Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1989 Hafrannsóknastofhun og Veiðaeftirlitið: Mætti hugsa sér aukin völd útgerðar og sjómanna - segir Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins „EG SÉ ekkert því til fyrirstöðu að veiðaeftirlitið lúti sameig-in- legri stjórn útgerðar, sjómanna og sjávarútvegsráðuneytis. Eg minni jafhframt á að sjávarút- vegurinn tilnefnir í dag meiri- hluta stjómar Hafrannsókna- stofnunar. Til viðbótar því mætti hugsa sér að ráðgjafar- nefnd sto&iunarinnar fengi meiri völd og væri tilnefnd í meira mæli af þeim, sem borga brúsann, en í dag skipar ráð- herra alla 15 nefiidarmennina,“ segir Friðrik Sophusson, vara- formaður Sjálfstæðisflokksins. Friðrik hefur lagt til að hand- hafar veiðileyfa greiði kostnaðinn við veiðaeftirlit og fiskirannsókn- ir. Morgunblaðið innti hann því álits á því hvort þessum aðilum bæru þá jafnframt aukin áhrif á stjómun eftirlits og rannsókna eins og komið_ hefur fram hjá Hagfræðingi LÍÚ, Sveini Hirtir Hjartarsyni. „Ég er sammála Sveini Hirti Hjartsyni, hagfræð- ingi LÍÚ um,að það verði að tryggja afkomu útgerðarinnar betur en gert hefur verið,“ sagði Friðrik. „Eg minni á í því sam- bandi, að þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins hefur nýlega samþykkt að gengi krónunnar verði skráð meira en nú er í samræmi við framboð og eftirspurn, gjaldeyris- verzlun verði fijáls og fiskverð ákvarðist án atbeina ríkisvaldsins. Þetta hlýtur að tryggja vel rekn- um fyrirtækjum eðlilegan rekstr- argrundvöll. Málamiðlunartillaga mín geng- ur ekki út á sölu veiðileyfa heldur aðeins það, að handhafar veiði- leyfa greiði kostnaðinn við veiða- eftirlit og rannsóknir á fiskistofn- um enda fái þeir hlutdeild í afla til 10 ára. Þetta er ekki skattur, heldur greiðsla fyrir kostnað sem skattgreiðendur standa straum af nú. Eg varpaði einnig fram þeirri hugmynd að handhafar veiðileyfa fái aðild að ákvörðunum sem varða eftirlit með veiðum og rann- sóknir á fiskistofnum enda hafa þeir þeirra hagsmuna að gæta, að fjármunum sé vel varið og nauðsynlegt er að góður skilning- ur ríki milli útgerðar, veiðaeftir- litsmanna og fiskifræðjnga. Mér finnst því eðlilegt að LÍÚ og sjó- mannasamtökin taki aukinn þátt í mótun eftirlitsreglnanna og rannsóknarstefnunnar og eigi að- ild að stjóm þessara mál. Eg sé ekkert því til fyrirstöðu að veiða- eftirlitið lúti sameiginlegri stjóm útgerðar, sjómanna og sjávarút- vegsráðuneytis. Eg minni jafn- framt á að sjávarútvegurinn tiln- efnir í dag meiríhluta stjórnar Hafrannsóknastofnunar. Til við- bótar því mætti hugsa sér að ráð- gjafarnefnd stofnunarinnar fengi meiri völd og væri tilnefnd í meira mæli af þeim, sem borga brúsann, en í dag skipar ráðherra alla 15 nefndarmennina. Ég treysti full- trúum sjávarútvegsins fyllilega til að bera ábyrgð á þessum málum. Enginn hefur meiri hagsmuna að gæta en þeir og þeir hafa sýnt skilning á því að takmarka sókn- ina í samræmi við afrakstursgetu fiskistofnanna. Aðalatriði málsins að mínu áliti er, að rekstrarafkoma útgerðar og vinnslu sé í lagi, fiskveiðistefn- an sé mörkuð til langs tíma og kostnaðurinn við kerfið greiðist af þeim, sem fá veiðileyfin í sínar hendur,“ segir Friðrik Sophusson. Auðlindaskattur er út í hött - segir Matthías Bjarnason, alþingismaður „MÉR líst vægast sagt bölvanlega á hugmyndir um aukna skatt- heimtu á sjávarútveginn, hvort sem það er í formi veiðileyfasölu eða auðlindaskatts. Sjávarútvegurinn borgar sína skatta eins og aðrir nú og skattheimta umfram það, auðlindaskattur, er út í hött, einkum með tilliti til erfiðleikanna, sem við er að etja nú,“ sagði Matthías Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Vest- fjarðakjördæmi í samtali við Morgunblaðið. Matthías sagði, að skattur af hveijar tekjumar væru. Með hlið- þessu tagi legðist fyrst og fremst á þá staði á landsbyggðinni, sem stæðu undir atvinnu með útgerð og fiskvinnslu. Staða þessara at- vinnugreina gæfi fyrst og fremst tilefni til lagfæringar á rekstrar- skilyrðum, ekki skattheimtu. Líta yrði á það hver framleiðslukostn- aður sjávarafurðanna væri og sjón af þeirri niðurstöðu þyrfti síðan að skrá gengið til að dæmið gengi upp. Hann sæi að bæði for- sætisráðherra og sjávarútvegs- ráðherra væm því hlynntir og hefði svo mátt vera fyrr. Fleiri aðilar hefðu mátt gera sér grein fyrir þessu og hver einasti maður hlyti að geta séð að fastgengis- stefna í bullandi verðbólgu væri rugl. „Þessi boðskapur manna um veiðileyfasölu og auðlindaskatt er ekki beinlínis sólargeisli í því svartnætti sem grúfir yfir afkomu útflutningsgreinanna. Mínir dag- ar fara nú í að hlusta á raunasög- ur aðila í sjávarútvegi, sem em að missa allt sitt vegna hinnar vonlausu rekstrarstöðu, sem þeim er ætlað að'lifa við. Svo vilja sum- ir auka skattheimtuna á þessa atvinnugrein," sagði Matthías Bjamason. Sjávarútvegsráðherra andvígur auðlindaskatti: Veiðileyfagjald standi undir kostnaði við veiðieftirlitið Hafrannsóknir verði áfram kostaðar af almannafé „NÚ ER tekið gjald fyrir öll veiðileyfi og rennur það til veiðieftirlitsins. Gjaldskráin er reyndar orðin of lág og úrelt, enda hefur umfang eftirlitsins vaxið verulega með kvótakerf- inu. Eg tel að gjaldtaka fyrir veiðileyfi eigi að standa undir kostnaði við eftirlitið, því gott eftirlit er allra hagur. Hafrann- sóknir eru grundvallarrann- sóknir, sem snerta hagsmuni allrar þjóðarinnar og því tel ég eðlilegft að fé til þeirra sé tekið úr sameiginlegum sjóðum og sjálfstæði Hafrannsókna- stofnunar verði ekki rýrt. Þá þykir mér umræða um auð- lindaskatt fúrðuleg með tilliti til bágrar stöðu sjávarútvegs- ins, hvað sem framtíðin kann að bera í skauti sínu,“ sagði sjávarútvegsráðherra, Halldór Asgrímsson, í samtali við Morgunblaðið. Halldór sagði, að gjaldskrá fyr- ir veiðileyfi væri orðin úrelt og dygði því ekki fyrir kostnaði við veiðieftirlitið. Sér fyndist hins vegar eðlilegt að gjaldtakan sam- svaraði þessum kostnaði og bezt væri að hægt yrði að auka eftirlit- ið enn frekar. A sínum tíma hefði komi fram á Alþingi tillaga sem fól í sér heimild til ráðherra til að innheimta gjald vegna veiðieft- irlits og hefði þá fyrst og fremst verið hugsað um eftirlit með sjó- frystingunni. Sú tillaga hefði því miður ekki náð fram að ganga. Sjávarútvegsráðherra sagði mikilvægt að sjálfstæði Hafrann- Ósanngjamt að útg*erðin greiði allan kostnaðinn - segir forstjóri Hafrannsóknastoftiunar Jakob Jakobsson „Hafrannsóknastofnun líður önn fyrir fjárskort og því má segja að sama sé hvaðan gott komi. Hins vegar finnst mér ósanngjarnt að útgerðin greiði allan rekstrarkostnað stofnun- arinnar, þar sem hún vinnur að ýmsum grunnrannsóknum í þágu þjóðarinnar allrar. Eðli- legast finnst mér að stofnun verði áfram rekin fyrir al- mannafé, en sjávarútvegurinn geti kostað ákveðin verkefni, sem hann telur brýnt að við vinnum o'g eru utan Qárhags- getu okkar," sagði Jakob Jak- obsson, forstjóri Hafrannsókn- astonfunar, í samtali við Morg- unblaðið. Jakob sagðist í mörg ár hafa reifað þá hugmynd sína, að sjáv- arútvegurinn kæmi á fót sérstök- um rannsóknarsjóði. Hlutverk hans yrði að veita fé til þeirra rannsókna, er taldar væru brýn- astar hveiju sinni, en væru ekki á áætlun Hafrannsóknastofnunar. Sem dæmi um það mætti til dæm- is nefna mögulega loðnuleit eða aðrar sérstakar rannsóknir. Jakob benti á að reyndar kostaði LÍÚ að mestu leyti eitt rannsóknar- verkefni, sem unnið væri af stofn- uninni, en það fælist í úrvinnslu aflaskýrslna frá bátaflotanum. Rannsóknasjóðir á vegum at- vinnuveganna væru engin ný- lunda því aðrar atvinnugreinar hefðu slíka sjóði og til dæmis mætti þar nefna Iðnþróunarsjóð. sóknastofnunar yrði ekki rýrt því hlutverk hennar væri hlutlaus ráðgjöf, sem snerti hagsmuni allr- ar þjóðarinnar. Hann væri því þeirrar skoðunar að hafrannsókn- ir yrðu áfram kostaðar af al- mannafé. Hins vegar væri rétt að benda á, að samkvæmt lögum um Hafrannsóknastofnun væri í tengslum við hana starfandi nefnd, meðal annars skipuð full- trúum helztu hagsmunaaðila. Þar væru ýmis mál tengd stjórnun stofnunarinnar rædd og þar gætu menn haft áhrif á gang mála. Loks mætti benda á sívaxandi samstarf stofnunarinnar við út- gerðarmenn og sjómenn. Ráðherrann sagði einnig, að sér fyndist umræða um auðlinda- skatt furðuleg um þessar mundir. Afkoma fyrirtækja í sjávarútvegi gæfi síður en svo tilefni til auk- innar skattheimtu. Hvað framtíð- in bæri í skauti sér vissu menn auðvitað ekki, en hann væri fylgj- andi auknu vægi sveiflujöfnunar- sjóða eins og til dæmis Verðjöfn- unarsjóðs fískiðnaðarins. Nauð- synlegt væri að leggja fé til hlið- ar í góðærum og haga gengis- skráningu í samræmi við það og eiga svo eitthvað í handraðanum, er harðnaði á dalnum. I þessu tilfelli mætti hugsa sér breytta starfsemi Verðjöfnunarsjóðins. Nú væru greiðslur í hann teknar af fullunnum afurðum til útflutn- ings, en til greina kæmi að miða við afla upp úr sjó. „Ég óttast, að geri menn sér ekki grein fyrir mikilvægi sveiflujöfnunarsjóð- anna og leggi þá jafnvel niður, sé líklegra að auðlindaskattur verði ofan á tii að jafna út afla- toppana,“ sagði Halldór Ásgríms- son. Fulltrúar á Allsherjar- þingið til- neftidir FULLTRÚAR Alþingis á Alls- herjarþing Sameinuðu þjóðanna hafa nú flestir verið tilnefhdir. Munu tveir hópar þingmanna sækja allshetjarþingið, sá fyrri á tímabilinu 13. október til 3. nóv- ember og sá síðari frá 3. nóvem- ber til 24. nóvember. í fyrri hópnum verða þingmenn- irnir Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, Sjálfstæðisflokki, Jón Kristj- ánsson, Framsóknarflokki, og Margrét Frímanssdóttir, Alþýðu- bandalagi. í síðari hópnum verða þau Þórhildur Þorleifsdóttir, Kvennalista, Rannveig Guðmunds- dóttir, Alþýðuflokki auk fulltrúa Borgaraflokks sem ekki er enn ljóst hver verður. Bókaklúbbur AB: Afmælis- veislaá 15 ára afinælinu FÖSTUDAGINN 29. september mun elsti bókaklúbbur landsins, Bókaklúbbur AB, halda hátíðlegt 15 ára afinæli sitt í Austurstræti 18. Veislan hefst stundvíslega klukkan 14 í göngugötunni. Hornaflokkur Kópavogs mun leika, ung ljóðskáld munu lesa úr verkum sínum, borin verður fram risa afmælisterta og síðast en ekki síst mun heilbrigðisráðherra fyrir hönd sjúkrahúsa og hjúkrunar- heimila landsins taka við bókagjöf frá klúbbnum að verðmæti vel á þriðju milljón króna. Allir félagar og velunnarar Bóka- klúbbs AB eru velkomnir í veisluna. (Fréttatilkynning) Ungt sjálfstæðisfólk í Reykjaneskjördæmi: Jöftiun at- kvæðisrétt- ar krafist STJÓRN Kjördæmasamtaka ungra sjálfstæðismanna í Reykja- neskjördæmi hefúr sent frá sér eftirfarandi ályktun. „Ungt' Sjálfstæðisfólk í Reykja- neskjördæmi krefst þess að jöfnun atkvæðisréttar verði þegar komið á. Þrátt fyrir nýlegar breytingar á kosningalögum er misvægi at- kvæða enn margfalt, en þar sem atkvæðisrétturinn er hornsteinn lýðræðisins og í senn grundvallar- mannréttindi verður ekki unað við slíkan ójöfnuð. Öllum rökum um að aðstöðumunur milli dreifbýlis og þéttbýlis réttlæti skerðingu lýðrétt- inda er hafnað, enda verður at- kvæðsréttur fólks ekki metinn til Qár.“ Ný stjarna hefur útsend- ingar í dag ÚTSENDINGAR nýju útvarps- stöðvar íslenzka útvarpsfélags- ins heQast í dag kl. 10 árdegis. Stöðinni hefiir verið valið nafnið „Ný stjarna fm 102“. I fréttatilkynningu frá dag- skrártjóm útvarpsstöðvarinnar seg- ir að áhersla verði sérstaklega lögð á nýja og ferska tónlist sem höfða eigi tii hlustenda á aldrinum 15-25 ára.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.