Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ PlMMTUDAGUli 28- SEFTEMBER 1989
- 44
fclk í
fréttum
ÖKULEIKNI
Féll 47 sinnum
á bílprófí
MEGRUN
Roxanne át grísinn líka
Tvær kunnar leikkonur úr vin-
sælum sjónvarpsþáttaröðum,
þær Roxanne Barr úr þáttunum
„Roxanne" og Susan Ruttan úr
Lagakrókum, eiga það sameiginlegt
að vera ekki grannar. Reyndar má
segja um þær báðar að orðið „feit-
ar“ eigi prýðilega við þær. Mikil
umræða um megrunarkúra hefur
ævinlega skapast í kring um þær
Barr og Ruttan og í ljós komið að
viðhorf þeirra til slíkra athafna eru
ekki beinlínis hinar sömu.
Ef litið er fyrst til Susan Ruttan,
sem leikur einkaritara skilnaðarlög-
fræðingsins Arnie í Lagakrókum,
er óhætt að segja að hún sé í þrot-
lausri leit að kúmum eina. Hún
segist hafa reynt allt milli himins
og jarðar og sé raunar vantrúuð á
að kúrinn eini sé til þótt enn hafi
hún ekki varpað allri von fyrir róða.
Enginn hinna ótal kúra hafi reynst
sér vel nema í stuttan tíma í einu.
Ævinlega hafi sótt í sama farið.
Þessa dagana reynist sér best að
skera niður sykur- og fítuneyslu,
en vegna glímu hennar við kílóin
hafí framleiðendur Lagakróka sett
í handritið glímu einkaritarans við
hin sömu kíló. Þegar Susan er á
kúr, þá er einkaritarinn það einnig,
meira að segja sama kúrnum.
Roxanne Barr þykir hafa munn-
inn fyrir neðan nefíð. Hún segist í
eina tíð hafa haft áhuga á meg-
runarkúrum, en hafi látið af slíkum
hégóma fyrir löngu. „Ég komst loks
að því að ég gerði lítið annað en
að ljúga sjálfa mig fulla. Ef ég sagði
einhveijum einn daginn að ég hefði
einungis borðað eitt lítið epli allan
daginn, mátti bóka að það væri
sannleikanum nær að ég hefði að
sönnu gleypt eplið, en auk þess
óvart allan grísinn sem var einnig
á fatinu og var matreiddur með
eplið uppi í sér,“ segir Roxanne.
1 -i- jðT
Hin tvítuga Cheyenne og faðir hennar Marlon Brando
SLYSFARIR
Dóttir Brandos
í bílslysi
Gamla kempan Marlon Brando er í sárum
þessa daganna og það er tvítug dóttir
hans Cheyenne einnig. Hún í bókstaflegum
skilningi, því að hún hefur eytt síðustu vikunum
á sjúkrahúsi eftir að hafa skaddast hroðalega
í andliti í bílslysi. Brando er niðurbrotinn, því
Cheyenne hefur þótt afar fögur og verið auga-
steinn pabba síns. Fregnir herma að Brando
sé reiðubúinn að reiða fram milljónir dollara
ef með þarf til þess að færustu lýtalæknar
geti gert að sárum Cheyenne.
Brando er stoltur eigandi eyju nokkurrar í
Suður- Kyrrahafi og Cheyenne var þar í sumar-
leyfi. Hún ók jeppa föður síns all greitt eftir
heldur slæmum vegi, missti stjórn á farartæk-
inu og stakkst út um framrúðuna þegar jeppinn
skal| á kletti. Hún skarst illa í andliti og lá í
margar klukkustundir á skurðarborðinu undir
læknishendi. Alls settu þeir 50 spor til að sauma
saman sárin.
Frú Git Khaur Randhawa hefur
smeygt sér inn á síður heims-
metabókar Guinness-bjórframleið-
andans með þeim einstæða hætti
að falla 47 sinnum á bílprófi. Með
hörkunni hefst það segir máltækið
og Git gafst ekki upp. Þegar 48.
prófið var afstaðið og ökukennar-
inn sagði henni að hún hefði stað-
ist raunina, missti hún málið um
hríð og síðan flutu tárin i stríðum
straumum. Hennar nánustu óttuð-
ust að hún hefði valdið banaslysi
í prófínu, svo mjög grét hún. En
það voru gleðinnar tár og þegar
þau höfðu verið þerruð tók Git
fúlgu úr bankabók, upphæð sem
hún hafði safnað á 20 árum til
að geta keypt sér bíl er prófið
væri afstaðið. í 15 af umræddum
20 árum hafði hún hvað eftir ann-
að tekið bílpróf en fallið jafn harð-
an.
Git býr í Middlesex í Englandi
og hún segir að það umferðarlaga-
brot sé varla til sem hún hafi ekki
brotið í bílprófum sínum og því
fallið. Hún hafi ekið of hratt, of
hægt, yfir á stöðvunarskyldu,
rauðum ljósum, yfír umferðareyj-
ar, á móti umferð, gleymt að nota
stefnuljós, flautu, stöðuljós,
gleymt merkingu umferðarskilta
og glpymt í stuttu máli öllu þegar
í munnlegu prófín var komin. Það
gekk svo langt að eitt sinn mun-
aði aðeins hársbreidd að hún æki
yfir gangandi vegfarenda. Próf-
dómarar hafa komið og farið, en
Git var orðin eins og mubla í öku-
skólanum. Tugi þúsunda hafði hún
látið renna í tilraunir sínar, en
allt kom fyrir ekki. Sagt er að
ökukennaramir í Middlesex muni
sakna Git. Hitt kann þó að gerast
að hún verði svipt prófinu og þurfi
að reyna á ný.
Git sigurreif með profskírteinið.