Morgunblaðið - 28.09.1989, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1989
Ungverjaland:
Ný lög auðvelda
fólksflutninga
Búdapest. Reuter.
Ungverska þingið samþykkti í
fyrradag lög, sem auðvelda burt-
fluttum Ungverjum að setjast aft-
ur að í landinu. Að flytjast frá
landinu er þó enn miklum tak-
mörkunum háð og yfirleitt ekki
leyft nema um sé að ræða að sam-
eina sundraðar fjölskyldur.
Með lögunum voru afnumin
ákvæði um, að burtfiuttir Ungveijar,
sem vilja snúa aftur heim, verði að
afsala sér öðrum borgararéttindum
en ungverskum og yfirfæra allar eig-
ur sínar í ungverskan gjaldmiðil.
Eiga lögin að taka gildi um áramót
og ryðja þar með úr vegi síðustu
hindruninni fyrir, að Ungverjar njóti
bestu kjara í viðskiptum sínum við
Bandaríkin.
Áætlað er, að 200.000 Ungveijar
hafi flúið iand eftir að Sovétmenn
bældu niður uppreisnina 1956 og
síðan hafa margir þeirra verið á
svörtum lista, sem bannar þeim jafn-
vel að koma til landsins sem ferða-
menn. Þeir eru þó ófáir, sem vilja
setjast aftur að í sínu gamla landi,
af tilfinningalegum ástæðum eða til
að geta lifað betur af eftirlaununum
í ódýru landi.
GARÐASTAL
Afgreitt eftir máli.
Allir fylgihlutir.
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000
Fræðcmdi,
skemmtileg
og hagnýt
ensku-
námskeið
VIÐSKIPTAEN SKA
Námskeið hefjast 12 október. Lengd 45 tímar.
ENSK VERSLUNARBRÉF
Námskeið hefjast 12. október. Lengd 20 tímar.
EINKAN ÁMSKEIÐ
Námskeið hefjast í byrjun október. Þú ákveður tímann.
SAMTALSNÁMSKEIÐ
Námskeið hefjast 9. október. Lengd 30 tímar.
ENSKULEIKNII og II
Námskeið hefjast 9. október. Lengd hvors námskeiðs
72 tímar.
Innritun stendur yfir.
5^r5 Málaskólirm
BORGARTÚNI 2 4, SÍMI 62 66 55
Reuter
Mannskætt bílslys íBangladesh
Fimmtíu manns að minnsta kosti fórust og fjör- sl. sunnudag. Var bifreiðin yfirfiill af fólki. Hér
utíu slösuðust þegar langferðabifreið fór fram eru kafarar að leita að látnu fólki í bílnum, sem
af brú norður af Dhaka, höfuðborg Bangladesh, er að mestu á kafi í fljótinu.
Hvalveiðimótmæli biðu ferðamanna
ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
HVALVEIÐIMÓTMÆLI biðu
japanskra ferðamanna í sviss-
nesku Ölpunum á dögunnm.
Grænfriðungar strengdu 50
metra langan borða yfír jökul
ofan við Jungfraujoch, sem er
einn vinsælasti viðkomustaður
Japana í Sviss, og hvöttu þá til
að hætta hvalveiðum. „Fólk frá
Japan, hættið að drepa hvali“
stóð á ensku á borðanum. Upp-
blásni hvalurinn Fló var einnig
á fjallinu en það er 3.500 metra
hátt.
Grænfriðungar dreifðu miðum
þ'ar sem þeir skora á Japani að
þrýsta á stjórnvöld og hvetja þau
til að banna hvalveiðar. Japanir
hyggjast veiða 400 hvali í vísinda-
skyni við Suðurheimskautið í vet-
ur. Umhverfissinnar segja að
vísindaveiðarnar séu fyrirsláttur
til að veiða hvalkjöt ofan í jap-
anska sælkera og stofni hvala-
stofninum í hættu. ‘
Tillaga Sovétmanna um fækkun
stýriflauga á og í höfimum:
Gert ráð fyrir viðræðum
um vígbúnað og flotaumsvif
BANDARÍKJASTJÓRN kveðst vera tilbúin til að skoða nýjustu
afvopnunartillögur Sovétmanna vandlega en ítrekar jafhframt þá
fyrirvara sem kynntir hafa verið í viðræðum risaveldanna. Ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, James Baker, og fleiri embættis-
menn og sérfræðingar á þessum vettvangi segja að fiindur ut-
anríkisráðherra risaveldanna í Bandaríkjunum um siðustu helgi
hafi m.a. skilað árangri á öUum sviðum afvopnunarmála. Merk-
ustu niðurstöður fundarins þykja þær að Sovétmenn hafa fallið
frá því skilyrði að samningur um fækkun langdrægra kjarnorku-
vopna kveði jafiiframt á um bann við uppsetningu vamarkerfa
gegn slíkum vopnum í geimnum. Þá kveðast Sovétmenn nú reiðu-
búnir til að undirrita samning um fækkun langdrægra gereyðing-
arvopna án þess að sá sáttmáli feli í sér ákvæði um fækkun stýri-
flauga í skipum og kafbátum.
Talsmaður bandaríska utanrík-
isráðuneytisins sagði í samtali við
Morgunblaðið að tillaga Sovét-
manna gerði ekki ráð fyrir því að
fækkun stýriflauga í skipum og
kafbátum yrði rædd í sérstökum
viðræðum. Hugmyndin væri sú
að fækkun þessara vopna yrði
tekin til umfjöllunar „í víðtækara
samhengi" í viðræðum um hem-
aðarumsvif og vígbúnað á og í
höfunum. Kvað talsmaðurinn
þetta hafa komið skýrt fram í
sameiginlegri ályktun utanríkis-
ráðherranna, þeirra Bakers og
Edúards Shevardnadze, sem birt
var er fundi þeirra lauk í Wyom-
ing-ríki. Bandaríkjamenn hefðu
lýst sig reiðubúna til að skoða
þessa tillögu en jafnframt lagt
áherslu á þeir efuðust um að unnt
yrði að skilgreina fullnægjandi
ákvæði um eftirlit, ætti að fækka
stýriflaugum um borð í skipum
og kafbátum. Kvað talsmaðurinn
Bandaríkjamenn og hafa bent á
að það hefði löngum verið skoðun
stjómvalda í Washington að taka
þyrfti á margvíslegum og flóknum
vandamálum áður en unnt yrði
að hefja viðræður um afvopnun í
höfunum.
Auk geimvarnaráætlunar
Bandaríkjastjórnar hefur fækkun
stýriflauga verið einn helsti
ásteytingarsteinninn í viðræðum
risaveldanna um fækkun lang-
drægra kjarnorkuvopna sem jafn-
an em nefndar START-viðræð-
urnar. Risaveldin greinir einkum
á um hvernig sannreyna megi að
gerðir samningar um fækkun
þessara vopna séu haldnir. Banda-
ríkjamenn telja að ekki hafi verið
sýnt fram á að eftirlit með stýri-
flaugum í skipum og kafbátum
sé mögulegt. Þá er þess að geta
að stefna Bandaríkjastjórnar er
sú að játa hvorki né neita tilvist
kjamorkuvopna um borð í skipum
og kafbátum. Hefur því verið
haldið fram að eftirlit með þessum
vopnabúnaði myndi grafa undan
trúverðugleika fælingarkenning-
arinnar þar sem óhjákvæmilegt
yrði að skýra frá staðsetningu
skipa og kafbáta með kjamorku-
vopn innanborðs. Sovétstjómin
telur hins vegar að unnt verði að
sannreyna að gerðir samningar
séu haldnir en hugmyndir þeirra
á þessum vettvangi hafa vakið
takmarkaða hrifningu í herbúðum
Bandaríkjamanna. Þá flækir það
málið enn frekar að stýriflaugar
geta bæði borið hefðbundnar
sprengjuhleðslur og kjamahleðsl-
ur.
Tillaga Sovétstjómarinnar hef-
ur hlotið fremur jákvæðar undir-
tektir. Brent Scowcroft, öryggis-
málaráðgjafi George Bush Banda-
ríkjaforseta, sagði í samtali við
fréttamenn á sunnudag að hann
teldi þetta „mikilvægt skref“.
Kvað hann þetta ágreiningsefni
sérlega erfitt viðureignar og til-
greindi sérstaklega eftirlitsþætti
hugsanlegs sáttmála. Nú hefðu
Sovétmenn hins vegar lýst sig
reiðubúna til að undanskilja stýri-
flaugar í START-viðræðunum og
hefðu líkindin fyrir því að unnt
reyndist að semja um fækkun
langdrægra kjarnorkuvopna því
aukist.
I