Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 24
24 MÖRGUNBLAÐÍÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1989 Kákasuslönd Sovétríkjanna: Azerar leyfa vöru- flutning'a til Armeníu Mnckvu Rpnfpr Moskvu. Reuter. ARMENAR stóðu víða í biðröðum við verslanir í gær eftir að mánaðar- langar hindranir Azera á vöruflutningum til Armeníu voru úr sög- unni. Yfirmaður í sovésku lögreglunni sagði á þriðjudag að 11 járn- brautarlestir hefðu farið til og firá landinu á einum sólarhring. Nær ekkert bensín var til í höfuðborginni Jerevan. Á mánudaginn gaf Míkhaíl Gorbatsjov forseti yfírvöldum í Kákasuslýðveldunum tveim, Azerbajdzhan og Armeníu, tveggja sólarhringa frest til að Ieysa málin ella yrði gripið til „markvissra aðgerða." Heimildarmenn í Armeníu sögðu að Azerar héldu áfram að hindra aðflutninga á bílaeldsneyti til að koma í veg fyrir að hægt sé að dreifa nýju birgðunum. Azerarnir komu á flutningabanni til að leggja áherslu á kröfur sínar um yfiráð héraðsins Nagomo-Karabak sem byggt er Armenum að mestu en umlukið Azerbajdzhan. Megnið af aðföngum til Armeníu fer um land- svæði Azera og var svo komið að skammta þurfti jafnvel eldsneyti á sjúkrabíla. Langar biðraðir voru við matvælaverslanir og mörg fram- leiðslufyrirtæki voru hætt starfsemi. Utanríkisráðherra V estur-Þýskalands: Aðeins umbætur koma 1 veg fyrir fólksflótta Prag, Sameinuðu þjóðunum. Reuter. AUSTUR-Þjóðveijar, sem sest hafa að í sendiráði Vestur-Þýskalands í Prag í Tékkóslóvakíuj eru orðnir 1.300 talsins og bættust nokkur hundruð við í fyrrinótt. I ræðu, sem Hans-Dietrich Genscher, utanrík- isráðherra Vestur-Þýskalands, flutti á Allsheijarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær, hvatti hann austur-þýsk sljórnvöld til að koma á lýðræðislegum umbótum og sagði, að með því einu væri unnt að stemma stigu við fólksflóttanum vestur. Wólfgang Vogel, lögfræðingi ur-Þjóðveijar hefðu engar landa- austur-þýskra stjórnvalda, tókst í fyrradag að fá um 200 Austur- Þjóðveija til að yfirgefa vestur- þýska sendiráðið í Prag og fara heim aftur gegn loforði um brott- fluttningsleyfi síðar en i fyrrinótt klifruðu nokkur hundruð landa þeirra yfir girðinguna við sendiráð- ið. Eru þeir nú orðnir 1.300 talsins. Segjast þeir ekki trúa loforðum Vogels eða neinu, sem frá austur- þýskum stjórhvöldum kemur. „Við þekkjum þau af 40 ára reynslu," sagði einn Austur-Þjóðveijanna. Genscher sagði á Allsheijarþing- inu að lýðræðislegar umbætur í Austur-Þýskalandi og öðrum Aust- ur-Evrópuríkjum yrðu til þess, að fólk hefði enga ástæðu til að flýja burt. Þá sagði hann einnig, að Vest- Sovéska sjónvarpið hefur sýnt mynd- ir af rotnandi matvælum í lestar- vögnum sem ekki komast leiðar sinnar vegna eldsneytisskorts. Viku- ritið Moskvufréttir sagði í gær að þar sem nægilegt byggingarefni hefði ekki borist til Armeníu yrði ekki hægt að byggja ný hús handa hálfri milljón manna sem varð heimil- islaus í jarðskjálftunum miklu á síðastliðnu ári. Yfirmaður í lögreglunni, Vladímír Jegorov, sagðist á blaðamannafundi vona að vegatálmar yrðu einnig ljar- lægðir áður en frestur Gorbatsjovs rynni út á miðvikudag. „Verði það ekki gert þá ræður ríkisvaldið yfir liði sem getur leyst málið,“ sagði Jegorov og átti greinilega við að hervaldi yrði beitt. Stjórnarmálgagn- ið Pravda skýrði frá því á þriðjudag að vélahersveit hefði verið send til Nagorno-Karabak til að aðstoða 4.000 manna vopnað lið lögreglunnar sem verið hefur í héraðinu frá árs- byijun. Á annað hundrað manns hafa týnt lífi í átökum Azera og Armena sem staðið hafa í tuttugu mánuði. Starfsmenn Peugeotí verkfalli Þúsundir starfsmanna Peugeot-bílaverksmiðjanna í Frakklandi efndu til mótmæla á götum Sochaux-borgar í gær. Þeir hafa verið í verkfalli í rúman hálfan mánuð til að krefjast launahækkana. Ekkert hefur miðað í samningaviðræðum. Bretland: kröfur uppi á hendur Pólveijum, hvorki nú né síðar. Virtist hann með þeim orðum vera að svara Edúard Shevardnadze, utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, sem sagði í fyrradag, að „hefnigjöm öfl“ vera farin að láta á sér kræla, „þeir, sem vilja endurskoða og steypa Evrópu eftirstríðsáranna um koll.“ Kom þetta fram hjá Shevardnadze í ræðu hans um efnavopnin og vakti mikla undmn vestur-þýsku sendinefndar- innar. Samkvæmt skoðanakönnun vest- ur-þýska vikublaðsins Quick vilja 64% Austur-Þjóðveija sameiningu þýsku ríkjanna tveggja en 89% Vestur-Þjóðveija em sömu skoðun- ar. Könnunin í Austur-Þýskalandi var gerð með símhringingum. Barnaheimilum flölgað St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. BARNAHEIMILUM verður fjölgað verulega víða um Bretland til að gera konum kleift að fara út á vinnumarkaðinn. 12 ráðherrar hafa unnið í þijú ár að því að undirbúa áætlun um hvernig fjölga megi konum á vinnumarkaði. Niðurstöðurnar verða gerðar opinberar í vik- Á síðasta áratug þessarar aldar er búist við að 750 þúsund störf verði ófyllt að óbreyttum aðstæðum. Um miðjan næsta áratug munu þeir árgangar, sem útskrifast úr gmnn- skóla, minnka um fjórðung. Eini hópurinn, sem getur fyllt þetta skarð, em heimavinnandi konur. Árið 2000 er búist við að helmingur vinnuafls verði konur og þær fylli ijögur af hveijum fimm nýjum störfum næsta áratug. Mikil fjölgun barnaheimila er eina leiðin til að gera þetta mögu- legt. Menntamálaráðuneytið mun skrifa 30 þúsund skólum í næsta mánuði til að útskýra áætlunina og mælast til að ónýttum skólastofum verði breytt í barnaheimili og að ráðuneyt- ið muni aðstoða við slíkar breytingar. í næstu viku mun Midland-banki einnig kynna áætlun sína um að setja á stofn 300 bamaheimili fyrir árið 1993 og þar af 30 fyrir lok þessa árs. Bankinn býður skólum upp á að 'sækja um styrk til rekstrar barna- heimilis og segist munu veita hveiju heimili sem svarar allt að fimm millj- óna króna styrk. Um 19 þúsund konur starfa hjá bankanum og framlögin munu að hluta til ráðast af því, hve margir starfsmenn hans fá pláss fyrir börn sín á hveiju heimili. í síðustu viku var opnað 24 bama heimili í Sussex, þar sem starfsmenn bankans hafa fimm pláss. Bankinn veitti 500 þúsund krónum til heimilis- ins í upphafi og mun greiða til þess 20 þúsund krónur á viku í fimm ár. Mæður greiða um 100 krónur á klukkustund fyrir gæslu barna sinna frá átta til fimm. Reiknað er með um einni milljón króna í hagnað á ári af barnaheimilinu. Skýrsla um herstyrk Sovétmanna: Ahersla lögð á endumýjun lang drægra gjöreyðingarvopna Framlög til vígbúnaðarmála hafa aukist um þrjú prósent milli ára SOVÉTMENN hafa undanfarin ár unnið kröftuglega að því að end- umýja langdræg kjamorkuvopn sín, að því er kemur fram í nýrri skýrslu bandaríska vamarmálaráðuneytisins sem birt var í gær. Fram kemur að Sovétmenn ráða nú yfir að minnsta kosti 15 lang- drægum sprengjuflugvélum af gerðinni „Blackjack" auk þess sem nýir eldflaugakafbátar af gerðunum „Delta IV“ og „Typhoon“ hafa verið teknir í notkun. Skýrsla þessa árs þykir annars endurspegla þá þíðu sem einkennir samskipti risaveldanna um þessar mundir. Langdræg sovésk sprengjuþota af gerðinni „Blackjack". Sovét- menn ráða nú yflr a.m.k. minnsta kosti 15 slíkum þotum sem draga um 7.300 kílómetra og fljúga á tvöföldum hraða hljóðsins. í formála Dicks Cheneys, vam- armálaráðherra Bandaríkjanna, segir að framlög Sovétmanna til vígbúnaðarmála hafí að meðatali aukist um þijú prósent að raun- gildi milli ára frá því Míkhaíl S. Gorbatsjov hófst til valda í Sov- étríkjunum. Á sama tíma hafi út- gjöld Bandaríkjamanna á þessu sviði dregist saman um 11 prósent. í skýrslunni segir að 15 sprengjuþotur af gerðinni „Blackjack" hafi nú verið staðsett- ar á flugvelli einum nærri Moskvu. „Blackjack" ér stærsta og þyngsta sprengjuþota sögunnar. Fyrstu þotumar voru teknar í notkun á síðasta ári. Þær fljúga á tvöföldum hraða hljóðsins og drága um 7.300 kílómetra. Líkt og langdrægar sprengjuflugvélar af gerðinni „Be- ar H“ bera þær 12 stýriflaugar af gerðinni AS-15, sem draga 3.000 kílómetra og bera einn kjarnaodd. Að auki er unnt að búa þær 24 eldflaugum af gerðinni AS-16. Eld- flaugar þessar, sem einnig bera kjarnahleðslur, eru ætlaðar til ár- ása á hemaðarlega mikilvæg skot- mörk á jörðu niðri. Landeldflaugar endurbættar Fram kemur að Sovétmenn ráða nú yfír um 170 langdrægum kjarn- orkueldflaugum af gerðinni SS-25. Eldflaugar þessar eru hreyfanlegar og bera einn kjarnaodd hver flaug. Þá hefur um 58 eldflaugum af gerðinni SS-24 verið komið fyrir á járnbrautarvögnum. Þær bera tíu kjarnaodda og draga allt að 10.000 kílómetra. Unnið hefur verið að endurbótum á eldflaugum af gerð- inni SS-18. Nýja tegundin sem nefnist „SS-18 gerð 5“ ber að minnsta kosti tíu kjarnaodda og dregur um 11.000 kílómetra. I skýrslunni segir að endumýjunin miði einkum að því að auka ná- kvæmni langdrægra gereyðingar- vopna auk þess sem stefnt sé að því að auka fjölda kjamaodda í hverri eldflaug. Segir og að þrátt fyrir að samið verði um helmings- fækkun langdrægra kjamorku- vopna eins og stefnt er að í START-viðræðum risaveldanna geti Sovétmenn engu að síður skot- ið eldflaugum að öllum þeim skot- mörkum sem þeir telji nauðsynlegt að granda bijótist út kjamorku- styrjöld. Á þeim Qórum árum sem liðin em frá því að Míkhaíl S. Gorbatsj- ov var kjörinn aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, hafa 17 nýir tundurspillar og stærri herskip ver- ið tekin í notkun. Samtals era skip þessi um 600.000 tonn. Þá vinna Sovétmenn að smíði tveggja nýrra flugmóðurskipa af gerðinni „Tblisi" sem verða um 65.000 tonn hvert. Öflugri stýriflaugar Nýjum eldflaugakafbátum af gerðinni „Delta IV“ og „Typhoon" hefur verið hleypt af stokkunum og era nú sex af hvorri gerð í notk- un. Einn slíkur bátur ber að meðal- tali um 160 kjamaodda. í skýrslu varnarmálaráðuneytisins segir að markverðasta breytingin á kaf- bátaflota Sovétmanna á undan- fömum tveimur áram sé þó sú að bátamir hafí verið búnir nýjum stýriflaugum af gerðinni SS-N-21 sem bera einn kjamaodd og ætlað- ar eru til árása á skotmörk á landi. Stýriflaugum þessum er skotið út um skotraufar fyrir tundurskeyti og geta flestir nýjustu kafbátar Sovétmanna borið þessi vopn en drægni þeirra er um 3.000 kíló- metrar. Áfram hefur verið unnið að því að koma stýriflaugum fyrir í eldri eldflaugakafbátum af „Yankee“-gerð en þær era ætlaðar til árása á skotmörk í Vestur- Evrópu og Bandaríkjunum. Á þennan hátt hafa Sovétmenn bætt sér upp missi Iandeldflauga í Evr- ópu sem Washington-sáttmálinn frá 1987 kvað á um að skyldu upprættar með öllu. Dick Cheney, vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði á fundi með blaðamönnum í gær að her- afli Sovétmanna væri enn ógnun við öryggi Bandaríkjanna. Sov- étríkin væru enn öflugasta herveldi heims þó svo fullyrða mætti að líkur á styijöld milli risaveldanna tveggja hefðu að líkindum aldrei verið minni. Skýrsla varnarmála- ráðuneytisins þykir ólík þeim sem gefnar vora út í tíð Ronalds Reag- ans, fyrram Bandaríkjaforseta. Á forsíðu hennar er mynd af sovésk- um hermönnum á leið frá Afganist- an og í formála ræðir Cheney um þær „stórkostlegu breytingar" sem hann segir að eigi stað í Sovétríkj- unum um þessar mundir. Eins og til að undirstrika þetta skýrði Che- ney blaðamönnum frá því að Dmítrí Jazov, varnarmálaráðherra Sov- étríkjanna, kæmi í opinbera heim- sókn til Bandaríkjanna í næstu viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.