Morgunblaðið - 28.09.1989, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1989
23
Indland:
Bofors-málið getur
orðið Gandhi að falli
RÍKISSTJÓRN Indlands undirritaði samning við sænsku vopna-
framleiðendurna Bofors snemma árs 1986 um kaup á sprengju-
vörpum og fallbyssum fyrir 1,4 miljarð bandaríkjadala, and-
virði tæpra 87 miljarða ísl. króna. Rajiv Gandhi, forsætisráð-
herra landsins, gerði sér á þeim tíma litla grein fyrir því að
þessi kaup kynnu að kalla ósigur yfir hann og Kongress-flokk-
inn í þingkosningunum sem hann verður að boða til fyrir lok
þessa árs.
Allt frá 1987, eða einu ári
eftir að kaupin fóru fram, hefur
sá orðrómur verið á kreiki að
yfirmenn Bofors-verksmiðjunnar
hafi greitt indverskum milliliðum
gríðarlegar íjárhæðir til að
greiða fyrir því að samningar
tækjust. Þegar fram liðu stundir
veltu menn vöngum yfir því að
hefði Gandhi sjálfur ekki þegið
mútur hlyti hann að hafa vitað
að milliliðir gerðu það.
Krishnaswami Sundaiji hers-
höfðingi var yfirmaður indverska
herráðsins 1986 og mælti hann
með því að vopnin frá Bofors
yrðu keypt. Nú hefur hann lýst
því yfir í viðtali við tímaritið
India Today að hann hafi ein-
dregið ráðlagt ríkisstjórninni að
hóta yfirmönnum Bofors að
samningnum yrði rift upplýstu
þeir stjórnvöld ekki um nöfn
milliliða sinna. Hann sagði að
embættismenn í forsætisráðu-
neytinu hefðu látið ráðleggingar
sínar sem vind um eyrun þjóta.
Þetta gengur þvert á fyrri
yfirlýsingar Gandhis að hann
hafi hugsað sér að rifta samn-
ingnum við Bofors en það hafi
mætt mikilli andstöðu frá yfir-
mönnum hersins.
Það hefur vakið óhug á meðal
Indveija að yfirmenn Bofors-
verksmiðjunnar voru reiðubúnir
til að greiða milliliðum sínum
allt að 14% af heildarupphæð
samningsins við indversk stjórn-
völd. Nú telja margir næsta víst
að háar mútugreiðslur hafí fylgt
næstum öllum meiriháttar samn-
ingum indverskra stjómvalda við
erlend fyrirtæki og þeir peningar
hafi runnið í fjárhirslur Kon-
gress-flokksins.
Svo kann að fara að Kon-
gress-flokkurinn tapi gríðarlegu
fylgi í næstu kosningum vegna
Bofors-málsins. Vishwanath
Pratap Singh, fyrrum fjármála-
og vamarmálaráðherra Gandhis,
er nú leiðtogi Alþýðufylkingar-
innar, samtaka stjórnarandstæð-
inga. Hann var látinn víkja úr
ríkisstjóminni og Kongress-
flokknum 1987 fyrir þær sakir
að fyrirskipa rannsókn á meint-
um mútugreiðslum frá vestur-
þýskri kafbátasmíðastöð og
ólöglegum bankareikningum
Indveija erlendis. Singh hefur
tilkynnt að verði hann næsti for-
sætisráðherra landsins muni
hann birta opinberlega alla
veigamikla samninga sem ind-
verska ríkisstjórnin hefur staðið
að.
Heimild: The Economist
Bíræfinn
bókaþjófur
Adeilaide, Ástralíu. Reuter.
UPP hefur komist um bíræfin
bókaþjóf sem stundaði hnupl í
bókabúðum í Ástralíu. Við hús-
leit heima hjá honum fimdust
12 tonn af bókum sem hann
hafði tekið ófijálsri hendi.
Bókaþjófurinn heitir Kenneth
Sach og er hann 59 ára. Var hann
staðinn að verki í bókabúð í Ade-
leide í Ástralíu á dögunum með.
bækur innan klæða. Gerð var hús-
leit heima hjá káuða eftir hand-
tökuna og rak lögreglumenn þá í
rogastans. Þar fannst afrakstur
ránsferða undanfarin ár. Hvorki
meira né minna en 12 tonn af
bókum fundust í íbúðinni. Náðu
staflarnir til lofts og fylltu þeir
flest herbergi hennar. Lagði lög-
reglan hald á bækurnar og flutti
þær burt. Voru það nokkrir
bílfarmar. Verðmæti ránsfengsins
miðað við söluverð bókanna var
390 þúsund Bandaríkjadalir eða
jafnvirði 24 milljónir ísl. króna.
Success
GUARANTEED ^ gr*
PERFECTIN Wl rl&M
15 MINUTES
Brown&VJild R ice
FlívptfJ Brean & WHd Rke »nt fi MtcsArójm*
Bráðskemmtilegur hnetu-
keimurersérkenniþessa
hrísgrjónaréttar. Blanda af
villi- og brúnum hrísgrjónum
með ekta sveppabitum og
ferskri kryddblöndu. Bragð-
gott meðlæti með öllum mat.
Fyrir 4 - suðutimi 15 mín.
Heildsölubirgðir:
KARL K. KARLSSONaCO.
Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32
fólks í öllum
starfsgreinum!
Jonekm jt
RWSTIBJLIE JUNCKERS
UBMJLUSðlCt tr. iBffXMTv irwsyiW'TilTtjSfMTfrS’llF'1*
JUNCKEHS
pro&iMar
Blitsa gólf og þiljulökk
Parket getur haldist fallegt í heilan mannsaldur ef
vel er hugsad um þad. „Þreytt“ gólf er gjarnan
hægt að hressa upp á með Junckers Blitsa lakki.
Gegnheila Junckers parketið er framleitt full-
lakkað eða olíugrunnað. Til þess einmitt að tryggja
að yfirborðið geti orðið eins sterkt og mögulegt er,
hafa þeir hjá Junekers þróað eigin lökk og olíu
fyrir parket. Nú er hægt að velja á milli ótal
lakkgerða, t.d. fljótharðnandi 2-þátta lakka og
vatnsþynnanlegra lakka, auk sápulúts og olíu til
að grunna og fullvinna viðinn.
Junckers parketið er lakkað með 2-þátta lakki sem
tryggir því sérlega mikið slitþol. Þessu slitþoli er
hest viðhaldið með áframhaldandi notkun á Blitsa.
Söluaðilar eru tilbúnir til aó veita upplýsingar og
ráð- eða þú getur einfaldlega beðið um Junekers
lakkleiðarvísinn.
ÁRMÚLA 8, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 82111
Interieriaklll
vandbaseret
Junckers
Vandbaseret
BLITSA 222
Junckers
ISOBLITSA
waief-bas^