjörnum Mosfellsbæjar svo eitthvað sé nefnt. Þá gætu Kjalnes- ingar alveg sleppt því að aka gegn- um Mosfellsbæ endilangan og farið beinustu leið til Reykjavíkur. Auð- vitað myndi þetta koma best út fyrir þá Kjalnesinga sem kæmu til með að byggja á Álfsnes-svæðinu og sækja vinnu til höfuðborgarinn- ar, en um leið yrði það líka hag- ræði fyrir alla Kjalnesinga. Einhveijum skipulagsfræðingi varð að orði, og það áður en farið var að ræða um Sundaveginn, að þarna, milli Leirvogs og Kollafjarð- ar, hefði Kjalarneshreppur stórkost- lega möguleika fyrir framtíðar- byggð, þar væri unnt að koma fyr- ir „heilum Garðabæ" eins og hann orðaði það. Ef til vill langar engan í svo mikla byggð á þessum stað, en samt er ekki úr vegi að spyija hvers vegna þessir möguleikar hafi ekki verið nýttir eða aldrei stefnt að því að undirbúa slíkt með því t.d. að hreppurinn reyndi að eign- ast lönd á þessu svæði? Þarna er komið að miklu feimnis- máli sem hefur lengi verið eins konar „tabú“ í allri umræðu í sveit- inni og ráðamenn alltaf reynt að þagga niður, eftir megni, alla um- ræðu um. Þetta feimnismál er e.k. skipu- lagsslys sem hér átti sér stað fyrir 20—25 árum og var fólgið í al- rangri staðsetningu fyrsta þéttbýl- iskjarnans í hreppnum og hefur það smátt og smátt orðið til þess að stöðva hér alla eðlilega og skynsam- lega uppbyggingu í sveitinni, því engin ásókn hefur verið í að byggja og búa á því svæði. Margir halda víst að það yrði einhver dauðadóm- ur yfir þessu hverfi ef leyfð yrði byggð á öðru svæði, en það er mesti misskilningur. Ibúar Grund- arhverfis gætu lifað góðu lífi og unað glaðir við sitt þó hverfið stækkaði ekki meira en orðið er. NÚ er hins vegar allt útlit fyrir að hér sé verið að setja á svið ann- að skipulagsslys, ennþá alvarlegra, sem kemur til með að valda framtíð Kjalarneshrepps óbætanlegu tjóni. Stefnt er að því að taka þetta dýrmæta svæði, Álfsnessvæðið, þessa mestu perlu hreppsins í bygg- ingarlegu og skipulagslegu tilliti, og demba þangað sorpi frá hálfri þjóðinni eða ca. 150.000 manns, og það einmitt þar sem hinn fyrir- hugaði Sundavegur, sem verður hluti af hringveginum lægi gegnum austurhluta hreppsins. Ég er því miður alveg sannfærð- ur um að komandi kynslóðir í Kjal- arneshreppi eiga eftir að minnast núverandi hreppsnefndar, þ.e. meirihluta hennar, sem hrepps- nefndarinnar sem eyðilagði framtíð hreppsins til þess að hluti íbúanna þ á m. meiri hluti nefndarinnar, gæti fengið nokkrar krónur í- vas- ann vegna lægri hitunarkostnaðar hjá sér. í áðurnefndu viðtali við Morgun- blaðið segir Þórður Þorbjarnarson: „Urðunarstaður norðar á Kjalarnesi hefði ekki komið til greina vegna fjarlægðar." Þessa ályktun dregur Þórður eftir að hafa gefið sér ákveðnar forsendur, sem þó gátu engan veginn leitt til slíkrar niður- stöðu. Þórðúr segir að þessi samn- ingur spari þessum 8 sveitarfélög- um 60—70 milljónir króna á ári. Þá á hann sjálfsagt við samanburð á heildarkostnaði á ári, annars veg- ar við urðun sorpsins og flutning til Krísuvíkur og hins vegar í Álfs- nes, og inni í því hlýtur að vera hitaveitudæmið. Krísuvík mun sér- staklega tekin til samanburðar vegna þess að svo virtist sem borg- in teldi ekki annan stað koma til greina að Álfsnesi frátöldu. For- sendurnar sem Þórður gaf sér voru einkum tvær, annars vegar að hver km sem þyrfti að aka með baggað sorp kostaði eina milljón kr. og hins vegar sú að flutningskostnaðurinn væri svo til eini munurinn á því að urða í Álfsnesi og að urða norðar á Kjalarnesinu. Samkvæmt þessum forsendum ætti ekki að þurfa að vera meiri kostnaðarmunur á þessum stöðum en ca. 5—10 milljónir króna á ári eftir því hvaða staður yrði fyrir valinu norðar á Kjalarnesi. Þá væri hagnaðurinn sem Þórður talaði um í upphafi kominn niður í 55—60 milljónir, og alls ekki hefði verið óraunhæft að hreppurinn hefði fengið helminginn af þeirri upphæð í sinn hlut á ári til viðbótar við það sem þegar er búið að semja um. Samt hefðu sveitarfélögin grætt 30 milljónir á ári, miðað við að urða í Krísuvik. En það er nú oft erfitt að semja við einræðisherra sem þurfa ekkert að hugsa um rök eða skynsemi og geta einfaldlega sagt út í loftið: „Það kemur ekki til mála.“ Hitt virðist aftur á móti ekki hvarfla að Þórði, að sennilega hefðu ýmsir mótmælt urðun vestur á Kjal- arnesi, þó margir virðist henni hlynntir. En þeir borgarherrar lúta nú ekki svo lágt að leggja eyrun við kvaki smáfuglanna, það er fyrir neðan þeirra virðingu, sérstaklega ef ekki er um kjósendur borgarinn- ar að ræða. Gamalt spakmæli segir að enginn borg sé óvinnandi ef asni klyfjaður gulli komist í gegnum borgarhliðin. Svo er að sjá að við Kjalnesingar höfum nú leitt þennan asna í her- búðir okkar, sem aldrei skyldi verið hafa. En svo seinheppnir voru þess- ir „businessmenn“ sem stjórna hreppnum, að gullklyfjarnar urðu að mestu eftir fyrir utan, svo Kjal- nesingar sitja eftir með skarnið og skömmina — og svo auðvitað asn- ann. Hvers á Kjalarneshreppur eig- inlega að gjalda? Höfundur er bóndi í Norður-Gröf á Kjalarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.