Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUlt 28. SEPTEMBER 1989 2S Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson Aðilar frá björgunarsveitunum Oki, Heiðum, Hjálpinni og Brák svo og Hjálparsveit skáta á Akranesi tóku þátt í uppsetningu endurvarj)- ans undir stjórn Þórs Magnússonar erindreka Slysavamafélags Is- lands. Reykholtsdalur: Endurvarpi settur upp á Heiðarhorni Sólbyrgi. FIMMTUDAGINN 21.september var spáð góðu og björtu veðri, þá var upplagt að kalla svæðis- stjórn á svæði 4 út til að koma fyrir endurvarpa á Heiðarhorni í Skarðsheiði. Landinu er skipt í nokkur leitar- og björgunarsvæði og er svæði 4 á Vesturlandi. Borgarfjarðardalir eru erfitt svæði fyrir VHS-talstövð- ar sem notaðar eru í leitum eins skiptir Skarðsheiðin svæðinu. Við komu endurvarpans á Heiðarhomi gjörbreytast allar aðstæður til fjar- skipta á svæðinu og öryggi við leit- arstjómun. Endurvarpinn er knú- inn af sólarorku. Aðilar frá björgunarsveitunum Oki, Heiðum, Hjálpinni og Brák svo og Hjálparsveit skáta á Akranesi tóku þátt í uppsetningu endurvarp- ans undir sljóm Þórs Magnússonar erindreka Slysavamafélags ís- lands. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GRO flutti allan búnað upp á Heiðarhornið og kann svæðisstjórn Landhelgisgæslunni og Benóný Ásgrímssyni flugstjóra bestu þakk- ir. - Bernhard Námskeið í kristallaheilun NÁNDAR- og næmniþjónustan heldur námskeið í heilun með kristöllum, sunnudaginn 1. októ- ber klukkan 13-20 í héilsurækt- arstöðinni World Class, Skeif- unni 19. Leiðbeinandi er Leifur Leópolds- son miðill. Farið verður yfir undir- stöðuatriðin í notkun steina og kristalla. Kynningarkvöld verður haldið á morgun, föstudagskvöld, á veitingastaðnum „Á næstu grös- um“. ítalskir dagar í Kringlunni ÍTALSKIR dagar verða í Kringl- unni frá deginum í dag, 28. sept- ember, til 7. október. Kynntar verða ítalskar vörur og matur og Ítalíuferðir. ítalskir lista- menn koma fram. Veitingahús í Kringlunni bjóða upp á ítalskan mat. Þá verður boð- ið upp á spumingaleik þar sem ítal- íuferðir eru í vinning. Ýmis skemmtiatriði verða í Kringlunni í tenglsum við hina ítölsku daga, meðal annars skemmtir ítölsk hljomsveit. Frumkvæði að Ítalíukynning- unni eiga ferðamálaráð og útflutn- ingsráð Ítalíu og Ragnar Borg, aðalræðismaður Itala hér, í sam- starfi við Kringluna. Bókaskrá um ættfræðirit ÚT ER komin fjórða söluskrá Ættfræðiþjónustúnnar um bækur og hjálpargögn í ætt- fræði. í skránni eru nálega 120 ættfræðiverk, og mun þetta stærsta söluskrá, sem út hefúr komið um ættartöhir, niðjatöl, æviskrárrit, manntöl, byggða- sögur og önnur heimildarrit um ættir íslendinga. Hægt er að fá bókaskrána heimsenda án endurgjalds frá Ættfræðiþjónustunni, Sólvalla- götu 32A, Reykjavík. Þá er nýútkomið á sama stað verkið Ættir mínar, vinnubók í ættfræði. Þar er að finna upplýs- ingar um ættfræðiheimildir, eyðu- blöð til skráningar á framættum, sem ná til rúmlega 600 forfeðra, ásamt leiðbeiningum um skipu- lega skráningu ættartölunnar. (Fréttatilkynning) Orgeltónleikar í Kristskirkju ÞÝSKI org- elleikarinn, prófessor Almut Rössl- er, sem hér er stödd í boði Musica Nova, Goet- he Institut og Listvina- félags Hallgríms- kirkju, held- ur tónleika í Kristskirkju föstu- dagskvöldið 29. september klukkan 20.20. Á efrusskránni eru orgelverk eftir Olivier Mess- iaen, Diether de la Motte og Jiirg Baur. Almut Rössler hefur haldið tón- leika í flestum löndum Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada og Japan. Hún hefur hlotið margvíslega við- urkenningu og setið í dómnefndum alþjóðlegra orgelkeppna. Hún þykir einn fremsti túlkandi orgelverka franska tónskáldsins Oliviers Mess- iaen og hefur leikið öll orgelverk hans inn á hljómplötur. Tónskáldið valdi hana til að frumflytja nýjasta orgelverk sitt, „Livre du Saint Sacrament" eða „Bókina um heil- agt sakramenti" sem samið var árið 1984 og er eitt umfangsmesta orgelverk allra tíma. Þetta er í annað sinn sem Rössl- er sækir ísland heim því árið 1979 var hún leiðbeinandi á Messiaen- námskeiði á vegum Tónlistarskól- ans í Reykjavík og helt þá þrenna tónleika hér. Fréttatilkynning Sýning Erlu að ljúka SÝNING Erlu Þórarinsdóttur í austursal Kjarvalsstaða lýkur næstkomandi sunnudag. Erla lauk námi frá Konstfack- skólanum í Stokkhólmi 1981 og hefur síðan unnið og starfað að myndlist í Svíþjóð, New York og hér heima. Hún hefur haldið einka- sýningar í Reykjavík, Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og New York og tekið þátt í fjölda samsýninga. Á Kjarvalsstöðum eru til sýnis olíumyndir unnar á striga og á tré. Þetta eru myndaraðir sem kallast „seglin", „landið" og „farangur- inn“. Myndirnar eiga upptök sín hérlendis og í loftinu umhverfis landið. Sýningin er opin frá klukkan Fundur hjá málfræðingum ÍSLENSKA málfræðifélagið efn- ir til almenns fundar í dag, fimmtudaginn 28. september, klukkan 17.15 í stofú 422 í Árna- garði. Fyrirlesari verður Helge Sandoy, háskólakennari frá Björgvinv Fyrir- lesturinn nefnist Tendensar i ut- vikling af norsk talemal og verður fluttur á norsku. Danshöllin: Waterend Jazz- men skemmtir á djass- og dixí- landhátíð ÞÝSKA djass- og dixíland-hljóm- sveitin Waterend Jazzmen skemmtir á djass- og dixíland- hátið í Danshöllinni Brautarholti 20 föstudaginn 29. og laugardag- inn 30. september næstkomandi. Á hátíðinni mun Waterend Jazz- men koma fram á annarri hæð Danshallarinnar en aðrar hljóm- sveitir skemmta á hinum hæðunum þremur, segir í fréttatilkynningu. 11-22. (Fréttatílkynning.) Morgunblaðið/Gerolf Schmidt Hljómsveitin Waterend Jazzmen spilar á djass- og dixfland-hátíð í DanshöIIinni á föstudag og laugardag. Áfengi hættulegra en kjamorka - segir sænski kjarnorkufræðingurinn Lars Persson MORGUNBLAÐINU hefúr borizt fréttatilkynning frá Áfengisvarna- ráði. Þar er vitnað í viðtal við sænska kjarnorkufræðinginn Lars Persson við blaðið Accent frá því í september. í blaðinu segir hann að áfengi sé hættulegra en kjarnorka. Persson er skrifstofustjóri Geislavarnastofnunar sænska ríkisihs og átti hlut að samningu laga um geislavarnir. Viðtal þetta er reifað í fréttatil- kynningu Áfengisvarnaráðs og þar er eftirfarandi haft eftir Persson: „Áfengi er eiturefni sem er hættu- legt fyrir erfðavísana. Það getur og valdið krabbameini. Áfengis- drykkja er eins og leikur að eldi eða jafngildi þess að láta skeika að sköpuðu um heilsu sína. Engin ákveðin mörk eru til sem sýni hve mikið áfengi sé hættulaust að drekka. Raunar þarf ekki vísinda- menn tii að sjá að áfengi veldur ótímabærum dauða í vinahópi manns. Margir félaga minna eru látnir og nokkrir eru vistaðir á stofnunum vegna drykkju. Ég hef vitað ýmsa starfsbræður mína er- lendis eiga við alvarlega drykkju- vandamál að stríða. Slíkt veldur mér ugg. Kjarnorka hefur ekki drepið Fiskverð á uppboðsmörkuðum 27. september. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 63,00 59,00 60,15 6,634 399.020 Ýsa 100,00 100,00 100,00 3,465 346.500 Karfi 42,00 33,00 41,18 0,265 10.914 Ufsi 40,50 37,00 40,19 11,902 478.387 Hlýri+steinb. 70,00 70,00 70,00 0,450 31.500 Langa 40,00 40,00 40,00 0,261 10.440 Lúöa(stór) - 210,00 190,00 201,63 0,646 130.250 Lúöa(smá) 230,00 230,00 230,00 0,048 11.040 Keila 24,00 24,00 24,00 0,036 864 Skötuselur 170,00 170,00 170,00 0,151 25.670 Samtals 60,55 23,858 1.444.585 Selt var meðal annars úr Breka VE. I dag verða meðal annars seld 10 tonn af þorski, 4 tonn af ýsu, 10 tonn af ufsa og 9 tonn af karfa úr Jóni Baldvinssyni RE og fleirum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 58,50 58,50 58,50 0,078 4.563 Ýsa 128,00 45,00 110,04 2,342 257.714 Steinbítur 44,00 44,00 44,00 0,018 792 Samtals 107,90 2,438 263.069 Selt var úr Haferni GK. í dag verður selt úr dagróðrabátum. neinn mann í Svíþjóð. Afleiðingar Tjemóbyl-slyssins em ekki alvar- legri en sá skaði, sem maður veldur sjálfum sér með að drekka eina vínflösku. Það er sýndarmennska þegar fólk hefur áhyggjur af geisla- virku regni og þorir tæpast að láta böm sín leika sér í sandkassanum en horfir samtímis öldungis ótta- laust á drykkjumenn staupa sig í garðinum við hliðina á leikvellinum. Það má orða það svo að geislavirkn- in í Svíþjóð vegna Tjernóbyl-slyss- ins sé lítið hættuleg en áfengi mjög hættulegt." Ennfremur segir Lars Persson: „Mér virðist augljóst að á áfengis- umbúðum eigi að vera viðvaranir. Á þeim ætti að standa: Skaðlegt heilsu manna. Veldur krabba- Atriði úr myndinni „Draumagengið" sem Laugarásbíó sýnir um þess- ar mundir. Laugarásbíó sýnir: „Draumagengið“ LAUGARÁSBÍÓ hefúr tekið til sýninga myndina „Draumageng- ið“. Með aðalhlutverk fara Michael Keaton og Peter Boyle. Það er „sín ögnin af hveiju“ í hópi sjúklinga á geðhæli, þar sem Weitzman er starfandi læknir, ungur og áhugasamur um heill skjóistæð- inga sinna. Enginn þeirra er hættu- legur umhverfi sínu en hver um sig er „bilaður" á sinn hátt. Björk, Mývatnssveit: Útför Svövu Sigurðardóttur Reykjahlíð og hefur fjölmargt ferðafólk notið þar frábærrar þjón- ustu, að sjálfsögðu var hlutur Svövu mikill í þeirri starfsemi. Svava var ákaflega hjálpsöm og greiðvikin og ávallt gott til hennar að leita, enda var frænda og vina- hópur hennar ijölmennur. ÚTFÖR Svövu Sigurðardóttur var gerð frá Reykjahlíðakirkju mið- vikudaginn 13. september að við- stöddu fjölmenni. Séra Om Friðriksson prófastur á Skútustöðum flutti útfararræðu og jarðsöng. Kirkjukórinn söng, orgel- leikari var Jón Árni Sigfússon. Margrét Bóasdóttir söng einsöng við undirleik Juliet Faulkner, tón- listarkennara við Hafralækjarskóla. Svava Sigurðardóttir fæddist í Reykjahlíð 13. maí 1912. Foreldrar hennar vom Sigurður Einarsson og Jónasína Jónsdóttir. Þau bjuggu í Reykjahlíð á % hluta jarðarinnar, öll sín búskaparár. Jónasína andaðist 1943, en Sig- urður 1954. Síðan hafa börn þeirra búið á þessum jarðarskika. Árið 1947 var reist myndarlegt íbúðarhús sem jafnframt var sum- arhótei. Hafa þau systkinin Guðrún, Svava og Jón Bjartmar, rekið Hótel Svava andaðist á sjúkrahúsinu á Húsavík þann 5. september sl. Kristján.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.